Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1997, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 1997
Við hreinsum til fyrir sumarið
og veitum 50% afmælisafslátt*
af öllum útsöluvörum
frá 25. apríl til 3. maí.
Mikið úrval af vönduðum
vörum, t.d flís- og hlífðar-
fatnaður frá Karrimor
og North Face, skíða-
fatnaður, Rossignol
skíðabúnaður, snjóbretta-
búnaður, gönguskór, húfur,
hanskar og margt fleira.
Tilboðin hafa
aldrei verið betri!
-SMJ&K FRAMÚK
Snorrabraut 60‘105 Reykjavík • Sími 561 2045
Póstsendum samdægurs
*Staðgreitt
staðgreiðslu- og greiðslu-
kortaafslóttur og stighœkkandi
birtingarafsláttur
oW mil)l hirrn^
Smáauglýsingar
DV
550 5000
Útlönd i>v
Bretland:
Hraðbraut-
um lokað
vegna
sprengju-
hótana
Breska lögreglan lokaði í morgun
stórum hlutum þriggja fjölfarinna
hraðbrauta fyrir umferð í báðar átt-
ir vegna sprengjuhótana. Þá var
einni helstu jámbrautarstöð lands-
ins einnig lokað.
Gífurlegir umferðarhnútar mynd-
uðust fljótlega eftir að lögreglan lok-
aði stórum hlutum M5 og M6 hrað-
brautanna i miðhluta Englands,
nærri Birmingham, og við lokun M1
hraðbrautarinnar í suðurhluta Jór-
víkurskíris.
Aðaljámbrautarstöð Birmingham
var einnig lokað, svo og nærliggj-
andi verslunarmiðstöð.
Viðvaranirnar báru öll merki
írska lýðvelsishersins (IRA) sem
berst gegn breskum yflrráðum á
Norður- írlandi. IRA hefur oft áður
truflað samgöngur með hótunum
sínum, nú síðast á mánudaginn
var. Reuter
Stuttar fréttir
Ályktun gegn ísrael
Búist er við að sérstök nefnd
Allsherjarþings Sameinuðu þjóð-
anna samþykki í dag ályktun þar
sem krafist verður að ísraelsk
yfirvöld stöðvi þegar í stað smíði
íbúða fyrir gyðinga i arabíska
hluta Jerúsalem.
Flóttamanna saknað
Hjálparstofnun Sameinuðu
þjóðanna hefur kraflð uppreisnar-
menn í Saír skýringa á hvarfi 55
þúsund hútúa frá Rúanda úr
flóttamannabúðum.
Slæm áhrif
Hashimoto, forsætisráðherra
Japans, segir að ítrekaðar viðvar-
anir Bandaríkjamanna vegna hag-
stæðs vöruskiptajöfiiuðar Japana
á ný gætu haft slæm áhrif á sam-
skipti landanna.
Braust inn til konu
Bandaríska vamarmálaráðu-
neytið hefur lýst yfir áhyggjum
vegna meints innbrots bandarísks
hermanns í íbúð konu á japönsku
eyjunni Okinawa.
írakar varaðir við
Bandaríkin hafa varað íraka
við tilraunum til að efla liðstyrk
sinn i suðurhluta írak undir því
yfirskini að þeir séu að flytja píla-
gríma heim frá Sádi-Arabíu.
Forsetasonur fyrir rétt
Umdeildur sonur Kims Young-
sams, forseta Suður-Kóreu, kom
fyrir rétt í morgun vegna mútu-
hneykslis.
Hóta málsókn
Stjórn múslíma í Tyrklandi,
sem átt hefur í harðvítugum deil-
um við herinn, hótar að draga fyr-
ir rétt yfirmann í hernum fyrir að
hafa ófrægt Necmettin Erbakan
forsætisráðherra.
Litháen biðlar til NATO
Þingið í Litháen sendi í gær
beiðni til NATO þar sem banda-
lagið er hvatt til að leyfa að
minnsta kosti einu Eystrasalts-
ríkjanna aðild í fyrstu umferð
stækkunar bandalagsins.
Hertrukkar hverfa
Tveir flutningabílar með flug-
skeyti, vélbyssur og sprengju-
vörpur fyrir bandaríska herinn
innanborðs hurfu í Texas í gær,
annar suður af Dallas en hinn
vestur af Austin. Reuter