Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1997, Page 6
6
MÁNUDAGUR 17. MARS 1997
Fréttir
Sáttasemjari meö sáttatillögu og frestar verkfalli bankamanna:
Foringjar bankamanna
vilja fella tillöguna
- í allsherjaratkvæöagreiöslunni á miðvikudag og fimmtudag
Stjóm Sambands íslenskra
bankamanna, samninganefnd þess
og formenn aðildarfélaga SÍB, segja
að sáttatillaga Þóris Einarssonar
ríkissáttasemjara sé ófullnægjandi.
Þeir skora á bankamenn að taka
þátt í allsherjaratkvæðagreiðslu um
hana næstkkomandi miðvikudag og
fimmtudag og fella hana.
Um leið og sáttasemjari lagði til-
löguna fram siðastliðið fóstudags-
kvöld frestaði hann boðuðu verk-
falli bankamanna um 15 daga eða til
4. apríl. Sáttatillaga hans er ná-
kvæmlega eins og sá kjarasamning-
ur sem Verslunarmannafélag
Reykjavíkur gerði við VSl á dögun-
um. Aðeins eitt atriði er þar um-
fram en það er 0,7 prósenta launa-
hækkun frá 1. mars síðastliðinum
með vísan til álits gerðardóms í
deilumáli SÍB og bankanna frá 1996.
Gert er ráð fyrir að samningurinn
gildi til 15. febrúar árið 2000.
„Fyrir utan það að mönnum þyk-
ir launaliðurinn ekki nægilega hár
þá vilja bankamenn ekki sætta sig
viö að samningurinn gildi svona
lengi. Það er meðal annars vegna
þess að fyrir dyrum stendur að
breyta ríkisbönkunum í hlutafélög.
Þeirri breytingu munu fylgja
ákveðnar breytingar. Bankamenn
vilja að samningurinn gildi til ekki
lengur en til hausts 1999,“ sagði Vil-
helm G. Kristinsson, framkvæmda-
stjóri Sambands íslenskra banka-
manna, í samtali við DV í gær.
Verði sáttatillagan felld í ailsherj-
aratkvæöagreiðslunni verður aftur
sest að samningum þar til boðað
verkfall hefst 4. apríl, hafi ekki
náðst samningar fyrir þann tíma.
-S.dór
Húsavíkurbær:
Vill eignast
Saltvík
DV, Akureyri:
Áhugi er á því innan bæjar-
stjórnar Húsavíkur að Húsavíkur-
bær eignist jörðina Saltvík sem er
skammt sunnan bæjarmarkanna
en jörðin er í eigu ríkisins. Verði
af því að bærinn kaupi jörðina er
áformað að þar verði í framtíðinni
rými fyrir stærri atvinnurekstur
og bærinn hefur þegar sent yfir-
völdum erindi um að hann eignist
jörðina.
„Við hugsum þetta svæði t.d.
undir einhverja iðju sem tengist
heitu vatni. í dag er ástandið
þannig að heita vatnið, sem við
fáum úr Reýkjahverfi, er allt of
heitt þegar það kemur inn á kerf-
ið í bænum og starfsemi í Saltvík
gæti orðið til þess að hitinn á
vatninu lækkaði um 10-20 gráður.
Við stöndum frammi fyrir því að
fara að endurnýja vatnsleiðsluna
upp í Reykjahverfi sem er 300-400
milljóna króna framkvæmd og það
veröur ekki gert nema til staðar sé
einhver aðili sem geti nýtt vatnið
og óbeint greitt þá endumýjun,“
segir Sigurjón Benediktsson bæj-
arfulltrúi.
Heita vatnið, sem kemur inn á.
kerfi Húsvíkinga, er um 90 gráða
heitt, sem er yfir stöölum, og stilli-
tæki eru ekki miðuð við svo heitt
vatn. -gk
Hjartveik börn:
26 miiyónir
söfnuðust
Um 26 miljónir króna söfnuð-
ust fyrir hjartveik böm í landsöfn-
uninni „Gefum þeim von“ sem
fram fór sl. fóstudag.
Að sögn forsvarsmanna Neist-
ans, styrktarfélags hjartveikra
bama, gekk söfnunin mun betur
en vonir höfðu verið bundnar við.
