Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1997
Fréttir________________________________________________________________________________ x>v
Hrottaleg líkamsárás á leigubílstjóra í Breiðholti:
Hann lét höggin
dynja á höfðinu á mér
- segir Friðrik Markússon leigubílstjóri sem var barinn og rændur
„Ég var að stöðva bílinn þegar
maðurinn réðst á mig. Hann lagðist
aftan á sætið og lét höggin dynja á
höfðinu á mér eins og ég væri
hnefaleikapúði. Hann klóraði auk
þess illa í andlitið á mér meðan ég
reyndi að verjast af öllum mætti.
Það var ekki auðvelt þar sem ég
sneri baki í hann og komst hvergi.
Það leið töluverð stund þar til hann
hætti að berja mig. Hann þreif þá af
mér veskið, stökk út úr bílnum og
hvarf,“ segir Friðrik Markússon
leigubílstjóri sem varð fómarlamb
hrottalegrar líkamsárásar í Breið-
holti í gærmorgun.
Friðrik var að aka þremur
mönnmn úr gleðskap í Fjarðarási.
Tveir þeirra fóm út úr bílnum á
Háaleitisbraut en sá þriðji vildi
láta keyra sig upp í Hólagarð í
Breiðholti. Þegar þangað kom
réðst hann á Friðrik með áður-
greindum hætti. Friðrik hlaut tölu-
verða áverka í andliti og eymsl í
baki og auk þess segist hann hafa
fengið mikið sjokk. Friðrik var á
batavegi þegar DV ræddi við hann
í gærkvöld.
Fékk mörg högg á höfuðið
„Þegar mér loksins tókst að
skríða út úr bílnum hugsaði ég um
það eitt að elta þrjótinn. Ég var hins
vegar of máttfarinn eftir barsmíö-
arnar og hefði varla komist langt á
eftir honum. Ég tel mig heppinn að
sleppa þó svona vel eftir þessa árás.
Ég fékk mörg högg á höfuðið en sem
betur fer er hausinn á mér sterkur
og ég almennt í góðri líkamsæfmgu.
Maðurinn rændi af mér veskinu
sem í voru kort og persónuskilríki,
auk nokkurra þúsund
a króna í reiðu-
fé. Ég fann ekki
áfengislykt af hon-
um en það kæmi
mér ekki á óvart
að hann hefði ver-
ið dópaður. Ég er
búinn að keyra
leigubíl hátt í 30
ár en hef aldrei
lent í svona
hræðilegri lífs-
reynslu. Það réð-
ust að vísu tveir
menn að mér í
leigubílnum fyrir
utan Bóhem ekki
alls fyrir löngu en
þá tókst mér að
komast í burtu
heill á húfi.
I mikilli hættu
Það er alveg á
hreinu að það þarf að skoða öryggis-
atriði leigubílstjóra betur. Við enun
Friðrik Markússon varð fyrir hrottalegri líkamsárás f leigu-
bfi sínum í Breiðholti í gær. Hann var barinn illa f höfuðið
og auk þess rændur af farþega. DV-mynd ÞÖK
oft í mikilli hættu með alls konar
fólk innanborðs sem maður veit
ekki hverju tekur upp á. Við erum
gersamlega óvarðir og þorum ekki
að nota öryggisbeltin af ótta við að
verða hreinlega hengdir i þeim. Mér
finnst eðlilegt að það verði skoðað
að hafa öryggisgler á milli bílstjóra-
sætis og farþegasæta aftur í eins og
er víða erlendis. Það er uggur í
mörgum leigubílstjórum enda hafa
þeir oft orðið fórnarlömb svona
árása,“ segir Friðrik.
Lögregla leitaði árásarmannsins í
gærdag og gærkvöld en hann er
ófundinn. RLR yfirheyrði mennina
tvo sem fóru fyrr út úr bílnum en
þeir sögðust ekki þekkja þann
þriðja. Málið er í rannsókn hjá RLR.
Friðrik segir að árásarmaðurinn
hafi líklega verið á aldrinum 22-26
ára. Hann var ljóshærður og mjög
snöggklipptur, klæddur í dökkan
jakka með loðkraga og gallabuxm'.
