Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1996, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 27. JULI 1996
trimm
£4 K? mJ''
Púttkeppni, þar sem heimilisfólk á Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfiröi og
Grund í Reykjavík og Ási í Hverageröi leiddi saman hesta sína, fór fram fyr-
ir nokkru eins og viö sögöum frá hér á trimmsíöunni. Hér birtum viö myntf
af sigursveit Hrafnistu. F.v. Salvör Á. Siguröardóttir, Eyjólfur Júlíusson,
Víglundur Kristinsson og Sturla Pétursson. Sá síöastnefndi var auk þess
meö lægstan höggafjölda allra keppenda.
VOLVO
S40 D AG A R TIL STEFNU - stattu þig!
Styrktaraðili Reykjavíkurmaraþons
| Sjálfboðaliðar við
Reykjavíkur maraþon
Nú nálgast að fjölmennasta
einstaka keppni í almennings-
;i íþróttum, Reykjavíkur mara-
þon, fari fram en það verður 18.
ágúst nk. Slík keppni verður
| ekki haldin án aðstoðar fjölda
sjálfboðaliða. Þeir sem áhuga
hafa á að leggja málinu lið og
aðstoða eru beðnir að hafa sam-
j band við skrifstofú Reykjavíkur
maraþons í síma 588 3399.
••• fram uitdan •••
SRI Chinmoy hefst 8.
; ágúst kl. 20 við Ráðhús
Reykjavíkur. Vegalengd er
5 km. Verðlaun fyrir fyrstu
í mark. Upplýsingar Sri
Chinmoy- maraþonliðið í
síma 553 9282.
Jöklahlaup USÚ verð
ur 10. ágúst nk. og hefst kl.
11 á Höfn í Hornafirði.
Vegalegndir eru 3 og ,10
i km. Upplýsingar hjá As-
mundi Gíslasyni í síma
478 1550.
.......................
Hreyfing og útivist fólks fer vaxandi um allt land og þá ekki síöur á Akranesi en annars staöar. KKK-trimmhópurinn
á Skaganum var stofnaður 1992 í tilefni 50 ára afmælis kaupstaöarins. Káin þrjú stóöu upphafiega fyrir Kátu kerling-
arnar og karlarnir, þó svo eitthvaö sé fátt um þá síðarnefndu - í þaö minnsta veröur ekki komið auga á þá á mynd-
inni. í byrjun studdi bæjarfélagiö viö starfið en síöan hefur þaö þróast í umsjá félaga og góöra leiöbeinenda. I byrj-
un var þaö Kristinn Reimarsson íþróttakennari en Hallveig Skúladóttir sér nú um þjálfun og leiöbeiningar. Æft er
þrisvar í viku, mánudaga, miövikudaga og föstudaga, kl. 18.30. Byrjaö er á upphitun. Síöan er gengiö og skokkaö
eftir áhuga og getu hvers og eins og aö lokum er teygt og togaö í íþróttahúsi. DV-mynd Valdís
Hrafn, Loki og Skuggi:
Ganga daglega sjö til átta kílómetra
- ferðirnar með hundana orðnar jafn nauðsynlegar og matur og svefn
Að vera með hund á heimilinu
þýðir að hvem einasta dag ársins
verðum við að fara með hann í
gönguferð og það tvisvar á dag,
sagði Hrafn Sigurðsson í viðtali við
DV, en hann er einn þeirra mörgu
borgarbúa sem hafa hunda á heim-
ili sínu og það tvo. „Ég gæti trúað
að daglega gengjum við, ég og
Skuggi og Loki, eina sex til sjö kíló-
metra. Síðan fórum við gjaman eitt-
hvað út fyrir bæinn um helgar og
þá er gengið lengra.
„Mín hreyfmg og útivist tengist
að mestu hundunum," segir Hrafn
en auk þess stundaði hann badmint-
on tvisvar í viku um árabil með fé-
lögum sínum. Skuggi, sem er f]ög-
urra ára, og Loki, þriggja ára, eru af
labradorkyni, sérstaklega geðgóðir
og meðfærilegir í þéttbýli. Hreyfing-
arþörf þeirra er hæfileg fyrir fólk
sem vill halda útivist sinni í hófi en
reglulegri.
„Agi og reglusemi er einmitt það
sem nauðsynlegt er ef halda á
hunda,“ segir Hrafn. „Einu gildir
hvort rignir, hríðar, vindurinn
næðir eða allt er teppt af snjó, hund-
arnir vilja út og verða að komast.
Þeir kunna reyndar best við sig í
kafsnjó og eru aldrei glaðari en þá.
Reyndar er góða skapið einkenni
labradora."
- En hvað fær eigandinn út úr
þessu hundastandi sem stendur
virka daga sem helga og aldrei frí?
