Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 1. FEBRUAR 1997
23
útlönd
Alan Clark, fyrrum ráðherra Thatcher, aftur kominn í framboð:
Hélt við konu dómara
og forfærði dæturnar
umbjóðendur hans í Kensington
lögðu fyrir hann spurningar um
orðanotkun hans í síðustu viku.
Ef marka má orð Clarks á fundin-
um í Kensington hefur hann nú
snúið af villu síns vegar og ekki
megi því vænta neinna hneykslis-
mála úr hans herbúðum á næst-
unni. Og ástæðan er einfóld: „Ég hef
ekki gaman af því að gera Jane
óhamingjusama." Ekki má heldur
gleyma þvi að hann er orðinn 68
ára. „Ég er lasburða og ég geri bara
Erlent fréttaljós á
laugardegi
ráð fyrir að maður fjari út og við
því er ekkert að gera. Ég er líka að
verða afi,“ sagði Alan Clark.
En áður en hann yfirgaf ráðhúsið
í Kensington, sagði hann: „Ég geri
það ekki af ásettu ráði að vera
svona áberandi. Ég er það sem ég
er.“
Alan Clark var ekki hrakinn úr
ráðherraembætti, þrátt fyrir hliðar-
spor sín, heldur sagði hann sjáifvilj-
ugur af sér þegar helsti vemdari
hans, sjálf Margret Thatcher, var
hrakin úr embætti forsætisráðherra
árið 1991. Sömu sögu er ekki hægt
að segja af hvorki fleiri né færri en
sextán ráðherrum í stjóm Majors
eða háttsettum íhaldsmönnum sem
hafa misst embætti sín vegna
hneykslismála frá því almennar
þingkosningar voru haldnar árið
1992. Níu þeirra urðu að segja af sér
fyrir kynlífshliðarspor af ýmsum
toga.
Enn annar fyrrum ráðherra, Ste-
ven Norris, sem fór með samgöngu-
mál, er heldur ekki á þessum svarta
lista. Hann sagði sjálfviljugur af sér
í júlí síðastliðnum og skrifaði síðan
bók þar sem hann upplýsti að hann
hefði átt fimm hjákonur.
Fyrirrennarinn hirtur upp
úr ræsinu
John Major hefur lengi reynt að
sannfæra breskan almenning um að
íhaldsflokkurinn sé flokkur fjöl-
skyldunnar og grundvallargilda
samfélagsins en flokksmenn hafa
alltaf séð til þess að yfirlýsingar for-
sætisráðherrans hafa verið nánast
markleysa ein. Nú síðast fyrir ein-
um mánuði eða svo þegar áðurnefnt
æsiblað, News of the World, birti
fullyrðingar um að kvæntur þing-
maður íhaldsflokksins ætti vingott
við ungan mann undir lögaldri sem
deildi með honum vistarverur í
klúbbi einum í Chelsea.
Fyrirrennari Alans Clarks, sem
fulltrúi millanna í Kensington og
Chelsea, var heldur engin liðleskja
þegar óvenjuleg eða hneykslanleg
framkoma er annars vegar. Sá mað-
ur heitir Nicholas Scott og er aðals-
maður. Hann hefur það helst sér til
frægðar unnið að síðastliðið sumar
var hann handtekinn fyrir ölvuna-
rakstur en í október bætti hann um
betur og lét hirða sig upp úr rennu-
steininum í Bournemouth, alveg á
skallanum. Flokksþing íhalds-
manna stóð þá sem hæst í borginni
og Scott var rétt kominn úr boði hjá
írska sendiherranum þegar hann
lagðist í ræsið. íhaldsfélaginu í
Kensington og Chelsea var ekki
skemmt.
Öfunda Clark af öllu
kvennafarinu
Annað var hins vegar upp á ten-
ingnum á fundinum í siðustu viku
þegar viðstaddir lýstu flestir yfir
mikilli ánægju með nýja frambjóð-
andann, heiðarleika hans og
skerpu. Ein kona að minnsta kosti
lýsti þó yfir áhyggjum sínum. „Hjá
Nick var það flaskan en konurnar
hjá Alan,“ sagði hún.
Maður einn, sem kominn var á
efri ár, tók alls ekki undir áhyggjur
konunnar: „Ég hef engar áhyggjur
af fyrri ástarsigrum hans heldur er
ég kannski frekar dálítið öfundsjúk-
ur.“
Enn annar karl viðurkenndi að
fólk í kjördæminu væri nú dálítið
snobbað og þess vegna hefðu allar
eignir Clarks farið vel í það. Þar var
maðurinn að vísa til stórrar landar-
eignar, ríflega 400 milljóna króna og
kastala í Kent sem Clark erfði eftir
föður sinn, sagnfræóinginn Kenn-
eth Clark. Hann á einnig skíðakofa
í Zermatt í Sviss og mikið safn af
gömlum og glæsilegum blæjubílum.
Byggt á IHT og Sunday Times
Þeir sem óttuðust að komandi
kosningabarátta íhaldsflokksins í
Bretlandi kynni að verða líflaus og
leiðinleg geta tekið gleði sína á ný.
