Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1996, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1996, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 7 DV Sandkorn Upp í sveit Sagan segir af ljóskunni sem var orðin þreytt á svivirðingnm í sinn garð og ákvað að lita hárið sitt eldrautt. Dag einn fór hún í bíltúr upp í sveit. Þar rakst hún á bónda að reka fé sitt heim að bæ. Hún gaf sig á tal við bónda og spurði hvort hún mætti eiga eina kind ef hún gæti gisk- að á hvað bónd- inn ætti margt fé. Bóndi kvað það litið mál, enda átti hann ekki von á að ljósk- an hitti naglann á höfúðið. En viti menn, ljóskan giskaöi rétt, sagði að bóndi ætti 115 rollur, og fékk þvi að veija sér eina. Þegar því var lokið og þóskan ætlaði heim með rolluna spurði bóndinn, rólegur í bragði: „Heyrðu, ef ég giska rétt um þinn upprunalega háralit, má ég þá fá aö eiga hundinn minn?“ Hneturnar Sagan segir af ónefhdum presti sem var eitt sinn boðiö heim í sunnudagskaffi til heldri konu í sókninni. Þegar prestur hafði komið sér þægilega fyrir í stofúnni tók hann eftir skál með hnet- um á sófaborð- inu. Hann spurði þá gömlu hvort hann mætti smakka og það var nú í lagi. Síðan sátu þau og spjöBuðu en þegar kom að því að prestur þurfti að fara, hrökk hann við þegar hann leit ofan í hnetuskálina og áttaöi sig á að hafa klárað aBar hnetumar. „Fyrirgefðu Sigríður mín, ég ætlaði nú ekki að borða frá þér allar hnetumar,“ sagði klerkur. Sigríði fannst það nú lítið mál. „Ég borða hnetumar ekki lengur. Eftir að ég missti tennumar minar hef ég bara getað sleikt utan af þeim súkkulaðið." Kúamykjan í Viðskiptablaðinu mátti lesa ágæta sögu af tveimur hagfræðing- um á göngu úti í sveit, annar var reyndur en hinn nýútskrifaður. Er þeir gengu fram á litinn haug af kúamykju sagði sá reyndi við nýgræðinginn: „Eg skal borga þér 50 þúsund krónur ef þú étur þetta.“ Ný- útskrifaði hag- íræðingurinn hugsaði sig um stund en ákvað síðan að taka tUboðinu, át skítinn og fékk 50 þús- und kallinn. Áfram héldu þeir göngu sinni og rákust fljótlega á annan mykjuhaug. Þá sagðist sá ný- útskrifaði borga þeim reynda 50 þúsund krónur ef hann borðaði mykjuna. Sá reyndi tók boðinu, át skítinn og fékk peningana tU baka. Eftir smárölt í viðbót áttaði ný- græðingurinn sig á því að þeir ættu jafn mikla peninga og þegar þeir lögðu af stað, þrátt fyrir að hafa étið kúaskitinn. Þá sagði reyndi hagfræðingurinn: „Jú, það er rétt en gleymdu ekki þeirri staðreynd að við tókum þátt í viðskiptum upp á 100 þúsund kaU.“ Gott svar í blaði slökkviliðsmanna segir Tryggvi Ólafsson, skrifstofustjóri slökkvUiðsins í Reykjavík, fína sögu af hinum orðheppna Magnúsi Theo- dór Magnús- syni, bruna- verði tU fjölda ára, sem eitt sinn flutti bandaríska konu frá Kefla- vík á sjúkrahús í Reykjavík. Þetta var um jólaleytið og kirkjugarðar því Ijósum prýddir í skammdeginu. Eiginmaður konunn- ar sat frammí hjá Magnúsi og þegar komiö var yfir Kópavogshálsinn blasti Fossvogskirkjugarður við. „What in the world is this,“ spurði sá bandaríski og Magnús svaraði að bragði, án þess að muna hvað kirkjugarður væri á ensku: „This is the dead bodies headquarters." Umsjón: Björn Jóhann BJörnsson ______________________________Fréttir Útigangskálfarnir fundnir: Aflífa varð einn Dy Akureyri: „Það tókst að ná káifúnum og þeir eru allir komnir heim í hús nema einn sem var þannig á sig kominn að það varð að aflífa hann strax og til hans náðist," segir Sig- urbjöm Þorsteinsson, bóndi á Hellu- landi í Bakkafírði, en hann er eig- andi 8 kálfa sem leitað hefúr verið síðan í haust að þeir hurfu og héldu til heiða. Eins og fram kom í DV sást til kálfanna um 25 km frá byggð er flogið var yflr Miðfjarðarheiði í síð- ustu viku. Nú í vikunni var síðan gerður út leiðangur til að ná kálfun- um og einnig til að huga að kindum sem sást til á heiðum uppi. Hópi manna á 7 hestum og með bíla til umráða gekk greiðlega að ná kálfúnum sem fyrst vora reknir í gangnamannakofa í Kverkártungu. Þar vora þrír minnstu kálfamir teknir og settir í annan bílinn. „Hinir vora reknir út heiðina. Þeir vora orðnir horaðir og þreyttir og rákust vel og þetta gekk allt vel að lokum. En það mátti ekki tæpara standa því að það var nokkur snjór kominn og hefur snjóað síðan,“ sagði Sigurbjöm. -gk Fjaörir í japanska jeppa og sendibíla á hag- stæðu verði. Framieiddar samkvæmt upprunalegum stöðlum framleiðanda. Mikið úrval í allar tegundir og flestar ár- gerðir. FJAÐRABÚÐIN PARTUR Eldshöföa 10,112 Reykjavfk Sfmar 567 8757 & 587 3720 [ BARNASTÍGUE | BRUM’S 0-14 SÍÐAN 1955 s SKÓLAVÖRÐUSTla 8 SlMI 552 1461 :cmD0 FuUtaf ogfrábærumjóla Skipholti 1 9 Sími: 552 9800 ŒSsmm THOMSON TELEFUNKEN SABA Black D.I.V.Al Skicrinn er meJ myncmöskvo or nýju efni INVAR ;svartur skjer sem &r sérstakl&oa hitajxrfli. þessi nyjo tækni fryccir nókvæma litablöndun 09 enn meiri skerpu Dsamf bjarfari myno'. Munurinn er qreinilegur ! | Sístillt móttakal Moffckc c í ónvorpsefninu er sistiSb meö serjrökum hrobvrrkum örgjörvo, sem tryggir oö alif flökt ó móttöku er leiórétt, jsonnig cö mync'gæöin eru cvallt trygg jSjáðu og heyrðul 100 H: myndc-æbí • ekkert flökt CifívfrrQ Zo'CíT- • Sfækkim c mvnd Dicits N'tc- Stereo-mct’akQ Surrourc- * mnverrish íiDrnur Poi Plus • mun betri móttoko Aboeróosfý‘rinoar ó skja sjonvorps Inteíligent No:se Reduction-suóeyóir 16; 9 • breiórlc'dsmóttako PIP • mynd í myne allt aÖ þrjór) fró I4r oo upc; 52' • jxtt er vclíb.,.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.