Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1996, Blaðsíða 28
K
ú—‘
Æa laugardaga
Vertu víðbúinín)
vínníngif
Vinningstölur
7.11/96
KIN
FRÉTTASKOTIO
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við lOKum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996
Greifafrúin
í Helgarblaði DV kennir að venju
margra grasa. Helgarviðtalið er við
Sigrúnu Jónsdóttur kirkjulistakonu
5 sem giftist greifa af frönskum aðal-
sættum og býr í lítilli höll á Lidingö
en hún hefur umgengist sænska
kóngafólkið. í blaðinu verður vegleg
jólabókakynning. Rætt verður við
Magnús Leopoldsson sem sat sak-
laus í einangrun í 105 daga vegna
gruns um aðild að Geirfinnsmálinu
svokallaða. Einnig verður birtur
kafli úr Þjóðsögum Jóns Múla Áma-
sonar, rætt við listmálara með liða-
gigt og fyrirsætu með dýra ástríðu.
-em
Alþýðuflokkurinn:
Össur er
volgur
- Ásta ákveðin
„Á þessari stundu stendur hugur
minn ekki til frekari embætta fyrir
Alþýðuflokkinn en að vera 15. þing-
maður Reykjavíkur," sagði Össur
Skarphéðinsson í samtali við DV.
Hann viðurkenndi að hart væri
'lagt að sér að gefa kost á sér til
varaformennsku í Alþýðuflokknum.
Þar væri bæði um að ræða stuðn-
ingsmenn Sighvats og Guðmundar
Árna, en hann hefði ekki ljáð máls
á því.
- Ertu með þessu að útiloka fram-
boð til varaformanns?
„Það er nú svo að atburðarásin
tekur oft af manni völdin, ekki síst
á samkomum eins og flokksþingum.
Þess vegna á maður aldrei að segja
aldrei," sagði Össur Skarphéðins-
son.
Ásta B. Þorsteinsdóttir, varaþing-
maður flokksins, hefur lýst því yfir
að hún gefi kost á sér í varaform-
, annskjörið. Hún er studd af hópi
kvenna i flokknum. o
Viölagatrygging íslands:
Á vel fyrir tjóninu
á Skeiðarársandi
- stæöi undir 9 milljörðum - tjónið hálfur milljaröur
Viðlagatrygging er fær um að
greiöa út tjón upp á níu millj-
arða króna. Eigið fé er tæpir
fimm milljarðar króna og ið-
gjaldatekjur Viðlagatryggingar,
sem er svokallað Viðlagatrygg-
ingagjald og innheimt er i gegn-
um skattakerfið, nam á síðasta
ári 538 milljónum króna, að
sögn Freys Jóhannessonar,
deildarstjóra hjá Viðlagatrygg-
ingu.
Viðlagatrygging er í raun
tryggingafélag og endurtryggir
sig á alþjóðlegum trygginga-
markaði þannig að greiðsluget-
an er veruleg umfram eigið fé
stofnunarinnar. Að sögn Freys
bendir margt til þess að það tjón
sem fellur á Viðlagatryggingu
vegna Grímsvatnahlaupsins
nemi innan við helmingi þeirrar
upphæðar sem greidd var út í
tjónabætur í fyrra en þá var
greitt vegna tjóns 848 milljónir
króna, aðallega vegna hamfar-
anna á Vestfjöröum. Það tjón
sem mun falla á Viðlagatrygg-
ingu vegna Grímsvatnahlaups-
ins er vegna tjóns sem varð á
brúnum og á háspennulínunni
yfir Skeiðarársand. Ljósleiðari
og mannvirki Pósts og síma eru
hins vegar ekki tryggð hjá Við-
lagatryggingu og heldur ekki
sjálfir vegimir um sandinn.
Vegagerðin hefur áætlað að
tjón á brúnrnn nemi um 400-600
milljónum króna og skotið hefur
verið á að tjón á háspennulínu
Landsvirkjunar nemi um 60-90
milljónum. „Hvert raunverulegt
tjón hefur orðið er hins vegar
ekki hægt að byrja að meta af
neinu raunsæi fyrr en eftir ein-
hverja daga,“ segir Freyr Jó-
hannesson.
-SÁ
Lögreglumaður með sprengdan
kassann í höndunum. DV-mynd S
Sprengdu
ruslakassa
Unglingahópur sprengdi rusla-
kassa í tætlur á Suðurströnd við
heilsugæslustöðina á Seltjamamesi
í gærkvöld. Stúlka var á gangi þeg-
ar piltur kallaði til hennar og sagði
henni að gæta sín, sprengja væri í
ruslatunnu þar hjá. Hún taldi strák
vera að gabba en var heppin að vera
ekki komin nær þegar sprengjan
sprakk því að hún var mjög öflug.
Lögreglan á Seltjamarnesi hafði
uppi á stráknum og hafði tal af ung-
lingunum og foreldrum þeirra. -sv
Göngin sem vatnið streymdi um út úr Grímsvötnum hrundu saman í gær og hefur gríðarleg gjá myndast. Gjáin er um 6 km löng og ailt að 500 metra breið
og sýnir hún óyggjandi hversu miklir feiknakraftar hafa þarna leikið lausum hala. Þessi gjá sem opnast hefur er litlu styttri en sjálf gossprungan en miklu
dýpri. Á myndinni sést fjögurra sæta flugvél Ómars Ragnarssonar fréttamanns niðri í gjánni og af smæð hennar sést hversu tröllaukið sjönarspii þarna á
sér stað. DV-mynd Magnús Ólafsson
ÞAÐ ER ÞA EK^KI
KALT 3LÓÐ I
FISKELPIS-
POKTORNUM!
Veöriö í dag:
Frost framan
af degi
Á morgun verður vestlæg
eða breytileg átt, víðast fremur
hæg. Víðast verður bjartviðri
um landið norðaustan- og aust-
anvert en vestan til verður
skýjað. Þó er ekki gert ráð fyr-
ir úrkomu. Sídegis hlánar suð-
vestan- og vestanlands en ann-
ars staðar verður talsvert frost
framan af degi.
Veðrið í dag er á bls. 36
■ wa UHt
Opel Astra
Station kr.
1.299.000.-
Bílheimar ehf.
Sœvarhöföa 2a Sími: 525 9000