Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1997
ÍJ fréttir________________________________
Áhyggjur Grímseyinga vegna fólksfækkunar:
Maður verður að vona eð
einhverjir komi í staðinn
- segir Þorlákur Sigurösson, oddviti í Grímsey
„Við verðum að sjá hverju fram
vindur. Það fóru nokkrir héðan í
fyrra og útlit fyrir að það fari ein-
hverjir í ár. Maður verður að vona
að það komi einhverjir í staðinn.
Það þýðir ekkert annað en að horfa
fram á veginn með bjartsýni," segir
Þorlákur Sigurðsson, oddviti í
Grímsey, um þá mannfækkun sem
orðið hefur í eyjunni að undanförnu
þar sem ibúar eru nú komnir niður
fyrir 100 í fyrsta sinn um árabil.
Þorlákur segir að meginástæðu
fólksfækkunarinnar megi rekja til
kvótakerfisins og þeirrar staðreynd-
ar að milljónatugi þarf til að komast
inn i útgerð.
„Það er orðið hið versta mál fyrir
nýja aðila að komast inn í útgerð.
Þetta er ekki eins og var í gamla
daga þegar menn fóru á vertið til
annarra staða og lögðu fyrir og gátu
komið sér upp bátshomi. Nú kostar
milljónir að hefja útgerð og ungir
menn hafa fæstir burði til að kom-
ast inn í greinina," segir Þorlákur.
Hann segir vanda Grímseyinga í
dag ekki snúast um annað en þau
lög sem sett voru til að stjórna fisk-
veiðum og framkvæmd þeirra.
„Það þarf að breyta á pappírum
til að það sé hið besta mál að búa
hér. Hér er fiskur innan seilingar
og auðvelt að byggja lífsafkomu á
útgerð ef menn á annað borð mega
veiða,“ segir hann.
Eigendur krókabáta í Grímsey
hafa ritað alþingismönnum kjör-
dæmisins bréf þar sem þess er farið
á leit að þeir láti sjá sig öðru hverju
til skrafs og ráðagerða. Þorlákur
segist ekki eiga von á að þingmenn
eigi neinar einfaldar lausnir til að
leysa vanda veiðimannasamfélags-
ins í Grímsey.
„Ég hef líka mælst til að þing-
menn komi oftar hérna út. Ég veit
að þeir færa okkur ekki lausnir á
silfurfati en það er nauðsynlegt að
þeir sýni sig hér og setji sig inn í
málin hérna,“ segir Þorlákur.
„Það hlýtur að vera hægt að hag-
ræða áður en byggðir fara í eyði.
Það er mjög sárt fyrir fólk að þurfa
að yfírgefa eigur sínar og ég trúi
ekki öðru en að það sé svigrúm inn-
an kvótakerfisins til að taka tillit til
byggða sem búa við sömu einhæfni
og við Grímseyingar," segir Þorlák-
ur. -rt
Breytingar sem tengjast sjálfskuldarábyrgðum:
Viðskiptabankamir leita
leiöa til að draga úr
sjálfskuldarábyrgðum
„Við teljum að þarna sé verið að
stíga stórt skref til hagsbóta fyrir
neytendur. í fyrsta lagi viljum við
fækka sjálfskuldarábyrgðum og
tryggja að ábyrðgarmenn verði vel
upplýstir um réttindi og skyldur
þegar þeir gangast í ábyrgð. Við telj-
um ekki skynsamlegt að banna
svona ábyrgðir með lögum því það
myndi bara leiða til þess að foreldr-
ar færu að taka lán fyrir bömin á
eigin nafni og þá erum við strax
komin í jafn vond mál eða verri,“
segir Finnur Sveinbjömsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
viðskiptabanka.
SÍV, Samband íslenskra spari-
sjóða og greiðslukortafyrirtækin
Greiðslumiðlun hf. og Kreditkort hf.
hafa tekið upp ýmsar breytingar er
tengjast sjálfskuldarábyrgðum.
