Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1997, Page 18
Rl flPIÍ
T
18
ÞRIÐJUDAGUR. 4 FEBRÚAR
ÞRIÐJUDAGUR. 4 FEBRÚAR
23
Iþróttir
Iþróttir
Ferguson fór
aftur til Spánar
Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, fór aðra ferð
sína til Spánar á skömmu tima á
sunnudaginn til að fylgjast með
hinum 24 ára gamla Roherto
Rios, varnarmanni hjá Real Bet-
is. Líklegt er að Manchester
United sendi spænska liðinu til-
boð á allra næstu dögum í leik-
manninn en Ferguson er mjög
hriflnn af pilti.
-GH
Macari óhress
með vörnina
Lou Macari, stjóri Stoke, var
ekki ánægður með varnarmenn
sína eftir leikinn gegn Wolves
um helgina.
„Ég var búinn að segja þeim
að þeir þyrftu að gæta Steve
Bulls sérstaklega vel en þeir
sváfu á veröinum og létu hann
skora bæði mörkin,“ sagði
Macari.
-GH
Þjálfari Sevilla
sagöi upp
Jose Antonio Camacho, þjálf-
ari spænska knattspymuliösins
Sevilla, sagði upp starfi sínu í
gær i kjölfarið á ósigri liðsins
gegn Real Sociedad á sunnudag-
inn.
-GH
Atli marði sigur
á Arnari
Atli Þorbjömsson, Þrótti, varð
sigurvegari á vetrarstórmóti
Víkings í tennis sem lauk á dög-
unum.
Atli lék til úrslita gegn Amari
Sigurðssyni, ungum og efnileg-
um tennisleikara úr TFK. Atli
lenti í miklu basli með Amar,
sem aðeins er 15 ára, en hafði
sigur að lokum í spennandi leik,
7-5 og 6-4. Margrét Svavarsdótt-
ir sigraði í einliðaleik kvenna.
-SK
Skorar Shearer
gegn öllum lidum?
Alan Shearer, markaskorar-
inn ótrúlegi hjá Newcastle, hefur
þegar skorað hjá 14 liöum í úr-
valsdeildinni og svo gæti farið
að hann skori gegn öllum liðum
úrvalsdeildarinnar.
Shearer, sem slátraði Leicest-
er svo eftirminnilega á laugar-
dag með þremur mörkum á
þrettán mínútum, á eftir að
skora í vetur gegn Southampton,
Sunderland, Middlesborough,
West Ham og Nottingham For-
est.
-SK
Pólverji til
Blackburn
Blackburn samþykkti í gær að
greiða Widzew Lodz i Póllandi
tæpar 300 milljónir króna fyrir
sóknarmanninn Marek Citko.
Eftir er að ganga frá persónuleg-
um samningi við Citko sjálfan
sem er 24 ára gamall pólskur
landsliðsmaður. -VS
Booth á leið
til Bolton
Flest bendir til þess að Bolton,
lið Guðna Bergssonar, styrki sig
enn frekar nú í vikunni með því
að kaupa Scott Booth frá Aber-
deen fyrir aðeins 50 milijónir
króna. Booth er í ónáð hjá Roy
Aitken, stjóra Aberdeen, og talið
er líklegt að félagið taki boði
Bolton því annars fær það ekk-
ert fyrir Booth þegar samningur
hans rennur út í vor. -VS
Brynjar Pétursson smassar boltann fram hjá hávörn KA-manna en hann var
drjúgur í leiknum. Apostol Apostolov, uppspilari Próttara, er tilbúinn aö taka
viö boltanum ef hann færi í hávörnina og kæmi til baka.
íslandsmótiö í blaki:
Hörð barátta í
Neskaupstað
DV, Neskaupstað:
KA frá Akureyri heimsótti
Neskaupstað um helgina og lék þar
við heimamenn á íslandsmótinu í
blaki í karla- og kvennaflokki. Á
föstudagskvöldinu unnu Þróttarar
báða leikina nokkuð létt, 3-0, en
daginn eftir kom KA-liðið í báðum
flokkum tvíeflt til leiks.
