Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Síða 22
22 LAU GARDAGUR 1. FEBRÚAR 1997 fréttaljós Bæjarfélagið Vesturbyggð, á sunnanverðum Vestfjörðum, hefur verið mikið í fréttum að undan- fömu vegna deilna og ýmissa sögu- legra mála sem þar hafa átt sér stað. Stormasamt hefur verið í bænum á sviði bæjarstjórnarmála og atvinnu- lífs sem ekki bendir til annars en að stjómun sé mjög ábótavant i bæjar- félaginu. Margir íbúar bæjarins, sem DV hefur rætt við, em búnir að fá nóg af þeirri neikvæðu umfjöllun sem bærinn hefur fengið undanfarin ár vegna látlausra innanbæjardeilna um hin ýmsu mál sem varða bæinn. Vesturbyggð varð til eftir samein- ingu fjögurra hreppa, Patreks-, Bíldudals-, Barðastrandar- og Rauðasandshrepps árið 1994. „Bærinn er látlaust í fréttum vegna klúðursmála. Við eram að at- hlægi úti um allt vegna lélegrar stjómunar hans,“ segir ibúi í Vest- urbyggð sem ekki vill láta nafns síns getið en er mjög óánægður með gang mála. Deila um fálagsheimilið Hvert málið hefur rekið annað í Vesturbyggð sem lítur vandræða- lega út fyrir bæjarstjórnina. Fyrir tæpum tveimur vikum lokaði veit- ingamaðurinn Sigurður fngi Páls- son sig inni í Félagsheimili Patreks- fjarðar, þar sem hann hefur rekið Sigurður Ingi Pálsson veitingamaöur, sem rekiö hefur veitingastaöinn Felguna á Patreksfiröi, á í deilum viö bæjar- yfirvöld í Vesturbyggö. Beöiö er eftir úrskuröi héraösdóms þar sem bæjaryfirvöld hafa krafist útburöar en Siguröur neitar aö yfirgefa húsiö. stæðismenn og óháðir mynduðu meirihluta og era nú við völd. Gísli var þá kosinn forseti bæjarstjórnar 21. desember sl. og sinnti að auki starfi bæjarstjóra. Gísli hefur nú tekið sér tíma- bundið leyfi frá störfum og segir að persónulegar ástæður liggi að baki. Jón Gauti Jónsson hefur tekið við stöðu bæjarstjóra á meðan. í nýútkomnu blaði alþýðuflokks- manna í Vesturbyggð, sem ber heit- ið Röstin, gagnrýnir Krístín Jó- hanna Björnsdóttir, bæjarfulftrúi og fyrrverandi forseti bæjarstjórnar, harðlega störf Gísla sem bæjar- stjóra. Kristín segir orðrétt í blað- inu: „Hvurn Qárann varðar nú stóran kall eins og Gísla um alla þá vinnu sem lögð var í að koma málaflokk- um allmargra nefnda undir einn hatt sem nefndur er félagsmálaráð. Hvað láta þeir, sem mæla manngildi sveitarstjórnarmanna í hurðunum sem þeir drekka á Hótel Sögu, sig smámál eins og barnavernd, vimu- efnamál, félagsmál, öldrunarmál og fleira í þeim dúr sig varða? Ef aftur á móti það að gæta hagsmuna bæj- arins gegn ýmsum óvinum hans felst í því að hanga á fylleríi suður á Sögu lon og don, þá viðurkenni ég fúslega að ég hef bragðist í því hlut- verki.