Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1997, Blaðsíða 16
LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997 DV
16
Handboltinn heltók hann 56 ára gamlan:
DV, Akureyri:____________________________
Það er óhætt að segja að hand-
boltaíþróttin hafi gjörbreytt lífi
Sverris Leóssonar, útgerðarmanns
á Akureyri, þegar hann var 56 ára
að aldri. Sverrir segir sjálfur að það
sem gerðist hafi verið algjör tilvilj-
un, en lífið sé jú reyndar uppfullt af
slíkum tilviljunum. Hvað sem því
líður, þá er Sverrir Leósson orðinn
„forfallinn" handknattleiksáhuga-
Sverrir Leósson fyrir utan höfuöstöðvar KA á Akureyri: „Ég skil þetta eigin-
lega ekki sjálfur." DV-mynd gk
Menningarmálanefnd
Reykjavíkurborgar
auglýsir eftir umsókn-
um vegna starfrækslu
strengjakvartetts á
vegum borgarinnar frá
1. september nk.
■ Einungis hópar geta sótt um, ekki einstakling-
ar.
■ Laun meðlima svari hálfum starfslaunum lista-
manna hjá Reykjavíkurborg og hlíti sömu regl-
um.
■ Kvartettinn starfi sjálfstætt og geri í umsókn
nákvæma grein fyrir starfsáætlun: fyrirhuguðu
tónleikahaldi og öðrum vekefnum; áherslu í vali
tónlistar, hugsanlegum áformum um upptökur
o. s. frv. Kvartettinn komi auk þess fram nok-
krum sinnum á ári á vegum borgarinnar án auka-
greiðslna samkvæmt nánara samkomulagi.
* Starfslaun til kvartettsins eru veitt til eins árs
með möguleikum á framlengingu.
■ Upplýsingar um önnur störf meðlima kvartetts-
ins á starfstímabilinu fylgi umsókn.
Umsóknir skulu sendar: Menningarmálanefnd
Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum v/Flókagötu, 105
Reykjavík, fyrir mánudaginn 12. maí nk. Sérstök
dómnefnd velur úr umsóknum.
maður og svo mikill KA-maður að
leitun er að öðru eins. íþróttin og
KA heltóku hann.
„Þetta byijaði í júní árið 1995. Ég
var þá formaður Útvegsmannafélags
Norðurlands og þaö stóð yfir sjó-
mannaverkfall með tilheyrandi leið-
indum. Ég var að koma af fundi á
Hótel KEA, var þreyttur og leiður
og ákvað að keyra yfir í Vaðlaheiði
og fá mér þar góðan göngutúr. Þeg-
ar ég kom í bílinn hringdi síminn
og í símanum var Sigurður Sigurðs-
son, byggingameistari hjá SS-Bygg-
ir, eða SS-foringinn eins og ég kalla
hann í dag. Ég þekkti hann ekkert
nema af afspum og við höfðum
aidrei talað saman. Sigurður spurði
mig hins vegar hvort ég hefði tíma
til að hitta sig og Pétur Bjamason,
sem er þekktur KA-maður úr hand-
boltanum og pylsusali, einhvem
tíma fljótlega. Ég sagði Sigurði að
við skyldum bara drifa í því ekki
seinna en strax og það varð úr. Þeg-
ar við hittumst kom í ljós að erind-
ið var að falast eftir stuðningi min-
um og fá mig til að starfa fyrir
handknattleiksdeild KA.“
Hreifst af þessu öllu
Það er óhætt að segja að þennan
júnídag fyrir tæpum tveimur ámm
hafi orðið straumhvörf í lífi Sverris
Leóssonar. Sverrir, sem er þekktur
maður í bæjarlífinu á Akureyri og
var m.a. um tima formaður stjómar
Útgerðarfélags Akureyringa og í 10
ár formaður útvegsmanna á
Norðurlandi, hafði nefnilega
aldrei haft nokkurn áhuga á
íþróttum. Hann hafði aldrei
farið á íþróttakappleik og
horfði aldrei á íþróttir í
sjónvarpi. En þegar
þarna var komið sögu
fór Sverrir að sækja
leiki KA í hand-
bolta, sjónvarps-
tækið á heimili
hans er nú
opið þegar
íþróttavið-
burðir eru
á dag-
skránni
og ef hægt
er að tala
um hand-
boltadellu þá
er Sverrir með
hana.