í kvennaleiknum unnu Þróttarar
fyrstu tvær hrinurnar en KA vann
þá þriðju. KA var svo langt komið
með að vinna fjórða hrinuna þegar
Þróttur hrökk í gang og sigraði,
15-12, og endanlega úrslit 3-1.
í karlaleiknum tókst KA með
miklu harðfylgi að tryggja sér sigur,
3-1. KA vann fyrstu hrinuna nokk-
uð létt en næstu tvær voru öllu jafn-
ari. Þá þriðju vann KA sem var
æsispennandi, 17-15 en fjórða og
síðasta hrinan leiksins var algjör-
lega eign norðanmanna. Úrslit urðu
því, 1-3, fyrir KA.
-PA
Skjaldarglíma Ármanns:
Ingibergur vann
Jón Unndórsson
í úrslitaglímu
Ingibergur Sigurðsson, Víkverja,
varð sigurvegari í 85. Skjaldarglímu
Ármanns sem fram fór um síðustu
helgi.
Þetta var í fyrsta skipti sem Ingi-
bergur nær að vinna glímuskjöld
Ármanns fyrir Ungmennafélagið
Víkverja, en hann vann skjöldinn
árin 1994 og 1995 fyrir Ármann.
Orri Bjömsson, KR, skjaldarhafi
frá síðasta ári, tapaði fyrir félaga
sínum, Fjölni Elvarssyni i fyrstu
glímunni. Helgi Bjarnason, KR,
vann Jón E. Unndórsson, KR,
óvænt.
Síðasta viðureign mótsins var
glíma þeirra Helga Bjamasonar og
Ingibergs Sigurðssonar. Með sigri
gat annar hvor komist í úr-
slitaglimu við Jón E. Unndórsson.
Eftir stutta en snarpa glimu lagði
Ingibergur Helga. Þar með varð að
fara fram úrslitaglíma á milli þeirra
Ingibergs og Jóns.
Jón hóf glímuna með sókn en
Ingibergur varðist og beið færis.
Jón náði góðu leggjarbragði á Ingi-
bergi, en dómaramir vom ekki
sammála og töldu að Jón hefði fylgt
of mikið eftir. Glímdu þeir aftur og
þá lagði Ingibergur leggjarbragð á
Jón og fékk dæmda byltu.
Ingibergur glímdi mjög skynsam-
lega á mótinu og lagði sína andstæð-
inga á góðum úrslitabrögðum.
Ingibergur Sigurðsson sigraði og
hlaut 4+1 vinning. Jón E. Unndórs-
son, KR, varð annar með 4+0 vinn-
inga. Helgi Bjamason, KR, hafnaði í
þriðja sæti með 3 vinninga, Orri
Björnsson varð í fjórða sæti með 2
vinninga, Fjölnir Elvarsson, KR, og
Pétur Eyþórsson, HSÞ, jafnir í 5.-8.
sæti með 1 vinning, en Pétur keppti
sem gestur. Þórður Hjartarson, Ár-
manni, gekk úr mótinu vegna
meiðsla.
-SK
HM karla:
Litháen fer
til Kumamoto
Litháen vann tvo auðvelda
sigra á Áströlum í Sydney um
helgina en þjóðimar léku til úr-
slita um síðasta lausa sætið í
lokakeppni HM í handknattleik
sem fram fer í Kumamoto í Jap-
an í vor. Litháen verður þar með
í riðli íslands eins og búast mátti
við.
Þar með liggur riðillinn end-
anlega fyrir. í honum em ís-
land, Júgóslavía, Litháen, Japan,
Alsír og Sádi-Arabia.
-VS
HM kvenna:
Króatía vann
Sviss tvívegis
Króatía sigraði Sviss tvívegis í
undankeppni HM kvenna í hand-
bolta um helgina en ísland er
þriðja þjóðin í þessum undan-
riðli. Króatísku stúlkumar unnu
fyrri leikinn á heimavelli sínum
með yfirburðum, 27-16, en
mörðu sigur í þeim síðari í Luz-
em, 20-19.
