Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1997, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1997, Blaðsíða 16
16 * ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 Umræður eru oft heitar um það hvort bæta megi einhverja hluta grunnskólakerfisins og sýnist sitt hverjum. Sjaldnast eru þeir sem á kerfið deila sammála um aðferðir og oft setur kerfið þröngar skorður sem takmarka allar breytingar. Garðaskóli í Garðabæ, sem er með kennslu í 7., 8., 9. og 10. bekk (13-16 ára) hefur í vetur staðið fyrir athyglisverðri tilraun, kynjaskipt- um bekkjum í náttúrufræði. Auk þess hefur til margra ára verið skipt niður í bekki í Garðaskóla eftir námsárangri og hefur það gefið góða raun. Garðaskóli var með fyrstu skólum sem tóku upp þá reglu að velja í bekki eftir námsárangri, en síðan hafa aðrir skólar fylgt for- dæmi þeirra. Gunnlaug- ur Sigurðsson er skóla- stjóri Garðaskóla: „Það var ekkert vit í því að láta alla vera saman í stærðfræði án tillits til árangurs. Við að greinum þá sem eru mjög duglegir, dug- legir, miðlungs menn og þá sem eru slakir. Það er allt í lagi að hafa yfir 30 nemendur í hópnum þar sem eru mjög duglegir nem- endur, en i slaka hópnum mega helst ekki vera fleiri en 12-15 nemendur því ekki er timi til að sinna fleiri í einu.“ Rólegri tímar Nemendum virðist falla það vel í geð að vera í kynjaskiptum bekkjum í náttúrufræðinni. „Þetta er fyrsta árið sem þetta er reynt og ég verð að skóla og það kerfi gerir okkur mun auðveldar fyrir að hafa kynjaskipta bekki,“ sagði Guðrún Björg Egils- dóttir náttúru- og tölvufræðikenn- ari. „Auðvitað fylgja þessari tilraun bæði kostir og gall- þeirra hefur lýst yfir óánægju sinni með þetta. Enda eru þeir i blönduð- um bekkjum í öllum öðrum náms- greinum. Það er ekki alveg fullljóst hvort námsárangurinn er að batna hjá krökkunum í Rakel Guömundsdóttir og Aldts Lilja Bragadóttir, nemendur í 10. bekk í Garðaskóla, töldu báöar jákvætt aö hafa kynjaskipta bekki í náttúrufræöi. Kennari þeirra, Guörún Björg Egilsdóttir, var á sömu skoöun og taldi stúlkurnar veröa virkari í tímum. Agavandamál og arangur „Það var af kennslufræðilegum ástæðum sem við gerðum þessa breytingu á niunda áratugnum, en þær grundvölluðust að miklu leyti á þeirri vitneskju okkar að agavanda- mál í skóla koma fyrst og fremst af því að nemendur ráöa ekki við námsefnið. Þeir eru niðurbrotnir og þurfa að fá uppreisn. Eftir að við breyttum þessu gjör- breyttist andrúmsloftið í skólanum, krökkunum líður miklu betur og agavandamál hurfu í 9. og 10. bekk. Eftir sitja að vísu vandamál einstak- lingsins, sem á ef til vill í vandamál- um heima við. En það eru líka að- stæður sem skólinn ræður ekki við.“ Rusl og sóðaskapur hefur vanda- mál sem jafnan ríkir i skólum, en tekist hefur að mestu aö ráða bót á því vandamáli í Garðaskóla. í mötu- neyti skólans eru bömin látin borga fyrir umbúðimar á þeim vörum sem þau kaupa. Þegar þeim er skil- aö aftur í mslakistur fá þau pening- ana til baka og það hefur að mestu dugað til að uppræta vandamál varðandi msl. þetta þægilegra. Það eru miklu minni læti í kennslustundunum og maður lærir miklu betur í tímum. Það fer heldur ekki neinn tími í að pæla í strákunum á meðan þeir sitja ekki með manni í tíma,“ sagði Aldís Lilja Bragadóttir, nemandi í náttúrufræði í 10. bekk. „Flestar stelpumar era á sömu skoðun og við. Náms- árangur okkar hefur batnað og við eram einnig djarfari að spyrja í tímum. í blönd- uðum bekkjum er það áber- andi að strákarnir koma með flestar fyrirspurnir til kennaranna, en stelpurnar era feimnari við að spyija. Þetta breyttist allt saman þegar við vorum orðnar ein- ar. Það eru líka miklu ró- legri tímar núna því það era miklu meiri læti í strákun- um,“ sagöi Rakel Guð- mundsdóttir sem einnig er nemandi i náttúrufræði. Afangakerfið auðveldar „Við höfum eingöngu reynt kynjaskiptinguna í náttúrufræöinni og byrjuð- um á því nú í haust. Við eram með áfangakerfi í 9. og 10. bekk héma í Garða- hvor lóðin verða þyngri á vogaskál- unum. Krakkamir sjálfir hafa tekið þesum tilraunum vel og enginn tímunum, prófm í vor eiga eftir að skera úr um það, en ég tel mig sjá tilhneigingu í þá átt. Það hefur ver- iö meira áberandi hjá stelpunum að þeirra verkefni hafa batnað. Ég hef einnig tekið eftir því að þær eru virkari hjá mér í tímum. Kynfræðsla er grein innan nátt- úrufræðinnar og þar er sérstaklega áberandi að betra er að hafa kynja- skiptingu. Fyrirspumir krakkanna í þeim tímum verða mun skynsam- legri og þau eru djarfari við að bera fram fyrirspumir um viðkvæm mál- efni. Reyndar hafa þau aldrei verið feimin við spumingar í kynfræðsl- unni, jafnvel áður en tekin var upp kynjaskipting, en spurningarnar eru skynsamlegi núna. Ég tók eftir því sjálf að ég talaði allt öðruvísi til krakkanna í tím- um í kynfræðslunni eftir að við tókum upp kynjaskiptinguna. Ég hef reyndar aldrei sjálf verið neitt feimin og læt allt flakka, en maðrn- tók samt eftir þessum breytingum hjá sjálfri sér. Við vegum þessa tilraun og metum í lok skólaársins og þá verður tekin ákvörðun um hvort hún verður útvíkkuð og reynd í fleiri námsgrein- um. Það er engin sérstök ástæða fyrir því að það var náttúrufræð- in sem varð fyrir valinu. Það var starfsstjórinn sem valdi þetta fag fyrir tilraunina og það var að mestu undir honum komið að reyna þetta,“ sagði Guðrún Björg. Það verður forvitni- legt að fylgjast með því hvort kynja- skiptir bekkir ryðja sér til rúms í ís- lensku skólakerfi. -ÍS í þessum tíma í kynfræöslu hjá Guörúnu Björgu Egilsdóttur náttúrufræöikennara voru eingöngu stelpur. DV-myndir BG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.