Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1996, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996
Neytendur
Hvað á að smyrja
bílinn
Smurstöðvamar í verðkönnun-
inni hér á síðunni mæltu undan-
tekningarlaust með því að fólk léti
smyrja bíla sína á 5 þúsund kíló-
metra fresti. Margir era ósáttir við
það og telja ekki þörf á að fara svo
oft, sérstaklega ekki með nýlega
bíla. Umboðin setja það einnig oft
sem skilyrði fyrir ábyrgð á nýjum
bílum að þeir séu smurðir og skoð-
aðir hjá þeim með ákveðnu milli-
bili, annars falli ábyrgðin úr gildi.
Eigendur nýrra bifreiða borga
þannig e.t.v. allt upp í 10 þúsund
krónur fyrir slíka yfirferð í hvert
skipti og er það að margra mati
hálfgert peningaplokk. (Einnig eru
dæmi um að bílar hafi fallið úr
ábyrgð af því að ekki var sett í þá
„orginal“-loftsía þegar skipt var um
heldur önnur tegund!) En hvað þarf
að smyrja bíla oft?
Á 5 þús. km fresti
„Ég mundi ekki segja að það væri
of oft að smyrja bíl á 5 þúsund kíló-
metra fresti. Bíllinn gengur alltaf
eitthvað í lausagangi og þegar við
erum búin að keyra 5 þúsund kíló-
metra getum við þvi sagt að vélin sé
búin að ganga sem svarar 2 þúsund
kilómetrum í lausagangi því fólk
stoppar óhjákvæmilega á ljósum og
Bifreiðaeigendur velta því fyrir sér hversu oft þurfi aö smyrja bílinn.
annað slíkt,“ sagði Snjólfur Fanndal
Kristbergsson, eigandi Smurstöðvar
Esso við Stórahjalla, en hann situr
jafnframt í stjórn Bilgreinasam-
bandsins.
„Olíusíur eru nú orðnar litlar og
gefnar upp fyrir hámark 10 þús. km
og því skiptum við venjulega um olíu
og síu. En svo eru til hágæðaolíur
sem endast allt upp í 8 þúsund kíló-
metra innanbæjar. Eigi hins vegar að
aka milli Reykjavíkur og Akureyrar
er alveg óhætt að keyra 30 þús. km á
þeirri olíu og skipta bará um síuna á
10 þús. km fresti. Það sem fyrst og
fremst eyðileggur olíuna er þessi
kalda keyrsla innanbæjar, þ.e. að
keyra með innsogið á. Þá fer óhjá-
kvæmilega alltaf eitthvert eldsneyti
niður með hringjunum, niður í
pönnu og eyðileggur olíuna. Þess
vegna mælum við oft með smurningu
á 3 þús. km fresti hjá þeim sem keyra
mjög lítið,“ sagði Snjólfur. -ingo
Verðkönnun á smurningu:
Allt að 23% verðmunur
mjög misjafnt hvað er innifalið
Það getur verið 23% verðmunur á
því að láta smyrja sams konar bíl, allt
eftir því við hvern er skipt. Þetta kom
fram í verðkönnun á smurningu sem
við gerðum hjá níu smurstöðvum í
Reykjavík og nágrenni í gær. Það er
þó mjög mismunandi hvað er inni-
falið í verðinu, sumir yflrfara allan
bílinn frá A-Ö en aðrir athuga bara
olíuna og e.t.v. drifin. Þessi mismun-
ur kemur ekki fram í könnuninni.
Smurstöðvarnar voru: Bifreiða-
þjónusta íslands í Garðabæ, Smur-
stöðin Klöpp við Vegmúla, Smur- og
þjónustustöðin við Geirsgötu,
Gúmmívinnustofan við Réttarháls,
Smurstöð HBS á Bíldshöfða, Smur-
stöð Heklu, Smurstöðin Fosshálsi,
Smurstöðin Pennzoil í Hafnarfirði og
Smurstöð Esso við Stórahjalla.
Við spurðum hvað það kostaði að
smyrja Toyotu Corollu ’87 miðað við
3 lítra af venjulegri oliu, „original“ ol-
íusiu og vinnu við verkið. Öll verð
miðast við verðlistaverð, þ.e. ekki
staðgreiðsluverð. Allir nema einn,
Smurstöð Heklu, áttu original-síuna
til og því miðast verðið hjá Heklu við
Ph 28-35 síu. Sían var þ.a.l. ódýrust
hjá Heklu á 420 krónur en kostaði á
bilinu 759-1.190 kr. hjá hinum.
Lægst hjá Pennzoil
Smurstöðin Pennzoil bauð lægsta
Verðmunur á smurningu
Kr.
3000
2500
2000
1500
1000
500
0
2.375
- miðaö við ákveðið dæmi, sjá texta -
, ?45 2.853 2.860 2.910
2.551 2.565 2.575 2.621 *
vft&munur
isiim
verðið á smumingunni, eða 2.375 kr.
og þar er jafnframt veittur mesti stað-
greiðsluafslátturinn (20%) sem þá
dregst frá upphæðinni. Næst lægst
var Smurstöð Heklu (2.551) sem að
hluta til gæti skýrst af síunni (sjá
ofar). Smurstöð Esso við Stórahjalla
brauð þriðja lægsta verðið (2.565 kr.).