Úrslit í öðmm riðlum:
1. riðill:
Svíþjóð-Makedónía . . 17-14
Makedónía-Svíþjóð . . 23-19
Þriðja liðið er Spánn.
2. riðill:
Rússland-Georgía . . 38-14
Rússland-Georgía . . 35-11
Þriöja liöiö er Holland.
3. riðill:
Tékkland-Tyrkland . . 21-16
Tyrkland-Tékkland . .23-23
Þriðja liöiö er Búlgaría.
5. riðill:
Ungverjaland-Ítalía . .25-10
ftalia-Ungverjaland . . 10-28
Þriðja liöið er Júgóslavía.
6. riöill:
Úkraína-Slóvenía . . 20-17
Slóvenia-Úkraína . . 21-16
Frakkland-Grikkland . . 26-14
Frakkland-Grikkland . . 31-12
7. riðill:
Pólland-fsrael ... 39-9
PóUand-fsrael . .35-11
Þriðja liöið er Slóvakía.
8. riðill:
Litháen-Hvita-Rússland .. . . . 18-22
Hvíta-Rússland-Litháen ... . . 21-24
Þriðja liðið er Azerbaijan.
-VS
EM karla:
Forkeppnin
er hafin
Forkeppni Evrópukeppni
landsliða kaiia í handknattleik
hófst um helgina en þar er leikið
um sæti í sjálfri riðlakeppninni
þegar 20 þjóðir spila um að kom-
ast í lokakeppnina.
ísland þarf ekki að taka þátt í
þessari keppni og fer beint í
riðlakeppnina.
Úrslit leikja um helgina urðu
þessi:
A-riðill:
Tyrkland-Slðvakía ........19-17
Slóvakía-Tyrkland ........26-17
Eistland-Lettland.........22-22
Lettland-Eistland.........29-23
B-riðill:
Lúxemborg-Hvíta-Rússland . .. 18-33
Lúxemborg-Hvíta-Rússland ... 24-28
Þriðja liðiö er Makedónía.
C-riðill:
Ísrael-Grikkland . . . 29-15
Grikkland-ísrael . . .28-23
Þriðja liðið er Kýpur. D-riðill:
PóUand-Austurriki . . . 25-22
Austurríki-PóUand . . . 23-21
HoUand-Bosnía . . . 25-25
Bosnia-HoUand .. . 26-20
E-riðill:
Sviss-Belgía . . . 29-23
Belgia-Sviss . . . 15-24
Finnland-Georgía ... 25-20
Georgía-Finnland . . . 27-20 -vs
Norömennirnir tveir, Atli Skaardal og Lasse Kjus höföu ærna ástæöu til fagna og brosa breitt í Sestriere á Italíu í gær. Skaarda!
vann gulliö í risastórsviginu og Kjus silfriö. Skaardal sýndi mikiö öryggi í gær og varöi titii sinn með miklum glæsibrag.
Heimsmeistaramótiö í alpagreinum:
Frábær byrjun Norðmanna
Norðmenn hófu keppni í heimsmeistaramóti alpagreina
skíðaíþrótta með miklum glæsibrag í gær. Norðmenn skip-
uðu tvö efstu sætin í fyrstu grein mótsins, risastórsvigi, en
bronsverðlaunin féllu í skaut Austurríkismanns. Mótið fer
að þessu sinni fram í Sestriere á Ítalíu og stendur til 15. febr-
úar. Tveir íslenskir skíðamenn eru á meðal þátttakenda í
Sestriere, þeir Kristinn Bjömsson og Amór Gunnarsson.
