Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1997, Síða 22
42
FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 1997
Afmæli
Björgvin Sighvatsson
Björgvin Sighvatsson, fyrrv.
skólastjóri, Engjaseli 65, Reykjavík,
er áttræður í dag.
Starfsferill
Björgvin fæddist á Patreksfirði og
ólst þar upp. Hann stundaði nám við
Héraðsskólann að Núpi i Dýrafirði,
lauk kennaraprófi frá KÍ 1940 og hef-
ur sótt ýmis námskeið er lúta að
kennslu.
Björgvin var kennari i Reykjavík
1942- 43, við Bamaskólann á Ísafírði
1943- 63 og skólastjóri þess skóla
1963-82. Hann var jafnframt í nokk-
ur ár stundakennari við Gagnfræða-
skóla ísafjarðar og Iðnskólann á ísa-
firði og skólastjóri Iðnskólans þar
1959-64.
Björgvin tók virkan þátt í félags-
málum verkalýðshreyfingarinnar og
Alþýðuflokksins, var um skeið í
stjórn Verkalýðsfélags Patreksfjarð-
ar, var erindreki ASÍ 1940-42, í
stjórn verkalýðsfélagsins Baldurs á
ísafirði 1949-57, formaður þess
1954-57, var starfsmaður Alþýðu-
sambands Vestfjarða 1949-70, ritari
þess 1952-54 og forseti þess 1954-70,
var fulltrúi Vestfirðinga i stjórn ASÍ
í nokkur kjörtímabil, átti
sæti í stjórn Verka-
mannasambandsins og
sat i flokkstjórn Alþýðu-
flokksins.
Björgvin sat í stjórn
Lífeyrissjóðs Vestfjarða
1970-81, i stjórn Kaupfé-
lags ísfirðinga 1951-68, í
stjórn Fjórðungssam-
bands Vestfjarða, var
formaður Kennarafélags
Vestfjarða í nokkur ár,
formaður í Alþýðuflokks-
félagi ísafjarðar, varafúll-
trúi í bæjarstjóm ísafjarðar 1950-54,
bæjarfulltrúi þar 1954-72, forseti
bæjarstjórnar 1966-71, gegndi ýms-
um nefndarstörfum fyrir bæjarfélag-
ið, s.s. í Fræðsluráði í þrettán ár og
þá lengst af formaður þess. Hann sat
í blaðstjórn Skutuls, blaðs Alþýðu-
flokksins á Vestfjörðum 1948-82 og
var ritstjóri þess í mörg ár. Þá var
hann einn af stofnendum Lions-
klúbbs ísafjarðar og sat í stjórn
hans.
Fjölskylda
Eiginkona Björgvins er Jóhanna
O.M. Sæmundsdóttir, f. í
Viðvík í Skeggjastaða-
hreppi 28.8. 1919, húsmóð-
ir. Foreldrar hennar voru
Sæmundur Grímsson, b. á
Egilsstöðum í Vopnafirði,
og Jóhanna Þorsteinsdótt-
ir frá Hesteyri.
Sonur Björgvins og Jó-
hönnu er Sighvatur K.
Björgvinsson, f. 23.1. 1942,
alþm., fyrrv. ráðherra og
formaður Alþýðuflokks-
ins, kvæntur Björk Melax
húsmóður og eiga þau
Qögur börn.
Hálfbróðir Björgvins, sammæðra,
var Eymundur Austmann Friðlaugs-
son, f. 20.7. 1907, d. 2.6. 1988.
Foreldrar Björgvins voru Sighvat-
ur Árnason, f. í Reykjavík 22.8.1882,
d. 26.8. 1968, múrari á Patreksfirði,
og k.h., Kristjana Einarsdóttir, f. á
Smyrlabjörgum 31.5. 1889, d. 4.7.
1972, húsmóðir.
Ætt
Sighvatur var sonur Árna, tré-
smiðs I Reykjavík Magnússonar.
Móðir Sighvats var Elín Sighvats-
dóttir, frá Nýjahæ undir Eyjafjöllum
Einarssonar, bróður Sveins, fóður
Arnlaugar, móður Sighvats Bjarna-
sonar, skipstjóra, bæjarfulltrúa og
forstjóra Vinnslustöðvarinnar í
Vestmannaeyjum. Sveinn var einnig
langafi Bjarnhéðins Elíassonar,
skipstjóra í Eyjum, og langafi Sjafn-
ar, móður Magnúsar Jóhannessonar
ráðuneytisstjóra.
