Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1997, Blaðsíða 25
M-Þ~\F LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997
tónlist
25
Borgarverkfræðingurínn
í Reykjavík
Skúlatúni 2 «105 Reykjavík • sími 6832400 • fax 5624339
Lóðaúthlutun í Reykjavík
Til úthlutunar eru nebangreindar lóiir í Stabahverfi:
• Lóbir fyrir einbýlishús: 23 lóóir vió Garósstaói.
26 ló&ir vió Brúnastaói.
* Lóóir fyrir raóhús: 10 lóóir (36 íbúóirj vió Garós
staói.
6 lóóir (20 ibúóir) vió Brúnastaói.
Gert er ráð fyrir að lóðirnar verði byggingarhæfar í september 1997.
Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu borgarverkfræðings, Skúla-
túni 2, 3. hæð, sími 563 2310. Þar fást einnig afhent umsóknareyðublöð,
skipulagsmála og uppdrættir.
Tekið verður við umsóknum um lóðirnar frá og með föstudeginum 2. maí
nk, kl. 8.20, á skrifstofu borgarverkfræðings.
L
Borgarstjórinn í Reykjavík
Léttsveit Kvennakórs Reykjavíkur
ásamt Aöalheiöi Þorsteinsdóttur pí-
anóleikara, Wilmu Young fiðiuleik-
ara og Jóhönnu V. Þórhallsdóttur
kórstjóra.
Kvennakór Reykjavíkur:
Léttsveitin
endurtekur
Græna sveiflu
- í Óperunni annað kvöld
Vegna fjölda áskorana hefur Létt-
sveit Kvennakórs Reykjavíkur
ákveðið að endurtaka tónleika sem
fram fóru i íslensku óperunni síð-
astliðið þriðjudagskvöld. Komust
færri að en vildu það kvöld. Tón-
leikamir, sem verða tvennir, fara
fram á sama stað annað kvöld, þeir
fyrri hefjast klukkan 20 og hinir
seinni klukkan 22.
Til liðs við sig hefur Léttsveitin
fengið hljómsveitina Rússíbana og
Wilmu Young fiðluleikara ásamt
steppdansaranum Ásgeiri Braga-
syni. Munu nokkrar kórkonur
dansa írskan dans í anda River-
dansins fræga undir stjóm Elísabet-
ar Guðmundsdóttur. Yfirskrift tón-
leikanna, Græna sveiflan, er upp-
mnnin frá því þegar kórinn heim-
sótti írland sl. haust og heillaðist af
landi og þjóð.
Léttsveitin, sem skipuð er rif-
lega 100 konum, er yngri systir
Kvennakórs Reykjavíkur. Sveitin
hefur starfað frá hausti 1996 undir
stjórn Jóhönnu V. Þórhallsdóttur
söngkonu. Undirleikari á píanó er
Aðalheiður Þorsteinsdóttir sem
jafnframt útsetur mörg lög kórs-
ins.
Dægurlagakeppni
Kvenféiags Sauðárkróks:
Margir lands-
þekktir flytjendur
Úrslitakvöld í dægurlagakeppni
Kvenfélags Sauðárkróks fer fram
í Sæluviku Skagfírðinga, fostu-
dagskvöldið 2. maí nk. í íþrótta-
húsinu á Sauðárkróki. Alls bárust
94 lög í keppnina að þessu sinni.
Tíu lög voru valin til að keppa í
úrslitum. Upptökum á lögunum
er lokið. Verða þau fáanleg á
geisladiski og snældu að loknu
úrslitakvöldinu.
Nokkrir af þekktustu söngvurum
landsins eru í hópi flytjenda. Þeir
eru, í stafrófsröð: Arnar Freyr
Gunnarsson, Ásdís Guðmundsdótt-
ir, Esther T. Casey, Eyjólfúr Krist-
jánsson, Gísli Magnússon, Guðrún
Gunnarsdóttir, Helga Möller, íris
Guðmundsdóttir, Kristján Gíslason,
Óskar Pétursson og Sverrir Storm-
sker.
Forsala aðgöngumiða hófst í gær
hjá félagsheimilinu Bifröst og held-
ur áfram eftir helgi i sima 453-5216.
dagana
3.-11.
maí.
Nú er vetur úr bæ og ruslið úr görðunum á að fara sömu leið. Tökum
höndum saman með hækkandi sól og fegrum lóðirnar okkar fyrir
sumarið.
Sérstakir hreinsunardagar eru frá 3. til 11. maí. Ruslapokar verða
afhentir í hverfabækistöðvum gatnamálastjóra. Næstu daga eftir
hreinsunardagana fara borgarstarfsmenn um hverfin og hirða fulla
poka. Eftir það er aðeins hægt að losa sig við garðaúrgang og annað
rusl sem ekki kemst í ruslafötuna í endurvinnslustöðvum Sorpu.
Endurvinnslustöðvar Sorpu eru opnar alla daga
frá kl. 12:30 til 19:30.
NEndurvinnslustöðvar eru á fjórum stöðum:
Við Bæjarflöt austan Gufunesvegar.
y '# Við Jafnasel í Breiðholti.
Við Ánanaust gegnt Mýrargötu.
í Við Sævarhöfða gegnt malbikunarstöðinni.
Stöðvarnar við Ánanaust og Bæjarflöt eru opnar
alla virka daga frá kl. 8:00 til 19:30.
Skorað er á forráðamenn fyrirtækja að taka til á lóðum sínum. Fyrir
stóra og fyrirferðarmikla hluti er bent á Geymslusvæðið í Hafnarfirði,
sem hreinsunardeild gatnamálastjóra leigir út.
Við tökum pokann þinn
®Borgarstjórinn í Reykjavík
- hreinsunardeild gatnamálastjóra