Atli Skaardal stal senunni í risastórsviginu í gær og tókst
að verja titil sinn frá síðustu keppni í Snæfjöllum á Spáni í
fyrra. Þessi þrítugi Norðmaður sýndi mikið öryggi í skíða-
brekkunni í gær. Hann kom í mark á 1:29,68 mínútum. Lasse
Kjus fullkomnaði gleðidag Norðmanna með því að vinna silf-
urverðlaunin, kom í mark á 1:29,89 mínútum. Gunther
Mader frá Austurríki varð síðan I þriðja sætinu á 1:30,01
mínútum.
Það vekur athygli að þrír efstu menn eru allir um þritugt
og þar yfir. Það sannar að lengi lifir í gömlum glæðum.
„Yfirvegaöur og gekk allt í haginn“
„Ég var yfirvegaður fyrir þessa keppni og fyrir vikið gekk
mér allt i haginn. Góður undirbúningur skilaði einnig sínu.
Aldurinn skiptir engu í þessu sambandi. Maður verður
aldrei of gamall til að læra og verða betri skíðamaður," sagði
Atli Skaardal eftir sigurinn í gær. Jan Ove Nystuen, þjálfari
Skaardal, sagði að sigurinn hefði ekki komið sér á óvart.
„Skaardal hefur allt sem prýðir góðan skíðamann," sagði
Nystuen.
Margir eru fullvissir um að Norðmenn hafi ekki sagt sitt
síðasta orð á heimsmeistaramótinu, þetta sé einungis byrj-
unin hjá þessari miklu skíðaþjóð. -JKS
^ Alþjóölegt kvennamót í tennis:
Islendingar hafa átt
í vök að verjast
Um helgina hófst í Tennishöllinni í
Kópavogi alþjóðlegt kvennamót í tennis
sem styrkt er af Alþjóða tennissamband-
inu. Fjölmargar erlendar stúlkur eru
hingað komnar til þátttöku í móinu sem
og íslenskar stúlkur. Mótið stendur fram
á laugardag.
Á sunnudag léku þrjár íslenskar stúlk-
ur. Rakel Pétursdóttir tapaði þá fyrir
Sonju Foks frá Hollandi, 6-0 og 6-0.
Rakel átti nokkrar góðar uppgjafir og
gerði þrjá ása. Stefanía Stefánsdóttir tap-
aði fyrir dönsku stúlkunni Maríu
Rassmussen, 6-0 og 6-1. Stefanía lék
þennan leik undir getu. Loks tapaði Júl-
íana Jónsdóttir fyrir Valerie Poulos frá
Bandaríkjunum, 6-0 og 6-3. Júlíana lék á
köflum mjög vel í þessum leik.
Hrafnhildur Hannesdóttir og íris
Staub keppa í aðalkeppninni sem hefst í
dag. Hrafnhildur mætir þýsku stúlkunni
Garbrille Kucerova og íris Ninu Nittin-
ger frá Þýskalandi en hún er ein
sterkasta stúlkan sem keppir á mótinu.
-JKS
Sigur hja Geir og felogum
Geir Sveinsson og félagar í Montpellier sigruðu Massy, 23-20, í frönsku 1. deildinni
í handknattleik um helgina. Creteil vann Paris SG, 22-15, og Ivry vann útisigur á
ACBB, 29-32.
Ivry og Creteil eni efst með 53 stig, Montpellier er með 45 og Paris SG 43 stig.
-VS
KFI (36) 86
ÍR (42) 78
7-8, 16-17, 18-23, 28-31, 32-34 (3642).
45-51, 53-59, 62-71, 74-73, 75-75, 80-75,
86-78.
Stig KFl: Chiedu Oduadu 24,
Friðrik Stefánsson 23, Derrick Bryant
18, Guðni Guðnason 10, Baldur
Jónasson 6, Magnús Gíslason 3,
Hrafn Kristjánsson 2.
Stig ÍR: Eggert Garðarsson 18, Atli
Þorbjörnssqn 17, Tito Baker 14,
Eiríkur Önundarson 13, Guðni
Einarsson 8, Márus Amarsson 8.
Fráköst: KFÍ 30, ÍR 15.
3ja stiga körfur: KFÍ 22/9, ÍR
12/6.
