Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1997, Page 19
18
ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997
ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997
23
íþróttir
Enn tapar
lið Elverum
Gunnar Gunnarsson og læri-
sveinar hans í Elverum töpuðu
fyrir Kristianstad, 28-22, í
norsku 1. deildinni í handknatt-
leik um helgina. Elverum hefur
aðeins hlotið 3 stig úr 14 leikjum
og er næstneðst í deildinni.
Hrafnkell Halldórsson, sem
leikur með Herkules, skoraði 6
mörk og var markahæstur í sínu
liði þegar þaö tapaði fyrir topp-
liöi Drammen, 33-24.
-GH
Larvik með
fullt hús
Larvik, liðiö sem Kristján
Halldórsson þjálfar, er með fullt
hús stiga eftir 9 umferöir eins og
Bækkelaget í 1. deild kvenna í
Noregi. Larvik vann stórsigm- á
Lunner um helgina, 35-22.
Sola, lið Höllu Maríu Helga-
dóttur, tapaði fyrir Gjerpen,
17-15, og er næstneðst í deildinni
með 2 stig.
-GH
Birgir Leifur fékk
afreksmannastyrk
Akranesbæjar
DV, Akranesi:
í hófi sem Akraneskaupstaður
hélt til heiðurs afreksfólki á
Akranesi var íslandsmeistaran-
um í golfi, Birgi Leifi Hafþórs-
syni, veittur afreksmannastyrk-
ur Akraneskaupstaðar að upp-
hæð 100.000. Enginn sótti um
styrkinn en íþrótta- og æskulýðs-
nefnd bæjarins tilnefhdi Birgi
Leif til styrksins.
-DVÓ
Schwalb bestur
í Þýskalandi
Martin Schwalb, leikmaður
Wallau Massenheim, hefur ver-
útnefndur handknattleiksmaður
ársins í Þýskalandi af þýska
handboltatímaritinu Handball
Woche.
í öðru sæti varö Daniel Steph-
am hjá Lemgo og i þriðja sæti
Jan Holbert sem leikur með
Flensburg.
Andreas Thiel
skrifaði undir
Besti handknattleiksmark-
vörður Þjóöverja til margra ára,
Andreas Thiel, hefur skrifað
undir nýjan samning við félagið.
Almennt var búist við því að
Thiel, sem er 37 ára, myndi
hætta eftir yfirstandandi tímabil
í þýska handboltanum. Það kom
því mörgum á óvart er Thiel
skrifaði undir samning við Dor-
magen til ársins 1998. Hann
hefur varið mark Dormagen síð-
ustu 6 árin og leikið 257 lands-
leiki fyrir Þýskaland. -SK
Júlíus skoraði
tvö fyrir Suhr
Júlíus Jónasson skoraði tvö
mörk fyrir lið sitt, Suhr, um
liðna helgi er Suhr gerði jafntefli
við Borba Luzem í 2. umferð úr-
slitakeppninnar.
Borba Luzem hafði yfir í leik-
hléi, 14-12, og einnig þegar
skammt var til leiksloka. Suhr
tókst hins vegar að jafna og ná í
mikilvægt stig. -SK
Ólafur\ ekki Guðjón
Það var Ólafur Haraldsson,
ekki félagi hans Guðjón L. Sig-
urðsson eins og mishermt var í
DV í gær, sem sýndi Páli Ólafs-
syni rauða spjaldið í leik Stjörn-
unnar og Hauka í bikarkeppn-
inni í handbolta á laugardaginn.
Iþróttir
Newcastle-feðgarnir
eru ekki sammála
- faðirinn vill Robson, sonurinn vill Dalglish
John Hall, stjórnarformaður
enska knattspyrnufélagsins New-
castle, er enn staðráðinn í að fá
Bobby Robson, framkvæmdastjóra
Bcircelona, til að koma til félagsins
og taka við af Kevin Keegan. Sonur
hans, Douglas Hall, sem er einn
stjómarmanna Newcastle, berst fyr-
ir því að Kenny Dalglish, fyrmm
stjóri Blackbum og Liverpool, verði
ráðinn.
Robson hefur afþakkað boð
Newcastle og segir að þó hann feg-
inn vildi geti hann ekki annað en
staðið við samning sinn hjá
Barcelona. John Hall hlustar hins
vegar ekki á það og ætlar að reyna
til þrautar.
Dalglish bíöur viö símann
Kenny Dalglish, sem gerði bæði
Liverpool og Blackbum að meistur-
um, er tilbúinn til að taka við
Newcastle og hefur beðið eftir sím-
tali frá félaginu síðan á fostudag.
