Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1996, Page 20
20
MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 1996
Fréttir
DV
Sláturhúsið í Borgarnesi bryddar upp á nýbreytni:
Slátrað vikulega
í allan vetur og
selt ferskt
DV, Borgarnesi:
„Við ætlum að taka upp þá nýj-
ung að slátra einu sinni í viku til að
selja ferskt á markaði. Við höfum
reyndar slátrað undanfarin 6 ár
bæði fyrir jól og páska en nú ætlum
við að gera tilraun með að slátra
reglulega í allan vetur,“ segir ívar
Ragnarsson, framkvæmdastjóri Af-
urðasölu Borgarness, sem ætlar að
taka upp þá nýbreytni að bjóða
vikulega ferskt kjöt.
„Við seljum þetta beint í verslan-
ir og erum með þessu að svara kröf-
um markaðarins. Við erum í sam-
vinnu við nokkurn hóp bænda sem
er tilbúinn að hafa lömbin lengur og
taka þau í hús,“ segir ívar.
Hann segir að þrátt fyrir gott
sumar sé fallþunginn svipaður og á
síðasta ári.
„Það kemur á óvart að fallþung-
inn er nánast sá sami og í fyrra
þrátt fyrir betra sumar. Það virðist
ekki hafa nein áhrif. Kindumar
virðast þurfa að hafa það svona
hæfílega slæmt til að dafna,“ segir
Ivar.
Um 160 manns vinna við slátran
á meðan á sláturtíðinni stendur og
þar er slátrað 42 þúsund kindum i
ár sem er svipað og i fyrra. -rt
ívar Ragnarsson, tramkvæmdastjóri Afurðasölu Borgarness, í sláturhúsi
sínu þar sem tekin veröur upp sú nýbreytni að slátra vikulega í vetur.
Landanir á loönuvertíöinni:
Erlend skip með um 60 þúsund tonn
DV, Akureyri:
Landanir erlendra loðnuveiði-
skipa hjá loðnuverksmiðjum hér á
landi hafa verið umtalsverðar á
UTBOÐ
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í viðhald
pípulagna í 10 leikskólum Reykjavíkur.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu vorri á kr. 10.000.
Opnun tilboða: þriðjud. 5. nóvember 1996, kl. 11.00 á sama stað.
bgd 142/6_____________________________
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Simi 552 58 00 - Fax 562 26 16
Allt á einum stað
smurstöð
Vetrarhjólbaröar og umfelgun
Pvottur og bón
Púströr - bremsuklossar - perur - rafgeymar
Smur, bón og dekkjaþjónusta sf
Tryggvagötu 15, sími 562-6066, fax 562-6038
Greiðslukort OLÍS, Visa og Euro
L
LANDSVIRKJUN
ÚTBOÐ
Sandblástur og málun
Landsvirkjun óskar hér meö eftir tilboðum í aö sand-
blása og mála stálklæðningar í vatnsvegum
Búrfellsstöövar, í samræmi viö útboösgögn BÚR-07.
Verkiö felst í aö sandblása og mála sográsir, snigla,
þrýstipípur og greiningu fjögurra af sex véla sam-
stæöum. samtals um 1563 fer metrar.
Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá og meö
mánudeginum 21. október 1996 gegn óafturkræfu gjaldi
aö upphæö kr. 3.000 m/vsk. fyrir hvert eintak.
Tekið veröur á móti tilboöum á skrifstofu Landsvirkjunar
aö Háaleitisbraut 68, Reykjavík, til opnunar
miðvikudaginn 6. nóvember 1996, kl. 14.00. Fulltrúum
bjóöenda er heimilt aö vera viðstaddir opnunina.
sumar- og haustvertíðinni það sem
af er.
Alls hafa erlendu skipin landað
um 60 þúsund tonnum á móti um
403 þúsund tonna afla íslensku skip-
anna þannig að heildaraflinn nálg-
ast óðum 500 þúsund tonn. Erlendu
skipin hafa landað í 13 höfnum hér-
lendis en mestu hefur verið landað
úr þeim á Fáskrúðsfirði, 9.576 tonn-
um, 8.629 tonnum á Seyðisfirði, á
Eskifirði 7.433 tonnum og á Raufar-
höfn 6.360 tonnum.
