Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1997, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1997, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 Fréttir Grímseyingar safna birgöum vegna hafiss: Hafísinn gæti lokað öllu á 2-3 dögum - segir Sigurður Bjarnason íbúi í Grimsey „Við erum btlnir að knýja á um að flýta birgðaflutningum. Við höf- um áhyggjur af komu landsins foma flanda, hafíssins. Útlitið er mjög dökkt og hafísinn gæti komið hingað og lokað öllu á 2-3 dögum ef veðurspáin stenst,“ segir Sigurður Bjamason í Grímsey en þar er ver- ið að safna birgðum vegna yfirvof- andi hafíss. „Menn eru að tala um að koma bátunum sínum í burtu ef allt lok- ast. Veðrið er annars búið að vera mjög slæmt undanfarinn hálfan mánuð. Sem dæmi komust bátamir á sjó í aðeins tvo daga, fóstudag og laugardag, en það er það mesta í hálfan mánuð. Aflabrögð voru með minnsta móti í túmum,“ segir Sig- urður. -RR 115 kandídatar útskrifuöust frá Háskóla íslands á laugardaginn. I máli rektors, dr. Sveinbjörns Björnssonar, kom fram aö mikilvægt væri aö Háskólinn rækti hlutverk sitt sem háskóli allra landsmanna og lagði hann áherslu á fjar- kennslu og samvinnu við menntastofnanir í hverju héraöi. Menntanetið myndi miöla myndefni og skólar landsins tengjast meö gagnvirku sjónvarpsneti. Háskólanám væri dýrt og þeir nemendur, sem flyttust til Reykjavíkur til náms, kæmu ekki allir til baka og gögnuðust því ekki byggöum sínum. Kjarni háskólamenntaöra manna þyrfti aö vera í hverju héraði, það kæmi atvinnulífi staðanna best, sem og dreifbýlinu í heild. Á myndinni er Björn Bjarnason menntamálaráöherra yst til vinstri en fyrir miðju er dr. Magnús Már Lárusson, fv. háskólarektor. DV-mynd GTK Virkjunarframkvæmdir á Nesjavöllum: Einkennilegt þegar menn þekkja ekki verðið - segir Guðrún Zoéga - mjög góður samningur, segir Alfreð Þorsteinsson „Mér fínnst mjög einkennilegt að borgarráð skuli hafa samþykkt samning sem menn vita ekki hvem- ig lítur út. í honum er gert ráð fyr- ir að raforkuverðið verði 79% af því sem Columbia Ventures greiði Landsvirkjun, það verð er leyndar- mál og því vita menn ekkert hvað þeir eru að gera. Ég er hrædd um að þama sé illa haldið um hagsmuni borgarinnar og er ósátt við þau ólýðræðislegu vinnubrögð sem höfð hafa verið i frammi í málinu,“ segir Guðrún Zoega, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokks. Guðrún segist alltaf hafa verið talsmaður þess að virkjað yrði á Nesjavöllum, markaðslegar aðstæð- ur hafi ekki verið til þess fyrr en nú. Henni finnst þó sem nú sé verið að glutra niður þeim möguleikum sem þarna séu vissulega fyrir hendi. „Ég lagði til í borgarráði að óháð- ur aðili, Þjóðhagsstofnun eða ein- hver annar, yrði fenginn til þess að gera arðsemisreikninga, því var vís- að frá og það finnst mér bera vott um að menn hafi ekki alveg hreina samvisku. Ef þetta er eins góður samningum og haldið er fram þá myndi slík úttekt staðfesta það,“ segir Guðrún. Guðrún segir að málið hafi verið kynnt lauslega sem trúnaðarmál fyrir fáeinum borgarfulltrúum en sá hluti samningsins sem lúti að verð- inu hafi aldrei verið lagður fram i borgarstjóm. Hún segir það vekja athygli að í þriggja manna samn- inganefnd, sem borgin skipaði, viti