Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1997, Qupperneq 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997
Hvað mundir þú gera
ef þú ynnir 100 milljónir
á miðvikudaginn?
Lð TJ
Til mikils að vinna!
pottur
Alla miðvikudaga fyrirkl. 17.00.
r
Um 80 þúsund stjornarandstæöingar héldu út á götur Belgrad í gær.
Stjórnarandstaðan í Serbíu
Símamynd Reuter
Við verðum öll
að fara í verkfall
Stjórnarandstaðan í Serbiu hefur
ítrekað óskir sínar um að mótmæli
fari friðsamlega fram eftir að
Slobodan Milosevic, forseti Serbíu,
skipaði óeirðalögreglu að beita mót-
mælendur valdi á sunnudagskvöld.
Alls særðist á annað hundrað
manns í átökunum.
„Við verðum öll að mótmæla á
friðsamlegan hátt. Það verður að
loka öllum skólum og verksmiðjum.
Við megum ekki greiða neina skatta
né reikninga og við verðum öll að
fara í verkfall," sagði Vuk Dra-
skovic, einn leiðtoga stjórnarand-
stöðunnar, í ávarpi til mótmælenda
í Belgrad í gær.
í gær köstuðu reið ungmenni
grjóti að óeirðalögreglu og brást lög-
reglan við með barsmíðum, að sögn
sjónarvotta. í upphafi höfðu um 80
þúsund manns haldið til miðborgar
Belgrad en mannfjöldinn sneri heim
að beiðni leiðtoga stjórnarandstöð-
unnar.
Fjöldi vestrænna ríkja hefur for-
dæmt ofbeldi óeirðalögreglunnar á
sunnudagskvöld. Franska stjómin
bauð leiðtogum stjórnarandstöð-
unnar til viðræðna í París.
í gær gaf serbneska innanríkis-
ráðuneytið út yfirlýsingu þar sem
sagði að 18 manns hefðu verið hand-
teknir á sunnudagskvöld og að hald-
ið yrði áfram að grípa til allra nauð-
synlegra ráðstafana til að koma í
veg fyrir að almenningssamgöngur
röskuðust og að friði og öryggi borg-
aranna yrði ógnað.
Yfir eitt þúsund skólum hefúr
verið lokað, lögmenn hala farið í
kröfugöngur með stúdentum og
kirkjunnar menn og hermenn hafa
stutt kröfurnar um að kosningaúr-
slitin verði virt. Flestum leikhúsum
og kvikmyndahúsum hefur einnig
verið lokað.
Reuter
Grænlendingar og Danir semja vegna Thulemálsins:
Danir sleppa við aukaútgjöld
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, og Lars Emil
Johansen, formaður grænlensku
landsstjórnarinnar, hafa náð sam-
komulagi um að Danir leggi flug-
braut í hænum Qaanaaq, um 100
kílómetra norðan við Thuleherstöð-
ina á Grænlandi, í skaðabætur
vegna nauðungarflutninga á Græn-
lendingum milli byggðarlaga 1953
og geymslu kjarnorkuvopna á
Grænlandi.
Danir leggja ekki fram aukafjár-
veitingu heldur verða 47 milljónir
danskra króna teknar af fé sem þeg-
ar hafði verið samþykkt til fram-
kvæmda við flugvöllinn í Dundas.
Afganginn, 30 milljónir danskra
króna, verður grænlenska lands-
stjómin sjálf að greiða.
Gert er ráð fyrir að rekstrar-
kostnaður landsstjómarinnar á
flugbrautinni í Qaanaaq verði
minni en í Dundas. Samkomulagið
um Dundas náðist fyrir tæpu ári en
Mikil spenna er í íhaldsflokknum
og Verkamannaflokknum í Bret-
landi vegna aukakosninga í Wiral
South kjördæminu en þingmaður
íhaldsmanna þar lést í nóvember.
Með aukakosningum þessum telja
menn að fáist sterk vísbending um
styrkleika flokkanna fyrir þing-
kosningamar sem væntanlega fara
fram 1. maí. í kosningunum fyrir
fimm árum höfðu íhaldsmenn rúm-
lega 8 þúsund atkvæða meirihluta í
kjördæminu en nýjustu skoðana-
kannanir segja Verkamannaflokk-
Bandaríkjamenn voru mótfallnir
farþegaflugi þar. Þess vegna sam-
þykkti Rasmussen upprunalega
kröfu Grænlendinga um flugvöll í
Qaanaaq. Að mati landsstjórnarinn-
ar hefur andstaða Bandaríkja-
manna við almennar samgöngur á
svæðinu heft þróun þar og torveld-
að móttöku ferðamanna.
Rasmussen baðst hins vegar ekki
afsökunar eins og bæjarfélagið í
Thule á Grænlandi hafði farið fram
á vegna nauðungarflutninganna
milli byggðarlaga 1953. Þeir voru til
að liðka fyrir umsvifum Bandaríkja-
manna.
Lars Emil Johansen kveðst líta á
samkomulagið um flugbraut sem af-
sökun en sagði jafnframt að ef orðið
afsökun hljómaði illa á dönsku gæti
hann kannski kennt danska forsæt-
isráðherranum að segja það á græn-
lensku þegar flugbrautin yrði vígð.
Búist er við að það geti orðið í árs-
lok 1998. Politiken
inn með 15 prósentustiga forskot.
Talsmenn Verkamannaflokksins
eru nokkuð sigurvissir og hugsa
gott til glóðarinnar þvi með sigri
missir John Major forsætisráðherra
meirihluta sinn á þingi. fhaldsmenn
vonast eftir sigri í þessum auka-
kosningum og fyrirheitum um önn-
ur fimm ár við stjómvölinn. En
Michael Heseltine varaforsætisráð-
herra segist eiga von á að fólk muni
nota tækifærið og segja ríkisstjórn-
inni til syndanna.
Reuter
Stuttar fréttir
Yfirheyra
Saksóknari í Suður-Kóreu yf-
irheyrir yfirmenn tveggja banka
og fýrrverandi stjórnarformann
ríkisbanka vegna lánahneykslis
sem tengist gjaldþrota fyrirtæki.
Leituðu hælis
Fjórir menn frá austurhluta
Tímor brutust inn í franska
sendiráðið í Jakarta og báðu um
hæli sem pólitískir flóttamenn.
Boða aðgerðir
Stjórnarandstæðingar í
Búlgaríu boðuðu allsherjarverk-
föll og mótmælaaðgerðir eftir að
sósíalistar kynntu nýja ríkis-
stjórn í stað þess að efna til
kosninga eins og krafist hafði
verið.
Mannfall
Að minnsta kosti 20 hafa látið
lífið í hörðum bardögum milli
hers og uppreisnarmanna nærri
Bogota, höfúðborg Kólumbíu.
Fá vegabréf
Búist er við að Bretar tilkynni
að um 8 þúsund indverskir og
pakistanskir íbúar Hong Kong
fái fullgild bresk vegabréf en
áhyggjur hafa verið um að
minnihlutahópar verði án ríkis-
fangs þegar Kínvetjar taka við
stjórninni 1. júlí.
Hafnaði frávísun
Dómari í einkamálinu gegn
O.J. Simpson vísaði frávísun-
arkröfu lögmanna hans ffá en
þeir sögðu óhæft vitni hafa eyði-
lagt allan málflutninginn.
Reuter
Bretland:
Titringur vegna aukakosninga