Vítanýting: KFÍ 15/9, ÍR 11/8.
Dómarar: Georg Andersen og
Rögnvaldur Hreiðarsson, góðir.
Áhorfendur: Um 400.
Maður leiksins: Friðrik
Stefánsson, KFÍ.
Mál Bjarna
í biðstöðu
- dvelur hjá Newcastle þessa vikuna
Skagamaðurinn Bjarni Guðjóns-
son hélt í morgun áleiðis til enska
úrvalsdeildarliðsins Newcastle
United. Félagið hafði fyrri all-
nokkru boðið honum til æfinga á
þessum tíma. Bjarni dvaldi hjá
Liverpool á dögunum sem sýnir
þessum snjalla leikmanni mikinn
áhuga. í gær var jafnvel búist við
tilboði frá Liverpool en bið verður
á því að sögn Gylfa Þórðarsonar,
formanns knattspyrnufélags ÍA.
„Liverpool er fullkunnugt um
að Bjarni verður hjá Newcastle
þessa vikuna. Eg á allt eins von á
því að málin fari ekki af stað fyrr
en Bjarni kemur aftur heim eftir
næstu helgi. Roy Evans, fram-
kvæmdastjóri Liverpool, hefur
mál Bjama alfarið á sinni könnu
en hann var önnum kafinn um
helgina. Það er þó aldrei að vita
nema eitthvað heyrist frá félaginu
í þessari viku. Það kemur tilboð
en þetta er bara dagaspursmál,"
sagði Gylfi Þórðarson við DV í
gærkvöld.
-JKS
Breskur deildabikar?
Fram eru komnar hugmyndir um
að sameina deildabikarkeppnina í
knattspymu í Englandi og
Skotlandi. Kóka-Kóla styrkir keppn-
ina í báðum löndum og hefur lagt
fram hugmyndir um að breyta
henni í eina stóra keppni. Tveir
möguleikar koma til greina, að sam-
eina mótin algerlega eða leika þau
aðskilin eins og hingað til en síðan
færi fram úrslitaleikur á milli sig-
urvegaranna í Englandi og
Skotlandi.
-VS
Srnicek til Boro?
Brian Robson, stjóri Middles-
brough, er að leita að markverði
þessa dagana. Varamarkvörður
liðsins hefur verið settur á sölu-
lista og beinast nú augu Robsons
að Tékkanum sem vill fara frá
Newcastle. Smicek hefur misst
stöðu sína nýverið hjá
Newcastle til Shaka Hislop.
-JKS
Jafnt í botnslag
Síðasti leikurinn í 22. umferð
spænsku knattspyrnunnar fór
fram í gærkvöld. Extremadura
og Hercules frá Alicante gerðu
markalaust jafntefli. Þessi lið
komu upp í 1. deild á sl. hausti.
Extremadura er sem fyrr í
neðsta sæti með 16 stig en
Hercules í 19. sæti með 19 stig.
-JKS
Pressuvorn KFl
skellti ÍR-ingum
DV, Isafirði:
ísfirðingar unnu mikilvægan sig-
ur á ÍR-ingum í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik vestur á ísafirði í
gærkvöld. Stíf pressuvöm heima-
manna sló ÍR-inga út af laginu og
hún öðru fremur færði ísfirðingum
sigur, 86-78.
Friðrik Stefánsson var óhemju-
sterkur á lokakaflanum og reyndar
má hrósa liðinu öllu fyrir beittan
leik og góða baráttu. ÍR-ingar voru
framan af með forystu en Tito
Baker komst snemma í villuvand-
ræði og sú staða kom gestunum í
vanda. Fljótlega í síðari hálfleik var
Tito hvíldur, þá kominn með íjórar
villur, og ísfirðingar gengu á lagið
og komust yfir í leiknum. ísfirðing-
ar fóm enn fremur að hitta vel úr
þriggja stiga skotum. ÍR-ingar
reyndu hvað þeir gátu en allt kom
fyrir ekki.