Alan Clark er kominn í slaginn með
félögum sinum. Og þar sem hann er
ríkir aldrei nein lognmolla. Hann
hefur að vísu lofað að haga sér
skikkanlega en breska blaðið Even-
ing Standard segir mjög ólíklegt að
svo geti orðið, og það sé þakkarvert.
„Ég er þeirrar skoðunar að Alan
Clark sé frumlegur náungi og allir í
neðri deild þingsins vita að svo er.
Hann mun lífga upp á tilveruna,"
sagði John Major, forsætis-
ráðherra Bret-
lands, um dag-
inn.
sig út fyrir að halda á lofti fjöl-
skyldugildum og öðrum góðum gild-
um en hefur mátt horfa upp á hvert
kynlífshneykslið á fætur öðru sem
háttsettir flokksmenn hafa verið
viðriðnir. Alan Clark var hreint
ekki barnanna bestur.
Dómarafrúin og
dæturnar hlupu í blöðin
komst
um
strákinn
Tuma
hlupu
mæðgumar
til og seldu
slúðurblað-
inu News of
the World sög-
una um þenn-
an óvenju-
lega ástar-
ferhyrn-
ing.
Af
öflum
þeim
um-
Þegar Clark gegndi ráðherraemb-
ætti hjá Thatcher, hann sat átta ár í
stjórninni, í ráðuneytum viðskipta,
atvinnumála og landvama, átti
hann i ástarsambandi við
eiginkonu dómara
nokkurs, James
Harkess. En
ráðherrann lét
ekki þar við
sitja heldur
forfærði
hann
einnig
tvær
dætur
dóm-
arans.
Þegar
upp
Alan Clark, kvennabósi og vandræöagemlingur, er nú aftur kominn í fram-
boð fyrir íhaldsflokkinn í Bretlandi.
Kynnti frúna sem
ástkonu sína
Alan Clark, 68 ára gamall fyrrum
ráðherra í stjóm Margretar
Thatcher, var fyrir skömmu valinn
frambjóðandi íhaldsmanna í Kens-
ington- og Chelseakjördæminu í
Lundúnum, einhverju öruggasta
vígi íhaldsflokksins i gjörvöllu Bret-
landi.
Clark var með eiginkonuna Jane
sér við hlið þegar fína og rika fólk-
ið í Kensington ákvað að leggja allt
sitt traust á hann. Kannski var það
vegna þess að Clark veit fátt leiðin-
legra en að vera leiðinlegur eða láta
sér leiðast að hann kynnti frúna,
sem hann hefur verið kvæntur í 38
ár, sem ástkonu sína, með meiru.
Fiðringur fór um salinn þegar orðið
féll, enda íhaldsmenn minnugir
vandræðanna sem karlinn hafði
komið flokknum í með framferði
sinu. Flokki sem hefur reynt að gefa
Þessi skopmynd af Alan Clark og John Major, forsætisráðherra Bretiands,
birtist f blaöinu Sunday Express. Major telur Clark lífga upp á gráa tilveruna.
mælum sem féllu um hliðarspor
ráðherrans voru orð eiginkonunnar
áreiðanlega þau eftirminnilegustu:
„Þegar maður fer í bælið með fólki
sem er af sama sauðahúsi og þjón-
ustufólk hleypur það í blöðin með
aflt, er ekki svo?“ sagði Jane Clark.
Á syndaregistri Clarks eru einnig
ræður sem hann flutti drukkinn í
þinginu. Hann átti þátt í að hylma
yfír sölu bresks fyrirtækis á búnaði
sem fór beinustu leið í vopnabúr
Saddams Husseins, forseta íraks,
þegar slíkt var með öllu bannað og
svo gaf hann út dagbækur sínar þar
sem hann játaði þetta allt á sig og
jós um leið skömmunum og móðg-
ununum yfir félaga sína.
Ekki kynlíf og morð frá
upphafi til enda
„Dagbækumar mínar voru eina
metsölubókin þar sem ekki var fjall-
að um kynlíf og morð frá upphafi til
enda,“ sagði Clark um bókina þegar
Grohe blöndunartæki
Metabo rafmagns-
verkfæri
Hreinlætistæki
Sturtuklefar
15% helgarafsláttur
af öllum rafmagns-
verkfærum
Slípivél, 180wwatta,
115 mm, kr. 5.240
rétt verð 6.524
Hornajuðari. 220W.
kr. 4.149
rétt verð 5.166
Borvél 9,6V í tösku,
kr. 7.030
rétt verð 8.752
Borvél 12V m/höggi,
iðnaðarvél,
kr. 18.626
rétt verð 23.189
Opið frá 9-21 alla daga
Metro-Normann
Hallarmúla 4
sími 553-3331
Miðstöð heimilanna
Juðari, 130W, kr. 3.710
rétt verð 4.618
Borvél 14,4V í tösku
kr. 9.991
rétt verð 12.439
Borvél 12V í tösku,
kr. 7.503
rétt verð 9.341