Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Page 22
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1997
*ö0
Risastóra letidýrið veiddi önnur
dýr í matinn
Maður skyldi nú ekki alltaf láta nafnið villa
sér sýn. Þannig hefur lengi verið álitið að risa-
stórt letidýr, sem hélt til á jörðu niðri og bjó í
Vesturheimi en varð útdautt fyrir tíu þúsund
árum, hafi verið hægfara grasbítur. Annað hefur
þó komið á daginn, ef marka má uppgötvun
•« tveggja vísindamanna sem starfa við háskólann í
Montevideo, höfuðborg Úrúgvæ, og sagt er frá í
tímaritinu New Scientist. Þeir segja að letidýr
þetta, sem á fagmáli heitir Megatherium americ-
anum og vó hvorki meira né minna en fjögur
tonn, hafi verið kjötæta. Ef rétt reynist er þetta
stærsta dýrið sem vitað er um á þurru landi og
veiddi spendýr sér til matar.
Svo mikið er vitað um letidýr þetta aö það gat
gengið á afturlöppunum. Það gat því notað fram-
lappimar til annarra hluta, en á þeim voru ógn-
vekjandi klær. Hingað til hefur verið talið að dýr-
in hafi notað framlappimar til aö slíta sér grein-
ar af trjám í svanginn en til þess hefur þurft tölu-
verða krafta.
Vísindamennimir tveir sem áður er getið, þeir
Richard Faria og Ernesto Blanco, hafa aftur á
móti rýnt mjög nákvæmlega í steingerða beina-
greind af þessu ameríska risaletidýri og uppgötv-
að að olnbogakrummi dýrsins, en það er sá hluti
olnbogans sem þrívöðvinn festist við, var mjög
stuttur. Þannig bygging einkennir kjötætur og
dregur taum snerpunnar á kostnað styrkleikans.
Vísindamennirnir segja að þetta hafi gert letidýr-
inu kleift að beita klónum mjög ákveðið, ekki
ósvipað og væru þær rýtingar.
Faria og Blanco segja að einnig mætti hugsa
sér að dýrið hafi beitt stunguhreyfingunum sem
stutti olnbogakrumminn gefi til kynna til að
verja sig eða í eðlunarleik.
Aðgerðir gegn kólesteróli í ígræddum hjartaæðum:
Draga mjög úr þörfinni á nýrri kransæðaaðgerð
Vel heppnuð kransæðaaðgerð er
algjör himnasending fyrir þann
sem gengst undir hana. Það er
því vissara að gera allt sem
hægt er til að heilsubótin
megi verða sem langvinnust.
Nýjar rannsóknir kana-
dískra og bandarískra vís-
indamanna benda til að
með því að minnka magn
hins svokallaða slæma kól-
esteróls í blóðinu um 25 til
47 prósent megi lengja þann
tíma umtalsvert þar sem ábata
kransæðaaðgerðarinnar nýtur
við. Og jafhvel má þannig koma 1
veg fyrir að önnur aðgerð reynist
nauðsynleg síðar meir.
í rannsókninni var kannað hversu
lengi það tók fyrir æðar, sem teknar voru
úr fæti sjúklingsins og settar voru í staðinn
fyrir stíflaðar æðar til hjartans, að stíflast
sjálfar af kólesteróli.
Mikilvægt er að vita það þar sem fyrri rann-
sóknir hafa sýnt að aðeins tíu til tólf árum eftir að-
gerðina hefur kólesteról þrengt um 30 til 40 prósent
ígræddra æða. Mjög er hins vegar hægt að draga úr
þessu með þvi að ganga hart fram í gjöf lyfja sem hafa
hemil á kólesterólmagninu.
„Þessi rannsókn veitir endanlegt svar við þeirri spurningu
um hvort ígræddar kransæðar svari meðferð sem ætlað er að
draga úr kólesteróli," segir Claude Lenfant, framkvæmdastjóri
kanadískrar stofhunar sem kostaði rannsóknina.
Lucien Campeau, hjartasérfræð-
ingur í Montréal og umsjónar-
maður rannsóknarinnar, segir
að aðeins sé hægt að minnka
kólesteról í blóði hjartasjúk-
linga um þrjú til fjögur pró-
sent með því einu að gefa
þeim fæðu með litlu kól-
esteróli. Til að minnka kól-
esterólið um þau 30 til 35
prósent sem þarf til að
gagn sé að fyrir ígræddu
æðarnar þurfi að gefa lyf.
„Heilsugæslulæknar eru
fremur smeykir við lyfjagjöf en
með tímanum munu þeir komast
að því að þessi lyf eru mjög örugg,“
segir Campeau.
Hann segir það hafa vakið furðu að
aðeins örlitlmn hluta kransæðasjúklinga
hafi verið kunnugt um kólesterólmagnið í
eigin blóði. Þær upplýsingar og aðgerðir til
að minnka kólesterólmagnið umtalsvert mimdu
verða til þess að margir kransæðasjúklingar
þyrftu ekki að gangast imdir aðra aðgerð.
Campeau segir að um tíu prósent allra kransæðaað-
gerða sem gerðar eru í Kanada séu endurtekningar, ef
svo má að orði komast. Spamaðurinn er þvi augljóslega
mikill ef vel tekst til með að lækka slæma blóðkólesterólið
umtalsvert.
