Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1997, Síða 8
8
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997
Útlönd
Mannskætt flugslys í Michiganríki:
Líkamshlutar á víð og
dreif um stórt svæði
- þrettánda flugslys þessarar flugvélategundar
Mannskætt flugslys varð þegar
farþegavél Delta flugfélagsins hrap-
aði í hríðarbyl í Michiganríki í gær.
Allir sem um borð voru, 29 manns,
létust. Af þeim voru 26 farþegar og
þriggja manna áhöfn.
Flugvélin, 30 manna af gerðinni
Embraer Brasilia 120, var á leið frá
Cincinnati til Detroit og hrapaði til
jarðar aðeins 40 km frá Detroit.
Flugfélagið Comair, dótturfyrirtæki
Delta, annast flug innan Michigan-
ríkis fyrir Delta.
Á blaðamannafundi stuttu eftir
slysið upplýsti blaðafulltrúi Comair
að flugvélin hefði verið í notkun fyr-
ir fyrirtækið frá árinu 1992 og ný-
komin úr rækilegri endurskoðun í
nóvember síðastliðnum. Fram kom
á fundinum að þetta væri fyrsta
flugslysið sem Comair hefði þurft að
þola en fulltrúinn neitaði að öðru
leyti að svara fyrirspumum blaða-
manna. Annar blaðamannafundur
var boðaður í morgun.
Fram kom á fundinum að flugvél-
in hefði horfið af radar stuttu fyrir
slysið. Flugtíminn á milli Cincinnati
og Detroit er 55 mínútur og var vél-
in búin að vera klukkutíma á lofti
þegar hún hrapaði. í fréttum CNN
um atburðinn kom fram að 13 tilfelli
eru skráð um mannskæð óhöpp hjá
flugvélum af gerðinni Embraer
Brasilia 120 frá árinu 1986. Þar á
meðal er flugslys í Georgíuríki þar
sem öldungadeildarþingmaðurinn
John Tower lét lífíð.
Vitni að slysinu báru að flugvélin
hefði verið í lágflugi en tekið
skyndilega dýfu og hrapað nánast
beint niður til jarðar. Hún sprakk í
loft upp og vélarhlutar dreifðust um
stórt svæði. Maður sem kom á slys-
stað sagði frá því í sjónvarpsviðtali
að líkamshlutar hefðu verið dreifðir
um stórt svæði.
Hríðarbylur hafði geisað í nokkra
klukkutima á svæðinu og um 15 cm
þykkt lag af snjó fallið þegar slysið
varð. Ekkert hefur samt komið fram
um að veðurhamurinn hafi verið or-
sök slyssins en getgátur eru uppi
um að afisingarbúnaður flugvélar-
innar hafi ekki verið i lagi.
Reuter
Jeltsín heilsast
þokkalega á
sjúkrahúsinu
Borís Jeltsín Rússlandsforseti er
við þokkalega heilsu á sjúkrahúsi
í Moskvu þangað sem hann var
fluttur á miðvikudag vegna snerts
af lungnabólgu.
Veikindi hans
nú hafa enn
einu sinni skap-
að mikla óvissu
og mikinn ótta í
rússneskmn
stjórnmálum.
í Kreml er lít-
ið gert úr vanda
forsetans og því haídiö fram að
veikindin nú standi í engu sam-
bandi við kransæðaaðgerðina sem
hann gekkst undir í nóvember síð-
astliðnum.
Viktor Tsjernomyrdín forsætis-
ráðherra, sem er staðgengill forset-
ans, lét veikindi Jeltsíns ekki aftra
sér frá þvi að fara í fyrirhugað
vikufrí nærri Moskvu. Hann
ræddi við Jeltsín í síma í gær en
forsetanum eru gefin fúkalyf
vegna kvefpestar sem hann krækti
sér í.
