Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1996, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1996, Qupperneq 30
38 MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 1996 jDVII Fréttir Jón 1916 tll Formenn Alþýðuflokksins hafa verið níu á 80 árum: Fjórum sinnum hefur formaður verið felldur Á flokksþingi Alþýðuflokksins í næsta mánuöi stefnir í að 10. maður- inn til að gegna formennsku í flokkn- um verði kjörinn en flokkurinn er 80 ára í ár. Enginn íslenskiu1 stjóm- málaflokkur hefur klofhað jafn oft og Alþýðuflokkurinn og þar hafa alltaf verið átök uppi, mismikil að sjálf- sögðu. Jón Baldvinsson var fyrstur Af níu formönnum flokksins hafa flórir veriö felldir í kosningum, einn lést í embætti en fjórir hafa hætt sjálfvfljugir. Þá er gengið út frá því að Jón Baldvin Hannibalsson hætti formennsku nú. Fyrsti formaður Alþýðuflokksins var Jón Baldvinsson. Hann var kjör- inn formaður þegar flokkurinn var stofnaður 1916 og var formaður til dauðadags 1938. Þá áttu sér stað mestu átök sem orðið hafa í sögu flokksins. Héðinn Valdimarsson, þáverandi varafor- maður flokksins, klauf hann og stofnaði Sósíalistaflokkinn kommúnistum. Stefán var felldur Þá tók Stefán Jóhann Stefánsson við formennsku en hann hafði verið ritari stjómar. Stefán var formaður Alþýðuflokksins til ársins 1952. Þá féll hann í formannskjöri á flokks- þingi fyrir Hannibal Valdimarssyni. Um þær mundir vom uppi mikil átök á milli hægri og vinstri manna innan flokksins. Þeir Gylfi Þ. Gísla- son og Hannibal Valdimarsson vom aðalmenn vinstri armsins í flokkn- um. Þeir höfðu veriö á þingi síðan 1946 og verið algerlega einangraðir í þingflokknum. Það var einkmn vegna andstöðu þeirra gegn NATO. Helgi Skúli Kjartansson sagnfræð- ingur segir að á þessum árum hafi verið vaxandi þungi að baki vinstri armi flokksins. í þann hóp bættist Benedikt Gröndal, þá ungur og rót- tækur jafnaðarmaður. Þessir vinstri- menn réðust gegn flokksforystunni á flokksþinginu 1952 og Hannibal felldi Stefán Jóhann við formannskjör. Hannibal felldur og rekinn úr flokknum Hannibal Valdimarsson var vægt sagt umdeildur sem formaður flokks- ins og um leið ritstjóri Alþýðulaðs- ins. Gegn honum var ráðist á flokks- þingi 1954. Hann var rekinn úr flokknum, að eigin sögn, og Harald- ur Guðmundsson kjörinn formaður hans. Svikin kosningaloforó í kosningabaráttunni 1956 gáfú frambjóðendur Hræðslubandalags- ins, kosningabandalags Alþýöu- flokks og Framsóknarflokks, loforð um að þeir myndu ekki vinna með kommunum eftir kosningar. Þær voru hins vegar ekki fyrr afstaðnar en Hræðslubandalagið myndaði rík- isstjóm með Alþýðubandalaginu, sem Hannibal hafði þá stofnað með Sósíalistaflokknum. Þessu vildi Har- aldur Guðmundsson ekki ima og hætti sem formaður flokksins og raunar afskiptmn af stjómmálum um leið. Gylfi hætti ekki sjálfviljugur Emil Jónsson tók við formennsk- imni af Haraldi og gegndi henni frá 1956 til 1968. Þá lét hann af embætti vegna heilsubrests. Gylfí Þ. Gíslason tók við og gegndi embætti til 1974. Enda þótt Gylfí Þ. væri ekki felld- ur sem formaður flokksins var hann hálfþartinn þvingaður til að hætta formennsku. Alþýöuflokkurinn und- ir hans forystu fór illa út úr þing- kosningunum 1971 eftir hina löngu viðreisnarstjómarsetu. Og þegar flokkurinn bætti ekki við sig fylgi 1974 hætti Gylfl Þ. formennskunni og pólitísku starfi. Hann hóf þá aftur störf við Háskóla