Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Page 34
'42
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1997
Afmæli
Hjörtur Þórarinsson
Hjörtur Þórarinsson, fyrrv.
kennari, skólastjóri og fram-
kvæmdastjóri SASS, Lóurima
15, Selfossi, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Hjörtur fæddist í Miðhúsum
í Reykhólahreppi og ólst þar
upp til tólf ára aldurs en síðan
á Reykhólum. Eftir bamaskóla-
nám í formi farkennslu stund-
aði hann nám við unglinga-
* skóla Flateyrar 1939-40, við
Unglingaskóla Árelíusar Níels-
sonar á Stað á Reykjanesi
1941-42, var við heimanám í
einn vetur, stundaði nám við
KÍ 1945-48 og lauk kennaraprófi
1949, stundaði nám við íþrótta-
kennaraskóla íslands 1948-49,
við Danmarks Lærerhöjskole
1965-66, stundaði enskunám í
Davies School for Foreign Stu-
dents í London 1962 og 1965 auk
þess sem hann hefur sótt fjölda
kennaranámskeiða í íþróttum,
söng og almennum fögum á ár-
unum 1950-79.
Hjörtur kenndi við Barna- og
Miðskóla Stykkishólms 1949-51,
. við Barna-, Mið- og Iðnskólann
á Selfossi 1951-61, að undan-
skildum vetrinum 1959-60 er
hann kenndi við Flensborg í
Hafnarfirði, var skólastjóri
Kleppjárnsreykjaskóla 1961-78
og kennari við Gagnfræða-
skólann á Selfossi 1978-80.
Hjörtur var framkvæmda-
stjóri Samtaka sunnlenskra
sveitarfélaga 1980-94. Þá hef-
ur hann verið rekstrarstjóri
Tónlistarskóla Árnesinga frá
1978 og jafnframt séð um At-
vinnuþróunarsjóð Suðurlands
og Sorpstöð Suðurlands á
sama tíma.
Hjörtur stundaði ýmis sum-
arstörf, s.s. heyskap, brúar-
smíði, vegagerðarakstur, öku-
kennslu og fleira.
Hjörtur vann að stofnun og
sat í stjórn Tónlistarfélags Ár-
nesinga 1955 og Borgfirðinga
1966 en hæði félögin stofnsettu
tónlistarskóla í sinum héruð-
um. Hann sat í stjórn og gegndi
formennsku í Kennarasam-
bandi Vesturlands og Suður-
lands, í stjórn Kiwanis-
klúbbanna Jökla í Borgarfirði
og Búrfells á Selfossi, var félagi
í kirkjukórunum á Reykhólum,
í Stykkishólmi, í Reykholti og á
Selfossi, var sóknarnefndarfor-
maður í Reykholti 1972-78, for-
maður Kirkjukórasambands
Borgarfjarðarprófastsdæmis í
tvö ár og formaður skólanefnd-
ar Fjölbrautaskóla Suðurlands
1981-94.
Hjörtur hefur ritað greinar í
Dagskrána á Selfossi, var rit-
Um-
hverfisins,
blaðs
Kiwan-
ismanna á
Suðurlandi
frá 1979, rit-
Þjóð-
ólfs á Sel-
fossi 1979-80
auk þess
sem birtst
hafa eftir
hann lausa-
vísur í blöð-
um og tíma-
ritum.
Fjölskylda
Hjörtur kvæntist 18.4. 1957
Ólöfu Sigurðardóttur, f. 25.11.
1927, d. 4.8. 1995, skólastjóra og
kennara. Hún var dóttir Sigurð-
ar Gíslasonar, prests i Saurbæ í
Dölum og á Þingeyri, og Guð-
rúnar Jónsdóttur húsmóður.
Kjördóttir Hjartar og Ólafar
og bróðurdóttir Ólafar er Sig-
rún, f. 12.8. 1960, læknir i Sví-
þjóð, gift Bimi Geir Leifssyni
lækni og eru synir þeirra Hjört-
ur Geir, f. 29.4. 1989, og Ólafur
Hrafn, f. 14.8. 1992.
Alsystkini Hjartar eru Krist-
ín Lilja, f. 12.7. 1922, húsfreyja
að Grund í Reykhólasveit,
ekkja eftir Ólaf Sveinsson sem
fórst 18.1. 1995; Þorsteinn, f.
28.7. 1923, jámsmiður í Reykja-
vík, kvæntur Halifríði Guð-
mundsdóttur; Sigurlaug
Hrefha, f. 27.7. 1924, ekkja eftir
Hendrik Rasmus sem lést 4.8.
1991; Anna, f. 23.8.1925, en mað-
ur hennar er Haukur Stein-
grímsson húsasmíðameistari.