Enginn hefur hringt enn þá en Dou-
glas Hall reynir sem hann getur til
að fá föður sinn til að skipta um
skoðun. Bent er á að það hafi verið
Douglas sem fékk Keegan til
Newcastle á sínum tíma og þurfti þá
miklar fortölur til að fá þann gamla
til að samþykkja þá ráðningu.
Arthur Cox og Terry McDermott
halda sínu striki með liðið á meðan
á þessu stendur og það er eindreg-
inn vilji leikmannanna að þeir tveir
taki við liðinu til frambúðar. Cox
var áður framkvæmdastjóri New-
castle og hann réð ferðinni í leikn-
um við Aston Villa á laugardaginn.
Síðan er það Louis Van Gaal hjá
Ajax sem hefur haft samband við
Newcastle og látið vita af áhuga sín-
um á starfinu. Árangur hans með
Ajax talar sinu máli en John Hall er
bara að hugsa um allt annan mann.
-vs
Franski handboltinn:
Geir og félagar eru
á góðum skriði
Geir Sveinsson og félagar hans í
franska liðinu Montpellier eru á
góðu skriði þessa dagana. Um miðja
síðustu viku tryggði liðið sér sæti í
16-liða úrslitum bikarsins og um
helgina vann liðið góðan útisigur á
Bordeaux, 23-24. Geir skoraði tvö
mörk af línunni fyrir Montpellier.
Það bar einna helst við í leikjum
helgarinnar að Creitel tapaði fyrsta
leik sínum í deildinni. Istres, sem er
í neöri hlutanum, gerði sér lítið fyr-
ir að lagði Creitel, 27-22.
„Sigurinn í Bordeaux var mun ör-
uggari en lokatölur gefa til kynna.
Þegar fjórar mínútur voru til
leiksloka voru við sex mörkum yfir.
Við erum sáttir með stöðu okkar í
dag en um næstu helgi eigum við
erfiðan heimaleik gegn Ivry. Við
stefnum að sjálfsögðu að sigri í
þeim leik,“ sagði Geir Sveinsson í
samtali við DV í gær.
Vegna ósigurs Creitel skaust Ivry
upp í efsta sætið með 49 stig. Creteil
er með 46, Montpellier 38 og Paris
SG Asnieres er í fjórða sætinu með
36 stig. Frakkar gefa 3 stig fyrir
sigur, 2 fyrir jafntefli og 1 fyrir tap.
-JKS
Barcelona fékk skell
Barcelona tapaði óvænt á heimavelli í gær-
kvöld, 2-3, fyrir einu af botnliðunum í
spænsku 1. deildinni í knattspyrnu, Hercules,
sem ekki hafði fengið stig á útivelli. Barcelona,
sem komst í 2-0 í leiknum, hefði komist á topp-
inn með sigri en þar hefur nú Real Madrid
þriggja stiga forystu. -VS
Eins og myndin ber meö sér var ekkert gefiö eftir í viöureign Toronto og Orlando í fyrrinótt. Carlos Rogers, framherji
Toronto, er hér kominn á fjóra fætur og Gerald Wilkins hjá Orando fylgist álengdar með.
NBA-deildin í körfuknattleik í fyrrinótt:
Loksins útisigur
hjá Orlando Magic
Þrír leikir voru háðir í NBA-
deildinni í fyrrinótt. Toronto tapaði
á heinavelli fyrir Orlando, 85-88,
Milwaukee sigraði Golden State,
11-93, og Charlotte sigraði Sacra-
mento á útivelli, 93-97.
Toronto stóö lengi vel í Orlando
en undir lokin var liðið yfirbugað.
Þetta var aðeins fimmti útisigurinn
hjá Orlando í vetur. Horace Grant
var stigahæstur með 22 stig og
Seikaly skoraði 21 stig og tók 17 frá-
köst. Walt Williams skoraði 22 stig
fyrir Toronto.
Milwaukee vann ótrúlegan léttan
sigur á Golden State. Ray Allen
skoraði 22 stig fyrir Milwaukee en
fyrri Golden State skoraði Latrell
Sprewell 21 stig.
Charlotte vann nauman sigur í
Sacramento. Þar réðust úrslitin
ekki fyrr en seint í leiknum. Glen
Rice var með 26 stig fyrir Charlotte
en Mahmoud Abdul-Rauf skoraði 22
stig fyrir Sacramento.