íslands. Bendikt Gröndal tók við for- mennskunni og gegndi henni til 1980. Undir hans forystu vann flokk- urinn einn stærsta kosningasigur sinn frá upphafi þegar hann fékk 14 þingmenn 1978. Ári síðar var kosið aftur og þá hrundi fylgið af flokkn- um. Það þótti að vonum ekki nógu gott og Kjartan Jóhannsson bauð sig fram gegn Benedikt Gröndal 1980 og náði kjöri. Karlinn í brúnni Kjartan Jóhannsson gegndi for- mennsku til 1984. Honum hafði ekki tekist að auka fylgi flokksins og Jón Baldvin bauð sig fram gegn honum og hafði sigur. Jón Baldvin sagði þá hina frægu setningu um að karlinn í brúnni, sem ekki fiskar, veröi að víkja. Pólitískt fiskirí Jóns Baldvins hef- ur gengið upp og ofan þau 12 ár sem hann hefur verið formaður. Flokkur- inn hefur þó verið aðili að tveimur ríkisstjómum á þessu tímabili. Þótt fylgi hans hafi ekki verið mikiö þessi ár hefur það verið nokkuð stöðugt. Jón Baldvin getur því kvatt með reisn. -S.dór einn lést í embætti en fjórir hættu sjálfviljugir með Hafnasambandsfundur á ísafirði: Sjóflutningar verði betur Ársfundur Hafnasambands sveitarfélaga, sá 27. í röðinni, var settur í Stjómsýsluhúsinu á ísa- firði 18. október að viðstöddum á annaö hundrað fundarmönnum og ráðherra samgöngumála, Halldóri -Blöndal. „Aðalmál þessa þings em flutn- ingaleiöir framtíðarinnar," sagði Krisfján Þór Júliusson, bæjar- stjóri ísafjarðarbæjar, við DV skömmu áður en hann setti fund- inn. „Við munum ræða samkeppn- isstööu hafna með tilliti til land- flutninganna. Viö viljum ýta und- ir að sjóflutningar verði betur nýttir tfl hagsbóta fyrir hafhir landsins og allt þjóðlífiö. Síöan ræðum viö mengunar- og um- hverfismál. Stjóm Hafnasam- bandsins hefur verið að vinna eft- ir samþykkt sem sambandsþingið gerði í þá vem að marka sér ákveðin mál til að vinna eftir. Við munum leggja töluvert upp úr um- hverfismálum hafna. Við erum þokkalega vel sett í ísafjarðarbæ eftir sameininguna hvaö mengun- arvamabúnað snertir og hér er miðstöð mengunarvama í fjórð- ungnvun. Afkoma hafna batnaði örlítið 1995. Hún er þó langt frá þvi að vera viöunandi með tilliti til þeirra verkefha sem bíða í höfn- inni og þeirrar þjónustu og kröfu um þjónustu sem gerð er. Fram- legð hafnasjóðanna er um 33% sem þeir eiga eftir upp í verkefhi og það er alls ekki nógu gott. Ég vil benda á að fyrir 1990 var þessi sama tala hvað framleiðni varðar 40-45%. Þama er því vun verulega niðursveiflu að ræða. Það sem nýttir kemur þar inn í er m.a. álögur sem verið er að leggja á hafnimar af rikisvaldinu eins og reglugerð um vigtun sjávarafla sem leggur miklar skyldur á hafnirnar. Viö höfum auk þess miklar skyldur varðandi mengunarvarnir, sorp- hreinsun og margt fleira. Þama vantar hins vegar tekjur á móti,“ sagði Kristján Þór. -HK fé! ef þú greiðir áskriftina með beingreiöslum c r . } Æm ff \ výC; . i i / . m bcingrciðslu cr nskriftargjaldið núllifært beint af rcikningi þintim í banka/sparisjóði Þeir sem greiða áskriftina með beingreiðslum fá 5% afslátt af áskriftarveröi miöað við þá scm grciða með gíróseöli. Þú græðir því einn og hálfan sjónvarpsdag í hverjum mánuöi og sparar þér auk þess ferð í bankann. Allar nánari upplýsingar um beingrciðslu færðu hjá viðskiplabanka þínum cða áskriftardeild Stöövar 2, ( sími 515 610cQ - Cfirænt núrner 800 6161 ) Greiddu áskriftina meö beingreiöslum srífm FJOLVARP svn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.