Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1997, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997
9
Utlönd
Madeleine Albright hefur ætíð haldið að hún væri kaþólikki:
Afi og amma létust i
fangabúðum nasista
í ljósi nýfenginna upplýsinga tel-
ur Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandarikjanna, afar senni-
legt að móður- og föðurforeldrar
hennar hafi verið gyðingar og látiö
lífið í helför nasista í seinni heims-
styrjöldinni. Dagblaðið The Was-
hington Post rannsakaði nýlega ævi
Albright og segir frá því í dag að
meira en tugur skyldmenna hennar,
þar á meðal afi og amma, hafi týnt
lífi í helför nasista gegn gyðingum i
Tékkóslóvakíu.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins segir að Albright, 59 ára, og fjöl-
skylda hennar sé að ná áttum og
vilji kanna framkomnar upplýsing-
ar betur og fá endaniega staðfest-
ingu á uppruna sínum. Talsmaður-
inn upplýsti að Albrigt hafi staðið í
þeirri trú frá bamæsku að hún væri
kaþólikki. Það væri fyrst nú sem
henni væri ljóst að hún væri gyð-
ingur i báðar ættir. Væri því ekki
að undra að upplýsingamar heföu
komið henni
og fjölskyldu
hennar í opna
skjöldu.
Talsmaður-
inn sagði að
foreldrar Al-
bright hefðu
látist fyrir
mörgum árum
og þvi hefði
ekki verið hægt að spyija ítarlega
út í fjölskyldusöguna. Það er þó vit-
að að Madeleine Albright er fædd í
Prag og var skírð Maria Jana Kor-
bel. Foreldrar hennar flúðu
Tékkóslóvakíu þegar hún var
tvegggja ára, nokmm dögum eftir
innrás Þjóðverja í landið. Fjölskyld-
an dvaldi í London árin á eftir en
Albright sótti skóla í Sviss þegar
hún var 10 ára. Faðir hennar, sem
var diplómati og fræðimaður, fékk
síðan kennsulstarf í Denver í Col-
oradoriki og fjölskyldan fiutti vest-
ur um haf.
Frétt Washington Post er byggð á
þýskum og tékkneskum skjölum
auk skjala gyðinga, flutningalista
Auschwitz-fangabúðanna og viðtöl-
um við vini og ættingja í Evrópu.
Fundust umrædd skjöl þegar blaðið
vann að grein um fjölskyldu Al-
bright í Tékkóslóvakíu á fjóröa ára-
tugnum en hún var skipuð í emb-
ætti utanríkisráðherra á dögunum.
Reuter
Morðið á Maurizio Gucci:
Uppljóstrari kom
lögreglu á sporið
Italska lögreglan upplýsti í gær
að kólumbiskur uppljóstrari á
þeirra vegum, sem komist hefði í
kynni við meinta morðingja
tiskukóngsins Maurizios Guccis,
hefði í janúar sl. komið henni á
sporið í einu umtalaðasta saka-
máli á Ítalíu hin síðari ár. Lög-
regla upplýsti einnig aö Patrizia
Reggiani, ekkja Guccis, heföi ver-
ið í bráðri lífshættu þar sem
morðingarnir óttuðust aö hún
mundi segja lögreglu frá aðild
sinni að morðinu.
Lögreglan hafði fylgst afar náið
með meintum morðingjum og
ekkjunni áður en þau voru hand-
tekin. í hleruðum samtölum
meintra morðingja kemur fram
að þeir hafi tapaö fénu, sem þeir
fengu fyrir voðaverk sitt, í spila-
vitum og höföu í hyggju aö kúga
fé út úr Reggiani. Ætluðu þeh- að
beita fyrir sig fyrrnefndum Kól-
umbíumanni. Ræddu þeir að fá
höfuð Reggiani á fati.
Saksóknari sagði að Reggiani
heföi verið heltekin af hatri í garð
fyrrverandi eiginmans síns, eink-
um þar sem hann hefði ekki ann-
ast hana í veikindum og hlunnfar-
ið hana peningalega. Hún neitar
allri aðild að morðinu en verður
yfirheyrð í dag. Reuter
Ef þú kaupir þvottavél,
án þess að skoða AEG þvottavélar.,
Stuöningsmaöur Sharífs fagnar kosningaúrslitunum. Sfmamynd Reuter
Pakistan:
Stefnir í stórsigur Sharifs
Flokkur Nawaz Sharifs, fyrrver-
andi forsætisráðherra Pakistans,
Múslímabandalag Pakistans, virtist
í morgim hafa unnið stórsigur í
þingkosningunum sem haldnar
voru í gær.
Samkvæmt tölum frá því snemma
í morgun haföi Múslímabandalagið
hlotið 91 sæti af 217 þingsætum en
Þjóðarflokkurinn aðeins 5 sæti.
Helsti keppinautur Sharifs, Ben-
azir Bhutto, sem hrint var úr stóli
forsætisráðherra á síðasta ári, íhug-
ar að mótmæla kosningaúrslitunum
með því að sitja ekki á þingi. Mun
Bhutto fúnda með leiðtogum flokks
síns, Þjóðarflokks Pakistans, á
morgun um hvemig bregðast skuli
við. Þjóðarflokkurinn telur að um
stórfeÚd kosningasvik hafi verið að
ræða.
Kosningaþátttaka var lítil í Pak-
istan í gær en alls vora 56,5 milljón-
ir manna á kjörskrá. Reuter
Lavamat 9205
AEG IB!EESEÍ3
AEG þvottavélar eru
á um það bil
27.000 ístenskum
heimilum.
•
AEG þvottavélar
eru á tvöfalt fleiri heimilum.
er næst algengasta
þvottavélategundin.
•
Yfir 857» þeirra sem
eiga AEG þvottavél.
mundu vilja kaupa AEG aftur.
Hvað segir þetta þér
um gæði AEG þvottavéla?
Eða AEG yfirleitt?
Þriggja ára
ÁBYRGÐ Á ÖLLUM
AEG
ÞVOTTAVÉLUM
...er það eins og
ferð til Egyptalands
án þess að skoða
pýramídana
Gerð sn.pr. mín. Staðgr.
LAVAMAT 9205 700 - 1000 sn. 79.500,-
: LAVAMAT 6955 | 700 -1500 sn. 106.900,-“
BRÆÐURNIR
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
u
m
m
n
Vesturland: Málningarþjónustan Akranosi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir,
Hellissandi. Guöni Hallgrfmsson, Grundarfiröi. Ásubúö.Búöardal. Vestfirölr: Geirseyrarbúðin,
Patreksfiröi. Rafvork, Bolungarvfk.Straumur.ísafirði.Norðurland: Kf.Steingrfmsfjaröar.Hólmavfk.
Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetnlnga, Blönduósi. Skagfiröingabúö.Sauöárkróki. KEA
byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvfk. KEA, Siglufirði Kf. Þingeyinga, Húsavfk.Urö,
Raufarhðfn. Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstöðum. Kf. Vopnfiröinga,
Vopnafiröi.Verslunin Vík, Neskaupsstaö. Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi. KASK, Höfn.
Suöurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergs,
Kirkjubæjarklaustri. Ðrimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keftavfk. Rafborg,
Grindavík.
Utsalan Toppskórinn
hófst í morgun -A- Veltusundi v/Ingólfstorg