Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1996, Qupperneq 38
46
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1996
Fréttir
Samkomulag stjórnarflokkanna 1 LlN- og veðheimildarmálunum:
Fjarri lagi að her sé um
hrossakaup að ræða
- segir Guöni Ágústsson alþingismaður
„Það er garri öllu lagi að hér sé
um einhver hrossakaup milli
stjómarflokkanna að ræða. Ég
hafna því alfarið. Hér er um
þannig mál að ræða að það er ekki
hægt að versla með þau. Það gerir
enginn stjórnmálaflokkur í svona
stómm málum," sagði Guðni
Ágústsson alþingismður tun lausn
í máli Lánasjóðs íslenskra náms-
manna annars vegar og hins veg-
ar að heimila veðsetningu kvóta.
Stjómarandstæðingar fullyrða
að þama hafi hrossakaup átt sér
stað. Þeir benda á að framsóknar-
menn hafl fengið næstum allt sitt
í gegn í LÍN-málinu og sjálfstæðis-
menn næstum allt sitt í veðheim-
ildarmálinu.
Varðandi LÍN-málið veröa tekn-
ar upp samtímagreiðslur með
„einum eða öðram hætti“, eins og
þingmenn stjórnarílokkanna kafla
það. Sömuleiðis verða endur-
greiðslur lána lækkaðar. Þetta
mál verður hins vegar ekki endan-
lega frá gengið fyrr en eftir ára-
mót.
DV hefur áöur skýrt frá því að
samkomulag sé komið milli stjórn-
arflokkanna um veðsetningu á
kvóta. Þar er um að ræða að heim-
ilt verði að veðsetja veiðiskip og
þann kvóta sem það fær úthlutað
árlega. Aftur á móti verði óheimilt
að veðsetja kvóta einan og sér. Þar
er átt við þann kvóta sem gengur
kaupum og sölum mifli útgerða
eða sem er leigður.
-S.dór
Örn Þórarinsson, oddviti og
bóndi á Ökrum, ásamst Maríu
G. Guðmundsdóttur, sambýlis-
konu sinni. DV-mynd ÞÖK
Örn Þórarins-
son, oddviti
Fljótahrepps:
Unga
fólkið
fer
DV, Fljótum:
„Það fækkar hér fólki vegna
samdráttar í landbúnaði og lok-
unar Miklalax. Það skortir hér
nýliðun á jörðum. Unga fólkið
fer í burtu þó að til séu undan-
tekningar frá því,“ segir Öm
Þórarinsson, oddviti í Fljóta-
hreppi og bóndi að Ökrum.
Hann segir lokun fiskeldis-
stöðvar Miklalax vera áhyggju-
efhi og það myndi breyta miklu
ef tækist að koma henni í gang
á ný.
„Það unnu hjá Miklalaxi 14
manns en síðan til lokunar
kom hafa aðeins starfað þar 2-3
menn. Það væri raunhæfur
Bettý Marselfusardóttir viö vinnu sfna á saumastofunni.
DV-mynd ÞOK
Saumar íslenska fán-
ann fyrir Gæsluna
möguleiki á fólksfjölgtm ef stöð-
in kæmist í gagnið á ný,“ segir
Öm. -rt
DV, Hofsósi:
„Við saumum íslenska fánann
fyrir aðila um allt land. Núna eru
S 14kt. gullhálsmen, hringur
og eyrnalokkar með
blóðsteinum eða perlum.
Verö 20.500 allt settiö
l 4
k r
V A
A
Gullsmiðja Helgu
LAUGAVEGI 40
SlMI OG FAX 561-6660
Sendum
í póstkröfu
________r
við að sauma fyrir Landhelgisgæsl-
una. Þaö er oft mikið að gera i fána-
saumi en þó misjafnt milli ára,“ seg-
ir Svanhildur Guðjónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri saumastofunnar á
Hofsósi sem sérhæfir sig í að sauma
íslenska fánann.
„Það er mest að gera í kringum
þjóðhátíöir og þegar sveitarfélög
halda hátíðir. Það er rólegra inn á
milli. Við saumum á milli 500 og 600
fána á ári,“ segir Svanhildur. Hún
segir að vinnan við fánana fari ekki
eftir stærð þeirra.
„Litlu fánamir em erfiðastir og
taka lengstan tíma. Það er einfald-
ara að sauma þá stærri,“ segir
Svanhildur.
