Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Qupperneq 50
58 kvikmyndir
K V I K M Y M A
IJlSHIIilJ
Sam-bíóin/Háskólabíó - Dagsljós:
flllt samkvæmt formúlunni
í kjölfariö á Kvennaklúbbnum, sem fjallar um þrjár vonsviknar konur
sem taka til sinna ráöa þegar karlpeningurinn bregst þeim, kemur Sam-
antekin ráð (Set It ofi) sem fjallar um fjórar konur sem taka til sinna
ráða þegar að þeim er þjarmað úr öllum áttum. Þar með lýkur samlik-
ingunni því stelpurnar fjórar í Samanteknum ráðum fara inn á mun
hættulegri braut heldur en stöllur þeirra og eru mun frískari og
skemmtilegri. Samantekin ráð hefur allt fram yfir Kvennaklúbbinn
nema ef vera skyldi handritið, sem er helsti galli myndarinnar. Á móti
kemur góð kvikmyndataka og klipping sem gerir það að verkum aö
ýmsir annmarkar, sem sagan býður upp á, verða ekki eins áberandi.
Samantekin ráð fjallar um fjórar svartar vinkonur sem allar eiga
harma að hefna í þjóðfélaginu. Þær taka upp á því að gerast bankaræn-
ingjar: „Því skyldum við ekki geta rænt banka eins og þessir heimsku
strákar?" er mottóið og þær láta ekki orðin nægja heldur láta hendur
standa fram úr ermum. Máltækið segir að glæpir borgi sig ekki og það
sannast í lokin.
Það hefur ekki lítið að segja að leikkonumar fjórar, Jada Pinkett, Que-
en Latifah, Vivica A. Fox og Kimberley Elise búa allar yfir þokka sem
skilar sér vel. Er það öfugt við Wayans-bræður, Martin Lawrence og
hvað þeir nú heita, svörtu töffaraleikaramir, sem vegna tilgerðar og
takmarkaðs orðaforða hafa nánast gert það að verkum að óþolandi er
að horfa á sakamálamynd, sem þeir leika í. Leikkonurnar fjórar ná góð-
um tökum á hlutverkum sínum og era að mestu lausar við stæla, fyrir
utan Queen Latifah sem virðist stundum hafa horft of mikið á áður-
nefnda töffara. Mikill hraði er í myndinni og einstaka sinnum ágætur
húmor og þegar á heildina er litið em Samantekin ráð hin sæmilegasta
afþreying.
Leikstjóri: F. Gary Gray. Handrit: Kate Lanier og Takashi Buford. Kvik-
myndtaka: Mark Reshovsky. Tónlist: Christopher Young.
Aðalhlutverk: Jada Pinkett, Queen Latifah, Vivica A. Fox, Kimberley Elise
og Blair Underwood.
Hilmar Karlsson
Það em fáir sem gera miklar væntingar til Sylvesters Stallones sem
leikara enda fær hann himinhá laun fyrir annað en leikhæfileika. Það
er svo spuming hvort það dugar að selja ímynd þegar um jafn brot-
hætta kvikmynd er að ræða og Dagsljós (Daylight) er. Ekki vantar að
það er mikill hraði í myndinni og ýtt undir dramtíkina með brellum og
áhættuatriðum. En undir yfirborðinu er lítil festa og kemur þar til frek-
ar slakt handrit.
Atburðurinn sjálfur, þegar sprenging verður í fjölfórnum undirgöngum
sem liggja frá Manhattan í New York til meginlandsins, er ekki svo
langt frá raunveruleikana. Öfugt við margar stórmyndimar, sem hafa
verið til sýningar að undanfomu, gætu þeir atburðir sem er verið að
lýsa í Dagsljósi gerst.
Strax í byrjun er þó í raun búið að eyðileggja trúverðugleikann. Gas
veldur gífúrlegri sprengingu í jarðgöngunum þegar þrír vörubílsfarmar
springa. Þetta er rosasprenging og að ætlast til að áhorfendur trúi því
að nóg sé fyrir suma að beygja sig niður í bílnum þegar eldsúlan teygir
sig áfram af ógnarkrafti og sleppa þannig við að stikna er of mikið af
því góða.
Framhaldið er á sömu nótum, Stallone leikur burtrekinn foringja i
hjálparsveitum. Hann var rétt fyrir utan göngin þegar sprengingin varð
og þar er kominn bjargvættur fólksins sem fast er í göngunum og bíður
dauða síns.
Leikstjórinn Rob Cohen (Dragonheart) nær stundum að skapa spennu í
kringum viss atriði, þá era brellur og áhættuatrði vel af hendi leyst en
Cohen á í erfiöleikum með að halda spennu gangandi, of mikið er um
lausa enda og ekki fær hann mikla hjálp frá Stallone sem eins og fyrri
daginn er fastur i þeirri ímynd sem hann hefur skapað.
Leikstjóri: Rob Cohen. Handrit: Leslie Bohem. Kvikmyndataka: David
Eggby. Tónlist: Randy Edelman.
Aöalleikarar: Sylvester Stallone, Amy Brenneman, Viggo Mortensen,
Dan Hedaya, Karen Young og Claire Bloom.
