Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1997, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 1997
V
9
Clinton fagnar
samþykki efna-
vopnasamnings
Bill Clinton Bandarikjaforseti
fagnaði því í gærkvöld aö öldunga-
deild þingsins skyldi hafa sam-
þykkt samning um algjört bann á
efnavopnum.
Hann sagði
samninginn
þjóna hagsmun-
um Bandaríkj-
anna vel.
Sjötiu og fjór-
ir öldungadeild-
arþingmenn
voru hlynntir samningnum en 26
á móti. Tvo þriðju hluta atkvæða
þurfti til aö samþykkja hann. Nú
stendur því ekkert í veginum fyr-
ir þvi að Bandaríkin geti staðfest
samninginn sem gengur í gildi
næstkomandi þriðjudag.
Fyrstu vitnin
kölluð fýrir í
sprengjumálinu
Búist er við að saksóknarar
kalli í dag fyrir fyrstu vitnin í
málinu gegn Timothy McVeigh
sem er ákærður fyrir að hafa stað-
iö að sprengjutilræðinu í Okla-
homaborg fyrir tveimur árum.
Hátt á annað hundrað manns
týndu lífi í sprengingunni.
Saksóknarar sökuðu McVeigh í
gær um að vera öfgasinnaðan
hægrimann sem hefði haldið aö
sprengjutiiræðið yrði kveikjan að
annarri bandarískri byltingu.
Lögfræðingm- sakbomingsins
sagðist aftur á móti ætla að færa
sönnur á að rangur maður hefði
verið ákærður í málinu.
McVeigh hefur lýst sig saklaus-
an af öllum ákærum. Hann skrif-
aði mikið hjá sér þegar saksókn-
ari og verjandi reifuðu málið við
upphaf réttarhaldanna í gær, á
stundum ákaflega þungur á brún
og taugaspenntur. Reuter
Áhlaupiö á japanska sendiherrabústaöinn í Lima:
Gíslar segja skæruliða
hafa verið tekna af lífi
Perúskir sérsveitarmenn tóku
einn skæruliða af lífi og drápu aðra
sem gefist höfðu upp í áhlaupinu á
bústað japanska sendiherrans í
Lima á þriðjudaginn, að því er fyrr-
um gíslar greindu frá í gær.
Haft er eftir ónafhgreindum gísl
að einn skæruliðanna hafi verið
gripinn, fluttur á brott og síðan
skotinn. „Ég gerði mér grein fyrir
að skæruliðinn hafði verið skotinn
þegar ég heyrði fféttina um að allir
skæruliðamir fjórtán hefðu látið líf-
ið í áhlaupinu," sagði einn gíslanna
í viðtali við japanska fréttastofu.
Dagblaðið La Republica hafði það
eftir starfsmanni perúsku leyni-
þjónustunnar að greinilega hefði
heyrst að tvær táningsstúlkur með-
al skæruliðanna hefðu gefist upp
þegar hermenn gerðu árás á sendi-
Perúskir hermenn við Ifk eins
skæruliöanna. Simamynd Reuter
herrabústaðinn gegnum göng og
sprengdu göt á gólf og veggi. „Við
gefumst upp. Við gefumst upp,“
hrópuðu stúlkumar samkvæmt frá-
sögn leyniþjónustumanns sem
hlustaði á atburðarásina með hler-
unarbúnaði.
Rodolfo Munante, landbúnaðar-
ráðherra Perú, sagði að einn skæm-
liðanna, sem reynt hefði að gefast
upp, hefði verið skotinn með vél-
byssum.
Heimildarmenn innan hersins
segja að sérsveitarmennimir hafi
fengið skipanir um að taka enga til
fanga.
Þeir fáu gíslar, sem hafa verið
fúsir að tjá sig um vistina í sendi-
herrabústaðnum, segja hana hafa
verið skelfilega. Þeir hafi átt erfitt
með svefri þar sem mýs hafi verið
úti um allt. Skæruliðamir hafi
reglulega haldið æfingar vegna
mögulegrar árásar. Æfmgunum
hafi lokið með því að skæruliðamir
miðuðu vopnum sínum á gíslana
samtímis því sem þeir hótuðu að
sprengja þá í loft upp.
Gíslarnir fengu viðvörun um
væntanlegt áhlaup tíu mínútum
áður en það hófst. Að sögn heimild-
armanna innan hersins fékk einn
gíslanna, sem er sjóliðsforingi, boð í
gegnum boðtæki sem skæruliðum
hafði yfirsést.
Einn leiðtoga Tupac Amaru
skæruliðanna, sem var meðal
þeirra sem hertóku sendiherrabú-
staðinn í Lima, var jarðsettur í gær.
