Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1996, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1996
Fréttir
Samkomulag hefur tekist um veiðar úr norsk/íslenska síldarstofninum:
Hlutur Evrópusambands-
ins í veiðunum of stór
- segja Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Sævar Gunnarsson, formaður SÍ
Undirritað hefur verið sam-
komulag milii íslendinga, Norð-
manna, Færeyinga, Rússa og Evr-
ópusambandsins um veiðar úr
norsk/íslenska síldarstofninum á
næsta ári. Heildarkvótinn verður
1.486 þúsund lestir en var í ár 1.107
þúsund lestir. Kvóti íslands verður
233 þúsund lestir en var í ár 190
þúsund lestir. Norðmenn mega
veiða 854 þúsund lestir á næsta ári,
Færeyingar 82 þúsund lestir, Rúss-
ar 192 þúsund lestir og Evrópusam-
bandið fær 125 þúsund lesta kvóta.
„Menn eru fyrst og fremst ánægð-
ir með að hafa náð heildarsamningi
um þessar veiðar. Við töldum að
Evrópusambandinu bæri minni
hlutur í þessum veiðum en niður-
staðan varð. Það er hins vegar ljóst
að floti þess er mjög öflugur og það
var mikil hætta á því að hann
myndi auka veiðamar enn frekar
frá því sem var í ár. Fyrir okkur ís-
lendinga skiptir mestu máli að
stofninn verði byggöur upp því okk-
ar markmið er að hann komi á nýj-
an leik inn í okkar lögsögu í veru-
legum mæli. Ég tel það styrkja það
framtíðarmarkmið að ná utan um
veiðamar eins og nú hefur verið
gert,“ segir Halldór Ásgrímsson ut-
anríkisráðherra um samninginn.
„Mér þykir Evrópusambandið
hafa fengið allt of mikið út úr þess-
um samningi enda þótt verið sé að
stöðva óheftar veiðar skipa frá sam-
bandslöndunum sem veiddu um 200
þúsund lestir í ár. Evrópusamband-
ið fær 125 þúsund lesta kvóta á
næsta ári en sögulega séð ætti það
ekki að fá neitt. Evrópusambandið
beitir bara ofbeldi með því að hóta
að láta flota sinn veiða óheft fái það
ekki kvóta og undan þessum þrýst-
ingi var látið,“ segir Sævar Gunn-
arsson, formaður Sjómannasam-
bandsins, um samninginn.
Samkomulag er um að íslending-
ar megi veiða allan sinn kvóta í
Færeysku lögsögunni og Færeying-
ar allan sinn kvóta í íslensku lög-
sögunni. Þá mega íslensk skip veiða
sinn hlut í lögsögu Jan Mayen.
Norðmenn mega veiða sem nemur
tveimur þriðju hlutum af kvóta ís-
lendinga innan okkar lögsögu. Þá fá
íslensk skip leyfi til að veiða 10 þús-
und lestir í norsku lögsögunni gegn
því að norsk skip fái að veiða sama
magn innan íslensku lögsögunnar.
Loks fá svo rússnesk skip að veiða
6.500 lestir á takmörkuðu svæði inn-
an íslensku lögsögunnar.
-S.dór
Bóksölulisti DV:
Samhljómur með
erfiðri lífsbaráttu
- segir skrásetjari bókarinnar Lífskraftur
Gemlufallsheiði:
Lá á slys-
stað hátt í
fimm tíma
- lán að annar fór út af
„Við fengum tilkynningu um
slysið um klukkan þrjú á laugar-
dag og þá hefur maðurinn örugg-
lega verið búinn að liggja utan
vegar í fjóra til fimm tíma. Það
sem varð honum til happs var að
feðgar á bíl fóru út af á nákvæm-
lega sama stað og þá sáu þeir bíl-
inn. Margir höfðu farið þarna
um án þess að veröa nokkurs
varir," sagði lögreglumaður á
ísafirði við DV í gærkvöldi um
bílveltu á Gemlufallsheiöi á
laugardag.
Brjálað veður var á þessum
slóðum þennan morgun þar
sem atvikið átti sér stað, á
Gemlufallsheiði, milli Önund-
arfjarðar og Dýrafiarðar, á
laugardagsmorgun. Bílstjórinn
slasaðist nokkuð á fæti og hlaut
einhver höfuðmeiðsl, auk þess
sem hann var orðinn nokkuð
kaldur þegar að var komið.