Bönnuð börnum innan 16 ára. Hilmar Karlsson
Laugarásbíó - Samantekin ráð:
Fjórar kaldar stelpur **
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1997
Barbra Streisand og Jeff Bridges leika háskólaprófessora sem gegn vilja veröa ástfangnir.
Tvö andlit spegils í Stjörnubíói:
Margar ásjónur fegurðar
og rómantíkur
á. Það era þekktir leikarar í
öllum helstu hlutverkum.
Jeff Bridges leikur stær-
fræðiprófessorinn, Pi-
erce Brosnan leikur
kærasta systur Rose,
sem Mimi Rogers leik-
ur, Laureen Bacall leik-
ur mömmuna og Brenda
Vacarro leikur eina vin-
konuna.
Miklir hæfileikar
Barbra Streisand var ekki
gömul þegar miklir sönghæfi-
leikar hennar komu i Ijós. Hún
hefur aldrei þótt snoppufríð
þótt hún sjálf hafi reynt að
breyta ímynd sinni hin síð-
ari ár.
himin-
inn á
Það
bjugg-
ust því
Þrjátíu ár era að verða síðan
Barbra Streisand lék í sinni fyrstu
kvikmynd, Funny Girl. Á einni nóttu
varð til kvikmyndasfjama. Streisand
hefur þó ekki verið iðin við kolann
og aðeins leikið í sextán kvikmynd-
um á þessum þrjátíu árum. Á síðustu
áram hefur hún farið eigin leiðir,
leikstýrt og framleitt þær kvikmynd-
ir sem hún leikur í og verið nokkrus-
konar einræðisherra í sínu ríki. Það
hefúr greinilega hentað henni og að-
dáendum hennar vel því myndir
hennar hafa undantekningarlaust
verið vinsælar. í gær framsýndi
Stjörnubíó nýjustu kvikmynd henn-
ar, Tvö andlit spegils (The Mirror
has Two Faces).
í myndinn leikur Barbra Streisand
Rose Morgan sem kennir rómantísk-
ar bókmenntir við Columbia háskól-
ann í New York. Líf hennar sjálfrar
er aftur móti allt annað en rómant-
ískt. Býr hún hjá ráðríkri móður og
systur sem hugsar meira um útlitið
heldur en um sinn innri mann, öfugt
við Rose. Rose er viss um að hún
muni aldrei hitta sinn draumaprins.
Meðkennari hennar við háskólann er
stærðfræðiprófessorinn Gregory
Larkin sem hefur fengið nóg af
ástriðuþrungnum samböndum og set-
ur því auglýsingu í einkamáladálk
þar sem hann auglýsir eftir konu, 35
ára eða eldri, verður að vera með há-
skólagráðu, útlit skiptir ekki máli.
Og hver önnur en Rose svarar aug-
lýsingunni. Þau hittast og fmna strax
hvort annað en Geofiry er harður á
því að sambandið eigi að vera plat-
ónsk og Rose er sama sinnis i byrjun
en ástarsamband án kynlífs er eitt-
hvað sem náttúran gerði ekki ráð fyr-
ir.
Tvö andlit spegils var að öll leyti
gerð í New York og þeir sem þekkja
til í borginni kannast örugglega við
marga staði þar sem tökur fóra fram
fáir við
að hún yrði kvikmyndastjarna með
tímanum. En þegar miklir hæfileikar
eru fyrir hendi og mikill vilji þá er
ekkert ómögulegt í þessum heimi.
Streisand lét ekki útlitið hafa áhrif á
sig og fór í leiklistarskóla og að námi
loknu fékk hún hlutverk á Broadway
og gaf út plötur sem fengu góðar við-
tökur. Það var söngleikurinn Funny
Girl sem skaut henni upp á stjörnu-
Broadway og síðar í Hollywood. Fyrir
leik sinn í kvikmyndinni Funny Girl
fékk hún bæði óskarsverðlaunin og
Golden Globe verðlarmin, tvenn eftir-
sóttustu verðlaun sem kvikmyndaleik-
arar keppa um. Á Broadway hefur
hún einnig fengið eftirsóttustu verð-
laun sem þar eru i boði, Tony verð-
launin.
Þremur kvikmyndum hefur Barbra
Streisand leikstýrt, Yentl, Prince of
Tides og The Mirror Has Two Faces.
Áður en hún fór að taka sig alvarlega
lék hún í nokkrum gamanmyndum
með ágætum árangri. Má þar nefna
Hello Dolly, The Owl and the Pus-
sycats og What’s up Dog. Hin síðari ár
hefur hún meira og minna leikið
dramatisk hlutverk. Má nefna The
Way We Were, Nuts og A Star Is
Bom.
Bæði Yentl og Prince of Tides voru
tilnefndar tfi nokkurra óskarsverð-
launa, Yentl hlaut fimm tilnefningar
og Prince of Tides hlaut sjö tilnefning-
ar en enn á Barbra Streisand efitir að
fá viðurkenningu fyrir eigið hugverk.
-HK
Annar mótleikari Börbru Streisand í Tvö andlit spegils er Pierce Brosnan
sem þekktastur er fyrir aö vera hinn nýi James Bond.