Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1996, Page 23
MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 1996
31
Fréttir
Seyðisfjörður:
Gullver með
hæsta aflaverð-
mæti ísfiskstogara
DV, Seyðisfirði:
Seyðisfjaröartogarinn Gullver
var með hæsta aflaverðmæti ís-
fiskstogara fyrstu átta mánuði
ársins; - fiskaði fyrir tæpar 187
milljónir króna. Heildarafli tog-
arans var 2254 tonn og skipta-
verðmæti á dag 790 þúsund
krónur.
Þetta kom fram í togara-
skýrslu LÍU yfir veiöi togara
fyrstu 8 mánuðina. Samdráttur í
afla togaraflotans var í heild
12% miðað við síðasta ár. Skýrsl-
an er að sjálfsögðu ekki fullkom-
lega raunhæf vegna þess að afli
togara Samherja eru ekki í
skýrslunni. Aflaverðmæti isfisk-
stogara dróst saman um 15% en
frystitogaranna um rúm 9% á
tímabilinu. Vert er að henda á
að úthaldsdögum þeirra fyrr-
nefndu fækkaði um 16% en
frystitogara ekki nema um 4%.
Síðustu fimm árin hefur Gull-
ver að langmestu leyti landað
afla sínum í heimahöfn á Seyðis-
firði og hafa venjulega um tveir
þriðju hlutar hans verið unnir í
frystihúsi Dvergasteins. Hinn
hlutinn hefur verið settur í
gáma til útflutnings, - yfirleitt á
breskan markað. -JJ
Axel Ágússon skipstjóri á Gullveri.
DV-mynd Jóhann
Svarfaöardalur:
Rannsóknir á jarð-
vegi og heysýnum
- eftir þráláta riöuveiki
DV Dalvík:
Svarfdælskir bændur festu ný-
lega kaup á 80 lömbum úr Þistilfirði
og 14 lömbum af Barðaströnd og er
það liður í að byggja upp fjárbúskap
í Svarfaðardal eftir niðurskurð
vegna riðuveiki.
Samkvæmt heimildum DV eru að
koma lömb á tvo bæi þar sem skor-
ið var niður öðru sinni árið 1994.
Það voru bændur á Hofsá sem fengu
42 lömb og í Dæli komu 27 lömb. Þá
komu 16 lömb í Ingvarir en þar
hófst fjárbúskapur að nýju á síðasta
ári. Auk þessa voru ýmsir bændur
að fá lambhrúta, bæði að austan og
vestan, til að fá nýtt blóð í stofna
sína.
Riðuveiki í sauðfé hefur verið
þrálátur vágestur í Svarfaðardal.
Allt fé var skorið niður og dcdurinn
fiárlaus 1989 en margir bændur
hófu aftur fiárbúskap 1990. Riðan
kom síðan aftur upp á einum bæ
1993 og á fiónun bæjum 1994. Síð-
ustu tvö árin hefur riðu ekki orðið
vart. Undanfarið hafa staðið yfir
rannsóknir á jarðvegi og heysýnum
úr Svarfaðardal til að kanna hvort
unnt sé að finna smitleiðir og upp-
ræta smitbera.
-hiá
UTBOÐ
F.h. Malbikunarstöövar Reykjavfkurborgar er óskaö eftir tilboöum í asfalt.
Áætlað heildarmagn er 24.600-30.500 tonn og miðast við 2ja ára samning.
Útboðsgögn veröa afhent á skrifstofu vorri, að Frikirkjuvegi 3, Reykjavík.
Opnun tilboöa: miövikudaginn 11. desember 1996 ki. 11.00 á sama stað.
mal 139/6_______________________________________________
Innkaupastofnun Reykjavikurborgar f.h. sjálfseignarstofnunar Skógarbæjar
óskar eftir tilboðum í málun innanhúss fyrir hjúkrunarheimilið Skógarbæ að
Ár skógum 2 í Reykjavík.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá þriöjud. 22. okt. nk. gegn 15.000 kr.
skilatryggingu.
Opnun tilboöa: fimmtud. 7. nóvember 1996 kl. 11.00 á sama stað.
bgd 140/6_______________________________________________
F.h. Gatnamálastjórans f Reykjavík er óskað eftir tilboðum í byggingu
skólpdælustöövar við Sævarhöfða i Reykjavík, ásamt lagningu þrýstipípu vestur
yfir Elliðaár. Verkið nefnist: Dælustöö viö Sævarhöföa. Helstu magntölur eru:
• Gröftur: 2.800 m3
• Fylling: 3.000 m3
• Þrýstilögn, PHE 400, PN 4: 400 m
• Mótafletir: 900 m2
• Bendistál: 18 tonn
• Steinsteypa: 160 m3
Verkinu skal að fullu lokið 1. sept. 1997.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá þriöjud. 22. okt. nk. gegn 10.000 kr.
skilatryggingu.
Opnun tilboða: miövikudaginn 30. október 1996 kl. 14.00 á sama stað.
gal 141/6_______________________________________________
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 00 - Fax 562 26 16
ERTU UNDIR
PRESSU?
LOFTPRESSUR
Þegar álagið eykst er nauðsynlegt
að geta treyst á verkfærin.
Þú getur treyst Schneider!
111 Super - Kompressor '
kæótJ TVp: 400-60
úHIN ^
S
w
'%GA^
í verslun okkar eigum við
ávallt til fjölbreytt úrval af
Schneider loftpressum.
Ein þeirra hentar þér
örugglega til atvinnunota
eða í tómstundastarfið.
Schneider - þessar gulu!
SKÚIAS0H 6J0HSS0H
VERSLUN ■ SKÚTUVOGI 12H • REYKJAVÍK • SÍMI 568-6544