-JKS
Úrslitin í NBA-deildinni í nótt eru á bls. 2
Guörún Arnardóttir hlaupadrottning var á dögunum útnefnd íþróttamaöur Ár-
manns fyrir áriö 1996.
Guörún náöí frábærum árangri á liönu ári og val hennar kemur ekki á óvart. Guö-
rún stóö sig frábærlega vel á Ólympíuleikunum í Atlanta og hefur skipaö sér i allra
fremstu röö í heiminum 1400 m grindahlaupi.
Þá varö Guörún í ööru sæti á kjöri Iþróttamanns ársins hjá Samtökum íþrótta-
fréttamanna.
Á myndinni hér aö ofan er hún meö verðlaun sín ásamt Jóhanni Jóhannessyni, 90
ára forystumanni í Ármanni til 65 ára. -SK
Sigfríður
til Jitex?
Sænska knattspymufélagið Jitex frá
Gautaborg sækist nú stíft eftir því að fá
Sigfríði Sophusdóttur, landsliðsmark-
vörð úr Breiðabliki, til liðs við sig fyrir
komandi tímabil. Jitex hefur um árabil
verið eitt besta lið Svía og varð í þriðja
sæti á síðasta ári.
„Já, ég hef heyrt talsvert frá Svíunum
síðustu daga, þá vantar markmann og
vilja endilega fá mig. Það er þó líklegra
að ég verði kyrr hér heima en ef ég hefði
fengið svona boð fyrir fjórum árum hefði
ég verið farin daginn eftir. Samt er ég
ekki búin að gefa þetta alveg frá mér,“
sagði Sigfríður við DV i gærkvöldi.
Tvær í barnsburðarleyfi
Tvær af bestu knattspyrnukonum
Vals, Kristbjörg Ingadóttir og Erla Sigur-
bjartsdóttir, leika ekki með Hlíðarenda-
liðinu næsta sumar, alla vega ekki fyrr
en seint á tímabilinu. Þær eru báðar
bamshafandi. Þá er líklegt að Helga Rut
Sigurðardóttir leggi skóna á hilluna og,
spili ekki með Val.
-ih/VS
Islendingur í stjörnufansinn á Stamford Bridge?
Gullit vill
Lárus Orra
- sem er metinn á rúmar 150 milljónir króna
Lárus Orri Sigurðsson, lands-
liðsmaður í knattspymu og fyrir-
liði enska 1. deildar liðsins Stoke
City, er undir smásjánni hjá Ruud
Gullit, framkvæmdastjóra úrvals-
deildarliðsins Chelsea, samkvæmt
frétt hjá Sky Sport í gærkvöldi.
í fréttinni á textavarpi stöðvar-
innar segir að Gullit íhugi leik-
mannaskipti við Stoke. Mark Stein
frá Chelsea er í láni hjá Stoke, sem
hefúr ekki efni á að kaupa hann á
50 milljónir króna. Láms Orri er
hins vegar metinn á 150 milljónir
króna og sagt er að Stoke kunni að
hafa áhuga á að skipta og fá 100
milljónir á milli.
Um Láms Orra er sagt: „Hinn 23
ára gamli íslendingur er metinn á
1,5 milljónir punda og mörg lið í
úrvalsdeildinni og á meginlandi
Evrópu hafa sýnt honum áhuga.“
Chelsea er í sjöunda sæti í úr-
valsdeildinni og er með marga
snjalla leikmenn í sínum röðum.
Þar má nefna ítalana Gianluca Vi-
alli, Gianfranco Zola og Roberto Di
Matteo og svo Gullit sjálfan.
Á sama stað segir Sky Sport
enn fremur frá miklum áhuga
Gullit á að kaupa annan vamar-
mann, Paolo Maldini, hinn heims-
fræga leikmann AC Milan, sem af
mörgum er talinn einn albesti
besti knattspyrnumaður heims.
Oröaöur við Southampton
á dögunum
„Ég heyrði af þessu áðan en ef-
laust eru þetta bara einhverjar
vangaveltur. Það voru svipuð skrif
í gangi á dögunum um að Graeme
Souness vildi kaupa mig til Sout-
hampton. Ég veit hins vegar að for-
ráðamenn Stoke eru æstir i að fá
Stein, sem er algjör hetja hér í
borginni síðan hann spilaði héma
á sínum tíma. Auðvitað er draum-
urinn að spila í úrvalsdeildinni, ég
er viss um að ég gæti staðið mig til
jafns á við marga sem þar eru
núna,“ sagði Láms Orri í samtali
við DV í gærkvöldi.
