Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1996, Qupperneq 10
r
10
Spurningin
Hver er þinn uppáhalds-
drykkur?
Fannar Ingi Guðmundsson nemi:
Kók og vatn.
Daníel Guðjónsson nemi: Sprite.
Einar Óskarsson kennari: Ætli
það sé ekki bara íslenskt kalt vatn.
Susan Björnsson, heimavinn-
andi: Líka kafii.
Bjarni Þ. Bjarnason prentari:
Koníak.
Lesendur
Jón Baldvin og
fánaberar meðal-
mennskunnar
„Hversu langt hefði Jón Baldvin komist með EES-málið í samstarfi við
Framsóknarflokk og Alþýðubandalag?" spyr bréfritari m.a.
Magnús Jónsson skrifar:
Það er beinlínís aumkunarvert að
sjá og heyra fánabera meðal-
mennskunnar á fjölmiðlunum - og í
sumum stjórnmálaflokkunum -
mæra Jón Balvin Hannibalsson,
jafn mistækur og sá krataforingi er.
í andrúmsloftinu eins og það gerist
í „Gaggó-Aust“, sem var hnyttið
uppnefni núverandi forsætisráð-
herra á Alþingi íslendinga, er
kannski ekki við öðru að búast en
orðhákur á borð við Jón Baldvin
hafi átt sér aðdáendur og viðhlæj-
endur ýmsa. - Og eftir þessu dansa
fjölmiðlarnir, sem hafa sýnilega
enga getu eða þor til að birta okkur
stj ómmálaskýr ingar.
Það verður svo ekki af Jóni Bald-
vin skafið að á stundum var hægt
að láta hrífast með mælsku hans og
skemmtilegri rökræðu. Staðreyndin
er sú að ísland hefur átt fjölda
slíkra stjórnmálamanna, sem löngu
eru fallnir í gleymsku og dá. En á
Jón Baldvin einhverja von um var-
anlegan sess í stjómmálasögu 20.
aldarinnar? Varla, að mínu mati.
Hann varð ekki forsætisráðherra.
Upp úr stóð að í kringum sig safn-
aði hann nokkm undirmálsliði í
raðir nánustu trúnaðarmanna inn-
an Alþýðuflokksins að það fældi
venjulegt vel meinandi fólk frá sam-
neyti við flokkinn. - Og allir vita í
hverju ófremdarástandi Alþýðu-
flokkurinn er þegar foringinn skil-
ur við hann.
Menn hafa talað um afrek Jóns
Baldvins sem utanríkisráðherra.
Víst stóð Jón sig að mörgu leyti vel
í því embætti. En að hve miklu leyti
var það fyrir hans eigin forgöngu,
og að hve miklu lét hann berast með
utanaðkomandi straumum af vett-
vangi alþjóðastjómmála? Og eitt er
víst: Jón Baldvin má þakka árangur
sinn í utanríkismálum því fyrst og
fremst að sem utanríkisráðherra sat
hann í ríkisstjóm með sjálfstæðis-
mönnum. Hinar köldu kveðjur hans
til fyrrverandi samstarfsmanna í
síðustu ríkisstjórn em því ósæmi-
legar en lýsa ólíkindatólinu í Jóni
Baldvin vel. Og spyrja má: Hversu
langt hefði Jón Baldvin komist með
EES-málið í samstarfi við Fram-
sóknarflokk og Alþýðubandalag?
Hvernig hefði Framsóknarflokkur-
inú tekið áhuga hans á GATT, og
hvað hefðu gömlu kommamir í Al-
þýðubandalaginu sagt um fyrirætl-
anir hans um viðurkenningu á
Eystrasaltslöndunum fyrir fall Sov-
étrikjanna?
í vinstri stjóm hefði Jón Baldvin
ekki komist hænufet með þessi
gæluverkefni sín. Hann getur því
þakkað samstarfinu við Sjálfstæðis-
flokkinn það sem upp úr stendur á
stjórnmálaferli sinum.
