Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1997, Qupperneq 4
4
FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 1997
Fréttir
Jóhanna Erlingsson Indriöadóttir, 18 ára, bíður eftir nýju hjarta og lungum:
Bjartsýn á að ég geti
lifað áfram eðlilegu lífi
- fyrsti íslendingurinn sem gengst undir slíka aðgerð í Kaupmannahöfn
Jóhanna Erlingsson Indriöadóttir sést hér meö tvo bikara sem hún hefur
hlotiö fyrir frammistööu sína í fótboltanum meö KR. Jóhanna fæddist meö
hjartagalla en hefur af miklum dugnaöi stundaö íþróttir og námiö í Mennta-
skólanum viö Hamrahlíð. DV-mynd E.ÓI
Jóhanna í faömi fjölskyldunnar á heimili sínu aö Öldugranda í Reykjavík.
Ólöf tvíburasystir og Jón bróöir hennar ásamt móðurinni, Margréti Jónsdótt-
ur.
„Ég hlakka til að komast í að-
gerðina og er bjartsýn á að hún tak-
ist vel. Ég vona innilega að eftir
hana geti ég haldið áfram að lifa
eðlilegu lífi,“ segir Jóhanna Erlings-
son Indriðadóttir, 18 ára gömul
stúlka úr Reykjavík.
Jóhanna fæddist með hjartagalla.
Hún mun að öllum líkindum gang-
ast undir hjarta- og lungnaaðgerð í
Kaupmannahöfn á næstu mánuð-
um. Þá er áætlað að skipta um
hjarta og lungu í Jóhönnu. Hún yrði
þá fyrsti Islendingurinn sem gengist
undir slíka aðgerð í Danmörku. Jó-
hanna hefur farið í þrjár hjarta-
þræðingar og þar af tvær á síðasta
hálfa ári.
„Það er verið að bíða eftir því að
fá lyf til landsins sem á að nota í
svæfingu á Jóhönnu. Það á að at-
huga hvort þetta lyf hefur áhrif á
háþrýstinginn í lungnablóðrásinni
sem nú er of mikill. Þegar þetta lyf
kemur er stefnt að því að þræða
hana aftur. Síðan mun koma í ljós
hvort hún þarf að fara í aðgerðina í
Danmörku en það er mjög líklegt
eins og staðan er í dag,“ segir Mar-
grét Jónsdóttir, móðir Jóhönnu.
Jóhanna er mikill baráttujaxl.
Þrátt fyrir veikindi sín hefur hún
stundað handbolta og fótbolta af
fullum krafti síðan hún var bam.
Hún hætti í handboltanum fýrir
nokkrum árum til að geta einbeitt
sér að fótboltanum. Hún er mark-
vörður og fyrirliði 2. flokks kvenna
í KR og hampaði íslandsmeist-
aratitlinum í fyrra. Hún hefur ekki
mátt spila eða æfa fótboltann síð-
ustu sex mánuði vegna veikind-
anna.
„Það er einna erflðast að mega
ekki vera í boltanum með stelpun-
um. Ég er þó ákveðin að ef aðgerðin
gengur vel fari ég aftur í markið og
leiki með KR ef ég get. Ég stefni á að
vinna fleiri titla með liðinu í nán-
ustu framtíð," segir Jóhanna. Hún
er á náttúrufræðibraut í Mennta-
skólanum í Hamrahlíö og segist
stefna á að verða læknir í framtíð-
inni.
Erfiöur tími
„Jóhanna hefur alltaf verið mjög
dugleg og það er mikill kraftur í
henni þrátt fyrir veikindin. Hún á
eftir að standa sig vel í þessu öllu
saman,“ segir Margrét Jónsdóttir,
móðir Jóhönnu. Margrét mun fara
með dóttur sinni utan til Kaup-
mannahafiiar ef af aðgerðinni verð-
ur.
„Þetta er vissulega búinn að vera
erfiður tími fyrir fjölskylduna í
heild. Við hefðum ekki getað þetta
án góðs stuðnings. Við viljum koma
DV-mynd E.ÓI
á framfæri sérstöku þakklæti til
allra þeirra sem hafa stutt við bak-
ið á Jóhönnu og okkur í fjölskyld-
unni, ekki sfst þætti Trygginga-
stofhunar, Neistans, vina og vinnu-
félaga. -RR
Þjóölagasöngvarinn Arlo Guthrie í Keflavík:
Hitti Rúnar
og þeir ætla
að semja
lag saman
DV, Suðurnesjum:
„Ég man eftir Rúnari Júlíussyni
þegar Hljómar voru að taka upp
plötu í stúdíói í Massachusetts 1
Bandaríkjunum 1974. Það er
skemmtilegt að hitta hann á ís-
landi í fyrstu ferð minni hingað.
Ég hef ekki komið hér áöur og ís-
land var eitt fárra landa sem ég
átti eftir aö heimsækja," sagöi
bandaríski þjóðlagasöngvarinn
þekkti Arlo Guthrie, sonur hins
fræga tónskálds Woody Guthrie, í
samtali viö DV á Flughótelinu i
Keflavík.
Arlo var að koma frá Kaup-
mannahöfn úr tónleikaferð en
þurfti að millilenda á Keflavíkur-
flugvelli. Hann gisti eina nótt á
Flughótelinu áður en hann hélt
áfram til Bandaríkjanna. Arlo hef-
ur gert nokkur lög sem hafa náð
heimsfræg. Má þar nefha Alice’s
Restaurant og City of New Or-
leans.
Rúnar Júlíusson, stórpoppari í
Keflavík, hitti Arlo. Þeir ræddu
Tveir góbir stórpopparar saman sem hittust á ný eftir 23 ár, Rúnar Júlíusson og Arlo Guthrie. DV-mynd ÆMK
saman í fimm klukkustundir og
snæddu hádegisverð 22. apríl.
„Mér brá þegar ég frétti af Arlo
hér. Hann kom mjög vel fyrir, yfir-
vegaður og rólegur maður. Ég man
vel eftir þegar við hittumst fyrir 23
árum. Það er alltaf ánægjulegt að
hitta menn í sama bransa og við
ræddum um að gera lag saman,“
sagði Rúnar. Þeir ætla að vera í
góðu sambandi í framtíðinni.
Arlo kemur aftur til íslands 1999
á ráðstefnu þar sem fólk frá öllum
trúarbrögðum heims hittist - hátt í
sex þúsund manns. Arlo segist jafn-
vel hafa hug á að koma hingað
nokkru áður og spila hér. Hann bað
Rúnar um að aðstoða sig. Hann
spilaði á einum frægustu tónleik-
um sem haldnir hafa verið, Wood-
stock hátíðinni, 1969. -ÆMK