Finnur segir að leitað verði leiða
til þess að draga úr ábyrgðum með
því að fækka þeim. Það hugsa menn
sér þannig að í stað uppáskrifta
vina eða ættingja verði miðað við
að greiðslugeta einstaklingsins
sjálfs og eigin tryggingar, sé þeirra
óskað, standi að baki lánveitingun-
um. Forsenda þessa sé þó að betri
upplýsingar liggi fyrir um lántak-
anda, hvort sem það gerist í gegnum
upplýsingamiðstöð eða að lántak-
andi framvísi vottorðum um skulda-
stöðu sína frá öllum bönkunum.
„Auk þessa má nefna að við vilj-
um endurskoða úttektarheimildir á
kreditkortunum svo eitthvert sam-
ræmi verði í upphæöunum og því
hver sé með kortið. Þá viljum við
takmarka ábyrgðir við eldra fólk en
20 ára og yngra en 75 ára. Loks mun
verða leitast við að veita þeim sem
skrifar upp á þær upplýsingar sem
honum ber,“ segir Finnur.
-sv
Baðkar
Stærð 170x70 cm.
ÖHtæWnerutrá
TSÍSff
áferð 09 »«•
Handlaug
á vegg
43x55 cm
WC
í vegg eða gólf
með vandaðri
harðri setu
í sama lit.
RAÐGREIÐSLUR
SÍÐUMÚLA 34 (Fellsmúlamegin) • SÍMI 588 7332
OPIÐ: MÁNUD. - FÖSTUD. 9-18 • LAUGARDAG 10-14
Þær Hafrún og Margrét voru kátar þegar skóla lauk og þær gengu út í veðurblíðuna. Skólinn þeirra, hin aldna og
virðulega stofnun MR, er í baksýn. DV-mynd Hilmar Þór
Eigandi strætisvagna á ísafirði:
Kærir lögregluaf-
skipti til umboðs-
manns Alþingis
DV, ísafirði:
Ásgeir Sigurðsson, sem á og rek-
ur strætisvagn þann sem lenti i því
óhappi í síðustu viku að íjúka og
lenti á húsi í Hnífsdal, ætlar að
kæra lögregluskýrslu af atburðin-
um til umboðsmanns alþingis.
Telur Ásgeir að með skýrslunni
sé alvarlega brotið á sér þar sem
ekki sé minnst á fokið á strætis-
vagninum sem meginorsök
óhappsins, heldur hálku. Segist Ás-
geir þess fullviss að ef vagninn
hefði einungis runnið út af vegin-
um vegna hálku hefði hann oltið
niður bakkann fram af veginum í
stað þess að svífa beint á húsið. Þá
hefur Ásgeir þegar kært lögreglu-
skýrslu sem gerð var er sami
strætisvagn lenti á húsi í Sund-
stræti á ísafirði fyrir rétt rúmu
ári.
Þar segir Ásgeir að um ranga
skýrslugerð lögreglu sé að ræða því
ekki sé sýnt á uppdrætti af vett-
vangi sú höfuðástæða fyrir óhapp-
inu að annað ökutæki hafi komið á
móti vagninum i þröngu húsasundi
sem orsakaði að vagninn varð að
taka stefnu á húsið í mikilli hálku
til að forðast árekstur við bílinn. Þá
segir Ásgeir að ekki sé heldur sýnt
á uppdrætti að annað ökutæki hafi
ekið aftan á vagninn í umræddu til-
viki.
- HKr.
Hassmygl:
Kona dæmd
í 20 mánaða
fangelsi
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi í fyrradag þýska konu,
Moniku Ursulu Schween, í 20
mánaða fangelsi fyrir aö hafa
smyglað inn í landið 6 kílóum
og 146,9 grömmum af hassi
auk 200 gramma af hassolíu.
Til frádráttar er þó 15 daga
gæsluvarðhald sem konan af-
plánáði.
Konan var auk þess dæmd til
að greiða 150 þúsund krónur í
sekt til ríkissjóðs. Ef sektin
verður ekki greidd innan 4
vikna frá birtingu dómsins bæt-
ist 30 daga fangelsisvist við
dóminn.
Konan var handtekin við
tollleit á Keflavíkurflugvelli 22.
nóvember sl. og í fórum henn-
ar fundust fyrrgreind flkni-
efni.
-RR