Neistinn stóð að söfnuninni í sam-
starfi við íslenska Útvarpsfélagið,
SPRON, Gulu línuna ofl. -RR
Ingólfur Jónsson sigraöi í karlaflokki á Reykjavíkurtjörn á Fiðringi
DV-mynd E.J.
Hestamót á Reykjavíkurtjörn
Tjornin tilvalin fýrir
sýningar og keppni
Opið hestamót á Reykjavík-
urtjörn síðastliðinn laugardag vakti
mikla athygli hestamanna og ann-
arra áhugamanna um íslenska hest-
inn.
Keppendur komu víða að og
mættu um það bil 120 knapar með
hesta í tölt- og skeiðkeppni.
Tveir knapar komu úr Grrmdar-
firði með þijá hesta og þar sáust
*]*
m
Vinningar sem dregnir voru út í HAPPII HENDI síðastliðið
föstudagskvöld komu í hlut eftirtalinna aðila.
Birtmeð fyrirvara um prentvillur.
Guðríður Þorsteinsdóttir.
Strandgðtu 33, Akureyri
Gerður Tómasdóttir,
Brekkustíg 3A, Reykjavík
Sigurbára Óskarsdóttir,
Birkihlíð 6, Vestm.
Ásgeir Ásgeirsson,
Frostafold 22, Reykjavík
Áslaug Bjarnhéðinsdóttir,
Hilmisgötu 5, Vestm.
Sólveig Sörensen,
Álftamýri 36, Reykjavík
Vif\f\«»1QSh«'s f&r Qi'ÍA Vi
Ásdís ÓlafsdAttir,
Miðholti, Hafnartirði
Gunnhildur Sigurjónsdóttir,
Norðurvegi 37, Hrísey
Ástríður Johnsen,
Vesturgötu 30, Akureyri
Anna Ingibjörg Eiðsdóttir,
Hólabraut 1, Hrísey
Eygló Ingimarsdóttir,
Hólabraut 3, Hrisey
Guðmundur Snorrason,
Þórustíg 15, Njarðvík
Guðrún F. Helgadóttir.
Túnsbergi, Akureyri
Jón Snorri Guðmundsson,
Miðskógum 24, Bessast.
Kristín Rúnarsdóttir,
Grundarvegi 13, Njarðvík
Margrét Guðmundsdóttir,
Hólavegi 22, Sauðárkróki
Sandra Ásgelrsdóttir,
Blábjörgum, Djúpavogi
Unnur Sigurðardóttir,
Heiðarholti 30C, Keflavík
einnig knapar af Suðurlandi með
fræga stóðhesta.
Þama voru meðal annarra: Piltur
frá Sperðli, Geysir frá Gerðum, Kol-
finnur frá Kvíarhóii, Kópur frá
Mykjunesi og Þokki frá Bjarnar-
nesi.
Þeir komust allir á verðlaunapall
nema Piltur en knapi hans, Bragi
Andrésson, var ekki kominn alla
leið úr Rangárvallasýslu til að fara
með löndum. Það varð honum að
falli að hann sýndi ekki hægt tölt að
sögn dómara.
í karlaflokki sigraði Ingólfur
Jónsson (Fáki) á Fiðringi. Hann var
eini áhugamaðurinn í fimm knapa
úrslitum í karlaflokki.
í kvennaflokki sigraði Auður
Stefánsdóttir (Fáki) á Röðli, í ung-
mennaflokki Guðmar Þ. Pétursson
(Herði) á Spuna, í unglingaflokki
Magnea R. Axelsdóttir (Herði) á
Vafa og í bamaflokki Berglind R.
Guðmundsdóttir (Gusti) á Fjöður.
Elías Þórhallsson sigraði í 100
metra skeiði með fljúgandi starti á
Vála á 8,52 sek.
1.500 pylsur, gosdrykkir og prins
póló auk annars sælgætis var dreift
á svæðinu og hvarf nánast allt í
gesti.
Reykjavíkurtjöm er kjörin fyrir
svona hestamót og væri tilvalið að
setja upp sýningar fyrir útlendinga
á kvöldin með viðeigandi ljósadýrð
þegar það er mögulegt á vetuma.