„Við hjónin erum bæði töluvert
göngufólk," segir Hrafn. „Konan
mín, Guðrún Hannesdóttir, gengur
mikið þó svo göngurnar með hund-
ana komi aðallega i minn hlut. Gild-
ir þá einu hvort við erum hér í
borginni eða í sumarbústað fjöl-
skyldunnar. Þessar ferðir eru orðn-
ar mér jafnmikil dagleg nauðsyn og
matur og svefn. Vegna þess að bæði
ég, Loki og Skuggi erum vanafastir
fórum við oft um sömu slóðir og það
er skemmtilegt að skoða síbreytileg-
ar myndir sömu staðanna, hvort
heldur er í þéttbýlinu eöa austur á
Þingvöllum. Auðvitað verður að
hafa vara á sér á götunum því
margt vekur forvitni hundanna og
vissara að vera við öllu búinn ef til
dæmis köttur birtist."
Reykjavíkur maraþon 18. ágúst:
Hlauparinn með fallegasta
hlaupastílinn hleypur ekki endilega hraðast
Hlaupastíll manna er misjafn líkt
og göngulag fólks. Allir hafa sinn
hlaupastíl og það getur verið mjög
erfitt að breyta honum. Hlauparinn
með fallegasta hlaupastílinn hleyp-
ur ekki endilega hraðast. I sjálfu sér
er ekki ráðlegt að vera um of upp-
tekinn af hlaupastíl sínum. Hlaupa-
stíllinn lýtur að mestu leyti náttúru-
og erfðalögmálum. Jafnframt lagast
hlaupastíllinn af sjálfu sér með tím-
anum. Menn skyldu varast að reyna
að breyta skreflengd sinni. Þú átt að
hlaupa með þeirri skreflengd sem
þér finnst þægilegast og eðlilegast
Umsjón
Ólafur Geirsson
að nota. Það eru samt nokkur atriði
sem vert er að hafa til eftirbreytni
þegar við skokkum. Þegar við
skokkum ættum við að hafa hnefa
lauskreppta og olnbogar mega
sveiflast aðeins inn á við. Gott er að
hafa litlar handahreyfingar á
skokkhraða. Höfuð á að vera
stöðugt og við eigum að lenda á hæl
og fráspyrna á að koma frá tábergi.
Axlir eiga að vera afslappaðar.
8. vika. 28/7 -3/8, / .... _rJ J j:J JJjJ /jJjJ
10 km 21 km 42 km
Sunnudogur 14 km ról. 24 km ról. 32 km ról.
Mónudagur Hvíld Hvild Hvíld
Þriðjudagur 8 km (Hraðaleikur) 12 km (Hroðoleikur) 12 km (Hraðaleikur)
Fyrsl 2 km ról. og siíon Fyrsl 2 km ról. og síðon Fyrst 2 km ról. og síðan
2 mín hrolt og 1 min hægt 4 min hrctt og 2 mín heeg 4 min hrott og 2 min hægt
lil skiplé. Samtols 6x2x)=)8 min. lil skiplis. Samtals 5x4x2=30 Ttin. til skiplis. Somlols 5x4x2=30 mir
Að lokum 2 km rólego. Að lokum 3 km ról. Að lokum 3 km ról.
Miðvikudagur lOkmról. 15 km ról. 18 km ról.
Rmmtudagur 6 km jofnl 8 km jofnt 10 km jofnt
Föstudogur Hvild 8 km ról. 8 km tól.
Laugardagur 6 km frísklego 10 km frisklego 10 km Irhklego
Samt.: 44 km 77 km 90 km
Bjöllur tilgangslausar
Geir hjólreiðamaður hafði sam-
band við okkur vegna tilmæla
skokkara um að hjólreiðamenn
væru með bjöllur á hjólum sínum
og hringdu þeim öðrum til viðvör-
unar. Geir sagðist ekki telja neitt
gagn af bjöllunum og meira að
segja mundu gangandi og skokk-
andi vegfarendur um stíga þétt-
býlisins aðeins hrökkva í kút við
hringingu og jafnvel fara fyrir
hjólin fremur en að varast þau.
„Ég tel,“ segir Geir, „að best sé að
skjótast fram úr göngufólkinu
hljóðlega. Það hefur reynst mér
best. Auk þess er nú farið að af-
marka sérstaka braut fyrir okkur
hraðfara hjólamenn á göngustíg-
unum. Ef gangandi gæta þess að
vera á sínum vegarhluta þá er
engin hætta og allir una glaðir viö
sitt,“ sagði Geir hjólreiðakappi.
f—^1 Bj"""! ■ Ba 7®r Jm wlíágfe! Æk. ^ A££989 er styrktaraðili C^úSSB1 0HSkandia j^ífj
Reykjavíkurmaraþonsins jxmsm FIMSKIP volvo éddá