-VS
BreiðabMk (40) 77
Njarðvík (50) 93
0-4, 6-6, 8-20, 10-28, 21-38, 32-43
(40-50), 46-52, 60-76, 64-84, 77-93.
Stig Breiðabliks: Clifton
Buch 25, Einar Hannesson 19,
Óskar Pétursson 11, Erlingur Er-
lingsson 11, Agnar Olsen 8,
Pálmi Sigurgeirsson 3.
Stig Njarðvíkur: Torrey John
32, Kristinn Einarsson 16, Páll
Kristinsson 13, Örvar Ki'istjáns-
son 10, Sverrir Þór Sverrisson
10, Jón Júlíus Ámason 7, Friörik
Ragnarsson 5.
Fráköst: Breiðablik 33, Njarð-
vík 20.
3ja stiga körfur: Breiðablik
6, Njarðvík 5.
Villur: Breiðablik 20, Njarð-
vík 12.
Dómarar: Einar Einarsson og
Einar Skarphéðinsson, sæmilegir.
Áhorfendur: 60.
Maður leiksins: Torrey
John, Njarðvík.
Blikarnir eru
enn án sigurs
Lið Breiðabliks er enn án stiga i
úrvalsdeildinni i körfuknattleik og
ekki útlit fyrir að þar verði breyting
á í vetur.
í gærkvöldi tapaði Breiðablik á
heimavelli sínum fyrir Njarövík,
77-93. í byrjun leiksins leit út fyrir
stórsigur gestanna en Blikar náðu
aðeins að rétta sinn hlut. Sigur
Njarðvíkinga var þó aldrei í nokk-
urri hættu þrátt fyrir að minnstur
munur á liðunum yrði 6 stig um
tíma.
Torrey John var yfirburðamaður
í liði Njarðvíkur en hjá Blikum bar
mest á nýjum Bandaríkjamanni,
Clifton Buch. Hann er nýkominn til
liðsins og náði einni æfingu fyrir
leikinn. Einar Hannesson lék einnig
vel fyrir Blika.
Ástþór Ingason stjórnaði liöi
Njarðvíkinga í fyrsta skipti í gær-
kvöldi og verður lið hans ekki dæmt
eftir þessum leik. Engu var líkara
en að Njarðvíkingar léku á hálfri
ferð og kannski ekki ólíklegt þar
sem andstæðingurinn var stigalaus
fyrir leikinn og ekki líklegur til
stórræða
-JKS/-SK
Hednesford mætir Middlesbrough
Utandeildaliðið Hednesford Town sigraði 2. deildar lið York City, 1-0, í 3.'
umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu í gærkvöldi. Hednesford, sem aldrei
hefur komist svona langt í keppninni, mætir úrvalsdeildarliði Middlesbrough í 4.
umferðinni. -VS
Haukar mæta FH
- og KA fær ÍR-inga norður
Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH leiða
saman hesta sína í undanúrslitum bikar-
keppni karla í handknattleik en dregið
var til undanúrslitanna í gær. íhinni
viðureigninni mætast bikarmeistarar
KA og ÍR á Akureyri.
Flest bendir til þess að leikur Hauka
og FH í Strandgötunni fari fram mið-
vikudaginn 22. janúar og leikur KA og
ÍR fimmtudaginn 23. janúar.
Það verður sannkallaður stórleikur í
undanúrslitum i kvennaflokki en þá
mætast bikarmeistarar Stjörnunnar ís-
landsmeisturum Hauka í Ásgarði. í hin-
um undanúrslitaleiknum fær Valur KR í
heimsókn. Leikur Stjömunnar og Hauka
fer væntanlega fram laugardaginn 25.
janúar og leikur Vals og KR daginn eft-
ir.
-GH
Viðurkenningar Sky Sport fyrir síðasta ár:
Shearer valinn sá besti
- og David Beckham besti ungi leikmaðurinn
Á sunnudagkvöldið afhenti sjón-
varpsstöðin Sky Sport viðurkenn-
ingar til þeirra knattspyrnumanna
og knattspymustjóra sem sköruðu
fram úr í Englandi og á Skotlandi á
síðasta ári.
Alan Shearer, Newcastle, varð
fyrir valinu sem besti leikmaður
ensku úrvalsdeildarinnar og David
Beckham, Manchester United, var
kosinn besti ungi leikmaðurinn og
leikmaður fólksins og Igor Stimac,
leikmaður Derby, var kosinn besti
leikmaðurinn í neðri deildunum.