Hann var fluttur á Sjúkrahús
Reykjavíkur þar sem hann var
í rannsókn í gærkvöldi. Sér-
fræðingur á slysadeild sagði
við DV í gær að hann ætti allt
eins von á því að maðurinn
þyrfti að fara í aðgerð þegar
líða tæki á kvöldiö.
Mikið lán var að bíll
feðganna skyldi fara út af á
sama staö og sá slasaöi. Engin
leið er að geta sér þess til
hvenær slysiö hefði annars
uppgötvast. Fyrri bíllinn valt á
hliðina en sá seinni skemmdist
ekki og báöir mennimir í þeim
bil sluppu ómeiddir.
-sv
„Það eru mikil og ánægjuleg tíð-
indi að bókin Lífskraftur skuli seljast
svona vel og vera í þriðja sæti met-
sölulistans. Ég reiknaði alltaf með að
þessi bók myndi fá jákvæðar viðtökur
vegna séra Péturs og Ingu. Þau eru
vel þekkt meöal landsmanna og á
Norðurlandi eru þau þjóðhefiur. Pét-
ur og Inga eru alþýðufólk og ég held
að margir íslendingar finni samhljóm
með þeim og þeirra erfiðu lífsbar-
áttu,“ sagði Friðrik Erlingsson, höf-
undur bókarinnar Lífskraftur sem er
í þriðja sæti á bóksölulista DV yfir
mest seldu bækur síðustu viku.
Kökubók Hagkaups er sú bók sem
selst mest i jólabókaflóðinu en
barnabókin Játningar Berts er í
öðru sætinu. Barnabækur þeirra
Jacobssons og Olssons hafa undan-
farin ár verið meðal söluhæstu bóka
á hverju ári. í fiórða sæti DV-listans
er bamabók Guðrúnar Helgadóttur,
Ekkert að marka, og Benjamín H.J.
Eiríksson situr í fimmta sætinu.
Hún er ný á listanum, en kemur öfl-
ug inn á listann.
Af 20 söluhæstu bókum síðustu
viku eru sex bama- eða unglinga-
bækur á listanum. Efsta skáldsagan
á listanum, sem er í 10. sæti, er Z-ást-
arsaga Vigdísar Grimsdóttur. At-
hygli vekur að bækurnar Lögmálin 7
um velgengni, Lávaröur heims og
Þjóðsögur Jóns Múla Árnasonar
hrapa nokkuð á listanum, miðað við
stöðuna í síðustu viku.
Bókaverslanimar, sem taka þátt í
sölukönnun DV, eru: Hagkaupsversl-
anirnar í Skeifunni og Kringlunni, á
Akureyri og í Njarðvík, Eymunds-
son í Kringlunni, Penninn í Kringl-
unni, Penninn i Hallarmúla, Penn-
inn í Hafnarfirði, Penninn og Ey-
mundsson í Austurstræti, Bókval á
Akureyri, Bókaverslunin Sjávarborg
í Stykkishólmi, Bókabúð Sigurbjöms
á Egilsstöðum, Kaupfélag Ámesinga
á Selfossi og Bókabúð Keflavíkur í
Reykjanesbæ. -ÍS
£ióii yfot óMuhæóta fceáwt
— 3. uiAa —
1. (-) Kökubók Hagkaups -Jóhann Felixson
2. (1) Játningar Berts -A. Jacobsson og S. Olson
3. (2) Lífskraftur -Friðrik Erlingsson
4. (3) Ekkert að marka -Guðrún Helgadóttir
5. (-) Benjamín H. Eiríksson -Hannes H. Gissurarson
6. (9) Á lausu -Smári Freyr og Tómas Gunnar
7. (5) Latibær á Ólympíuleikunum -Magnús Scheving
8. (8) Stafakarlarnir - Bergljót Amalds
9. (-) Útkall á 11. stundu -Óttar Sveinsson
10. (-) Z - Ástarsaga -Vigdís Grímsdóttir
11. (6) Þjóðsögur Jóns Múla Árnasonar -Jón Múli Ámason
12. (7) Lávarður heims -Ólafur Jóhann Ólafsson
13. (10) Lífsins tré -Böðvar Guðmundsson
14. (-) íslandsförin -Guðmundur Andri Thorsson
15. (-) Lögmálin 7 um velgengni -Deepak Chopra
16. (-) Allt í sleik -Helgi Jónsson
17. (-) Þórður í Haga -Óskar þórðarson
18. (-) Þegar mest á reynir -Danielle Steel
19. (-) Með fortíðina í farteskinu -Elín Pálmadóttir
20. (-) GriIIaðir bananar -Ingibjörg Möller og Fríða Sig.