Kristjana var dóttir Einars, b. á
Smyrlabjörgum í Suðursveit, bróður
Alfheiðar, móður Gunnars Bene-
diktssonar rithöfundar. Bróðir Ein-
ars var Stefán, afi Stefáns Benedikts-
sonar, þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli.
Systir Einars var Guðný, amma Ein-
ars Braga rithöfundar. Einar var
sonur Sigurðar, b. á Lambleiksstöð-
um, bróður Guðnýjar, ömmu Þór-
bergs Þórðarsonar rithöfundar. Sig-
urður var sonur Einars, b. á Brunn-
um Eiríkssonar, b. á Brunnum Ein-
arssonar. Móðir Eiríks var Þórdís,
systir Jóns Eiríkssonar konferens-
ráðs. Móðir Kristjönu var Hólmfríð-
ur Bjarnadóttir, b. á Hæðargarði í
Landbroti Gislasonar, á Maríu-
bakka.
Björgvin verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Björgvin Sighvats-
son.
Konráð Jakob Stefánsson
Konráð Jakob Stef-
ánsson, matreiðslu- og
kjötiðnaðarmeistari,
Haandværkergade 10B
9600 Aars, Danmörku,
varð fertugur í gær.
Starfsferill
Konráð fæddist í
Reykjavík en ólst upp á
Vopnafirði. Hann lauk
gagnfræðaprófi frá Hér-
aðsskólanum á Laugar-
vatni 1975, stundaði
nám við Vélskóla íslands 1975-76,
lærði kjötiðn við Iðnskólanum í
Reykjavík 1977-81 og stundaði sið-
an matreiðslunám við Hótel- og
veitingaskóla íslands 1987-90.
Konráð fór ungur tO sjós, fyrst
frá Vopnafirði og var síðan á vertíð
á Homafírði. Hann var rekstrar-
stjóri hjá Kjötvinnslu Veitinga-
mannsins 1981-85, verkstjóri hjá
Dreifingu 1985-86, starf-
rækti matstofuna Gæða-
mat í Hafnarfirði 1990-91
og kaffistofuna Ingólfs-
brunn í Reykjavík
1991-92.
Konráð stofnaði fyrirtæk-
ið Kátir kokkar - veislu-
þjónustu, ásamt Guðna B.
Einarssyni, 1991 og starf-
rækti það til 1995, starfaði
á Scandic hóteli á Reykja-
víkurflugvelli 1995-96 er
hann flutti til Danmerkur
ásamt fjölskyldu sinni.
Þar starfaði hann í átta mánuði hjá
stórfyrirtækinu Danish Crown á
Jótlandi en er nú matreiðslumaður
á Dalgas-hóteli í Brande á Mið-Jót-
landi.
Konráð hefur stundað karate í
fjórtán ár og verið í íslenska kara-
telandsliðinu um árabO. Hann á ís-
landsmet bæði sem einstaklingur
og með liði Karatefélags Reykjavík-
ur. Hann stundar nú æfingar í Aal-
borg Karateskole og hefur tekið
þátt í nokkrum mótum með liðinu
þaðan. Hann hefur einnig gegnt
stjómunarstörfúm innan Karatefé-
lags Reykjavíkur og kennt þar
karate.
Fjölskylda
Eiginkona Konráðs er Jónína 01-
sen, f. í Reykjavík 30.10. 1963,
tækniteiknari. Foreldrar hennar
eru Sigríður Bryndís Guðmunds-
dóttir kennari og Sven Erik Olesen
keramikker, búsettur í Danmörku.
Synir Konráðs og Jónínu era
Brynjar f. 14.12 1988; Stefán f. 29.5
1990; Konráð Snær f. 21.6 1994.
Fyrri kona Konráðs var Amheið-
ur Bjömsdóttir nuddari.
Böm Konráðs og Amheiðar eru
Bríet f. 1.8 1978, unnusti hennar er
Birgir og er dóttir þeirra Birta, f.
14.4 1997; Breka f. 1.4 1985.
Bróðir Konráðs, sammæðra, er
Bent Joenssen f. 15.4. 1946, rafvirki
á Vopnafirði en kona hans er Ásta
Björnsdóttir fiskverkakona og eiga
þau fimm börn.