„Ég hreifst algjör-
lega af þessu öllu sam-
an, fyrst af SS- foringjan-
um sem er ótrúlegur
þjarkur og fullur eld-
móði fyrir hönd KA, og
svo kom þetta hvað af öðm.
Fyrir mig þýddi þetta að ég fékk
mikla tilbreytingu. Ég hafði að vísu
alltaf verið félagslega sinnaður en í
KA kynntist ég strax mjög mörgum
mönnum sem áttu sameiginlegt
áhugamál og ég var fljótur að hríf-
ast með. Ég hef líka tiikynnt SS-for-
ingjanum að hann megi leita til mín
hvenær sem er.“
Gleymi stund og stað
Manst þú eftir fyrsta leiknum
„þínum“?
„Já að einhverju leyti. Annars
gleymdi ég hreinlega stund og stað
og áttaði mig ekki á því fyrr en eft-
ir leikinn hvað ég hafði látið illa.
Síðan hefur þetta verið þannig. Ég
fæ rosalega mikið út úr því að horfa
á leikina, ég er reyndar oft alveg ör-
Sverrir Leósson „í aksjón“: „Ég fæ rosalega
mikið út úr því aö horfa á leikina."
DV-mynd gk
magna af þreytu eftir leiki, senni-
lega jafn þreyttur og leikmennimir
sjálfir, en svo líður mér mjög vel
morguninn eftir“.
Og varstu ekki fljótur að gerast
„bekkjardómari" og taka til við að
segja dómurunum til frá áhorfenda-
bekkjunum?
„Auðvitað hef ég skoðun á þessu
öllu saman þótt ég hafi í sjálfu sér
ekkert vit á þessu, maður hrifst
bara með. Það er sennilega eins gott
að dómaramir heyri ekki allt sem
maður lætur út úr sér.
Ég fór oft daginn eftir leiki og
heimsótti Aifreð Gíslason i vinn-
una, og ef mér fannst eitthvað hafa
verið að hjá KA-liðinu sagði ég hon-
um það bara. Ég er eiginlega hissa á
að hann skyldi ekki oft henda mér
út, en hann tók mér alltaf með ljúf-
mennskunni. En þessi handbolta-
áhugi minn er baktería sem mér líð-
ur reyndar mjög vel með. Tilfinn-
ingin þegar KA varð íslandsmeist-
ari er ólýsanleg, og þá runnu tárin
niður vangana."
Ákvað að gera betur
Sverrir hefur verið duglegur að
starfa fyrir handknattleiksdeildina,
hann hefur líka fært deildinni gjaf-
ir. Allir boltar sem deildin á í dag
eru frá Sverri komnir og eru
merktir „Súlan EA“ en það er
nafn skipsins sem Sverrir á
og gerir út ásamt öðrum. Svo
heyðist af því að Sverri
hafi
fundist lítið til koma þegar OLÍS
færði handknattleiksdeild KA 300
þúsund krónur þegar íslandsmeist-
aratitillinn var í höfn á dögunum.
„Ég ætlaði ekki að trúa þvi að
OLÍS léti deildina bara hafa 300 þús-
und og ákvað að gera betur. Við fór-
um af stað nokkrir félagar og á 4
dögum söfnuðum við 800 þúsund
krónum sem voru afhentar liðinu
með því fororði að fyrir peningana
verði farið í æfingaferð til Þýska-
lands í haust.
A völlinn í sumar
Þú ert á bólakafi í þessu, er þetta
ekki furðulegt með mann sem
þekkti handbolta ekki nema af af-
spum fyrir tveimur árum?
„Ég skil þetta eiginlega ekki sjáif-
ur. Nú er þetta orðið þannig að ef ég
er að horfa á handbolta í sjónvarp-
inu, ég tala nú ekki um ef það er
KA-leikur, þá fer konan alltaf út. Ég
lifi mig svoleiðis inn i þetta að ég
æði um alla íbúðina og eftir leikina
þarf ég að fara í vettvangskönnun
til að skoða hvort ég hef skemmt
eitthvað í öllum látunum, en það
hefúr blessunarlega sloppið til
þessa.
Ég neita því ekki að ég er farinn
að horfa á aðrar íþróttir, t.d. knatt-
spymu í sjónvarpinu. Ætli það
endi ekki með þvi að ég mæti
á völlinn þegar KA fer að
spila í sumar.“ -gk