Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1997, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997
21
Jféttaljós
Bankastjórar ríkisbanka
á bestu kjörum
„Þetta er dæmi um sjálftöku
manna sem hafa algjört sjálfdæmi
um það hvernig þeir haga sér. Það
virðast engar reglur gilda um þessa
náunga eins og gilda um venjulegt
fólk,“ sagði Halldór Björnsson, for-
maður Verkamannafélagsins Dags-
brúnar, þegar honum voru kynnt
þau launakjör sem bankastjórar rík-
isbankanna njóta samkvæmt svari
viðskiptaráðherra við fyrirspurn Jó-
hönnu Sigurðardóttur á Alþingi í
vikunni.
665 þúsund fyrir ekki neitt
Af svari viðskiptaráðherra við
fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur
má ráða að launakjör bankastjór-
anna eru mjög ríkuleg. Laun þeirra
eru um og yfir sex milljónir króna á
ári, eða í kringum 500 þúsund krón-
ur á mánuði, en þar með er langt í
frá allt upptalið.
Bankastjórar sitja í ýmsum nefnd-
um og stjórnum fjármálastofnana og
fyrirtækja, einkum íjármálafyrir-
tækja, og þiggja ríkuleg laun fyrir
ómak sitt. Nokkuð er misjafnt
hversu vel stjórnarsetur þessara fyr-
irtækja og stofnana gefa af sér fyrir
bankastjórana og aðra sem þar sitja.
Af svari viðskiptaráðherra má ráða
að seta bankastjóra Búnaðarbankans
á stjórnarfundum Stofnlánadeildar
landbúnaðarins gefur best af sér því
að þeir fengu fyrir stjórnarsetur,
eins og það er orðað í svari ráðherra,
664.650 krónur á síðasta ári en þurfa
ekki einu sinni lengur að mæta á
fundi stjórnarinnar, en í svarinu seg-
ir orðrétt: „Aðstoðarbankastjórar
sátu fundi Stofnlánadeildar þessi ár
(1994, 1995 og 1996, innsk. blm.) og
höfðu stjórnarlaun öll árin, en sitja
ekki fundi lengur." Rétt er að geta
þess hér að í raun er Stofnlánadeild
landbúnaðarins deild innan Búnað-
arbanka íslands, en ekki sjálfstæð
stofnun, þótt hún sé það í orði
kveðnu.
Ábatasöm aukastörf Búnað-
arbankastjúranna
Sé litið á ábatasöm aukastörf
bankastjóranna sem felast í stjórnar-
setum þá eiga þrir bankastjórar Bún-
aðarbankans sæti í stjóm Stofnlána-
deildar, en fyrir það eru greiddar
fyrrnefndar krónur. Einn banka-
stjóri situr í stjórn Greiðslumiðlunar
hf. sem gaf á síðasta ári rúmar 566
þúsund krónur, einn situr í stjóm
Kreditkorta hf. sem gaf tæplega 549
þúsund kr., einn í stjórn Reiknistofu
bankanna sem gaf 471 þúsund, einn i
samninganefnd bankanna sem gaf
um 570 þúsund, einn í stjórn trygg-
ingasjóðs viðskiptabanka sem gaf 283
þúsund og einn í stjórn Þróunarfé-
lagsins sem gaf 459 þúsund.
Tveir Búnaðarbankastjórar sátu i
stjórnum Lýsingar hf., Sambands ísl.
viðskiptabanka og Kaupþings hf.
sem gaf þeim hvorum um sig á síð-
asta ári 1.132 þús. kr. Annar þeirra
var auk þess formaður stjórnar Lýs-
ingar og í Sambandi ísl. viðskipta-
banka en fyrir formennskuna var
greidd tvöföld þóknun.
Landsbankastjórar
í stjórn Landsbréfa hf., Hamla hf.,
Regins hf., Kirkjusands hf. og
Rekstrarfélagsins hf. hafa setið þrír
Landsbankastjórar á árunum
1994-1996 og einn gegnt formennsku.
Ekki hefur verið greitt fyrir stjórn-
arsetu í þremur síðastnefndu félög-
unum.
Tveir bankastjórar hafa setið í
stjórn Sambands ísl. viðskiptabanka,
einn í stjórn Lýsingar hf. og gegnt
þar formennsku, einn í stjórn Kredit-
korta hf. og verið formaður, einn í
stjórn Fiskveiðasjóðs íslands og ver-
ið formaður og einn í samninga-
nefnd bankanna og verið formaður.
Fyrir formennskuna er greitt tvöfalt
og á síðasta ári fengu því þessir
bankastjórar ríkulega greitt fyrir
þessi aukastörf. Til að lesendur geti
glöggvað sig á þeim tölum sem um er
að ræða þá var á síðasta ári algeng-
ast að bankastjórarnir fengju greitt
um og yfir 500 þúsund krónur fyrir
stjórnarsetu í hverju félagi eða fyrir-
tæki, en tvöfalt fyrir stjórnarfor-
mennsku.
