Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1996, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 27. JULI1996
27
Björk á sviði í kjól
íslensks hönnuðar
Rafstöð og rafsuda
• Yanmar dísilvél m/rafstarti
• 3 fasa 4,5 KVA - 6,8 A
• 1 fasa 3,5 KVA - 15,9 A
• 180 Asuða
Verð kr. 320.000 anvsk.
Björg Ingadóttir, hönnuður í
Spaksmannsspjörum, varð óvenju
hrifin þegar hún sá mynd af Björk í
DV núna í vikunni. Söngkonan var
á sviði í Sviss og klæddist kjól sem
Björg hannaði og saumaði.
„Þetta var alveg æðislegt. Ég er
einlægur aðdáandi Bjarkar og þess
vegna var þetta enn stórkostlegra.
Ég var auövitað að vonast til að hún
myndi nota kjólinn og koma fram í
honum opinberlega einhvers stað-
ar,“ segir Björg.
Forsaga málsins er sú að vinkona
Bjarkar var á leið í heimsókn til
hennar og kom áður við í verslun
Bjargar. „Ég var að vinna í þessum
módelum og sá fyrir mér að þetta
væri ekta kjóll fyrir Björk. Ég
ákvað að gefa henni svona kjól og
valdi lit sem ég vissi að væri flottur
á hana. Mig grunaði nú ekki að hún
væri orðin ljóshærð en hann er
engu að síður mjög flottur á henni.
Hún hefur líka verið mikið í ljósum
litum. Björk opnaði pakkann á með-
an vinkonan var hjá henni og var
mjög ánægð með kjólinn. Svo var
maður að vonast til að hún myndi
nota hann og kæmi einhvers staðar
fram opinberlega í honum. Björk
hefur ekkert komið í búðina mína.
Hún hefur náttúrlega engan tíma til
þess. Vonandi á hún bara eftir að
gera það.“
Kjóílinn unninn
úr gömlum lager
Kjóllinn frægi er úr angóraull og
fóðursilki og er hvítur og grár. „Það
sem er líka svolítið skemmtilegt við
þetta er að kjóllinn er unninn úr
gömlum lager Fínullarverksmiðj-
unnar sem ég hef verið að endur-
nýta. Út frá pilsinu kemur risa-
hanki á hliðinni sem maður vefur
um sig og setur yfír öxlina eins og
tösku. Kjóllinn hangir í raun á öxl-
inni á henni og vefst utan um hana.
Mér finnst það í raun bráðfyndið að
þarna var kominn bolur á svið í
Sviss sem búið var að afskrifa sem
Sparifatnaöur á börn sem Björg hefur hannaö.
Björk á tónleikum í Sviss í kjóinum sem Björg hannaöi og gaf henni.
Símamynd Reuter
lager á íslandi."
Björg lærði fatahönnun í Kaup-
mannahöfn og rekur verslunina
Spaksmannsspjarir ásamt Valgeröi
Torfadóttur hönnuði. Síðasta hálfa
árið hefur Björg einnig hannað
útivistarfatnað hjá Max.
Björg og Valgerður hafa rekið
Spaksmannsspjarir í rúm þrjú ár.
„Þetta gengur alltaf betur og betur.
Við höfum fullt af skemmtilegum
viðskiptavinum og fáum margar
fyrirspurnir erlendis frá sem við
höfum ekki getað sinnt. Ferðamenn,
sem koma hingað, hafa tekið með
sér bæklinga frá okkur út og svo
höfum við tekið þátt í sýningum
bæði i Noregi og Þýskalandi. Við
erum bara tvær og höfum ekki get-
að annað eftirspurn erlendis frá.
Helst þyrftum við að komast í út-
flutning því íslendingar eru fáir og
við erum alltaf að selja sama fólk-
inu,“ segir Björg.
Lista- og viðskiptakonur
Það eru helst listakonur og kon-
ur í viðskiptalífinu og í ábyrgðar-
stöðum sem láta hanna á sig fót hjá
Björgu og Valgerði. „Þeim fjölgar
alltaf útivinnandi konunum sem
þurfa að vera finar upp á hvem dag
og vilja láta taka eftir sér. Margar
þurfa að fara oft á ráðstefnur er-
lendis og þykir þá gaman að vera í
íslenskum fatnaði. Við viljum gjam-
an vera með viðskiptavini á sem
flestum aldri. Stærsti hópurinn er
sennilega á aldrinum 30 til 50 ára,“
greinir Björg frá.
Hún segir þær ekki hafa fengið
nein laun í raun í upphafi. En núna
er að verða breyting á.
Auk þess að hanna á fullorðna er
Björg að búa til eins konar þjóðbún-
inga á stelpur og stráka. „Þetta er
alveg nýtt. Ég hugsaði með mér að
þetta væri ágætis spariklæðnaður í
staðinn fyrir matrósaföt og hentar
bæði að sumri og um jól. Sem hönn-
uður á íslandi þarf maður að vera
með puttana í öllu. Það þýðir ekki
að sérhæfa sig í einhverju eins og
títt er erlendis. Þar einbeita sumir
hönnuðir sér bara aö yfirhöfnum,
svo eitthvað sé nefnt.“
-IBS
I
GabrTeíð
Björg Ingadóttir hönnuöur meö angorabol og fóðursilki eins og kjóll Bjarkar er saumaöur úr.
DV-mynd GS
naust
Sími 562 2262
Borgartúni 26, Reykjavík
Bíldshöfða 14, Reykjavík
Skeifunni 5, Reykjavík
Bæjarhrauni 6, Hafnarfiröi