Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1996, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1996, Síða 25
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1996 33 DV Fréttir Skoöanakönnun fyrir Þingflokk jafnaðarmanna: Sækja líka ffylgi til stjórnarflokka Einar Karl Haraldsson, starfsmaö- ur þingflokks jafnaðarmanna, segir að í skoðanakönnun þeirri sem Fé- lagsvísindastofnun framkvæmdi fyr- ir þingflokk jafnaðarmanna komi í ljós, þegar svör fólks eru samkeyrð, að jafnaðarmannaflokkur myndi sækja mikið fylgi til núverandi stjómarflokka. Þannig sögðust 15,4 prósent þeirra sem kusu Framsókn- arflokkinn síðast ætla að kjósa jafn- aðarmannaflokk ef hann byði fram næst. Þá sögðust 9,7 þeirra sem kusu Sjálfstæðisflokkinn síðast ætla að kjósa jafnaðarmannaflokk byði hann fram. Af þeim sem kusu Alþýðuflokkinn síðast sögðust 8,6 prósent ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn næst, 5,4 prósent Framsóknarflokkinn og 72 prósent jafnaðarmenn. 3,2 prósent ætluðu ekki að kjósa og 10,8 prósent neita að svara eða eru óákveðin. Af þeim sem kusu Framsóknar- flokkinn síðast sögðust 3,8 prósent ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 66,8 prósent Framsóknarflokkinn aft- ur og 15,4 prósent jafhaðarmanna- flokk byði hann fram. Rúm 10 pró- sent fara á aðra flokka, neita að svara eða ætla ekki að kjósa. Af þeim sem kusu Sjálfstæðisflokk- inn síðast ætla 75,9 prósent að kjósa hann aftur, 2,9 prósent Framsóknar- flokkinn og 9,7 prósent flokk jafhað- armanna en rúm 10 prósent sögðust Stj örnuspekingur: Opnar útibú í Bandaríkjunum „Við leigjum aðstöðu í stórri versl- unarmiðstöð í Los Angeles þar sem við höfum komið okkur upp stórum hestvagni á miðju gólfí. Þar seljum við tvenns konar stjömukort, per- sónulýsingu og framtíðarkort og emm með skrifstofuaðstöðu annars staðar í húsinu," sagði Svanborg Óskarsdóttir, annar eigandj Stjömu- spekimiðstöðvarinnar í Kjörgarði og eiginkona Gunnlaugs Guðmundsson- ar stjömuspekings. Þau hafa nú fært út kvíamar og opnað útibú í Banda- ríkjunum. „Við opnuðum þann 23. nóvember sl. og Gunnlaugur er enn erlendis til að fylgja þessu úr hlaði. Þessu hefur verið mjög vel tekið og Bandaríkja- menn era mjög opnir fyrir nýjung- um. Við seljum hvert stjömukort á 39 dollara en kaupandinn fær það innbundið í harðspjaldakápu með koparfestingum. Það sómir sér því vel á hvaða stofuhillu sem er og er lífstíðareign. Margir gefa þetta í sængur- eða afmælisgjafir," sagði Svanborg. Aðspurð sagði hún undirbúning- inn hafa staðið yfir í mörg ár en hann fólst aðallega í hugmyndavinnu Gunnlaugs og tölvuvinnu. Útreikn- ingur sjálfra stjömukortanna fer fram í gegnum Internetið þannig að þegar Bandaríkjamaður biður um stjömukort er það reiknað út af tölv- unarfræðingi í Kjörgarði og sent til baka innan hálftíma. Svanborg sagðist ekki hafa tekið saman hvað allt þetta hefði kostað en sagði aðalkostnaðinn felast í hug- myndavinnunni, í hana hefði farið gífurlegur tími. Aðspurð sagði hún ýmsa fjársterka aðila hafa lagt þessu lið en vildi ekki tjá sig nánar um það. Þau stefna að því að opna fleiri útibú í Bandaríkjunum í framtíðinni og jafnvel líka á meginlandi Evrópu. „í Bretlandi era líka aðilar sem era til- búnir að taka þátt i þessu en Gunn- laugur hreinlega annar því ekki í bili. Hann leggur mikla áherslu á að fylgja þvi vel eftir sem hann byrjar á,“ sagði Svanborg. -ingo kjósa aðra flokka, neita að svara eða ætla ekki að kjósa. Af þeim sem kusu Alþýðubanda- lagið síðast ætla 79,5 prósent að kjósa flokk jafnaðarmanna. Þá ætla 2,5 pró- sent að kjósa Sjálfstæðisflokkinn næst og 4,9 prósent Framsóknar- flokkinn. 5,7 prósent ætla ekki að kjósa og 7,4 prósent neita að svara. Hjá Kvennalista ætla 2,4 prósent að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 19,5 pró- sent Framsóknarflokkinn, 43,9 flokk jafhaðarmanna og 26,8 prósent neita að svara. -S.dór Sparil$ápan þín er Islenslk Verðið kemur á óvart Rétt verð 24.900. Margir litir og stœrðir Fríar Póstkröfur ffCápusalan Snorrabraut 56 5 562 4362 FRAMSOKNARFLOKKURINN 1916-1996 Framsóknarflokkurinn þakkar landsmönnum farsælt samstarf í 80 ár og væntir þess að leiðir liggi saman til framtíðar. Gleðilega hátíð 2 Framsóknarflokkurinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.