Frakkinn Eric Cantona hjá Man-
chester United hlaut titilinn besti
Alan Shearer var valinn leikmaöur
ársins 1996 af Sky Sport.
erlendi leikmaðurinn og mark Matt-
hews Le Tissiers gegn Manchester
United varð fyrir valinu sem besta
mark ársins
Joe Kinnear, framkvæmdastjóri
Wimbledon, var kostinn stjóri árs-
ins í úrvalsdeildinni og Peter Reid,
framkvæmdastjóri Sunderland, var
valinn stjóri ársins í neðri deildun-
um.
í Skotlandi kom fáum á óvart að
Brian Laudrup hjá Rangers var
kjörinn besti leikmaðurinn og Walt-
er Smith, framkvæmdastjóri Rang-
ers, hesti stjórinn.
-GH
Alex Ferguson
á eftir ísraela
Alex Ferguson, stjóri Man.
Utd, hefur nú öllum að óvörum
fengið áhuga á ungum leikmanni
Maccabi Tel Aviv í ísrael.
Sá heitir Gadi Brumer og er 23
ára landsliðsmaður. Forseti ísra-
elska liðsins mun væntanlegur
til Old Trafford á föstudag til að
ræða viðskiptin við Ferguson.
Alex Ferguson hefur oft komið
á óvart þegar um er að ræða
kaup eða sölu á leikmanni. Hann
er ekki sterkur á því svelli eins
og sölumar á Kanchelskis,
Bruce og Sharpe gefa til kynna.
Þá þóttu kaupin á Poborsky ekki
gæfuleg og margoft hefur Fergu-
son horft á eftir afburða leik-
mönnum til annarra liöa eftir aö
hafa tekið rangar ákvarðanir.
Nægir þar að nefna Alan Shear-
er. Hann gat Ferguson fengið á 5
milljónir punda en honum
fannst það of mikið. Shearer fór
sem kunnugt er nokkrum vikum
seinna til Newcastle á 15 milljón-
ir punda. -SK
Srnicek vill
frá Newcastle
Pavel Srnicek, tékkneski
markvörðurinn hjá Newcastle,
óskaði eftir því í gær að fá að
fara frá félaginu.
Srnicek hefur ekki tekist að
vinna sér fast sæti í liðinu í
langan tíma og fimm sinnum
hefur hann mátt víkja fyrir
Shaka Hislop, hinum markverði
liðsins. „Það vita allir hvað mér
finnst um stuðningsmenn liðsins
og það að búa í Newcastle. Fjöl-
skyldu minni hefur einnig liðið ;
vel hér. Þetta er því mjög dapur
dagur í mínu lífi.
Á þessum tímapunkti á mín-
um ferli þarf ég að leika knatt-
spymu með liði í fremstu röð til
að geta haldið sæti mínu sem
landsliðsmarkvörður Tékklands.
Vonandi kemst ég að hjá óðru
liði í úrvalsdeildinni. Ef það
gengur ekki er ég tilbúinn að
fara til liðs í öðru landi Evrópu,"
sagði Srnicek.
-SK
Berg fer ekki
til Man. United
Blackburn hafnaði tilboði i
Manchester United í norska
vamarmanninn Henning Berg.
Alex Ferguson var tilbúinn að
reiða fram 500 milljónir fyrir
þennan sterka vamarmann.
Lokafrestur til að gera breyting-
ar á liðunum sem taka þátt á
Evrópumótunum rennur út á
morgun. -SK
ÚRVALSDtlLDIN
Keflavík 12 10 2 1185-1008 20
Grindavík 12 10 2 1171-1071 20
Haukar 12 8 4 1034-993 16
Akranes 12 8 4 915-893 16
Njarðvik 12 8 4 1040-977 16
ÍR 12 6 6 1046-1013 12
KR 12 6 6 1068-1008 12
Skallagr. 12 5 7 943-1022 10
KFÍ 12 4 8 937-1009 8
Tindastóll 12 4 8 982-998 8
Þór, A. 12 3 9 934-1034 6
Breiðablik 12 0 12 885-1114 0
Boris Becker
var niðurlægður
„Ég gerði mitt besta en það dugði bara
ekki að þessu sinni. Moya var einfaldlega
betri en ég og verðskuldaði sigur,“ sagði
tennisleikarinn Boris Becker í gærkvöldi
eftir að hann hafði tapað í 1. umferð ástr-
alska mótsins. Moya, sem sigraði 5-7, 7-6,
3-6, 6-1 og 6-4, er í 25. sæti heimslistans.
en kann að hoppa upp um nokkur sæti
eftir sigurinn í gær. -SK