Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Síða 37
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1997
45
Grafísk
hönnun
og ljós-
myndir
Tvær sýningar eru nú í Nor-
ræna húsinu. í anddyri hússins
sýnir Mikko Tarvonen grafiska
hönnun og í sölum hússins sýn-
ir norski ljósmyndarinn Morten
Krogvold verk sín.
Verðlaun norrænna teiknara
fyrir grafiska hönnun og mynd-
skreytingar voru veitt Mikko
Tarvonen seint á síðasta ári.
Tarvonen er grafiskur hönnuð-
ur frá Finnlandi, fæddur árið
1954. í tuttugu ár hefúr hann
unnið ýmis störf á sviði auglýs-
inga og grafískrar hönnunar.
Hann hefur hannað fjölda
verka, m.a. fyrir finnska papp-
Sýningar
írsframleiðendur og prentiðnað-
arfyrirtæki.
Ljósmyndarinn Morten Krog-
vold hefur vakið verðskuldaða
athygli fyrir listrænar ljós-
myndir. Hann er þekktastur fyr-
ir svart-hvítar myndir og eru
viðfangsefhi hans ýmist andlits-
myndir, hreyfing og dans, lands-
lag eða ljósmyndir teknar í lista-
söfiium og kirkjum. Morten hef-
ur haldið ómældan fjölda sýn-
inga víða um heim sem hafa
fært honum mikla virðingu.
Hann hefúr tekið andlitsmyndir
af heimsfrægu listafólki, rithöf-
undum, leikurum, listdönsur-
um, tónlistarmönnum, kvik-
myndaleikstjórum og stjórn-
málamönnum.
Rökræða
um
hugarfar
og hagvöxt
Framtíðarstofnun boðar til
rökræðu úm hugarfar og hag-
vöxt í kvöld kl. 20.15 í Norræna
húsinu. Framsögu hefur Stefán
Ólafsson prófessor og gerir
hann grein fyrir þróun og ein-
kennum hugarfars nútíma-
manna og reifar horfúr til fram-
tíðar á grundvelli bókar sinnar,
Hugarfar og hagvöxtur.
Samkomur
Bridge í Risinu
Félag eldri borgara í Reykja-
vík verður með sveitakeppni í
bridge í Risinu í dag kl. 13.
Inngangur að
skjalastjórnun
í dag og á morgim er nám-
skeiöið Inngangur að skjala-
stjórnun að Öldugötu 23 í
Reykjavík og hefst það kl. 13
báða dagana.
U3 Project á
Gauknum
Hljómsveitin U3 Project leik-
ur á Gauki á Stöng í kvöld.
Hljómsveitin er skipuð úr-
valsliði úr þekktmn hljómsveit-
um eins og Sixties, Vinum vors
og blóma, Spoogie Boogie og Sál-
inni.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans:
Einleikarar í hæsta gæðaflokki
að verða dásamlegur sellóleikari."
Folke Nauta er 23 ára gamall og
hlaut fyrstu verðlaun sín aðeins 12
ára er hann vann Alþjóðu Mozart-
samkeppnina fyrir unga píanó-
leikara. Hefur hann unnið til
fjölda verðlauna síöan. Þegar
hann fékk aðalverðlaun Philip
Morris samkeppninnar fylgdu
þessi orð úrskurðinum: „Píanó-
leikari í hæsta gæðaflokki með
einstakar tónlistargáfur."
Á verkefnaskrá þeirra félaga
eru verk eftir Schumann,
Debussy, Messiaen, de Falla og
Brahms. Tónleikamir hefjast kl.
21.
I
Tveir ungir tónlistarmenn frá
Hollandi halda tónleika á vegum
Listaklúbbs Leikhúskjallarans í
kvöld. Þeir eru Jeroen den Herder,
selló, og Folke Nauta, píanó, en
þeir eru meðal fremstu tónlistar-
manna í Hollandi. Báðir hafa þeir
hlotið margvíslegar viðurkenning-
ar og verðlaun hvor um sig og
koma þeir við á íslandi á leið
sinni til tónleikahalds í Bandaríkj-
Skemmtanir
unum.