“ Langvarandi deilur og átök í Vestuibyggð veitingahúsið Felguna, vegna deilna við húsfélagið og bæjarstjóm, sem á meirihluta í húsinu. Upphaf deilunnar má rekja til þess að Sigurður neitaði kvenfélagi staðarins að fá að halda þorrablót í veitingahúsinu nema barinn væri opinn en konurnar höfðu óskað eft- ir því að fá að taka vínföng með sér að heiman. Taldi Sigurður að það samrýmdist ekki reglum um rekst- ur veitingahúsa en í kjölfarið var leigusamningi Sigurðar sagt upp. Eftir tvær bréfasendingar var Sig- uröi skipaö að yfirgefa húsið en Sig- urður neitaði og skipti um allar læs- ingar á því. Hefur Sigurður haldið til í húsinu síðan en bæjarstjóm hefur krafist útburðar og bíður eftir úrskurði héraðsdóms, sem enn er ekki búinn að ákveða sig. Sigurður gefur sig hvergi og segist fullviss um að vinna málið gegn bæjaryfirvöldum. Hann hefur haft opið i veitingahús- inu um helgar við mikinn fögnuð flestra íbúanna, nema auðvitaö bæj- arstjórnarinnar og kvenfélagsins. Sigurður hefur sakað bæjaryfirvöld um lögleysu og ofbeldi í málinu en Gisli Ólafsson bæjarstjóri hefur neitað alfarið að svo sé. Sögulegt uppboð Fyrr í janúarmánuði var haldið sögulegt nauðungarappboð á slátur- húsi Patreksfjarðar. Bærinn átti hátt í tveggja milljóna króna kröfu í sláturhúsið en vegna mistaka mætti enginn úr bæjarstjóminni á upp- boðið. Oddur Guðmundsson slátur- hússtjóri bauð óvænt hæst í eignina og var hún slegin honum á aðeins 700 þúsund krónur en fasteignamat eignarinnar var rúmar 29 milljónir og brunabótamatið 114 milljónir. Bæjarstjórnin var gagnrýnd harö- lega fyrir að hafa sofið á verðinum og vemda ekki hagsmuni bæjarins. Bæjarstjórnin hljóp þá upp til handa og fóta og krafðist þess að annað uppboð færi fram á slátur- húsinu á þeim forsendum að kaup- verðið hefði verið langt undir eðli- legu uppboðsandvirði eignarinnar. Þaö var og gert og vísað var i ákvæði i uppboðslögum. Haukur Már Sigurðarson bæjar- ritari sagöi í samtali við DV að það hefði orðið misskilningur og að bæj- arstjóm hefði haldið að hún þyrfti ekki að hafa áhyggjur af gildum lög- veðskröfum sinum. Annað uppboð fór því fram og þá var sláturhúsið selt á 4,6 milljónir króna til fyrirtækisins Nýco í Reykjavík. Oddur sláturhússtjóri var að vonum mjög ósáttur með að missa eignina sem hann hafði keypt á löglegan hátt vegna klúðurs bæj- arstjómar. „Villta vestrið" Deilumál og átök eru ekki nýtt fyrirbrigði í Vesturbyggð því það er mikið búið að ganga á síðan bæjar- félagið varð til áriö 1994 og því ekk- ert skrítið að gárungarnir kalli bæ- inn „villta vestrið". Hver virðist höggva annan og fólk berst á bana- spjótum enda búnir að vera stöðug- ir erfiðleikar í atvinnulífi á staðn- um síðan snemma á níunda ára- tugnum sem leiddu til mikilla hremminga og skulda bæjarins. Fljótlega eftir sameininguna og stofnun Vesturbyggðar 1994 uröu harðar deilur í bæjarstjórn en þá var meirihlutasamstarf alþýðu- flokksmanna, framsóknarmanna og óháöra. í lok október 1994 tilkynnti Ólafur Amfiörð Guðmundsson, bæj- arstjóri og oddviti alþýðuflokks- manna, Einari Pálssyni, oddvita Fréttaljós á laugardegi Róbert Róbertsson óháðra og forseta bæjarstjómar, að meirihlutasamstarfi þessara þriggja flokka væri lokið en það hafði stað- ið frá því um vorið. Nýr meirihluti sjálfstæðismanna og alþýðuflokks- manna tók nokkuð óvænt við völd- um í kjölfarið. MikÓ átök urðu í atvinnulífinu á staðnum í lok nóvember sama ár þegar stærstu