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja i síma 9041600.
39,90 kr. mlnútan
Já '§ Nel 2
j rödd
FOLKSINS
904 1600
Á jafn lífeyrisréttur að vera
forgangskrafa í kjaraviðræðunum?
Árás í Tunglinu:
Fékk spark í höfuðið
Maður fékk slæm högg og spörk í
höfuðið í Tunglinu aðfaranótt
sunnudagsins. Lögreglumaður á
vakt í miðborginni sagði að maður-
inn hefði náð að komast út úr hús-
inu en síðan hefði hann hnigið niður
rétt áður en hann kom að lögreglubíl
sem þar var. Kallað var eftir sjúkra-
bíl og ekki þótti þorandi annað en
sefia manninn í kraga. Hann var
meðvitundarlaus þegar lögreglan
skildi við hann en í gærkvöld tókst
ekki að fá upplýsingar um afdrif
mannsins á Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Erfitt reyndist fyrir lögreglu að fá
upp gefið hverjir stóðu að árásinni
en þó tókst um síðir að handtaka
einn sem viðurkenndi að hafa átt
þátt í henni. Á þeim manni fundust
alsælutöflur. Hann var látinn laus
eftir yfirheyrslu og telst málið upp-
lýst. -sv
Stuttar fréttir
Spennandi samningur
Hugsanlegur tollfrelsissamn-
ingur milli EFTA og ASEAN get-
ur verið spennandi fyrir ísland,
segir Finnur Ingólfsson, við-
skipta- og iðnaðarráðherra. Stöð 2
sagði frá.
Hvalfjarðargöng
kláruð fyrr
Samkvæmt nýrri verkáætlun
verður lokið við að sprengja Hval-
fiarðargöng á næsta ári en ekki
árið 1998, eins og áður vai- talið.
RÚV greindi frá.
Taka tilmælum illa
Tilmæli sfiórnvalda til sveit-
arfélaga um að þau dragi úr
framkvæmdum hafa fallið í
grýttan jarðveg hjá forsvars-
mönnum sveitarfélaga. Stöð 2
sagði frá.
Gallað bóluefni
Samkvæmt fréttum RÚV geta
þeir 30 þúsund íslendingar sem
bólusettir voru gegn inflúensu
samt sem áður fengið flensu.
Bóluefnið virðist eingöngu virka
á inflúensu af A-stofni en ekki af
B-stofni.
Strætó í Reykjanesbæ
Rekstur almenningsvagna hófst
í Reykjanesbæ á laugardagsmorg-
un. Ókeypis verður í vagnana til
áramóta. RÚV sagði frá.
Viðskiptaspil til Evrópu
RÚV sagði frá því að í smíðum
væri Evrópuútgáfa af viðskipta-
spilinu sem nýlega kom á markað
hér á landi. Vonast er til að ESB
noti spilið til að kynna sameigin-
lega evrópska mynt.
Vill tilboð
Heilbrigðisráðherra vill leita
eftir tilboðum frá einkareknum
læknastofúm hér heima og er-
lendis. Ætlunin er að spara 100
milljónir króna. Stöð 2 sagði frá.
Skipadeilur
Samkvæmt fréttum ríkissjón-
varpsins segir forsfióri Samskipa
að starfsumhverfi íslenskra
skipafélaga sé ekki í takt við tím-
ann. Þessu mótmæla forsvars-
menn Sjómannasambands
Reykjavíkur og Alþjóðasambands
farmanna.
Smávægileg meiðsl
Bíll skemmdist töluvert á Sand-
gerðisvegi á laugardag, eftir að
hann valt út fyrir veg í hálku. Bíl-
sfiórinn slapp með smávægileg
meiðsl.
-JHÞ