Jeroen den Harder er 25 ára og
hefur leikið einleik með ýmsum
sinfóníuhljómsveitum og haldið
Jeroen den Herder og Folke Nauta
leika klassíska tónlist í Leikhús-
kjallaranum I kvöld.
konserta víða um heim. Um hann
sagði Yehudi Menuhin: „Jeroen
den Herder lék með tilfinningu og
næmi og ég trúi að hann eigi eftir
Slggubær
A. Hansen
Póst- og símamlnjasafnló
Flensborgarskóllf
Tvíburar Sigurðu og
Kristins
Tvíburarnir á mynd-
inni eru drengur og
stelpa og fæddust á fæð-
ingardeild Landspítalans
20. janúar. Drengurinn
kom einni minútu á und-
an systur sinni í heiminn,
kl. 4.37. Hann var við fæð-
Barn dagsins
ingu 2915 grömm og 53
sentímetra langur og syst-
ir hans 2753 grömm og 52
sentímetra löng. Foreldr-
ar þeirra eru Sigurða Sig-
urðardóttir og Kristinn
Sævar Jóhannsson. Tví-
buramir eiga þrjú eldri
systkini, Bjarna Magna, 9
ára, Sigurð Jóhann, 6 ára,
og Ragnheiði, 4ra ára.
dagsC^n>*
Brenda Blethyn og Marianne
Jean Baptiste leika mæðgurnar
sem hafa veriö aöskildar frá fæö-
ingu dótturinnar.
Leyndarmál
og lygar
Háskólabíó hefur sýnt að und^ir.
anfornu við miklar vinsældir
hina rómuðu kvikmynd Mikes
Leigh, Leyndarmál og lygar
(Secret and Lies). Hortense er
ung þeldökk kona, sjóntækja-
fræðingur, sem býr í London.
Hún er tökubarn og þegar for-
eldrar hennar eru báðir látnir
finnur hún þörf hjá sér til að
leita uppi móður sína. Hún hefur
uppi á skýrslu um ættleiðingu
sína og kemst þar að því að móð-
ir hennar var hvít.
Móðir hennar, Cynthia, er
ógift verkakona og býr í niður-
Kvikmyndir
níddri íbúð ásamt dóttur sinni,
Roxanne, og kemur þeim illa
saman. Hortense hefur samband
við móður sína og þær ákveða að
hittast en þegar Cynthia sér að
Hortense er svört þá segir hún
að þetta hljóti að vera einhver
mistök. Hortense getur sannfært
Cynthiu um að hún sé dóttir
hennar og kunningsskapur, sem
byrjaði með mikilli tortryggni,
verður að innilegri vináttu milli
móöur og dóttur.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Áttundi dagurinn
Laugarásbíó: Koss dauöans
Kringlubíó: Ævintýraflakkarinn
Saga-bíó: Sonur forsetans
Bíóhöllin: Ærsladraugar
Bíóborgin: Aö lifa Picasso
Regnboginn: Sú eina rétta
Krossgátan
1 T 3
<3 pro
rr~ J vr
)</■ 1
17 r J
V j p-
Lárétt: 1 hvöss, 6 þröng, 8 fjötrar,
9 heiöur, 10 snemma, 11 kona, 13
fiör, 14 nirfill, 15 drykkur, 17 beita,
19 svari, 21 stöng, 22 karlmanns-
nafn,.
Lóðrétt: 1 ákafar, 2 ker, 3 skel, 4
röltir, 5 hlutann, 6 ónísk, 7 geð, 12
hóta, 16 málmur, 18 gelt.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 strjáll, 8 æri, 9 ára, 10
lést, 11 æti, 12 lotið, 14 að, 15 óri, 16
rifu, 18 af, 19 lúnar, 21 rist, 22 uœ.
Lóðrétt: 1 sæll, 2 tré, 3 ristiisy 4
játir, 5 áræðinu, 6 lata, 7 leiður, 13
orfi, 15 óar, 17 fag, 20 út.
Gengið
Almennt gengi LÍ nr. 43
07.02.1997 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollnenai
Dollar 69,930 70,290 67,130
Pund 114,110 114,690 113,420
Kan. dollar 51,780 52,100 49,080
Dönsk kr. 11,0460 11,1040 11,2880
Norsk kr 10,7630 10,8220 10,4110
Sænsk kr. 9,4350 9,4870 9,7740
Fi. mark 14,2110 14,2950 14,4550
Fra. franki 12,4890 12,5600 12,8020
Belg. franki 2,0415 2,0537 2,0958
Sviss. franki 48,8100 49,0800 49,6600
Holl. gyllini 37,5100 37,7300 38,4800
Þýskt mark 42,1500 42,3600 43,1800
ít. líra 0,04286 0,04312 0,04396
Aust. sch. 5,9870 6,0240 6,1380
Port. escudo 0,4197 0,4223 0,4292
Spá. peseti 0,4984 0,5014 0,5126
Jap. yen 0,56220 0,56560 0,57890
irskt pund 111,720 112,420 112,310
SDR 96,20000 96,77000 96,41000
ECU 81,8400 82,3300 83.2909MI
Simsvari vegna gengisskráningar 5623270