Alexander Lebed hershöfðingi,
sem Jeltsín rak úr embætti örygg-
isráðgjafa tveimur vikum fyrir
hjartaaðgerðina, krafðist þess að
Jeltsín segði þegar í stað af sér.
Leit hafin að
enn einum
skútumanninum
Ástralski sjóherinn leitar nú að
kanadískum siglingakappa sem er
saknað einhvers staðar í hafinu
undan Suðurskautslandinu. Á
sama tima rikh' mikill fógnuður
meðal Ástrala eftir giftusamlega
björgun tveggja annarra skútusigl-
ingamanna í gær. Siglingakappam-
ir voru að taka þátt í kappsiglingu
umhverfis jörðina og voru einir í
bátum sínum.
Branson íhugar
að reyna aftur
hnattflug í belg
ísraelskir lögregluþjónar meö hunda skoöa verksummerki þar sem tvær naglasprengjur sprungu nærri aöal stræt-
isvagnamiöstööinni í Tel Aviv í ísrael í gær. Enginn hefur enn lýst ábyrgö á tilræðinu á hendur sér en forsætisráö-
herra ísraels segir allt benda til aö um hryöjuverk sé aö ræöa. Þrettán manns særöust í sprengingunum.
Símamynd Reuter
Þrettán særðust í sprengjutilræðum í Tel Aviv:
Israelsmenn heita því að
svara af fyllstu hörku
- enginn árangur af fundum Netanyahus og Ross í gærkvöld
Breski auðkýfingurinn Richard
Branson sagði í gær að hann kynni
að reyna aftur aö komast umhverf-
is jörðina í loftbelg, þrátt fyrir að
hann heföi verið
aðeins hárs-
breidd írá dauð-
anum í tilraun
sinni í vikunni.
Belgur Bran-
sons skall til
jarðar I eyði-
mörkinni í Alsír
eftir aðeins
þrettán klukkustunda flug frá
Marokkó.
„Mér mislíkar að klára ekki það
sem ég byija á,“ sagði Branson.
Reuter
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, og Dennis Ross,
samningamaður Bandaríkjastjórn-
ar, héldu viðræðum sínum um
Hebron áfram í gærkvöld, en í þetta
sinn í skugga sprengjutilræða í Tel
Aviv þar sem þrettán manns særð-
ust.
Útvarp ísraelska hersins sagði að
fundurinn hefði staðið fram á nótt
en honum hefði lokið án þess að
nokkur árangur yrði.
Israelska lögreglan sagðist telja
að arabar hefðu komið fyrir nagla-
sprengjunum sem sprungu í rusla-
fótum nærri aðal strætisvagnamið-
stöð Tel Aviv i gær.
í heimsókn til hinna særðu á
sjúkrahús hét Netanyahu því að
svara af „fyllstu hörku“ ef í ljós
kæmi að tilræðismennimir kæmu
úr röðum Palestínumanna á sjálf-
stjómarsvæðunum. Hann sagði allt
benda til að hryðjuverkamenn
hefðu verið þama að verki.
Enginn hefur lýst sig ábyrgan fyr-
ir sprengjutilræðunum sem urðu
aðeins viku eftir að ísraelskur her-
maður á frívakt skaut á mannfjölda
í Vesturbakkabænum Hebron og
særði sjö araba. Harðlínumenn úr
röðum múslíma hétu því að koma
fram hefndum.
Sprengjurnar sprungu í nokkurra
kílómetra fjarlægð frá skrifstofu
Netanyahus í Tel Aviv þar sem
hann sat á fundi með Dennis Ross.
Þeir vom að reyna að binda enda á
þær ógöngur sem viðræður PLO og
ísraels um brottflutning ísraelskra
hermanna frá Hebron em komnar í.
„Við lögðum fram ýmsar hug-
myndir en sprengjurnar bundu
enda á viðræðurnar og þess vegna
hef ég ekkert að segja ykkur,“ sagði
Netanyahu við fréttamenn á Ichilov
sjúkrahúsinu í Tel Aviv.
