Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1997, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997
Spurningin
Hvaöa persónu
Spaugstofumanna
helduröu mest upp á?
Guðmundur Örn Sverrisson
nemi: Núma.
Hinrik Thorarensen bankastarfs-
maður: Enga sérstaka, ég horfi ekki
á þættina þeirra.
Helgi Hreiðarsson: Ófeig.
Sigrún Huld Gunnarsdóttir nemi:
Ófeig.
Símon Leplar nemi: Kristján
Ólafsson.
Jökull Jóhannsson nemi: Núma.
Lesendur
Útbrunnin Spaugstofa
og agndofa áhorfendur
Jón Ámason skrifar:
Spaugstofuþættimir eru útbrunn-
ir, á því eiga forstöðumenn Sjón-
varps að vera búnir að átta sig á.
Það var kannski að vonum að
Spaugstofumenn reyndu að brydda
upp á nýjum atriðum á laugardags-
kvöld fyrir páska. En, æ, hvað var
nú þetta? Gátu þeir ekki haldið sig
við þjóðlífið, tekið spaugileg atriði
úr stressinu, samningaþófinu eða
öðrum viðloðandi uppákomum?
Nei, nú var það þeirra skoðun í
Spaugstofunni að páskamir, mesta
hátíð kristinna manna, gæti verið
fimagott innlegg i skemmtiefni fyr-
ir íslenskan almenning sem sæti
heima við sjónvarpstækin sem þeim
er gert að skyldu að greiða sérstakt
mánaðargjald af til ríkisins. Já, það
var guðstrúin sem var lagt til atlögu
við.
Ég horfði ekki nema á hluta þátt-
arins þar sem ég sá hvert stefndi
hjá Spaugstofumönnum. Mikil óá-
nægja hefur risið meðal fólks vegna
þessa sérstaka páskainnleggs ríkis-
sjónvarpsins. Nokkrir hringdu í
þáttinn Þjóðarsál til að láta í ljós óá-
nægju sína, þ. á m. einn þekktur
fyrrverandi prestur Dómkirkjunn-
Grín er líka oftast lífsins alvara og það þarf kunnáttumenn til aö skilja þar
hismiö frá kjarnanum.
Ég veit ekki hversu margir áhorf-
enda Sjónvarpsins þetta laugardags-
kvöld hafa skemmt sér konunglega
yfir glósum Spaugstofunnar á krist-
indóminn en mér er til efs að sá
skemmtiþáttur lifi lengi í hugar-
skoti áhorfendanna. Kannski er
þetta allt gleymt og grafið. Og er þá
engin ástæða til að sýta svona upp-
ákomu. Eða hvað? En skyldi ekki
ástæða þessara efnistaka Spaugstof-
unnar einfaldlega vera sú að að-
standendur hennar eru uppi-
skroppa með hugmyndir? Er ekki
aíltaf best að hætta þegar hæst
stendur? Betra hefði verið að viður-
kenna bara að Spaugstofan hafi
ekki lengur þol eða úthald til viku-
legra þáttagerða. Grin er oftast líka
lífsins alvara, og það þarf kunnáttu-
menn til að skilja þar hismið frá
kjamanum. Slíka menn hefur Sjón-
varpið einfaldlega ekki á sínum
snærum. Því miður.
Skoðanakannanir út í hött?
G.S. skrifar:
Á seinni árum hafa skoðanakann-
anir um hin ýmsu málefni mjög
færst í vöxt, enda geta þær verið
gagnlegar og leiðbeinandi um
strauma í þjóðfélaginu. Spurningin
er hins vegar hvort þær geti átt
jafnt við um öll málefni og t.d. af-
stöðu fólks til manna í mjög ólíkri
stöðu.