Alsystkini Konráðs eru Alí Ped-
erssen, f. 16.4.1952, stundar heima-
hjálp, búsett í Færeyjum, gift Mart-
in Pederssen trésmið og eiga þau
fiögur böm; Hildur f. 29.2. 1956,
hársnyrtir á Akureyri, gift Vigni
Víkingssysni málarameistara og
eiga þau þrjú börn; Sólrún f. 28.7.
1962, hársnyrtimeistari á Akureyri,
gift Agli Áskelssyni bankastarfs-
manni og eiga þau þrjár dætur.
Foreldrar Konráðs voru Stefán
Jakobsson, f. 27.10 1916, d. 30.7 1981,
verkamaður, og Jenný Malena Jo-
enssen f. í Færeyjum 27.12 1918, d.
5.5 1974, húsmóðir.
Konráð langar að vera á
Honolulu á afmælisdaginn, en
verður sennilega að vinna svo sú
ferð bíður betri tíma.
Konráö Jakob Stef-
ánsson.
Ólafur Þorbjörn Guðmundsson
Ólafur Þorbjörn Guðmundsson
rafvélavirki, Eyjahrauni 1, Þorláks-
höfn, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Ólafur fæddist á Selfossi og ólst
þar upp. Hann gekk í Barna- og ung-
lingaskólann á Selfossi, stundaði
nám við Iðnskólann þar, lærði raf-
vélavirkjun á verkstæði Kaupfélags
Ámesinga frá 1966, lauk sveinsprófi
1970, stundaði nám við Tækniskóla
íslands 1974 og lauk þar B-löggild-
ingu í raf- og rafvéla-
virkjun.
Að námi loknu réði
Ólafur sig á rafmagns-
verkstæði Neista í Vest-
mannaeyjum. Hann flutti
til Þorlákshafnar í gos-
inu en starfaði áfram hjá
Neista sem flutti þá þjón-
ustu sína upp í sjávar-
þorpin á Suðurlandi.
Eftir að Neisti flutti
starfsemi sína aftur til
Vestmannaeyja keypti
Ólafur vöruflutningafyr-
irtæki sem þjónaði Þor-
lákshöfn og Hveragerði frá Vöru-
flutningamiðstöðinni. Hann starf-
rækti fyrirtækið 1980-94, seldi þá
reksturinn en tók aftur til við raf-
vélavirkjun. Hann starfar nú hjá
rafverktakafyrirtækinu Rafvör í
Þorlákshöfn.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 26.4. 1969 Hrafn-
hildi Guðmundsdóttur, f. 9.7. 1943,
sundþjálfara. Hún er dóttir Guð-
mundar Ólafssonar sem lést 1989 og
Sesselju Einarsdóttur, húsmóður í
Reykjavík.
Börn Ólafs og Hrafnhildar eru
Magnús Már Ólafsson, f. 16.9. 1967,
trésmiður í Reykjavík en sambýlis-
kona hans er Bylgja Matthíasdóttir
og eiga þau eitt barn; Bryndís Ólafs-
dóttir, f. 17.8. 1969, íþróttakennari í
Þýskalandi en sambýlis-
maður hennar er Heinz
Ollesch; Hugrún Ólafs-
dóttir, f. 16.7. 1971, hús-
móðir í Hveragerði, gift
Jónasi Páli Birgissyni og
eiga þau þrjú böm; Amar
Freyr Ólafsson, f. 24.12.
1973, nemi í viðskipta-
fræði í Bandaríkjunum.
Systkini Ólafs eru Erla
Guðmundsdóttir, f. 9.12.
1938, móttökuritari við
Sjúkrahús Suðurlands á
Selfossi; Ingunn Guð-
mundsdóttir, f. 12.10. 1951,
bankaritari Landsbanka íslands á
Selfossi.
Foreldrar Ólafs: Guðmundur Geir
Ólafsson, f. 22.8.1911, fyrrv. verslun-
armaður á Selfossi, og Elínborg Sig-
urðardóttir, f. 25.8.1913, d. 5.11.1993,
húsmóðir.
Ólafur og HrafnhUdur taka á móti
gestum í Kiwanishúsinu í Þorláks-
höfn, föstudaginn 25.4. frá kl. 18.00.
Carrier bílkæli- og frystibúnaður
Opið hús hjá Aflrás ehf., að Eirhöfða 14, dagana 25 og 26 apríl
Komið og fáið tæknilegar upplýsingar og ráðgjöf hjá bæði
innlendum og erlendum sérfræðingum okkar. Sölustjóri Carrier
í Danmörku verður á staðnum. Allt sem þig vantar að vita um
bílkæli- og frystibúnað á einum stað.