„Það þarf að taka harðar á þess-
um þrjótum, sem ráðast svona tilefn-
islaust á fólk, en gert er. Mér finnst
allt of mikil linkind í þessu réttar-
Formaður Dagsbrúnar:
Útiloka ekki
verkfall
„Staðan er ósköp kyrrlát eftir 2-3
mánaða samningaþóf. Menn standa
fastir á sínu, við á okkar lágmark-
stöxtum og þeir á sinni lágu pró-
sentu, og ég sé ekki að neitt gerist
fyrr en menn fara að sýna að þeim
er alvara," sagði Halldór Björnsson,
formaður Dagsbrúnar, við DV um
stöðu samningamála i gærkvöld.
Halldór sagðist sammála því mati
forseta Alþýðusambandsins að
næsta vika eða tíu dagar myndu
skera úr um verkfall eða ekki verk-
fall.
„Ég útiloka ekki verkfall og hef
ekki heyrt annað en að okkar félags-
menn séu tilbúnir í slaginn. Miðað
við stöðu mála sýnist mér að menn
fari að afla sér verkfallsheimildar,
kannski ekki strax í þessari viku en
ég er nokkuð viss um að ákvörðun
um það verði tekin í vikunni." -sv
Björgvin sigraði
„Þetta var mjög skemmtileg
keppni og sigurinn gefur mér byr
undir báða vængi," sagði söngvar-
inn góðkunni, Björgvin Halldórsson,
eftir að hann sigraði í söngvakeppn-
inni Cavan Intemational sem haldin
var á írlandi á laugardagskvöld.
Björgvin sigraði með laginu If it’s
Gonna End in Heartache en hann
söng það lag i Eurovision-
söngvakeppninni á sínum tíma en
lenti þá frekar neðarlega. -JHÞ
Marta María Jónasdóttir bar sigur úr býtum í fatahönnunarkeppninni Facette sem fram fór í Tunglinu á laugardag.
Módel hennar, Bergljót Þorsteinsdóttir, er hér í sigurkjól Mörtu Maríu. Þema keppninnar aö þessu sinni var „Ógrun“
en markmiö hennar er ab hvetja til sköpunargleði hjá ungu og ófagiærðu fólki. Sigurvegarinn hlaut að launum
Husqvarna saumavél, úttekt hjá Vogue og Svíþjóðarferö. Tæplega 100 tillögur bárust í keppnina. DV-mynd Hari
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 9041600.
39,90 kr. mínútan
Jí 1 Nal 2
904 1600
Verður KA íslandsmeistari
í handbolta?
Bolludagurinn er í dag. Gómsætar bollurnar bíða manna í bakaríum lands-
ins auk þess sem fjölmargir baka heima. Hér er Anna María Reynisdóttir í
Reynisbakaríi í Kópavogi með girnilegan skammt. DV-mynd Þjetur
Stuttar fréttir
Columbia fékk sekt
Álfyrirtækiö Columbia
Ventures, sem íhugar byggingu
álvers á Grundartanga, var
sektað í Bandaríkjunum fyrir
þremur árum vegna brota á um-
hverfislögum þar i landi. Ríkis-
sjónvarpið sagði frá.
Vill jöfn vörugjöld
Framkvæmdastjóri Verslunar-
ráðs, Vilhjálmur Egilsson, segir
að vörugjöld byggist á tilfinning-
um frekar en gildum rökum.
Hann vill að vörugjöld séu þau
sömu á öllum vörum. Ríkissjón-
varpið greindi frá.
Fyrsta loðnan
í Krossanesi
Ríkissjónvarpið greindi frá því
að fyrsta loðnufarminum sem
barst Krossanesverksmiðjunni
hefði verið landað í gærmorgun.
Það var Hólmaborgin sem kom
með 2 þúsund tonn.
Sauðárkróksbær
á ekki að selja
Bæjarstjórinn á Sauðárkróki
telur að bærinn eigi að bíða
með selja hluti sína í Steinull-
arverksmiðjunni eða öðrum
fyrirtækjum því bréfin muni
hækka mikið á næstu mánuð-
um. Frá þessu greindi Ríkis-
sjónvarpið.
Dýrt að lýsa
upp Hellisheiði
í fréttum Ríkissjónvarpsins
kom fram að það mundi kosta
rúmlega 120 milljónir króna á ári
að lýsa upp Hellisheiði. Þetta er
brýnt verkefni að mati þing-
manna Suöurlands.
Jarðskjálftaútttekt á
Suðurlandi
Um 150 hús á Suðurlandi hafa
verið metin með tilliti til jarð-
skjálftahættu. Úttektirnar tengj-
ast Seismis-verkefninu sem miðar
að því að auka forvamir vegna
jarðskjálfta i landshlutanum. Rík-
isútvarpið sagði frá.
-JHÞ