Staðgreiðsluafsláttur var á bilinu
0-20% en algengast var 10%. -ingo
15 %
afsláttur
af yfírhöfnum og MP sokkabuxum
á löngum laugardegi
BARNASTÍGUR
BRUM’S Q 1 SÍÐAN 1955
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 8 SÍMI 552 1461
Gæðaátak á
smurstöðvum
- tryggir fagmannleg vinnubrögð
Bílgreinasambandið, FÍB,
Bíliðnafélagið og öll olíufélögin hafa
tekið höndum saman um gæðaátak
á smurstöðvum til að bæta þjónustu
stöðvanna. Þetta er gert meö því að
auka þekkingu starfsmanna og
stjómenda og bæta þar með ímynd
smurstöðva sem virkra og virtra
þjónustufyrirtækja.
Að sögn Björns Péturssonar, sem
sér um neytendaþjónustuna hjá
FÍB, eru settar lágmarkskröfur um
aðstöðu, þjálfun og þekkingu starfs-
manna, gerð úttekt á húsnæði og
tækjabúnaði og starfsmennirnir
fara á sérstakt námskeið. Að þess-
um skilyrðum fullnægt fær smur-
stöðin gæðamerki sem táknar að
þar sé veitt fagmannleg þjónusta í
hæsta gæðaflokki. Merkið er grænn
tígull með merki Bílgreinasam-
bandsins í miðjunni.
Enn sem komið er hafa einungis
sex smurstöðvar fengið þennan
gæðastimpil, en þær eru: Smurstöð
Esso Stórahjalla 2, Smurstöðin í
Garðabæ, Smurstöðin Vogar í
Reykjavík, Smurstöð Heklu, Smur-
stöð Reykjavíkurvegi 54 Hf., Bæjar-
dekk i Mosfellsbæ og Smur- og hjól-
barðaþjónusta Bjöms og Þórðar í
Keflavík. -ingo
Verðkönnun:
Ódýrasta um-
felgunin
íslandsdekk í Dugguvogi buðu
lægsta verð á umfelgun sam-
kvæmt verðkönnun Samkeppnis-
stofnunar en þar kostaði hún
2.600 kr. Fimm aðilar buðu um-
felgun hins vegar á 2.800 kr. og
voru það Vaka hf. á Eldshöfða,
VDO hjólbarðaverkstæði á Suður-
landsbraut, N.K. Svane hf. í Skeif-
unni, Hjólbarðaverkstæðið Klöpp
við Vegmúla og Hjá Krissa í Skeif-
unni.
Negld, sóluð
dekk
Ódýrustu negldu, sóluðu dekk-
in af stærðinni 155/13 voru sam-
kvæmt verðkönnuninni Hjá
Krissa á 4.150 kr. en fengust
einnig á 4.220 kr. hjá VDO á Suð-
urlandsbraut og á 4.300 kr. hjá
ER-þjónustunni. Ódýrustu negldu
sóluðu dekkin af stærðinni
185/70/14 voru einnig Hjá Krissa
á kr. 5.100 en fengust einnig á
5.179 kr. hjá VDO á Suðurlands-
braut og á kr. 5.300 hjá ER-þjón-
ustunni.
Ónegld, sóluð
dekk
Ódýrustu ónegldu, sóluðu dekk-
in af stærðinni 155/13 voru sam-
kvæmt verðkönnuninni hjá Hjól-
barðahöllinni í Fellsmúla á 3.080
kr. en fengust einnig á 3.270 kr.
hjá VDO á Suðurlandsbraut og á
3.300 kr. Hjá Krissa. Ódýrustu
ónegldu, sóluðu dekkin af stærð-
inni 185/70/14 voru einnig í Hjól-
barðahöllinni .á 4.080 kr. en feng-
ust einnig á kr. 4.229 hjá VDO á
Suðurlandsbraut og á kr. 4.250
Hjá Krissa.
Ódýr jarðarber
Hægt er að fá 250 g af hollensk-
um jarðarberjum á 99 kr. í Hrað-
búðum Esso í dag og næstu daga
vegna óvenju hagstæðra inn-
kaupa. Sams konar askja var áður
á tilboði á 199 kr.
Nabisco-vörurnar.
Nýjar
kextegundir
Rolf Johansen & Company ehf.
hefur hafið innflutning á hinu
þekkta matvörumerki Nabisco.
Nú þegar eru fáanlegar kexteg-
undirnar Oreo (kremkex), Chips
Ahoy (súkkulaðibitakex), Filipp-
inos (súkkulaðikexhringir), Mar-
bú Dorada (maríukex) og Marbú
Fibra (gróft maríukex). Fleiri teg-
undir verða svo fáanlegar innan
skamms.
Nýi bláberjaísinn frá Kjörís.
Heimaís með
bláberjum
Kjörís hefur nú bætt bláberjaís
í hóp hinna bragðtegundanna af
Heimaís. Áður var boðið upp á
vanillu-, súkkulaði- og appelsínu-
ís sem að sögn forsvarsmanna
Kjöríss hafa notið mikilla vin-
sælda. -ingo