aðeins einn þriggja hvert verðið sé. „Ég skil ekki að Guðrún skuli halda því fram að menn viti ekki um hvað samningurinn fjallar því málið hefur verið rækilega kynnt í borgarráði. Það hefúr aldrei staðið til að leggja málið fram því það er trúnaðarmál. Þetta er mjög góður samningur og hann gerir ráð fyrir 7,5% arðsemi og því mótmælti Guð- rún ekki,“ segir Alfreð Þorsteinsson en hann var formaður samninga- nefhdarinnar. Alfreð segir að engin ástæða hafi verið fyrir borgina að fá álit einhverra utanaðkomandi aðila. Verðið miðist við heimsmarkaðs- verð á áli og útreikningamir taki mið af varkárari spám. -sv Runólfur Oddsson krefst endurupptöku „hundamálsins“ fyrir Hæstrétti: Fer annars með málið fyrir mannréttinda- dómstólinn í Strassburg - vill að Pétur Kr. Hafstein viki sæti „Samkvæmt stjórnarskránni á maður rétt á því að fá niðurstöðu í mál og á þeim forsendum ætla ég að kreljast endurupptöku á dómi Hæsta- réttar frá því í fyrri viku,“ segir Run- ólfúr Oddsson hundaeigandi en Hæstiréttur komast að þeirri niður- stöðu á dögunum að ekki væri ástæða til þess að úrskurða í máli hans gegn borginni þar sem hann hefði þegar fengið leyfi til þess að hafa hundana. Runólfur stóð í nokkum tíma í bar- áttu við borgina um að fá að halda tvo hunda og hefur hann stefnt Hjör- leifi Kvaran borgarlögmanni fýrir meiðyrði í Héraðsdómi. Þá hefur hann kært Hjörleif og Jónas Hallsson aðstoðaryfirlögregluþjón þar sem hann segir Hjörleif hafa faríð fram á að njósnað yrði um hann. „Mér fannst mjög sérkennilegt að þegar búið var að ákveða að fimm dómarar yrðu í Hæstarétti skyldu þrír dómarar dæma og að einn þeirra væri Pétur Kr. Hafstein. Ég mun fara fram á að hann víki sæti þar sem ég tel að hann hafi verið mér óvilhallur. Það er jú ljóst að hvorki ég né Davíð bróðir minn (for- sætisráðherra) studdum hann í framboði til forseta. Ég hefði líklega hætt þessu máli ef málskostnaður hefði verið látinn niöur falla i Hæstarétti en ég get ekki sætt mig við þessar ofsóknir. Það getur ekki verið í lagi að kerfið valti yfir ein- hvem einstakling," segir Runólfur Oddsson. -sv 27 Misstu ekki af spennandi aukablöðum í febrúar og mars: Aukablöð DV eru löngu orð/n landsþekkt. Blööin eru bæði fræðandi og skemmtileg og fjalla um margvísleg og gagnleg sérsviö. 26. febrúar Hljómtæki Efmsmikið blað um allt sem viðkemur hljómtækj- um. Þar verður meðal ann- ars fjallað um helstu nýj- ungar á markaðnum. 5 . febrúar Tækni og tölvur Spennandi blað um tölvur og intemetið. Fjallað verður um þróun í tölvumálum og flest það er viðkemur tölvum og tölvunotkun. Bílar '97 I blaðinu er að finna heildstætt yfirht yfir þá fólksbfla og jeppa sem bflaumboðin hafa í boði á árinu 1997. Blað sem enginn bfla- eigandi má láta fram hjá sér fara. 19. febrúar Ferðir til útlanda ítarlegar upplýsingar um þá ferðamöguleika sem í boði á árinu 1997 hjá ferðaskrifstofunum, ásamt ýmsum hollráðum varð- andi ferðalög til útlanda. 12. mars Fermingargjafa- handbók Nauðsynleg upplýsinga- og innkaupahandbók fyrir alla þá sem eru í leit að fermingargjöfum. 19. mars Matur og kökur Lystaukandi blað þar sem fjallað verður um flest það er viðkemur matartilbúning fyrir páskana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.