Stuðningsmenn skæruliðahreyfing-
arinnar hrópuðu við útfórina að
skæruliðanna yrði hefiit. Reuter
Eignaðist
barn tæplega
64 ára
Læknar í Kalifomíu, sem önn-
uðust konu er var tæplega 64 ára
er hún eignaðist stúlkubam i nóv-
ember síðastliðnum, láta sér fátt
um finnast þótt hún hafi logið til
um aldur er hún gekkst undir
gervifrjóvgun. Segja þeir afrek
konunnar áfangasigur í jafnréttis-
baráttu kynjanna.
Aldurstakmarkið fyrir gervi-
frjóvgun í Kaliforníu er 55 ár.
Konan kvaðst vera 50 ára er hún
hóf meðferðina en var í raun 60.
Reuter
Alistair Darling, aðalaritari Verkamannaflokksins, og frambjóöandinn Gisela Stuart í góðum hópi eftirlíkinga af John
Major forsætisráöherra. Slmamynd Reuter
Major öskuillur út í Tony
Blair og kallar hann lygara
Baráttan milli Verkamanna-
flokksins og íhaldsflokksins fyrir
kosningamar i Bretlandi 1. maí
verður óvægnari með hverjum deg-
inum sem líður. John Major forsæt-
isráðharra, sem nýtur mun minna
fylgis í skoðanakönnunum, réðst af
mikilli heift að Tony Blair, leiðtoga
Verkamannaflokksins, í gær og sak-
aði hann um lygar og grófyrtar
ásakanir.
Blair reitti Major svona til reiði
með fullyrðingum sínum um að
íhaldsmenn ætluðu að skattleggja
matvæli og leggja niður eftirlauna-
kerfi ríkisins ef þeir kæmust aftur
til valda.
„Á mannamáli era þetta bara lyg-
ar og ég vona að Verkamannaflokk-
urinn sjái sóma sinn í að draga þær
til baka,“ sagði Major þegar hann
var á leið á kosningafund í rafeinda-
tækjaverksmiðju í norðurhluta Eng-
lands.
Blair þvertók hins vegar fyrir að
gefa nokkuð eftir. „Ég dreg ekkert af
þessu til baka,“ sagði hann í viðtali
við BBC-sjónvarpið seint í gær-
kvöldi.
Fjölmiðlar sögðu að Verkamanna-
flokkurinn ætlaði að taka aftur upp
árásir á áform stjómvalda um
breytingar á skipan lífeyrismála.
íhaldsmenn lögðu nýlega fram
áætlanir sem gera ráð fyrir því að
ungir Bretar geti tryggt framfæri
sitt í ellinni betur með því að fjár-
festa í einkareknum lífeyrissjóðum í
stað þess að leggja í núverandi lif-
eyrissjóði hins opinbera.
PIONEER
The Art of Entertainment
GEISLASPILARI j
w aii? 19.900,-1
SJONVÖRP OG MYNDBANDSTÆKI
LOEWE. wm
Samkvæmt nýjustu skoðanakönn-
unum hefur Verkamannaflokkurinn
nú 16 til 18 prósentustiga forskot á
íhaldsflokkinn. Reuter
Hljómtækja-
versíun Akureyri BT462 3626
Norðurlands örugg þjótiusta ífjörtíu ár
Þarftu ad yngja upp...
Sannkölluð
Franska kosningabaráttan:
Skipst á föstum skotum
Frönsku þingkosningamar í lok
næsta mánaðar eru farnar að snúast
upp í slag milli þeirra Alains Juppés
forsætisráðherra og Lionels Jospins,
leiðtoga sósíalista. Þeir skiptust á
föstum skotum í gær þegar Juppé
sakaði Jospin um að svíkja hugsjón-
ir sínar með því að makka viö
kommúnista. Sósíalistaleiðtoginn
svaraði þá að bragði og kallaði for-
sætisráðherra einræðishneigðan
hrokagikk.
Ný skoðanakönnun tímaritsins Le
Point bendir til að stjórnarflokkarn-
ir muni vinna mjög naumlega. Þeim
er spáð 292 þingsætum af 577. Sósí-
alistar fengju 256 þingmenn sam-
kvæmt könnuninni, kommúnistar 28
og Þjóðfylkingin, flokkur hægröfga-
manna, einn þingmann. Reuter
Wíenml'1*!'ahUS' '"6
heimilistækin?
Við eigum þau flest!
Creda 1000 sn.þvottavél
Notar allt að 34% minna
vatn og 36% minna
rafmagn en eldri genðir.
Skynjarmagn.
Fínskolun (ofnaémisvöm)
Úðar þvottinn stöðugt
Stiglaus hitastillir
Hraðþvottakerfi (30 mín.)
15 mismunandi kerfi. Ullarkerfi.
Krumpuvöm. TekurSkg.
VERIÐ VELKOMIN í VERSLUN OKKAR
RílFMKJOUERZLIJN ÍSLflNDSIÍ
-ANNO 1929-
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776