Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1996, Qupperneq 50
58 kvikmyndir
LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 1996 13 V
K V I K M V ILD A
1J
jj
irkirk
Frosin lík og ófrísk lögga
Bræðurnir Joel og Ethan Cohen
hafa allt frá því þeir gerðu sina
fyrstu kvikmynd, Blood Simple, ver-
ið í nokkrum sérflokki í amerískri
kvikmyndagerð. Sjálfstæði þeirra
sem kvikmyndagerðarmanna er
slíkt að í eina skiptið sem þeir fara
að leikreglum í Hollywood þá mis-
tekst þeim og er þá átt við The
Hudsucker Proxy. Og þótt sú mynd
- sé almennt talin þeirra lakasta kvik-
mynd er engum blöðum um það að
fletta að hún er gerð af snillingum
og hefur margt við sig sem auðvelt er að sjá að enginn meðaljón getur
gert.
Reynslunni ríkari fara þeir bræður aftur á byrjunarreit i Fargo og ef
það er einhver mynd þeirra sem hægt er að líkja Fargo viö þá er það
Blood Simple. Það sem sameinar þær fyrst og fremst er stíllinn, hvern-
ig venjuleg en ruddaleg morðsaga verður að listrænu verki.
Það sem fyrst kemur á óvart er að Coen-bræður skuli fara að rifja upp
gamalt og óhugnanlegt sakamál. Einhvern veginn hefur maður haft það
á tilfinningunni að hugmyndaflugið og sköpunargleðin væri það mikil
að þeir þyrftu ekki á slíku að halda. En þótt um sanna sögu sé að ræða
þá er ekki verið að gera hana sem sennilegasta, heldur tekst þeim að
gera hana að óvenjukraftmiklu og sérstöku skáldverki. í raun er ómögu-
legt að segja til um hvar sannleikurinn endar og skáldskapurinn byrjar.
Slík er snilld þeirra bræðra aö þegar á heildina er litið þá skiptir það
engu máli.
í Fargo segir frá hinum duglausa bílasölumanni Jerry Lundegaard,
sem er í miklum peningavandræðum. Til að leysa sín mál fær hann tvo
skúrka til að ræna eiginkonunni og er ætlunin að láta tengdaföðurinn
borga, sá er vellauðugur og hefur hina mestu andstygð á tengdasynin-
um. Allt frá byrjun fer áætlunin úrskeiðis og ræningjarnir skilja eftir
blóði drifa slóð. Til sögunnar kemur lögregluforinginn Marge Gunder-
son, sem kominn er sjö mánuði á leið. Hún hefur ekki mikla reynslu af
morðmálum og veit ekkert um að mannsrán hefur verið framið þegar
hún hefur rannsókn á einkar ógeðfelldum morðum, en hún hefur sinn
eigin hátt á rannsókninni sem reynist árangursríkt í lokin þótt segja
megi að tilviljanir ráði meira og minna ferðum hennar.
Frances MacDormand skapar sérlega skemmtilega persónu úr Gund-
erson, hún virðist einfóld, en veit sínu viti og er samt algjör sveitamann-
eskja inn við beinið. Ef það er einhver sem Gunderson minnir á í rann-
sóknarstörfum þá er það Columbo, sem eins og Gunderson virtist oftar
en ekki ekki vita neitt í sinn haus og afsakaði sig með einfeldni sinni.
Steve Buscemi og Peter Stormare eru mátulega brjálaðir til að trúa því
að það sé akkúrat á þann hátt sem sýndur er hvernig persónumar bregð-
ast við óvæntum vandamálum. William H. Macy er í vanþakklátu hlut-
verki bleyðunnar Lundegaard og fer vel með sinn texta eins og aðrir.
Það eina sem hægt er að finna að snjallri útfærslu Coen-bræðra á
morðsögunni er enska „skandinavískan", sem samkvæmt þessu hlýtur
að vera töluð í Minnesota. Það verður dálítið þreytandi að heyra ofnotk-
un á vissum áherslum, leikararnir hætta stundum að vera persónurnar
og verða leikarar. Þetta er minni háttar galli á annars frábærri kvik-
mynd. Að lokum má geta firnagóðrar kvikmyndatöku Roger Deakins,
sem er köld og raunveruleg eins og aðstæðumar bjóða upp á.
Leikstjóri: Joel Coen. Handrít: Ethan og Joel Coen. Kvlkmyndataka: Roger Deakins.
Tónllst: Carter Burwell.
Aðallelkarar: Frances McDormant, Steve Busceml, Wllllam H. Macy og Peter Storm-
are.