Fánasaumurinn er aðeins hluti
framleiðslunnar en að auki er
saumað það sem til fellur hverju
sinni. Að staðaldri vinna þrjár kon-
ur á saumastofunni. -rt
Sænsk skóverk-
smiðja hugsan-
lega á Krókinn
- hefur sérhæft sig í íþróttaskóm
DV, Sauöárkróki:
Tfl greina kemur að sænskt fyrir-
tæki, sem hefur sérhæft sig í fram-
leiðslu á íþróttaskóm, setji upp
verksmiðju á Sauðárkróki. Sauð-
krækingar em búnir að vera í sam-
bandi við þennan sænska aðila um
tíma og á liðnu sumri var hafist
handa í gerö forathugunar á hag-
kvæmni þessa.
Að sögn Snorra Bjöms Sigurðs-
sonar bæjarstjóra var niðurstaða
þeirrar atíiugunar jákvæð og verð-
ur nú haldið áfram og málið kannað
til hlítar. Vonast er til að ákvörðun
liggi fyrir áður en langt um liður en
reiknað er með að a.m.k. tveir til
þrir mánuðir líði áður en þar að
kemur.
Hér er verið að tala um frekar
litla verksmiðju á alþjóðlegum
mælikvarða, með um 30 störfum.
Sænski aðilinn kveðst hafa yfir að
ráða mjög sterkum viðskiptasam-
böndum og þeirra eigin vömmerki
er þekkt í Svíþjóð, auk þess sem
sænska verksmiðjan hefur framleitt
.skófatnað undir öðrum þekktum
vömumerkjum, með leyfi viðkom-
andi rétthafa. Rætt er um að slíkt
fyrirkomulag kæmi einnig til
greina ef af stofnun verksmiðjunnar
á Króknum yrði.
Aðspurður sagði Snorri Bjöm að
ekkert hefði verið rætt um hvemig
eignaraðild að verksmiðjunni yrði
háttaö ef til kæmi en ljóst að Svíar
myndu eiga þar stóran hlut. Þess
væri einnig vænst að heimamenn
kæmu með fjármagn inn í rekstur-
inn.
„Það er of snemmt að slá neinu
fóstu með þetta en hins vegar veitir
okkur ekkert af að reyna að skjóta
sterkari fótum undir atvinnulífið
héma,“ sagði Snorri Bjöm.
-ÞÁ
Hraðfrystistöð Þórshafnar:
Rífleg þreföldun á
verði hlutabréfanna
- eftir innkomu á Opna tilboðsmarkaöinn
„Viö gerðum okkur vonir um
góðar viðtökur en þetta er umfram
það sem við bjuggumst við og stað-
festir að við eigum fullt erindi á
þennan markað,“ sagði Hólmar
Ástvaldsson, fjármálastjóri Hrað-
frystistöðvar Þórshafnar, í samtali
við DV en frá því fyrirtækið fór á
Opna tilboðsmarkaðinn, OTM, 6.
desember sl. hafa hlutahréfin snar-
hækkað í verði.
Gengið byrjaði í 1,25 en fór hæst
í 4,25 sl. miðvikudag. Bréfin þre-
földuðust því i verði og rúmlega
það. Eitthvað hægði á skriðinu
eftir það þegar gengið fór niður
fyrir 4,00. Engu að síður verður
þetta að teljast góð innkoma á
markaðinn.
Þegar viðskiptum lauk á fostu-
dag höfðu bréf fyrir rúmar 23 millj-
ónir að nafnvirði skipt um eigend-
ur frá 6. desember og söluvirðið
komið vel yfir 70 milljónir. Nafn-
virði alls hlutafjár í Hraðfrystistöð
Þórshafnar er 300 milljónir króna.
Áður en stöðin fór á OTM voru
stærstu eigendur Þórshafnarhrepp-
ur og Hængur ehf.
Að sögn Hólmars hefur það verið
í undirbúningi um tíma að fara
meö fyrirtækið á hlutabréfamark-
Hraðfrystistöð Þórshafnar
- hlutabréf á OTM* frá 6. des. -
4.5 i
4
3Í f
3,95
* M
gt
Mí
1
! /Á
15 tA
• UíWlntaMÍBaAai
T
« (...
m n
<0 <0 0» o -
' Opni tllboðsmarkaðurinn
aö. Engin ákvörðun liggi fýrir um
hvort hréfln verði skráð á Verð-
bréfaþingi íslands. Sá möguleiki sé
fyrir hendi síðar meir. -bjb