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, beið eftir niðurstöðu af
fundum Netanyahus og Ross áður
en hann tæki ákvörðun um hvort
hann færi í fyrirhugaða ferð til Evr-
ópu í dag, að sögn embættismanna
PLO. Reuter
Stuttar fréttir i>v
Leiðtogar í kulda
Sjö verkalýðsleiðtogar í Suður-
Kóreu höfðust við í snjó og kulda
fyrir utan dómkirkjuna í Seoul og
virtu lögregluna ekki viðlits þegar
hún reyndi að afhenda þeim fyrir-
skipanir um að mæta fyrir rétt í
dag.
Glæpamenn fara hvergi
Bosníu-Serbar hétu því í gær að
þeir mundu aldrei afhenda stríðs-
glæpamenn sina svo rétta megi yfir
þeim við stríðsglæpadómstól SÞ.
Major á Indlandi
John Major,
forsætisráðherra
Bretlands, ætlar
að kynna sér mið-
stöð hátækni-
framleiðslu Ind-
lands í dag. Major
er á vikuferðalagi
um Suður-Asíu
þar sem viðskiptamál eru sett á
oddinn.
Dó í fangaklefa
Liðsforingi í leyniþjónustu
bandaríska flughersins, sem hefúr
verið sakaður um að hafa reynt að
bana konu sinni með bréfasprengju,
fannst látinn í fangaklefa sinum í
gær.
Biðst afsökunar
Kanadísk stjómvöld hafa beðið
tvo menn afsökunar á að hafa kall-
að þá glæpamenn vegna meintra
mútugjafa framleiðenda Airbus-
flugvélanna til að ná samningi.
Yfirhylming skoðuð
Leiðtogar nefiidar öldungadeildar
Bandaríkjaþings hétu því í gær að
rannsaka hvort varnarmálaráðu-
neytið hefði hylmt yflr upplýsingar
um að hermenn í Persaflóastríðinu
hefðu komist í snertingu við eitur-
gas.
Hjartaáfall Sinatra
Bandaríski
söngvarinn Frank
Sinatra fékk
hjartaáfall i gær
og var fluttur í
skyndingu á
sjúkrahús. Þetta
er í þriðja sinn á
tveimur mánuð-
um sem söngvarinn er lagður inn á
sjúkrahús.
Fáránlegt
Aðstoðarmenn Newts Gingrich,
nýendurkjörins forseta fulltrúa-
deildar Bandarikjaþings, segja full-
yrðingar um að fyrrum sjálfboðaliði
í kosningabaráttu hans hefði gerst
sekur um ótilhlýðilegt athæfi alveg
fáránlegar.
Barnklám
Belgísk lögregla gerði mikla hús-
leit á 60 stöðum um allt land í gær í
leit að sönnunargögnum um bam-
aklám eða starfsemi tengda bama-
vændi.
Bann gegn tóbaki
Belgíska þingið undirritaði lög í
gær sem banna allar tóbaksauglýs-
ingar og styrki varðandi tóbak-
snotkun frá og með árinu 1999.
Sár í hálsi
Bandaríska
poppstjaman
Michael Jackson
kom á óvart þegar
hann flaug til
London i gær, en
ekkert er vitað
um fyrirætlanir
hans í Bretaveldi.
Jackson þjáist af slæmri hálsbólgu.
Hjartaáfall
Rússneski geimapinn Multik lést
úr hjartaslagi, stuttu eftir tveggja
vikna geimferð. Vísindamenn segja
hjartaáfallið í engum tengslum við
ferðina.
Trygglyndi
Þýskur skíðamaður lá í fjóra
daga handleggsbrotinn og úr
mjaðmarlið við hlið látinnar eigin-
konu sinnar í Ölpunum, en hann
hafði gert tilraun til að bjarga
henni úr sjálfheldu. Reuter