Hálfsystkini Hjartar, sam-
mæðra, em Kristín Ingibjörg
Tómasdóttir, f. 4.5. 1932, fyrrv.
yfirljósmóðir í Reykjavík, bú-
sett 1 Kópavogi, var fyrst gift
Braga Eggertssyni en síðan
Mána Sigurjónssyni; Sigurgeir
Tómasson, f. 6.11. 1933, d. 8.11.
1993, bóndi að Mávavatni að
Reykhólum, var kvæntur Dísu
Ragnheiði Magnúsdóttur ljós-
móður sem lést 1974.
Foreldrar Hjartar vom Þór-
arinn Ámason, f. 8.5. 1892, d.
4.7. 1929, hóndi á Reykhólum, í
Miðhúsum og hústjóri á Hólum,
og k.h., Steinunn Hjálmarsdótt-
ir, f. 1.12.1898, d. 28.7. 1990, hús-
freyja.
Hjörtur dvelst á heimili dótt-
ur sinnar í Helsingborg þann
6.2-17.2. Heimilisfangið er
Traktörsgatan 52, 25246 Hels-
ingborg, Svíþjóð.
Höskuldur Skagfjörð
Höskuldur Skagfjörð, fyrrv.
^ leikstjóri, Norðurbrún 1 A,
Reykjavík, verður áttræður á
morgun.
Starfsferill
Höskuldur fæddist í Hofs-
gerði á Höfðaströnd í Skaga-
firði og ólst upp við öll almenn
sveitastörf á Bæ í Skagafirði,
hjá fósturforeldrum sínum,
Jóni Konráðssyni, bónda þar,
og Jófríði Björnsdóttur hús-
freyju.
Höskuldur fór sextán ára til
Korpúlfsstaða þar sem hann
var kúasmali. Þá
stundaði hann nám í
Reykholti í tvo vetur
og fór þaðan til
starfa hjá Kaupfélagi
Borgfirðinga, undir
stjórn Þórarins
Pálmasonar sem
reyndist Höskuldi
vel.
Höskuldur fór síð-
an til Reykjavíkur
þar sem hann stund-
aði nám við Leiklist-
arskóla Gests Páls-
sonar í tvo vetur,
jafnframt því sem hann starfaði þá með
Höskuldur
Skagfjörö.
hjá KRON. Hann fór
síðan til Kaup-
mannahafnar þar
sem hann stundaði
leikhúsnám í tvo vet-
ur.
Eftir að Höskuldur
kom heim var hann
leikari í fjögur ár hjá
Þjóðleikhúsinu sem
þá var nýtekið til
starfa. Hann var síð-
an vítt og breitt um
landið, ýmist sem
leikstjóri fyrir stað-
bundna leikhópa eða
sinn eigin leikhóp, en
hann setti upp fjörutíu og átta
verk á þessum ferðum. Auk
þess var hann í hlutastarfi hjá
Ríkisútvarpinu. Hann hefur
kynnst mörgu góðu fólki um
dagana sem hann sendir sínar
bestu kveðjur.
Fjölskylda
Höskuldur fæddist þríburi en
hann er nú einn á lífi þeirra
bræðra.
Foreldrar Höskuldar voru
Sigurður Sveinsson, trésmiður
á Sauðárkróki, og Guðbjörg
Sigmundsdóttir húsmóðir.
Fréttir
ísafjörður:
Svepparækt í deiglunni
í gömlu loödýrabúi
Steinþór B. Kristjánsson á Flat- þvi sem menn kaUa konung svep-
eyri gerði tilraunir með ræktun á panna, shiitake, í gámum á Flateyri
Auglýsing um styrki úr
Fræðslusjóði brunamála
i samræmi við reglugerö nr. 138/1993, skv. 24 gr. laga nr.
41/1992, er hér með auglýst eftir umsóknum um styrki úr Fræðslu-
sjóði brunamála.
Fræðslusjóður brunamála starfar innan Brunamálastofnunar ríkis-
ins. Markmið sjóðsins er að veita þeim sem starfa að brunamálum
styrki til náms á sviði brunamála. Sjóðurinn greiðir styrki til rannsókna-
og þróunarverkefna, námskeiðsgjöld, ferða- og dvalarstyrki, laun á
námsleyfistíma og styrki vegna námskeiða og endurmenntunar.
Auk styrkja til stakra verkefna mun sjóöurinn á þessu ári styrkja yf-
irmenn slökkviliða til að sækja námskeiö sem Brunamálastofnun
skipuleggur í samvinnu við þjálfunarmiðstöðvar slökkviliða erlendis.
Styrkir til námskeiðanna veröa veittir viðkomandi slökkviliðum og
, skulu slökkviliðsstjórar sækja um fyrir hönd þeirra manna sem þeir
hyggjast senda á námskeiðin.Umsóknir um styrki skal senda Bruna-
málastofnun ríkisins, Laugavegi 59, 101 Reykjavík, fyrir 7. mars
1997.