Það var Félag tamningamanna
sem stóð að mótinu. Hafliði Hail-
dórsson var umsjónarmaður móts-
ins og hann sagöi að tilgangurinn
hefði verið að kynna sýningar í
Reiðhöllinni í Víðidal um næstu
helgi og búa til skemmtun fyrir
borgarbúa og böm. Takmarkið væri
að gera betur síðar. -E.J.
Bílvelta
við Vík
DV, Vík:
Þyrla Landhelgisgæslunnar,
TF-LÍF, sótti á laugardaginn 51.
árs gamlan Englending sem
slasaðist þegar bíll hans lenti
utan vegar í iljúgandi háiku rétt
austan Vikur.
Að sögn Reynis Ragnarsson-
ar, lögreglumanns í Vík, var
mikil ísing á veginum þegar
slysið varð og missti maðurinn
stjóm á bílnum þannig að hann
snerist, valt heila veltu og end-
Að sögn lækna á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur er líðan
mannsins allgóð. Hans slasaðist
á baki en meiðsli hans eru ekki
talin alvarleg. -NH/RR
Góð loðnu-
veiði
um helgina
DV, Akureyri:
„Það er búin að vera ágætis
veiði hér um helgina en senni-
lega fer nú að síga á seinni hlut-
ann í þessu,“ sagði Bjami
Bjamason, skipstjóri á loðnu-
bátnum Súlunni EA, þegar DV
ræddi við hann seinni partinn í
gær.
Loðnubátamir vom í tals-
verðri veiði bæði í gær og fyrra-
dag. Loðnan var djúpt út af Snæ-
fellsjökli, óvenjulega vestarlega
að sögn Bjama en talsvert af
henni þar á ferðinni.
Súlan kom á miðin um miðjan
dag í gær og þremur tímum síð-
ar var skipið komið með 600
tonn í lestamar eftir tvö köst og
því þurfti eitt gott kast til viðbót-
ar til að fylla skipið. Bjami sagði
að heimabátar gengu fyrir um
löndun í höfnum við suðvestur-
hom landsins en sumir aðrir
bátar yröu að sigla alla leið aust-
ur iyrir land með afla sinn. Súl-
an landaði t.d. á laugardag á Nes-
kaupstað en siglingin þangað
fram og til baka af miðunum tek-
ur um 36 klukkustundir. -gk
Lögreglan í Reykjavík:
Klippt af
rúmlega
1200 öku-
tækjum
Lögreglan vinnur af fullum
krafti að ná til þeirra ökutækja
sem ekki hefur verið farið með í
aðalskoðun eða ekki verið
greiddar af lögbundnar trygging-
ar eða bifreiðagjöld. í gær klippti
lögreglan í Reykjavík númer af
34 ökutækjum vegna þessarar
vanrækslu.
Alls hefur lögreglan klippt
númer af 1226 bifreiðum á fyrsu
tveimur og hálfum mánuði árs-
ins. Af þeim vom 878 ökutæki
sem eigendur höfðu ekki borgað
af lögbundnar vátryggingar eða
bifreiðagjöld á síðasta ári. 299 af
þessum ökutækjum höiðu ekki
verið færð til aðalskoðunar á síð-
asta ári og 46 ökutæki höfðu ver-
ið færð til aðalskoðunar en feng-
ið athugasemd og ekki komið aft-
ur. -RR
DV og Apple-umboðið:
Vinnið Macintosh tölvu með mótaldi
- skilafrestur til 19. mars
ió vinnmg* hja HAppdr^ttí H-»5kola
iöi öí'ylfjáv«k, 4Ím» 565 8300.
Nú fer hver að verða síðastur að
senda inn þátttökuseðlana vegna
getraunar DV og Apple-umboðsins.
Seðlamir birtust í DV 5.-12. mars
og var nóg að svara með krossi í
réttan reit. Safna átti öllum þátt-
tökuseðlunum saman og senda inn
til: DV, Þverholti 11 „Makki" - 105
Reykjavík.
í verðlaun er glæsileg Performa
6320/120 Macintosh tölva með
mótaldi, að verðmæti 150 þúsund
krónur. Skilafrestur er til 19. mars
næstkomandi, til miðvikudags.