Rannsókn kanadisku og bandarísku visindamannanna náði til
1351 sjáifboðaliða.
Ekki er allt sem sýnist hjá Hamlet Dana-
prins, ef marka má bandaríska stjameðlis-
rfræðinginn Peter Usher. Sígilt leikrit Willi-
ams Shakespeares er ekki bara harmleikur
um sekt, brjálæði og dauða, heldur táknsaga
um mismunandi heimsmyndir frá endur-
reisnartímanum sem kepptu um hylli fræði-
manna.
Usher sagði frá því á fundi samtaka banda-
rískra sfjamvísindamanna fyrir skömmu að
Shakespeare hefði notað leikrit sitt um Dana-
prins til að vísa í kenningar sem þá voru að
koma fram um stöðu jarðarinnar í alheimin-
um.
Á tímum Shakespeares vom menn famir
að taka til endurskoðunar kenningar sem
gerðu ráð fyrir því að jörðin væri miðpunkt-
feur alls og viðurkenna að sólin væri það sem
allt snerist um. Breski vísindamaðurinn
Thomas Digges, samtimamaður Shakespe-
ares, hafði mikil áhrif þar á en hann stað-
hæfði að allar stjömur væra sólir í óendan-
legum alheimi.
„Shakespeare sá fyrir nýja skipan heims-
ins og stöðu mannkynsins í honum,“ sagði
Usher. „Leikritið er þess vegna stjarnvísinda-
' leg heimsmyndunarfræði sem er engu stór-
kostlegri en bókmenntalegar og heimspekileg-
ar hliðstæöur hennar."
Persónumar í leikritinu eiga sér ýmsar fyr-
irmyndir sem tengjast vísindum og stjörnu-
fræði, ef marka má kenningar Ushers. Þannig
sækir Shakepeare fyrirmynd sína að persón-
unni Kládíusi til Kládíusar Ptólemosar,
grísks vísindamanns á annarri öld eftir Krist,
sem sagði að jörðin væri miðpunktur al-
heimsins sem sólin og aðrar sfjörnur snerast
um. Þá eiga þeir félagar Rosenkrantz og
Guildenstem að tákna danska stjamvísinda-
manninn Tycho Brahe sem hafði ekki mjög
ósvipaðar skoðanir á alheiminum og
Ptólemos.
Hamlet sjálfur er persónugervingur kenn-
ingar Digges um óendanlegan alheim sem við-
teknum skoðunum stendur ógn af, rétt eins
og kónginum af Danmörku stendur ógn af
Hamlet.
Ekki voru allir sammála Usher og túlkun
hans á leikritinu um Danaprins. Bandaríski
eðlisfræðingurinn Phillip Schewe, sem jafn-
framt er leikskáld, sagði að Shakespeare hefði
ekki skrifað táknmyndaverk og að erfitt væri
aö trúa því að Hamlet væri eitt stórt líkinga-
verk.
Hamlet táknsaga um stöðu jarðar í alheimi
Tannkremið dug-
arekkiáhvít-
laukinn
ÍÞeir vita það sem borða mik-
inn hvítlauk: Það getur verið
| hábölvað að losna við lyktina,
I meira að segja rækileg tann-
burstun og nætursvefn duga oft
ekki til. Nú telja austurrískir
| vísindamenn sig vita ástæðuna:
: Jú, hvítlaukurinn dvelur lengi í
I blóðinu.
Vísindamennirnir efna-
1 greindu andardrátt sjálfboöa-
Sliða i allt að 30 klukkustundir
eftir að þeir höfðu borðaö hvít-
lauk og komust að því að flest
lyktarsterkustu efnin hurfu eft-
Iir nokkra klukkutíma. En þrjú
efnasambönd, þar á meðal
aseton, voru enn í miklum
mæli í blóðinu eftir 30 kluku-
stundir. Þar gæti verið kominn
hluti skýringarinnar á þvi að
hvítlaukur vinni á kólesteróli
þar sem aseton er eitt þeirra
efiia sem myndast þegar fitu-
sambönd eins og kólesteról era
brotin niður.
Vísindin í þágu
sælkeranna
Sveppaunnendur hafa fulla
í ástæðu til að kætast yfir fregn-
um um að vísindamönnum hafi
loks tekist að rækta gyllta
■ kantarellusveppinn í gróður-
; húsi. TO þessa hefur sveppur
: þessi aðeins vaxið í þroskuðum
furuskógi.
Kantarellusveppir hafa verið
á undanhaldi í Evrópu að und-
; anfömu og hafa þeir verið flutt-
5 ir inn frá Bandaríkjunum í
s stóram stíl.
Mörgæsir nota
gömlu, góðu að-
ferðina
\ Keisaramörgæsarkarlarnir
; sitja allt að 115 daga á hreiðr-
inu, matarlausir og í bruna-
gaddi. Samt tekst þeim að halda
j á sér nægilegum hita til að
j klekja út eggið. Og hvernig
j skyldu þeir fara að því?
Ekkert mál, segja franskir
| vísindamenn i bréfi til vísinda-
ritsins Nature. Karlfuglarnir
nota gamla og góða aðferð, þeir
hjúfra sig saman. Alveg eins og
; við gerum, mannfólkið.
Á meöan karlfuglamii- sitja á
egginu era kvenfuglamir úti á
j sjó að safna fituforða eftir varp-
ið.
mnnffimi