Nánari upplýsingar um styrkveitingar og starfsemi sjóðisins veitir
Árni Árnason verkfræðingur. Upplýsingar um yfirmannanámskeiðin
veitir Guðmundur Haraldsson skólastjóri. Sími Brunamálastofnunar
er 552-5350. Grænt númer 800-6350.
Reykjavík, 7. febrúar 1997.
Stjórn Brunamálastofnunar rikisins.
fyrir um tveimur árum. Sveppir þessir eru bragðsterkari
en þeir sveppir sem nú eru seldir í verslunum og þurrefn-
isinnihald þeirra er um 10% meira en hvítu sveppanna
sem flestir þekkja.
Tilraunin á Flateyri heppnaðist vel og telur Steinþór sig
vera búinn að finna leyndardóminn við ræktunina. Er
hann að undirbúa framleiðslu í húsnæði að Kirkjubóli í
Engidal við Skutulsfjörð en þar var áður loðdýrarækt.
Unnið er nú að því að gera arðsemisútreikninga og ef allt
gengur upp í þeim verður farið af stað og hægt að hefja
framleiðslu eftir 3-4 mánuði. Vonir standa til að hægt
verði að nýta hitaorku frá sorpbrennslunni Funa, sem er
í næsta nágrenni, til að kynda upp húsið.
Steinþór segir að mikið hafi verið skrifað af lærðum
greinum um shiitake-sveppinn og gagnsemi hans. Þegar
hans er neytt fæst i raun miklu meira en stoðefni í matar-
gerð, því hann þykir mjög heilsusamlegur fyrir starfsemi
líkamans, svo sem fyrir blóðrásar- og ónæmiskerfið.
-HKr.
Til hamingju
með afmælið
10. febrúar
85 ára
Margrét Ingimundardóttir,
Grettisgötu 44A, Reykjavík.
80 ára
Sigríður M. Kjerúlf,
Miðvangi 22, Egilsstöðum.
Pálmi Jónsson,
Skólabraut 3, Seltjamamesi.
Guðbjörg Hermannsdóttir,
Munkaþverárstræti 8,
Akureyri.
75 ára
Hrefha Iðunn
Önundardóttir,
Rauðalæk 12, Reykjavík.
70 ára
Stefhir Sigurðsson,
Stórholti 30, Reykjavík.
Ásta Guðjónsdóttir,
Stekkjarholti 22, Akranesi.
Kristrún Guðnadóttir,
Fálkagötu 23A, Reykjavík.
60 ára
Ragnar Þ. Guðmundsson,
Ofanleiti 3, Reykjavík.
Ágústa Einarsdóttir,
Hvannhólma 4, Kópavogi.
Jón Ingvarsson,
Barrholti 5, Mosfellsbæ.
Jón Elías Lundberg,
Melagötu 1, Neskaupstað.
50 ára
Gísli K. Kjartansson,
Geirlandi, Skaftárhreppi.
Erla Guðbjömsdóttir,
skólaritari í Fellaskóla,
Bröttuhlið 3, Mosfellsbæ.
Eiginmaður hennar er
Kristinn Víglundsson
verkstjóri.
Þau taka á móti gestum í
Flugröst við Nauthólsvík
laugardaginn 15.2. kl. 20.00.
Ólöf Unnur Harðardóttir,
Dúfnahólum 4, Reykjavík.
Eiginmaður hennar er
Einar Halldórsson.
Þau em að heiman.
Bjami Pétursson,
Hjallabraut 15, Hafnarfirði.
Kristjana Sigurðardóttir
verslunarstjóri,
Hraunprýði 2, ísafirði.
Hún tekur á móti gestum
á heimili sínu í kvöld kl. 20.00
Karl B. Guðmundsson,
Klettagötu 14, Hafnarfiröi.
Helga Ásta Þorsteinsdóttir,
Túngötu 3, Hvolsvelli.
40 ára
Anna Krystyna Adamczyk,
Brimnesvegi 12, Flateyri.
Sigrún Magnúsdóttir,
Logafold 150, Reykjavík.
Tómas Hilmarsson,
Vesturbergi 72, Reykjavík.
Halldór Borgþórsson,
Seilugranda 7, Reykjavík.
Pétur H. Sigurgunnarsson,
framkvæmdastj. Marko-Merkja ehf.,
Breiðvangi 56, Hafnarfirði.
Kona hans er Soffia Hjördís Guðjónsdóttir
en hún varð fertug þann 20.12. sl. Þau taka
á móti vinum, vandamönnum og viðskiptafélög-
um í veitingahúsinu Hraunholti, Dalshrauni 15,
Hafnarfirði, fostudaginn 14.2. nk. frá kl. 21.00.
Magnús Dagbjartur Lárusson,
Staðarfelli, Dalabyggð.
Auður Róberta Gunnarsdóttir,
Reynimel 22, Reykjavík.