fyrirtækin á Patreks- firði, Oddi hf. og Straumnes, reyndu að ná yfirráðum hvort yfir öðra. Átök um ársreikninga Aftur urðu hörð átök í bæjar- stjóm þegar ársreikingur 1993 var lagður fram af löggiltum endurskoð- anda bæjarins í lok desember og var mikil óánægja með háa dagpeninga og ferðakostnað Ólafs Arnfiörðs bæjarstjóra sem námu um 4,7 millj- ónum króna. Meirihlutinn afgreiddi málið athugasemdarlaust en minn- hlutinn gekk af bæjarstjómarfundi og skoðunarmenn bæjarins sögðu afgreiðsluna lögleysu. Ólafur Arn- fiörð sagði í framhaldi af því að í gangi væru pólitískar árásir á sig. I febrúarbyrjun 1995 var Ólafur Amfiörð látinn víkja úr stóli bæjar- stjóra eftir mikil átök í bæjarstjóm. Var þetta gert eftir sameiginlega niðurstöðu Alþýðuflokks og Sjálf- stæðisflokks og gert til farsældar fyrir sveitarfélagið, að sögn Gisla Ólafssonar, en ákveðið var að Gísli tæki við starfi bæjarstjóra. í árslok 1995 fór bæjarstjómin fram á opin- bera rannsókn vegna meðferð- ar Ólafs Arn- fiörðs á fiár- munum bæjar- ins. Hörð gagnrýni a bæjar- stjóra Á síðasta ári voru miklar væringar á milli sjálfstæð- ismanna og al- þýðuflokks- manna innan bæjarstjórnar vegna hinna ýmsu mála. Deilt var m.a. um málefni sjúkrahússins og sláturhússins og voru bæjarstjómarmenn ekki á eitt sáttir. Svo fór að meirihlutinn klofnaði í lok nóvember og sjálf- Verið að skaða bæjarfá- lagið „Ég vil vísa þessum fáránlegu ummælum og ásökunum Kristínar til fóðurhúsanna með stóru effi. Ég viðurkenni að þetta eru búin að vera hörð átök. Einstakir menn í minnihluta bæjarstjórnar hafa reynt að gera bæjarstjóm eins erfitt fyrir og möguiegt er og er það mjög til að skaða bæjarfélagið í heild. Þeir hafa m.a. hrópað að bærinn sé gjaldþrota en það er ekki rétt. Ef hann væri gjaldþrota þá væra mörg önnur bæjarfélög á Islandi gjald- þrota. Þegar Vesturbyggð varð til tók hið nýja bæjarfélag við erfiðum skuldaböggum sem Bíldudalur og Patreksfiörður höfðu safnað upp. Erfiðleikar og skuldir bæjarins er fortíöarvandi og alls ekki auðleyst- ur en það er ljóst að menn verða að standa betur saman en þeir hafa gert hingað til. Stærstur hluti skuldanna er tilkominn úr tíð fyrrverandi sveitar- stjórnar Patreks- hrepps vegna at- vinnuþátttöku m.a. undir stjórn Fram- sóknar- og Alþýðu- flokksins," segir Gísli Ólafsson, að- spurður um málefni bæjarfélagsins. Gísli segir að ekki hafi tekist að halda sig við fiár- hagsáætlun 1996 þar sem um var að ræða vanáætlaða liði í einstökum mála- flokkum. Eins hafi ákvarðanir, sem bæjarstóm og bæjarráð tóku, leitt til hækkana og eins séu aðrar ástæður sem orsökuðu útgjöld um- fram fiárhagsáætlun. Sláturhúsiö á Patreksfiröi en þaö hefur veriö í sviösljósinu aö undanförnu. Sláturhúsiö var selt á nauöungaruppboöi á 700 þúsund krónur en bæjar- stjórn kraföist annars uppboðs eftir aö hún sofnaöi á veröinum. Gísli Olafsson, sem veriö hefur bæj- arstjóri Vesturbyggöar, viöurkennir aö mikil átök hafi átt sér staö í bæj- arstjórnarmálum þar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.