Ungliðarnir útilokaðir
Helgi skrifar.
Einna mest áberandi frétt vikunn-
ar hefur verið af jafn merkilegu
máli og vali eins alþýðuflokksfélags
á fulltrúum á væntanlegt flokksþing.
Hefur mátt skilja á endalausum
fréttum og viðtölum að Alþýðuflokk-
urinn hafi útilokað gervalla ungliða-
hreyfingu sína, nokkur hundruð
manns, frá öllum áhrifum á flokks-
starfið. Enginn sem talað er við þor-
ir að segja annað en hann sé harmi
sleginn yfir þessum tíðindum.
En hver skyldi staðreynd málsins
vera? Jú, tilteknir 3 - þrír - ungir
menn náðu ekki kjöri á flokksþing-
ið! Það var allt og sumt! Auðvitaö
vom aðrir alþýðuflokksmenn sem
flokksmenn í Reykjvík vildu fremur
sjá á flokksþingi, kosnir. En ungvið-
ið sagði það hafa unnið svo mikið
að það ætti skilið að fara á flokks-
þing!
Staðreyndin er sú - og nú á ég
ekki endilega við þá þrjá sem ekki
höfðu fylgi til flokksþingssetu - að
nokkrir ungir háskólanemar hafa
gengið í Alþýðuflokkinn á síðustu
þremur, fjórum ámm. Starf þeirra
innan flokksins hefur einkum
beinst að því að leggja til að flokk-
urinn verði lagður niður og búinn
til nýr úr reytum hans og annarra
vinstri flokka sem sömu örlög eiga
að fá.
Hefur mátt lesa í blaðagreinum
þessa fólks að í slíkum flokki væra
ungir (nýir) alþýðuflokksmenn
reiðubúnir að gefa eftir flest stefnu-
mál sín eins og t.d. aðild að ESB og
veiðileyfagjald og ungir alþýðu-
bandalagsmenn gæfu eftir sjónar-
mið sín í utanríkismálum o.s.frv.
Þannig að hugsjónirnar em nú ekki
alltaf að flækjast fyrir þessu unga
fólki. - Aðalatriðið að stofna nýjan
flokk!
Og þegar hann er kominn á kopp-
inn þarf náttúrlega að finna honum
frambjóðendur. - Ætli þá verði ekki
fljótt uppi krafan um að það verði
fólk „sem ekki er markerað af inn-
anflokksátökum i gömlu flokkun-
um“, þ.e. „nýtt fólk“.
Aldrei framar sandaleiðina
Á Skeiðarársandi. - Horft til vesturs yfir veginn, þakinn íshröngli.
Seyðfirðingur hringdi:
Nú er sannarlega nóg komið af
fitonskrafti bjartsýnismanna í röð-
um verktaka með dyggilegri aðstoð
þingmanna sem sjá atkvæðamagni
sínu borgið með því að hlusta
grannt eftir hrópum þrýstihópa héð-
an og þaðan i landinu. - Nú er hún
Skeiðará búin að fá sitt og meira en
það. Ég segi: Aldrei framar sanda-
leiðina. Nú skal horft til framtíðar
með öðrum og tryggari hætti. Hvað
með hálendisveg, eins oft og um
hann hefur verið rætt? Verum nú
raunsæ og forsjál einu sinni.
Við Austfiröingar og raunar
fleiri, t.d. þeir á Norðausturlandi og
Suðausturlandi, allt til Hornafjarð-
ar, em mun betur settir með slíkan
veg til frambúðar en þessa óvissu
með brúun allra vatnanna fyrir
sunnan. Auk þess sem eldgos eru
líka mest á þessu svæði. Ef þarna á
að endurbyggja brýr og vegi verða
sveitarfélögin á svæðinu að taka á
sig kostnaðinn.