Verið velkomin að Eirhöfða 14.
A
/AFU
TÆKI TIL LANDFLUTNINGA
. Eirhöfða 14-112Reykjavík
/AFLRAS Sími 587 8088 - Fax 587 8087 - GSM 898 5144
Ólafur Þorbjörn
Guðmundsson.
Til hamingju
með afmælið
25. apríl
95 ára
ÞorkeU Ásmundsson,
HjaUaseli 55, Reykjavík.__________
85 ára
Guöbjörg Einarsdóttir,
Skúlaskeiði 30, Hafnarfirði.______
75 ára
Olafur'W.R'.'Kratsch,-------------
Skeiðarvogi 115, Reykjavík.
Gunnar S. Guðmundsson,
HjaUabraut 33, Hafnarfirði._______
70 ára _______________________
Ásdís Þórðardóttir,
Brúarlandi, Fellahreppi.
Þórdís Pálsdóttir,
Mávahlið 34, Reykjavík.
Þórarinn Guðmundsson,
Skagabraut 50, Akranesi.
Sigurjón Sigurðsson,
Hlíðargarði, Hlíöarhreppi.
Hann er að heiman.________________
60 ára
Lucinda Gígja MöUer,
Ásvegi 16, Akureyri.
Eiginmaður hennar er HaUdór
Hallgrimsson skipstjóri.
Þau taka á móti gestum í húsi
Hjálparsveitar skáta, Viðjulundi 1,
í dag, fóstudaginn 25.4., frá kl.
17.30- 20.00.
Kristín Jónsdóttir,
Sefgörðum 16, Seltjarnarnesi.
Ragnheiður Haraldsdóttir,
Drápuhlíð 20, Reykjavík.
Birgir Bragason,
Laugavegi 81, Reykjavík.
Ásdis Gunnarsdóttir,
Flókagötu 41, Reykjavík.__________
50 ára
Sigriður Sigurjónsdóttir,
Austurströnd 6, Seltjamamesi.
Sjöfn Ragnarsdóttir,
TorfufeUi 25, Reykjavik.
ÞórhaUur Arason,
Brekkubyggö 26, Garöabæ.
Ragnheiöur Valdimarsdóttir,
Heiðargeröi 24, Reykjavík.
Birgir Úlfsson,
Bjarnhólastíg 4, Kópavogi.
Katrín Eiríksdóttir,
FeUsmúla 5, Reykjavík.
Svavar Bjömsson,
Strandgötu 4, Neskaupstaö.
Pétur Rúnar Sturluson,
Grettisgötu 53B, Reykjavík.
Hann tekur á móti gestum á Píanó-
bamum, Hafnarstræti, i kvöld frá kl.
20.00.____________
40 ára
Ásborg Ósk Arn-
þórsdóttir
ferðamálafuUtrúi í
uppsveitum Ámes-
sýslu,
Kistufelli 17, Sel-
fossi,
varð fertug í gær.
Eiginmaður hennar
er Jón K.B. Sigfús-
son, rekstrarstjóri í
Aratungu, sem varð
fertugur þann 9.2. sl.
í tUefni afmælanna
taka þau hjónin á
móti gestum i Ara-
tungu laugardag-
inn 26.4. kl. 21.00.
Siguröur Jóhann Hauksson,
Stekkjarholti 4, Akranesi.
Guðrún Sigurjónsdóttir,
Fomhaga 21, Reykjavík.
Magnús Sigurðsson,
Holtsgötu 12, Hafnarfirði.
ívar Snorri Halldórsson,
Blöndubyggð 8, Blönduósi.
HrafnkeU Stefánsson,
Kúfhóli, Áustur-Landeyjahreppi.
Guðmundur Brynjar HaUgrímsson,
Bugðutanga 2, MosfeUsbæ.
Kolbrún Friðgeirsdóttir,
Heiðarlundi 4F, Akureyri.
Ásgerður Ingibjörg Magnúsdóttir,
Tjamarmýri 18, Seltjamarnesi.
Gíslína Vilhjálmsdóttir,
Gesthúsavör 6, Bessastaðahreppi.
Sigurjón Georgsson,
Vesturbergi 77, Reykjavík.
Hannes Einarsson,
Drápuhhð 17, Reykjavík.
HaUdór Tryggvi Gunnlaugsson,
Þorsteinsstööum, Svarfaðardals-
hreppi.