Hilmar Karlsson
Kafbátaforingi á ryðkláfi
Stutt er síðan Háskólabíó hóf sýn-
ingar á gamanmyndinni Bilko lið-
þjálfa, sem „ekki var gerð með sam-
þykki hersins", eins og sagði í lok
myndarinnar. í bólakafi (Down Per-
iscope) gæti sjálfsagt einnig haft
þessa tilvitnun neðanmáls, því þess-
ar tvær gamanmyndir eru að mörgu
leyti líkt uppbyggðar og nánast báð-
ar lítil stuðningur við foringja í her
Bandaríkjanna.
í bólakafi er eins og Bilko liðþjálfi
gerð í kringum einn gamanleikara og það er frammistaða leikarans sem
gerir í raun útslagið. í Bilko var það Steve Martin, reyndur í farsahlut-
verkum og í í bólakafi er það nýliði í kvikmyndum, Kelsey Grammer,
sem ber hitann og þungann í myndinni.
Grammer hefur verið í talsverðu uppáhaldi hjá undirrituðum. í
Staupasteini var hann, sem sálfræöingurinn Frasier, í lokin orðin ein
skemmtilegasta persónan og í þáttaröðinn Frasier hefur hann haldið
áfram að kitla hláturtaugarnar og það verður að segjast eins og er að
það er enginn byrjendabragur á honum í hlutverki sjóliðsforingjans
Tom Dodge sem urðu á ein afdrifarík mistök og er því settur út i horn.
Hans draumur er að fá kafbát til umráða. Illgjarn hershöfðingi, sem
ekki þolir Dodge, sér til þess að hann fær gamlan ryðkláf úr síðari
heimsstyrjöldinni til umráða í stað kjamorkukafbáts sem vár draumur-
inn og til að bera salt í sárin er Dodge fengin áhöfn sem er samansafn
af aulum sem lítið kunna.
í bólakafi er uppfull af fimmaurabröndurum sem áður hafa verið not-
aðir, en leikgleðin er nokkur og lyftir það stöðluðum persónum upp.
Myndin hefur ágæta stígandi og er stundum fyndin og þótt það sé lítið
mál að sjá hver framvindan verður er viss húmor í handritinu sem skil-
ar sér ágætlega. En þegar á heildina er litið er í bólakafi í þynnra lagi
og fátt eftirminnilegt.
Lelkstjóri: David S. Ward. Handrit: Hugh Wllson, Andrew Kurtzman og Eliot Wald.
Aóalleikarar: Kelsey Grammer, Lauren Holly, Rob Schelder, Harry Dean Stanton og
Bruce Dern.
Hilmar Karlsson
Sérsveitin (Mission Impossible)
hefur verið mjög vinsæl í Banda-
ríkjunum undanfarnar vikur og
nálgast 200 milljóna dollara markið
í aðsókn. Myndin er gerð eftir göml-
um og vinsælum sjónvarpsþáttum
sem sýndir voru seint á sjöunda
áratugnum og snemma á þeim átt-
unda.
Tom Cruise, sem leikur aðalhlut-
verkið, er einnig einn af framleið-
endum myndarinnar og það var
hann sem átti hugmyndina að því
að gera kvikmynd upp úr þessum
vinsæla sjónvarpsmyndaflokki. Það
var árið 1992 sem Tom Cruise stofn-
aði framleiðslufyrirtæki ásamt
Paulu Wagner, fyrrverandi
leikkonu, sem sneri sér að umboðs-
mennsku fyrir leikara og var meðal
annars með Tom Cruise á sínum
vegum. Mission: Impossible er
fyrsta kvikmyndin sem fyrirtæki
þeirra framleiðir og er því ekki ann-
að hægt að segja en að vel sé farið af
stað.
Þegar búið var að semja við
Paramont um dreifingu og fleira
sem viðkom framleiðslunni var að
finna leikstjóra. Það var nánast til-
viljun að Brian De Palma var ráð-
inn. Cruise og hann hittust í kvöld-
verðarboði og það rifjaðist upp fyrir
Cruise að De Palma hafði leikstýrt
The Untouchables, sem einnig var
byggð á eldri sjónvarpsseríu, og þar
hafði De Palma tekist vel upp. Dag-
inn eftir hafði Cruise samband við
Wagner og lagði fyrir hana hug-
myndina um að fá De Palma til að
leikstýra. Wagner leist vel á. De
Palma, sem ekki hafði átt láni að
fagna með síðustu myndir sínar,
var strax tilbúinn að taka að sér
verkið.
Tom Cruise leikur njósnarann Ethan Hunt sem forðar sér frá kröftugum
vatnsgusum. Hann er einnig annar framleiðenda myndarinnar.
vinna með ensku tækniliði við gerð
Interwiew with the Vampire, og
hafði kunnað mjög vel við þau
vinnubrögð sem þar fóru fram,
fannst mér sjálfsagt að fá sem flesta
sem störfuðu við þá mynd til að
starfa við gerð Mission: Impossible.
