Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1997, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1997, Side 20
40 FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 1997 Iþróttir unglinga Sveitaglíma Islands, yngri flokkar, 1997 í Hagaskóla: Þingeyingar sterkir - sigruðu í tveimur aldursflokkum af fimm mögulegum Sveitaglíma íslands í yngri ald- ursflokkum stráka og stelpna fór fram í Hagaskóla 6. apríl. Það voru mörg vösk og baráttuglöð lið mætt til leiks og var mikil skemmtim að fylgjast með hæfni krakkanna. HSÞ sigraði í tveimur sveitum og KR, UÍA, og HSK í einni hver. Úrslit og stigaskor urðu sem hér segir. Unglingar -16-19 ára: 1. A-sveit HSÞ 2. B-sveit HSÞ . 19,5 . . 5,5 Sveinar- 13-15 ára: 1. UÍA . . 39 2. KR . 15,5 3. HSK . .33 4. Ejölnir . 12,5 Piltar —10—12 ára: 1. A-sveit KR . 38,5 2. HSK 3. Fjölnir . . 16 4. B-sveit KR .. 15 Umsjón Halldór Halldórsson Meyjar -13-15 ára: 1. A-sveit HSÞ.....................11,5 2. B-sveit HSÞ......................4,5 Telpur -10-12 ára: 1. HSK.............................28,5 2. Fjölnir...........................17 3. KR...............................2,5 Höfum góöan þjálfara Þórólfur, Guðmundur, Sigurður, Snær og Jóhann, UÍA (sjá mynd), eru i Val frá Reyðarfírði og sigruðu með yflrburðum i flokki 13-15 ára: „Við höldum stundum að við séum þeir einu sem geta eitthvað í glímu í þessum aldursflokki á Austurlandi. En auðvitað er það ekki rétt, það er bara svolítið langt á miili staða. HSK-liöið er sterkt en við unnum þá samt 14,5 gegn 10,5. Jú, við erum með mjög góðan þjálfara, Þórodd Helgason, - hann er frábær," sögðu Valsaramir frá Reyðaifirði. Handbolti,j5. fl. stelpna: Fram íslands- meistari Framstelpumar stóðu sig vel í úrslitakeppni íslandsmótsins í 5. flokki, sem fór fram í Kaplakrika fyrir stuttu síðan. Fram sigraði í A- og C-liði, en Stjaman í keppni B-liða .- Nánar verður sagt frá úrslitunum síöar í DV. Grótta mætti ekki til leiks Grótta átti að mæta með B- og C-lið í úrslitakeppnina en létu ekki sjá sig. Þetta er að verða meiri háttar vandamál í hand- boltanum, því þetta er ekki í fyrsta sinn sem slíkt virðingar- leysi er sýnt í úrslitakeppninni. Sigurlið UÍA, í flokki 13-15 ára, var skipað sterkum strákum úr Val frá Reyðarfirði. Frá vinstri: Þórólfur Valberg Valsson, 15 ára, Guömundur Þór Vaisson, 14 ára, Sigurður Örn Sigurðsson, 15 ára, Snær Seljan Þóroddsson, 14 ára og Jóhann Ingi Jóhannsson, 14 ára. DV-myndir Hson i ’ >» 4- t’ ' ^4 r ■fj Fjölnisstelpurnar stóöu sig vel og uröu f 2. sæti í flokki 10-12 ára. Frá vinstri: Brynja Björk Harðardóttir, 12 ára, Anna Rós Harðardóttir, 11 ára, fyrirliöi, Giovanna Soffía Gabriella Spanó, 9 ára og Ólöf Mjöll Guöjónsdóttir, 11 ára. KR-liðiö, 13-15 ára. Frá vinstri: Einar Árnason, 12 ára, Jókum Ingason, 12 ára, Garpur Ingason, 12 ára tvfburar, Niels Magnússon, 13 ára, Ágúst Snorrason, 13 ára og hinn frábæri þjálfari strákanna, að sögn þeirra, Jón Birgir Valsson. Úrslitakeppni íslandsmótsins í handbolta yngri flokka: Fyrstu meistarar Fylkis - sigruöu FH í úrslitaleik í 4. flokki kvenna, 18-14 Fylkir eignaðist sinn fyrsta íslandsmeistara í handbolta síð- astliðinn laugardag þegar stelp- umar í A-liði 4. flokks unnu FH í úrslitaleik, 18-14, í skemmtilegum og spennandi leik, sem fór fram í Strandgötu. Öðmm úrslitaleikjum lauk sem hér segir. 4. flokkur karla, A-lið: Vík- ingur sigraði Stjörnuna, 20-17, í bráðflömgum úrslitaleik. 4. flokkur karla, B-lið: Valur sigraði Víking, 16-14. 3. flokkur karla, A-lið: KA sigraði Fram í úrslitaleik, 21-13. Léttur sigur hjá KA og réttlátur, því Framarar komust aldrei al- mennilega inn í leikinn. 3. flokkur kvenna: KR varð meistari, sigraði Víking, mjög ör- ugglega, í úrslitaleik, 16-8. 4. flokkur kvenna: Fylkir varð íslandsmeistari, sigraði FH, 14-8. 4. flokkur kvenna B-lið: Valrn- vann Viking, 16-10, í úrslitaleik. 2. flokkur kvenna: Valsstúlk- umar sigmðu Stjömuna, nokkuð örugglega, 26-21. íslandsmótiö lítilsvirt í undankepppninni á föstudag, í leik B-liða stráka í 4. flokki, miili Víkings og ÍR, varð að framlengja í tvígang. Bæði lið gengu af vefli í hálfleik seinni framlengingar og mótmæltu dómgæslu. Auövitað átti að vísa báðum liðum úr keppninni, en annað kom upp, því HSÍ ákvað að liðin skyldu spfla síðustu 5 mín. leiksins á sunnu- deginum og vann Víkingur, 28-27. Þvílíkt og annað eins! Til þess að bæta gráu ofan á svart, neituðu ÍR-ingar að borga þátttökugjald fyrir liðið, sem var 4 þús. kr., og komust upp með það. Þáttur fuflorðinna var stór í þessu máli og er napurt til þess að vita að HSÍ skuli beygja sig í duft- ið fyrir ólátum áhangenda liða, sem í þessu tilfefli vom jafnvel foreldrar hinna ungu leikmanna! Nánar um úrslitakeppnina á unglingasíðu i DV síðar. Sveit HSK fór ekki erindisleysu í Hagaskóla. Stelpurnar eru þrælgóðar enda sigruöu þær i flokki 10-12 ára í sveitaglímunni og voru einu sigurvegarar HSK í íslandsmótinu 1997 og geta þær svo sannarlega veriö hreyknar yfir frammistöðunni. - Frá vinstri: Harpa Særós Magnúsdóttir, Hugrún Geir- dóttir, Berglind Kristinsdóttir, Hildur Ösp Garðarsdóttir og Ingibjörg Mark- úsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.