Mér finnst ekki óeðlilegt að þessu
sé velt fyrir sér í sambandi við
skoðanakannanir um afstöðu fólks
til manna eins og forsætisráðherra
og svo einnig til núverandi forseta
íslands. Þótt þessir tveir menn séu
taldir tveir æðstu menn þjóðarinnar
er aðstaða þeirra með mjög ólíkum
hætti. Forsætisráðherrann hlýtur
alltaf í hugum fólks að spegla gerð-
ir þings og stjómar sem svo aftur
koma fram mjög mismunandi við
þegnana, bæði varðandi fjárhag og
aðra aöstöðu í þjóðfélaginu.
Dagsdaglega er forsetinn hins
vegar nánast veislustjóri á Bessa-
stöðum, brosandi og ánægður með
gestum sínum eða á öðrum vett-
vangi þar sem sjónvarp og fjölmiðl-
ar fara á vettvang. Hengjandi orður
í barm fyrirmanna eða flytjandi
ávörp í boðum erlendra þjóðhöfð-
ingja um lönd og álfur.
Þetta eru svo ólík skilyrði að eng-
um heiðarlegum blaðamanni ætti
að detta í hug að réttlætanlegt geti
verið að gera þar á nokkurn mark-
tækan samanburð. Mér finnst að
DV, svo áægtur og óháður fjölmið-
ill, þurfi að vanda betm- til skoðana-
kannana og taka þar forskot á aðra
fjölmiðla að þeim þó ólöstuðum.
Ákvæðin um þjóðkirkju í stjórnarskrá
- Alþingi nemi þau burt
Einar Vilhjálmsson skrifar:
í raun réttri ættu lúterstrúar-
menn hér á landi að miða hátíð sína
við morðið á Jóni Arasyni biskupi.
Bedamunkur segir frá ferðum
sínum hingað til lands í byrjum 8.
aldar og telur leiðina átta dægra
haf. Ari fróði segir kaþólska menn
hafa búið í landi okkar um 870, þeg-
ar norrænir menn komu hér fyrst.
Örnefnin Kirkjubær og Kristnes
benda til kristins átrúnaðar.
Margir landsnámsmanna voru
kaþólskir. Nægir að nefna Auði
drottningu djúpúðgu og hennar
fylgdarlið. Helga magra og Ketil
fiflska. Njáll og hans fólk var og
kaþólskrar trúar. Sumir játuðu
enga trú.
slendingar hafa aldrei veriö trúaðir nema í lagalegum skilningi, segir bréf-
ritari m.a.
EiHiiOM þjónusta
allan
í síma
5000
i kl. 14 og 16
Á 9. og 10. öld var trúfrelsi á ís-
landi. Um árið 1000 var kaþólsk trú
lögtekin á Alþingi, vegna gíslatöku
og hótana Ólafs Tryggvasonar Nor-
egskonungs. Við þann atburð var
trúffelsi afnumið á íslandi. fslend-
ingar hafa aldrei verið trúaðir
nema í lagalegum skilningi, verið
blendnir i trúnni, viljað frekar vita
en trúa.
Þess vegna er eðlilegt að Alþingi
nemi úr gildi ákvæði stjórnarskrár-
innar um þjóðkirkjuna og létti af
skattborgurum þessum þunga
bagga. Hindurvitni eru ekki sæm-
andi upplýstri þjóð. Kaþólsk trú var
hér ríkjandi til 7. nóvember árið
1550, þegar lúterstrúarmenn myrtu
Jón Arason Hólabiskup og syni
hans í Skálholti. Sumarið 1541 hafði
Ögmundur Pálsson Skálholtsbiskup
verið handtekinn af lútersmönnum,
sviptur eignum sínum og fluttur
sem sakamaður úr landi.
Það færi vel á því að kaþólikkar
héldu upp á fyrstu 550 ár kaþólskr-
ar trúar á íslandi, frá árinu 1000 til
1550, en lútersmenn minntust
morðsins á Jóni Arasyni biskupi og
sonum hans, fyrir 450 árum, án þess
að ausa opinberu fé til þess
óvinafagnaðar.
