Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Síða 56
FR ÉTTASKOTIÐ SÍMfNN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst,óháð dagblað LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1997 BSRB og aðildarfélög: Hafna launastefnu ^ ríkis og borgar Sameiginlegur fundur stjórnar BSRB og formanna aðildarfélaga bandalagsins samþykkti þá yfirlýs- ingu í gær að hafna alfarið þeirri stefnu sem ríki og Reykjavíkurborg kynntu forystu samtakanna á fundi 27. janúar sl. í tengslum við breyt- ingar á launakerfinu. í yfirlýsingu samtakanna segir að það sé grundvallarskilyrði og forsenda fyrir viðræðum um breytt launakerfi að um laun og önnur starfskjör verði samið á félagslegum grunni. BSRB og aðildarfélög þess hafa lýst sig reiðubú- in til að ræða breytingar á launakerf- inu. Að mati samtakanna verða við- ræður að gerast á jafnræðisgnmdvelli og fá þann tíma sem svo viðamiklar - breytingar kalla á. -RR Bensín hækkaði á miðnætti Bensín hækkaði á miðnætti í nótt um 90 aura lítrinn. 95 oktana bens- ín kostar nú 77,90 krónur lítrinn en kostaði áður 77 krónur og 98 oktana bensín kostar nú 82,60 krónur lítr- inn i stað 81,70 króna áður. Þá hækkaði gasolía um 60 aura lítr- inn og kostar nú 32,10 krónur í stað ■' 31,50 króna áður. Flotaolia hækkaði einnig úr 22,30 í 22,90 krónur. -RR Hlé gert á sáttafundum Ákveðið hefur verið að gera hlé á formlegum sáttafundum um aðal- kjarasamning. Þetta var samþykkt í gær eftir samráð milli aðila, þ.e. rikis- sáttasemjara, samninganefnda Dags- brúnar, Framsóknar og vinnuveit- enda. Starf viðræðuhópa í sérkjara- málum mun þó halda áfram. -RR Almera Ingvar § | : fHelgason hf. Sævarhöfða 2 •==='• Sími 525 8000 FA ÞEIR EKKI BÍLASÍMA LÍKA? Póstur og sími hf. hækkar laun yfirmanna: Aukavinna og sporslur teknar inn í launtaxta - auk þess sem þeir fengu nýjar fólksbifreiðar til eigin afnota „Það sem þama gerðist er að breytt var um launakerfi. Þá var fært undir eina tölu hjá yfir- mönnunum dagvinnulaun og yfirvinnugreiðsla. Það verður því ætlast til þess að menn sinni sín- um störfum fyrir þau laun, aukavinna verður ekki greidd meira. Varðandi aukavinnuna var áður bæði um unna og óunna yfirvinnu að ræða,“ sagði Pétur Reimarsson, stjómarformað- ur Pósts og síma hf., í samtali við DV. Auk þessa fengu framkvæmdastjórar nýjar bifreiðar til eigin afnota og var það hluti af nýja kjarasamningnum að þeir fengju þessi bílafríð- indi. Pétur segir aö hér sé ekki um neina lúxusjeppa að ræða, „Þarna er um að ræða huggulega fólksbíla í hóflegtun veröflokki,“ segir Pétur. Hann segir þetta í samræmi við það sem gengur og gerist hjá mönnum í stjómunarstörf- um á vinnumarkaðnum. Hann segir að farið hafi verið yfir launakannanir sem hafa verið í gangi hjá hagfræðingum, verkfræðingrun og launakönnun sem gerð var á vegum óháðs aðila hjá sérfræðingum og stjómendum stórfyrir- tækja. Ákveðið var að byggja launakerfi Pósts og síma hf. upp með svipuðum hætti. Pétur segir að þeir sem voru með óhóflega aukavinnu, sem menn voru sammála um að stæðist ekki til frambúðar, muni jafnvel lækka í launum. En mesta hækkunin á launataxtanum sé 9 prósent. Þama gerði Póstur og sími hf. það sem verkalýðshreyfingin hefur verið að fara fram á, að færa dagvinnutaxta að greiddum launum þannig að allar aukagreiðslur komi inn í dag- vinnutaxta. Hjá Pósti og síma hf., eins og flest- um ríkisstofnunum, var mikið um alls konar aukagreiðslur sem þær verða að greiða þegar þær keppa um starfsmenn við almenna mark- aðinn. Allar þessar aukagreiðslur vom teknar inn í launataxta yfirmannanna hjá Pósti og síma hf. -S.dór Bátasmiðjan, smíðaverkstæði Síidarvinnslunnar í Neskaupstað, brann í gærmorgun og er húsið talið ónýtt. Tjónið er metið á um 40 milljónir króna. 30 manna slökkviliö barðist við eldinn. DV-mynd Þórarinn Hávarðarson Neskaupstaður: Tjónið metið á um 40 milljónir „Húsið er gjörónýtt en við þökk- um fyrir að veðrið var eins gott og raun bar vitni því annars hefði illa getað farið, slíkt var eldhafið," segir Finnbogi Jónsson, framkvæmda- stjóri Sildarvinnslunnar í Neskaup- stað, en 700 fermetra timburhús, sem hýsti trésmiðju Síldarvinnslunnar og annað trésmíðafyrirtæki til, brann til kaldra kola í gærmorgun. „Mér sýnist tjónið vera í kringum 40 milljónir. Þama unnu líklega um átta manns í báðum fyrirtækjunum en ég tel þetta ekki hafa mikil áhrif á reksturinn hjá okkur sem slíkan. Við þurfum að sjálfsögðu að finna okkur nýtt húsnæði en það hefúr lítill tími unnist til þess að spá í það enn,“ segir Finnbogi. Að sögn lögreglunnar í Neskaup- stað hefur ekkert það komið í ljós enn sem skýrt getur eldsupptök. „Við erum aðeins byrjaðir að rifa og líta eftir verksummerkjum en þetta tekur einhvern tíma,“ sagði Níels Atli Hjálmarsson lögreglu- maður sem vinnur að rannsókn málsins. -sv Veðriö á morgun: Víðast hvar verður þurrt Á morgun verður vestlæg átt, gola eða kaldi. Norðanlands og vest- an verða smáél en annars verður þurrt. Veðrið í dag er á bls. 57 Veðrið á mánudag: Stinningskaldi á Vestfjörðum Á mánudaginn er búist við norðlægri átt, víðast golu eða kalda en stinningskalda á Vestfjörðum. É1 verða norðanlands en þurrt syðra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.