Friðrik Stefánsson var bestur hjá
ísfirðingum. Chiedu Oduadu komst
einnig vel frá sínu og það sama
verður sagt um Derrick Bryant.
Hjá ÍR-ingum var Eggert Garð-
asson bestur og Atli Þorbjömsson
átti einnig góðan leik. Tito mátti sín
lítils enda í strangri gælsu allan
leikinn.
-PG
Islandsmótið í badminton:
Þrefalt hjá Vigdísi
7. sigur Brodda og Árna Þórs í
röð
í umfjöllun blaðsins í gær frá ís-
landsmótinu í badminton duttu út síð-
ustu greinaskilin og er beðist velvirð-
ingar á því. Hér kemur það sem vant-
aði upp á greinina.
Broddi Kristjánsson og Ámi Þór
Hallgrímsson unnu 7. árið í röð saman
tvíliðaleikinn. Þeir sigruðu Tryggva
Nielsen og Njörð Ludvigsson, 15-5 og
15-8, í úrslitunum. Áður en Borddi fór
að leika með Árna Þór var hann búinn
að vinna tvíliðaleikinn sjö sinnum
áður þannig að alls er hann búinn
vinna í 14 skipti.
Elsa Nielsen og Vigdís Ásgeirsdóttir
sigruðu þær Brynju Pétursdóttur og
Erlu Hafsteinsdóttur, 15-6 og 15-6. í
tvenndarleiknum unnu Árni Þór og
Vigdís þau Brodda og Brynju, 15-5 og
15-1. Vigdís vann því þrefaldan sigur á
mótinu.
-JKS
Leikir í NBA-deildinni í nótt og fyrrinótt:
Annar útisigur Boston
Þrír leikir voru í NBA í nótt og
urðu úrslitin þessi:
Toronto-Boston............102-114
Stoudamire 26, Walker 20 - Williams 27,
Day 26, Weslay 25.
SA Spurs-Sacramento........79-85
Maxwell 15, Wilkins 13 - Richmond 26,
Grayer 16.
Utah-Washington ...........111-89
Malone 24, Howard 16, Rússell 15 -
Muresan 18, Strickland 11.
Boston náði þar með að vinna
sinn annan útileik af 19 í vetur.
Boston skoraði 15 stig i röð í þriðja
leikhluta og það skipti sköpum.
í tólfta sinn á tímabilinu tókst
leikmönnum SA Spurs ekki að
skora yfir 80 stig og liðið beið
lægri hlut fyrir Sacramento á
útivelli.
Utah vann 6. sigur sinn í síðustu
sjö leikjum. Utah skoraði 16 stig í
röð í fyrri hálfleik og náði þar meö
undirtökunum í leiknum.
Tvö met hjá Lakers
Leikmenn Los Angeles Lakers
slógu tvö met i fyrrinótt. Þeir
skoraðu 46 stig í fyrsta leikhluta
sem engu öðm liði hefur tekist að
gera áður og gerðu alls 78 stig í
fyrri hálfleik og bættu 35 ára
gamalt met sem Detroit átti. Um
leið var þetta stærsti sigur Lakers
á tímabilinu en versti skellur
Washington í vetur. Shaquilie
O’Neal fór meiddur af leikvelli
undir lok þriðja leikhluta og spilar
sennilega ekki meira í þessari
viku. Úrslit þeirra fimm leikja sem
voru í fyrrinótt:
Miami-Cleveland.............80-76
Hardaway 20, Mouming 15 - Brandon
16, Potapenko 14.
Boston-Vancouver...........92-102
Williams 22, Walker 19 - Reevers 33,
Rahim 28.
Detroit-Phoenix............97-106
Thorpe 27, Hill 17 - Bryant 21, Person
18, Ceballos 18.
Denver-Atlanta............115-104
D. Ellis 21, Mcdyess 16 - Blaylock 29,
Recasner 21.
LA Lakers-Washington .... 129-99
Shaq 24, Jones 18, Van Exel 17 -
Strickland 23, Howard 21.