Jon Voight var fyrsti leikarinn
sem ráðinn var og leikur hann Jim
Phelps sem stjórnar leyniþjónustu-
hópnum. Jim Phelps er eina persón-
an úr sjónvarpsþáttunum sem er
notuð beint í myndina. Persónan
sem Tom Cruise leikur er ný en þótt
hún hafi ekki verið til í sjónvarps-
þáttunum er hún byggð á persónu
sem Martin Landau lék í þáttunum.
Evrópskir leikarar
Leikarar voru nú ráðnir í hlut-
verkin hver af öðrum og þar sem
myndin gerist í Evrópu og var tekin
þar var sjálfsagt að ráða evrópska
leikara í nokkur hlutverk.
Emmanuelle Beart er einhver vin-
sælasta og besta leikkona Frakka í
dag og er Mission: Impossible fyrsta
bandaríska kvikmyndin sem hún
leikur í. Brian de Palma hafði mik-
inn áhuga á að fá hana í aðalkven-
hlutverkið. Beart var hikandi. Hún
sagði við De Palma að hún væri
ekki sterk í enskunni: „Ég sagði við
hann að ef hann virkilega vildi að
ég léki í myndinni þyrfti ég að fá
einkakennara í ensku. Það gekk eft-
ir og í fjóra mánuði var ég í ensku-
námi. Það má segja að ég hafi ein-
göngu samþykkt að leika í mynd-
inni vegna De Palma. Þegar ég hitti
hann fyrst hafði hann mjög góð
áhrif á mig með sínum mikla og
skemmtilega húmor.“
Jean Reno, sem leikur stórt hlut-
verk í myndinni, er einn þekktasti
franski leikarinn í dag og má segja
að kvikmyndin Leon hafi gert hann
að stjörnu í Bandaríkjunum. Tvær
þekktar enskar leikkonur voru
einnig fengnar til að leika, Vanessa
Redgrave og Kristin Scott-Thomas.
Þá má nefna Ingeborg Dapkunaite,
sem er uppalin í Vilnius í Litháen
en hefur leikið í meira en tuttugu
rússneskum kvikmyndum, og rú-
meska leikarann Ion Caramitru
sem er einn frægasti leikari Rúm-
ena.
Misgott gengi De Palma
Brian de Palma er einn af þeim
frábæru leikstjórum sem skaust
upp á stjömuhimininn í Hollywood
í lok sjöunda áratugarins og í byrj-
un þess áttunda. Hann hefur leik-
stýrt mörgum góðum kvikmyndum
en á einnig að baki nokkrar mis-
lukkaðar myndir. Bestu sakamála-
myndir hans eru Carrie, The Fury,
Dressed to Kill og Body Double. Þá
hefur hann gert tvær góðar mafíu-
myndir, Scarface og The Untoucha-
bles, og stríðsmyndina Casualities
of War. Nýjustu myndir hans er
Carlito’s Way og Raising Cain. Sú
kvikmynda hans sem þekktust er að
endemum er Bonfire of Vanties sem
margir hafa vilja brennimerkja sem
eina af verstu kvikmyndum sem
gerðar hafa verið.
Brian de Palma fæddist í Newark
í New Jersey en ólst upp i Fíladelf-
íu. Fyrsta kvikmynd hans í fullri
lengd hét The Wedding Party og þar
kynnti hann fyrir heiminum tvo
nýja leikara, Robert De Niro og Jill
Clayburgh. Það voru þó tvær
næstu kvik-
myndir hans,
Greetings og
framhald
hennar Hi
Mom, sem
vöktu athygli á
honum og urðu
til þess að hann
fékk tækifæri til
að leikstýra í
Hollywood.
-HK
Brian De Palma
og Tom Cruise
fara yfir málin
við tökur á
Mission:
Impossible.
Með alþjóðlegu
yfirbragði
Næsta skref vár að ráða leikara
og fylgjast með störfum handritshöf-
undanna Davids Koepps og Roberts
Towne og má segja að leikarar hafi
verið ráðnir um leið og hlutverkin
urðu til. Cruise segir að De Palma
hafi átt mestan þátt í að ákveða
hvaða leikarar yrðu ráðnir og það
var einnig hans tillaga að láta
myndina gerast í London: „Brian
kom með þá stórkostlegu hugmynd
að hafa myndina alþjóðlega, ekki
einbeita okkur að Bandaríkjunum,
og stakk upp á Prag og London sem
tökustöðum og
þar sem ég
hafði ný-
lokið
við
að