Bankastjúrar Seðlabankans
Bankastjórar Seðlabankans sitja
yfirleitt í heldur færri stjórnum á
vegum bankans en stjómendur við-
skiptabankanna. Það sem þeir fást
við eru stjórnarsetur í Fiskveiða-
sjóði, stjórn Verðbréfaþings íslands,
Reiknistofu bankanna, samstarfs-
nefnd um bankaeftirlit, samninga-
nefnd bankanna, Tryggingasjóði við-
skiptabanka og Tryggingasjóði inn-
lánsdeilda kaupfélaga. Þessar stjórn-
arsetur gáfu af sér á síðasta ári flest-
ar um og yfir 500 þúsund kr. á ári,
nema Tryggingasjóður viðskipta-
banka gaf af sér 130.578 og kaupfé-
lagasjóðurinn aðeins 75 þúsund á
ári.
Vegleg fríðindi
Bankastjórarnir allir njóta mjög
veglegra friðinda fyrir utan fóst laun
sín og aukastörf við stjórnarsetur.
Ferðafríðindi þeirra eru þannig í
sérflokki: Þegar þeir ferðast til út-
landa og dvelja erlendis er bókstaf-
lega allt greitt fyrir þá; fargjald, gist-
ing, sími, matur og drykkur. Til við-
bótar fá þeir vasapeninga, eða dag-
peninga, en kjör þeirra á ferðalögum
erlendis eru svipuð og ráðherrar
njóta. Þá fá makar þeirra einnig
greiddan allan ferðakostnað á sama
hátt og dagpeninga að auki sem
nema helmingi þeirrar upphæðar
sem bankastjórarnir fá. Smávægileg-
ur munur er á því eftir bönkum
hversu vel er gert við bankastjórana.
Þannig njóta Landsbankastjórarnir
ráðherrakjara meðan Búnaðar-
bankastjórarnir verða að greiða hót-
elkostnað sinn af dagpeningunum og
þeir verða einnig að greiða sjálflr
fargjöld maka sinna. Seðlabankinn
greiðir hins vegar ferðakostnað
sinna stjóra eftir reikningi og skulu
þeir ferðast á fyrsta farrými. Gisting
þeirra er greidd og morgunmatur og
að auki fá þeir dagpeninga sem eru
80% af dagpeningum bankastarfs-
manna. Tvisvar á ári fá seðlabanka-
stjórar að taka maka sína með til út-
landa og er þá ferðakostnaður þeirra
allur greiddur af bankanum og helm-
ingur af dagpeningum bankastjóra.
Auk ferðafriðindanna njóta
bankastjórar sérstakra bílafríðinda á
þann hátt að bankarnir leggja þeim
til góða bíla, venjulega vandaða
jeppa sem eru í eigu bankanna og er
allur reksturskostnaður greiddur af
bönkunum. Þessi fríðindi má meta á
um 1,3 milljónir króna á ári miðað
við viðmiðunarútreikninga FÍB á
reksturskostnaði bila.
Heildartekjur bankastjúranna
Þegar öllu er til skila haldið í
svari viðskiptaráðherra er nokkuð
ljóst að árlegar heildartekjur banka-
stjóra eru mjög góðar. Föst árslaun
nema um 6 milljónum króna og með-
altekjur þeirra fyrir stjórnarsetur
eru minnst 2,5 milljónir króna á ári.
Þótt því verði sjálfsagt mótmælt að
ferðalög þeirra út fyrir landsteinana
Fréttaljós
Stefán Asgrímsson
séu skemmtiferðir heldur ferðist
bankastjóramir að langmestu leyti í
þágu stofhana sinna, er það þó ljóst
að kostnaður þeirra af ferðalögunum
er að langmestu ef ekki öllu leyti
greiddur og dagpeningarnir sem þeir
fá greidda er hrein aukageta, að ekki
sé talað um þá dagpeninga sem eig-
inkonurnar eða makarnir fá greidda.
Dagpeningarnir eru um 18 þúsund
krónur á dag þannig að ef banka-
stjóri er á ferðalagi með konu sinni
sem er á hálfum dagpeningum, þá fá
þau samtals 27 þúsund krónur á dag,
sem rennur beint í þeirra eigin vasa
því bankinn borgar þeim allan
kostnað og risnu að auki. Ýmis önn-
ur fríðindi má telja, svo sem frítt
fæði, laxveiðar á kostnað bankanna í
dýrustu laxveiðiám landsins, sem
ekki er hægt að ráða beint í af svari
viðskiptaráðherra, en að öllu saman-
lögðu má gera ráð fyrir því að tekjur
meðalbankastjóra séu 1,2-1,4 millj-
ónir á mánuði.