Spaugstofan
særir biskup
Þóra Stefánsdóttir skrifar:
Nú hefur verið farið fram á
opinbera rannsókn á Spaugstofu-
þætti sem nýlega var sýndur og
fjallaði um Jesú Krist og skrum-
skælingu á trúmálum yfirleitt.
Hefur nú ríkissaksóknari falið
Rannsóknarlögreglu ríkisins
málið. Nú er eftir að sjá hvort
hér verður að fúllu gengið í mál-
ið en svo t.d. ekki varðandi kæru
biskups á sínum tíma út af
áburði þriggja kvenna um
áreitni biskups í þeirra garð.
Það mál hefur alveg fallið út af
sakramentinu. Á Spaugstofumál-
ið virðist eiga að líta eitthvað al-
varlegri augum. Við bíðum
spennt eftir rannsókninni!
Kaupmátturinn
snarminnkar
Oddur skrifar:
Það er segin saga að þegar
gera á nýja kjarasamninga við
landslýðinn er tekið til við að ná
í hagfræðinga og aðra talnafróða
í Ríkisútvarpið til að fræða okk-
ur um stöðugleikann, nauðsyn
lágræ- verðbólgu og kaupmátt-
inn sem nú sé hvað mestur. Rík-
isútvarpið þjónar sínum vel og
því kallaði það til þjóðhagsstjóra
sl. mðvikudagsmorgun til að láta
dæluna ganga, einmitt um þessi
atriði. Ég hef hins vegar ekkert
séð af góðærinu og kaupmáttur-
inn snarminnkar dag frá degi.
Þetta vita og fmna allir lands-
menn, hvað sem tölulegum
reiknikúnstum liður.
Þjóðarsáttar*
feðgar semja
Sigurður Einarsson hringdi:
Mér varð skemmt þegar ég sá
í sjónvarpsfréttum frá samninga-
viðræðum við bankamenn koma
til fundarins þá þjóöarsáttar-
feðga, sem ég kalla svo, þá Stein-
grím Hermannsson og Ásmund
Stefánsson sem nú leikur annað
og léttara hlutverk en þegar
hann var forseti ASÍ. Nú skulu
knésettir bankamenn sem hafa
nánast skítalaun þótt þeir fái 13.
mánuðinn greiddan. Mér sagði
traustur maður að bankastjórar
hefðu samið um að fá 15 mánuði
greidda, fimmta hvert ár. Ef svo
er - sem ég trúi varla, er ekki
nema von að sterka menn þurfi
til að verjast hinu almenna
starfsliöi bankanna.
Björgun
Vikartinds
Birgir Sigurðsson hringdi:
Mér finnst ótækt hvemig Vik-
artindsstrandið ætlar að þróast.
Ég var með tillögu á sínum tíma
og bar hana undir viðkomandi
aðila sem þarna um véla. Hún
var um að grafa með öflugum
vélskóflum frá skipinu landmeg-
in og myndi það þá rétta sig af
sjálfkrafa þar sem ágangurinn er
allur sjávarmegin. Hvers vegna
þetta var ekki reynt, og má jafn-
vel reyna enn, skil ég ekki. Er
þetta eitthvað meira út í hött en
að gera ekki neitt?
Ríkisstjórnin í
uppstokkun?
Pétur hringdi:
Ef það er rétt sem ég las í einu
dagblaðanna miðvikudaginn 2.
þ.m. um að innan ríkisstjórnar-
innar væri búið að ákveöa upp-
stokkun í ráðherraliðinu finnst
mér að stjómin eigi að gefa út
tilkynningu um þetta fyrirfram.
Við kusum ákveðna menn til
setu á þingi og ef einhver þeirra
hverfur t.d. á brott er það frétt
fyrir kjósendurna. Mér finnst
fjölmiðlar eigi að knýja á um að
fá svona orðróm staðfestan eða
að fá honum hnekkt af ábyrgum
aðilum, t.d. forsætisráðherra
sjálfum.