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996
Sleggjudómar
um framtak
á Raufarhöfn
Vilhjálmur Jónsson skrifar:
Gunnlaugm- Júlíusson, sveit-
arstjóri á Raufarhöfn, var í við-
tali í Ríkisútvai'pinu 4. nóv. sl.
og talaði fyrir byggðakvóta á
síld. Ég hef enga athugasemd um
þá ósk en er hins vegar mjög
ósáttur við ummæli hans um
viðskilnað „gjaldþrota síldar-
spekúlanta" á Raufarhöfn. Þeir
sem stóðu fyrir síldarsöltun á
Raufarhöfn vora: Aðkomumenn:
Valtýr Þorsteinsson og Hreiðar
Valtýsson, Óskar Halldórsson og
Ólafur Óskarssson, Vilhjálmur
Jónsson, Sveinn Benediktsson,
Gunnar Halldórsson og Einar
Guðmundsson. Heimamenn:
Hólmgeir Helgason, Jón Þ. Árna-
son, Karl Ágústsson, Jón Einars-
son og Guðmundur Friðriksson.
Fráleitt hlýtur að teljast að
starfsmaður sveitarfélags sem
naut framtaks þessara manna
skuli fara með staðlausa sleggju-
dóma um látna menn og lifandi.
Stefna þeirra
Stefánssona
Friðrik hringdi:
Það má með sanni segja, að
þeir stefna hátt, Stefánssynir í
Hafnarfirði. Einn þeirra vill
halda í formennskudrauminn í
Alþýðuflokknum og að sjálf-
sögðu styðja þeir bræður hans
við bakið á honum dyggilega.
Þetta er alveg eins nú og til
forna, með þá Sturlusyni og
fleiri, og málin þau sömu. Að
komast til valda og halda þeim í
sínum höndum. En það er sjald-
gæft að bræður séu jafn sam-
heldnir og kemur fram hjá þeim
Stefánssonum, nema ef vera
skyldi þeir Friðfinnssynir. Líka í
sama flokki. Alþýðuflokkurinn
ætti því ekki að vera eins ber-
skjaldaður og sumir halda.
Guðmundar- og
Geirfinnsmálið
Jón Björnsson skrifar:
Það ætlar að endast þetta um-
deilda sakamál. Nú er það aftur
á döfinni með útkomu bókar eft-
ir einn gæsluvarðhaldsþolanda
er sat inni i um 100 daga. Þeir
fjórmenningar fengu allir skaöa-
bætur frá hinu opinbera, og það
nokkuð góðar á þeim tima. Og
verðskuldað. Ég hef hins vegar
gran um að enn muni farið fram
á einhverjar bætur. Hins vegar;
séu engir hinna ákærðu og
dæmdu sekir er náttúrlega ekki
nema eitt fyrir hendi. Að taka
málið allt upp að nýju og fá það
á borðið hverjir stóðu í raun að
baki Geirfinns- og Guðmundar-
hvörfúnum.
Flóttinn frá
landsbyggðinni
Kjartan skrifar:
Allir vita, en fáir þora að við-
urkenna, að flótti íbúa frá lands-
byggðinni er hafinn af fúllum
krafti. Einkum frá Vestfjörðum,
svo og frá byggðunum norðvest-
anlands. Nú er t.d. áberandi að
ungt fólk tekur sig upp frá Sauð-
árkróki og fleiri byggðum í ná-
grenninu og fer suður eða beint
til útlanda. Á málinu á að taka
raunhæft, viðurkenna lands-
byggðarflóttann og leggja fé til
uppbyggingar suðvestanlands en
ekki á þessum fráhrindandi stöð-
um.
Ingjaldr
í skinnfeldi?
Ólafur hringdi:
Ég vildi mega óska eftir upp-
lýsingum frá hverjum þeim sem
kann þessar vísur um Ingjald í
skinnfeldi og senda til DV til
birtingar. Bið fyrir kærar kveðj-
ur til DV og þakklæti fyrir að-
stoðina.