Ef allar landanir íslenskra og er-
lendra skipa eru teknar saman hef-
ur mestur afli borist á land á Siglu-
firði eða rétt tæp 80 þúsund tonn,
ríflega 45 þúsund tonn til Eskifjarð-
ar, um 37 þúsund tonn til Seyðis-
fjarðar, um 34,4 þúsund tonn til
Krossaness og um 34 tonn til Rauf-
arhafnar. -gk
Vegagerð milli
_ Patreksfjarðar og
ísafjarðar víðs fjarri
sagöi Halldór Blöndal á fundi á Patreksfirði
Fjölmennur fundur var haldinn
um samgöngumál í félagsheimil-
inu á Patreksfirði 16. okt. Sóttu
hann á þriðja hundrað manns.
Meðal fundargesta var samgöngu-
ráðherrann, Halldór Blöndal.
Blaðamaður hitti Halldór að
máli á ísafirði daginn eftir og
spurði hann hvemig honum
hefði líkað fundurinn.
„Hann var mjög skemmti-
legur. Það var greinilegt að
því fylgdi nokkur þungi að úr-
bætur yrðu gerðar í vegamál-
um. Það er ekkert einsdæmi
þar. Þegar loksins röðin kem-
ur að stöðum verða menn
óþolinmóðir og vilja að allt sé
gert í einu. Þeir finna það að
með því að Djúpvegurinn var
gerður að stórverkefni er svig-
rúm til þess að vinna jöfnum
höndum fyrir vestan og við
Djúpið.
Ég tel að það muni nokkuð
haldast í hendur að veginum
ljúki frá Patreksfirði suður til
Brjánslækjar um leið og Djúp-
vegi. Menn vilja vita hvað
þetta taki langan tíma. Stundum
er verið að tala um vegaáætlunar-
tímabil og þar er verið að tala um
8 ár. Ég tel að þessu muni hvoru-
tveggja ljúka innan áita ára en ég
skal ekki segja hversu fljótt á því
tímabili."
- Hvað um tengingu á milli
norðan- og sunnanverðra Vest-
fjarða?
Það er nú víðs fjarri. Við erum
þar að tala um feiknalega ljár-
muni. Ég hef enga trú á því eftir
að Djúpvegi lýkur að Patreksfirð-
ingar muni setja það ofar þvi að
ná sambandi við hringveginn.
Miðað við þá tækni sem við ráðum
nú yfir er það ekki fyrirsjáanlegt
að við í alvöru ráðumst í að leggja
veg á milli ísafjarðar og Patreks-
fjarðar.
Ég held að það sé líka nauðsyn-
legt að muna að Vestfirðingar hafa
lagt á það áherslu að næstu jarð-
göng komi á Austurlandi. Menn
eru líka að ræða um að það muni
hafa mjög mikið að segja um ein-
angrun Siglufjarðar að göng komi
á milli Ólafsfjarðar og Siglu-
fjarðar. Það eru nú um 200
kílómetrar á milli Akureyrar
og Siglufjaröar og sú vega-
lengd myndi styttast í 60 km
með jarðgöngum. Við erum
ekki bara að tala um göng í
gegnum Hrafnseyarheiði."
- Áttu von á því að Vestfirð-
ingar skipti um skoðun varð-
andi framhald Djúpvegaráætl-
unar?
Ég held að ísfirðingar hljóti
að skilja nauðsyn þess að
tengjast hringveginum. Þegar
ákvörðun var tekin um Stein-
grímsfjarðarheiði var tekin
ákvörðun um að fara í Djúp-
veginn. Ég held að ég muni
það rétt að það sé búið að
leggja bundið slitlag á um 45%
af Djúpveginum. Miðað við
þann hraða sem nú er á þeim
framkvæmdum er hægt að
ljúka honum kannski á næstu sex
árum. Ég get alls ekki hugsað mér
að ísfirðingar kjósi það að bíða í
20 ár eftir því að komast í sam-
band við hringveginn þegar þeir
geta gert það á sex árum, það held
ég ekki.“
-HK
Halldór Blöndal samgönguráöherra.