Ræningjarnir úr Kardi-
mommubænum
„Þarna eru ræningjar á ferð, það
er ekki hægt að segja annað um
þetta, þetta eru bara ræningjarnir úr
Kardimommubænum, því þjóðfélag-
ið er ekkert annað en eins konar
Kardimommubær," sagði Pétur Sig-
urðsson, formaður Alþýðusambands
Vestfjarða, í samtali við DV.
Pétur sagði að í þessu máli væru
þvílíkar upphæðir á sama tíma og
fólkið sem stendur undir þjóðarfram-
leiðslunni fær skömmtuð laun upp á
50-80 þúsund krónur á sama tíma og
slíkar upphæðir eru smápartur af
risnu ýmissa embættismanna í þjóð-
félaginu. „Þetta er ekkert nema grín
og varla lengur hægt að gráta yfir
því, þetta er hreinlega hlægilegt og
svo vitlaust að engu tali tekur,“
sagði Pétur Sigurðsson, formaður
ASV.
„Vitanlega bera bankaráðin
ábyrgð á þessum kjörum,“ segir Jó-
hanna Sigurðardóttir i samtali við
DV. Hún segir að hins vegar sé ekki
ljóst af svarinu frá viðskiptaráð-
herra hver ákvarði bankastjórunum
laun fyrir nefnda- og stjórnarsetur
þeirra, en séu þeir formenn fara laun
þeirra fyrir setu í einni nefnd í millj-
ón á ári fyrir að mæta einu sinni til
tvisvar í vinnutímanum á fundi
stund úr degi. „Hver tekur ákvarð-
anir um þessi laun þeirra? Eru það
bankaráð bankanna eða stjórnir við-
komandi fyrirtækja og þá vaknar sú
spurning, gera þeir það sjálfir?" spyr
Jóhanna. Jóhanna segir að mörgum
þingmanni hafi brugðið við þessar
upplýsingar um launakjör banka-
stjóranna og hefðu einhverjir haft á
orði hvort ekki væri rétt að taka það
upp að hafa aðeins einn bankastjóra
yfir hverjum bankanna.
Yfitgengilegt segir forseti
ASI
„Þegar maður fylgist með þessu
máli i fjölmiðlum rifjast það upp að
haustið 1995 áttu sér stað gríðarlegar
hækkanir launa helstu embættis-
manna þjóðarinnar. Þá titraði nú
samfélagið á tímabili eftir að þær
upplýsingar komu til umfjöllunar.
Þessar upplýsingar um kjör banka-
stjóranna taka því öllu saman langt
fram þannig að þetta er út úr öllum
takti við alla aðra í samfélaginu
hvað laun og kjör snertir og er enn
eitt dæmið um gríðarlega misskipt-
ingu í samfélaginu," segir Grétar
Þorsteinsson, forseti ASÍ, í samtali
við DV.
Grétar Þorsteinsson segir að tölur
um gríðarlegan lífeyri, sem greiddur
er bankastjórum sem hættir eru
störfum, veki einnig sérstaka athygli
í ljósi þess að lífeyrismál hafí verið
mjög til umfjöllunar að undanförnu.
Hæstu lífeyrisgreiðslur til banka-
stjóra í Landsbanka og Búnaðar-
banka námu á síðasta ári um 5,4
milljónum króna en hjá Seðlabanka
um 6,1 milljón kr. á mann, en banka-
stjórarnir ávinna sér mun hraðar
fullan lífeyrisrétt en aðrir launþegar,
auk þess sem rétturinn er miklu
betri, en lífeyrisgreiðslur til eftir-
launabankastjóra nema 90% af full-
um launum. -SÁ
Þarftu að yngja upp...
„Sannkölluð
Kjarakaup
Yfir 60 nýjar vörutegundir
Allt heimsþekkt merki!
SIEMENS - AEG - GRUNDIG - BRAUN - SAMSUNG
PANASONIC - JVC - PHiUPS - SONY - VESTFROST
Creda 1000 sn.þvottavél
Notar allt að 34% minna
vatn og 36% minna
rafmagn en eldri gerðir.
Skynjarmagn.
Fínskolun (ofnæmisvöm)
Úðar þvottinn stöðugt
Stiglaus hrtastillir
Hraðþvottakerfi (30 mín.)
15mismunandikerfi. Ullarkerfi.
Knjmpuvöm. TekurSkg.
Tilboðsverð Verðáðurkr. 64.900-
-1 HS
heimsendingarþjónijsta þjónusta viögeröarþjónusta
VERIÐ VELKOMIN í VERSLUN OKKAR
Bungs á sk)ney49EMÍ<Lis«93inj
RflFTítKJflDERZLUN ISLflNDS If
-ANNO 1929-
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
6 milljónir
. íjiHt
/r; Föst laun og sporslur
bankastjóra ríkisbankanna
- áætlaðar tölur -
Meöalárslaun
Stjórnarsetur
Ferðalög, risna
og dagpenlngar
ímmm
Frír lúxusbíll Ýmis hlunnindi
(samkv. vibmlöunar- (fæöl, laxvelðar o. fl.)
útrelknlng FÍB)