-GH
Ovæntur sigur
Brann á Köln
Brann frá Noregi vann óvænt-
an sigur á þýska 1. deildarliðinu
Köln, 2-0, í æfingaleik í Þýska-
landi á sunnudaginn. Ágúst
Gylfason lék allan leikinn með
Brann en Birkir Kristinsson var
ennþá hjá Birmingham í
Englandi.
Roy Evans, fi'amkvæmdastjóri
Liverpool, mætti á leikinn og
sagði eftir hann að ljóst væri að
lið Brann væri mjög sterkt.
Brann og Liverpool mætast sem
kunnugt er í 8 liða úrslitum Evr-
ópukeppni bikarhafa í mars.
Brann hafði áður tapað tveim-
ur leikjum gegn 2. deildarliðum í
Þýskalandi, 1-3 gegn Fortuna
Köln og 0-3 gegn Uerdingen.
Gegn Köln hafði liðið hins vegar
óvænta yfirburði og gat unnið
stærri sigur.
Lið Brann kom í gær til Suð-
ur-Afríku og dvelur þar í æfinga-
búðum fram í næstu viku. Birk-
ir kom til móts við liöið í Þýska-
landi i fyrrakvöld og fór með því
til Suður-Afríku.
-VS
Snæfell efst
Snæfell komst í efsta sæti 1.
deildar karla í körfuknattleik í
fyrrakvöld með stórsigri á
Leikni úr Reykjavík, 120-89, í
mikilvægum leik í Stykkishólmi.
Þór úr Þorlákshöfn vann Staf-
holtstungur í Borgamesi, 66-71,
og er áfram í baráttunni um sæti
I úrslitakeppninni.
Staðan í 1. deild:
Snæfell 14 11 3 1244-1043 22
Valur 13 11 2 1314-1075 22
Leiknir R. 13 9 4 1250-1134 18
Stjarnan 12 8 4 977-946 16
Höttur 12 7 5 1057-1027 14
Þór Þ. 13 7 6 1046-1011 14
Selfoss 13 7 6 1062-1115 14
Stafholtst. 15 3 12 1135-1420 6
ReynirS. 12 1 11 995-1178 2
ÍS
13
1 12 921-1052 2
-vs
Grindavík vann
í jöfnum leik
Grindavík sigraði ÍS, 52-54, í
1. deild kvenna í körfuknattleik í
gærkvöld. í hálfleik hafði
Grindavík eins stigs forystu,
26-27.
Grindavík náði um miðjan
síðari hálfleik ágætri forystu
sem Stúdínur söxuðu jafnt og
þétt á og i lokin var munurinn
aðeins tvö stig.
María Leifsdóttir var stiga-
hæst hjá ÍS með 9 stig en Penny
Peppas skoraði 20 stig fyrir
Grindavík.
Staðan í deildinni eftir leik-
inn í gærkvöld er sú að Keflavík
er efst með 22 stig, KR 18 stig,
Grindavík og ÍS 16 stig, Njarðvík
8 stig, ÍR 4 stig og Breiðablik hef-
ur enn ekkert stig hlotið. -JKS
mmmwmmm
Keflavík 15 13 2 1455-1232 26
Grindavík 15 12 3 1441-1332 24
ÍA 15 10 5 1156-1104 20
Haukar 15 9 6 1237-1215 18
Njarðvík 15 9 6 1277-1226 18
KR 15 8 7 1282-1202 16
TindastóU 15 7 8 1227-1230 14
SkaUagr. 15 6 9 1196-1273 12
ÍR 15 6 9 1292-1283 12
KFÍ 15 6 9 1208-1248 12
Þór A. 15 4 11 1105-1310 8
Breiðablik 15 0 15 1075-1361 0
Næstu leikir:
Á fimmtudagskvöldið kemur
kl. 20 verða fimm leikir.
ÍA-Skallagrímur, Grindavík-
KFÍ, ÍR-Tindastóll, KR-Keflavik,
Breiðablik-Haukar.
«
T