Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1997, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1997, Blaðsíða 51
S>\ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997 kvikmyridir Minnie Driver leikur Phyllis, kærustu kokksins Secondo. heita þeim sérskennilegu nöfnum Primo og Secundo, eru mjög sam- rýndir en líta ekki sömu augum á velferðarþjóðfélagið í Bandaríkjun- um Tucci viðurkennir að hann sé þó enginn sérfræðingur í mat, en það er móðir hans Joan og var hún feng- in til að vera sérlegur ráðunautur við gerð myndarinnar ásamt ítölsk- um meistarakokki. Tucci segir að í fyrstu hafi hann ætlað sér að leik- stýra myndinni einn, en fundið Ðjótt að það myndi bitna á leik hans svo hann fékk vin sinn og kollega, Campbell Scott, til að leikstýra með sér og er ekki hægt annað að segja en samvinna þeirra hafi verið með miklum ágætum, alla vega hefur myndinni verið hrósað í hástert, þykir frum- leg, hlý og skemmti- leg. Ekki hafði Tucci mikil fjárráð við gerð myndarinnar svo hann varð að leita til vina og kunningja þegar kom að því að velja leikara. Mótleikari hans er Tony Shalhoub, f n I Laugarásbíó - Crash: Bflar og blæti irkirk Bílakynlif er nokkuð sem áhorfendur kannast við frá bandarískum unglinga- myndum. Hér hjá Cronenberg birtist þessi ást Bandarikjamanna á (og í) bílum í dálítið öðru formi. Sagan segir frá ungum hjónum sem leita örvæntingarfullt leiða til að hressa upp á kynlífið hjá sér. Þegar eiginmaðurinn (James Spader) lendir í alvarlegu bílslysi er leiðin fundin. í kjölfar slyssins kynnast þau hópi fólks sem hefur gert bæði bíla og slösun af völdum bfla að blæti þar sem bfllinn og líkamlegi skaðinn eru uppspretta endalausrar kynörvunar. Cronenberg skrifar sjálflir handritið upp úr klassískri bók J.G. Ballards og kýs að leggja áhersluna á kynlífið sjálft fremur en bíla og slysablætið. Þetta veldur dálítilli slagsíðu þar sem eró- tíska örvunin, svo sem slysin sjálf, fellur í skuggann fyrir hamslausum samförum utan og innan bfla. Þannig fer myndin dálitið hægt af stað en bætir það upp í alveg mögnuðum seinni hluta. En þetta eru minni háttar gaflar á því sem hlýtur að teljast með áhugaverðari myndum þessa árs. Cronenberg er fátt heilagt og þeir sem fara á þessa mynd í von um einfalt ævintýri um rennilega bfla og tfl- kippflegar konur fá á sig gusu úr óvæntri átt. Persónumar eru vel útfærðar og leiknar, sérstaklega nær James Spader vel tökum á James Ballard sem er í senn hlutlaust vitni og virkur þátttakandi og Holly Hunter er flott sem pen (eða hvað?) ekkja í dragt. Og Cronenberg er sérfræðingur í að ná fram truflandi fegurð þar sem síst skyldi, svo sem í árekstrarsenunum og í samviskulausri könnun á örum og áverkum. Músíkin er mögnuð og á ríkan þátt í að skapa það andrúmsloft sem gerir þessa mynd að einstaklega hugvekjandi upplifún. Leikstjóri og handritshöfundur: David Cronenberg. Aöalleikarar: James Spader, Holly Hunter, Ros- anne Arquette, Deborah Unger og Elias Koteas. Úlfhildur Dagsdóttir Sam-bíóin - Michael: Engill með mannlegar þarfir ★★ Orðið engill er i daglegu máli notað á ýmsa vegu en alltaf þó til að lýsa einhverju góðu eða fallegu. Mynd af engli er aftur á móti alltaf eins, hvítklædd goðumlik vera með vængi. Erkiengill Michael, sem er aðalpersóna samnefhdrar mynd- ar, er hvorki hvítklæddur, fallegur né goðumlík- ur. Michael er loðinn á bringu, hefur mikinn kynþokka, að mati kvenna, það mikinn að engin kona stenst hann ef hann setur ekki varnar- blokk á hana, finnst gott að reykja og er ekki mikið fyrir að fara í hað. En Michael hefur hvíta vængi og það sannar að hann er engill, að vísu ekki venjulegur engill, heldur erkiengill. Þessum engli kynnast þrír hlaðamenn og ljósmyndarar æsifréttablaðsins National Mirror þegar þau fara á stúfana til að bera til baka sögusagnir um að engill hafi sest að í smábæ í Iowa. Eins og sjá má hér að framan fer ekki mikið fyrir raunsæinu í Michael, enda er myndin fyrst og fremst létt gamanmynd með rómantískum blæ. Leik- stjórinn Nora Ephron náði í Sleepless in Seattle góðum tökum á þessari for- múlu en nær ekki eins vel hér að þjappa þessu ævintýri saman. Hefði hún átt að sleppa allri rómantík og gera hreinræktaða gamanmynd. Það er hálfgerður vandræðagangur á öllum alla myndina og ef það væri ekki vegna skemmtilegra tilþrifa hjá John Travolta væri lítið bit í myndinni. Travolta, sem greinilega hefur þyngst um nokkur kílóin frá því hann lék í Phenomenom, er afslappaður í engilshlutverkinu. Það má til sanns vegar færa aö hann geri mikið úr litlu því Michael er óvenjutakmarkaður af engli að vera. Kraftaverk eru ekki hans deild þó eitt líti dagsins ljós og helstu afrek hans eru að stangast á við naut og fleka kvenfólk. Aðrir leikarar eru með hangandi hendi að reyna að blása lífí í staðlaðar persónur, en ná ekki miklum árangri. Leikstjóri: IMora Ephron. Handrit: IMora Ephron, Delia Ephron, Pete Dexter og Jim Quinlain. Kvikmyndataka: John Lindley. Tónlist: Randy Newman. Aðalleikarar: John Travolta, William Hurt, Andie MacDowell, Robert Pastorelli og Jean Stapleton. Hilmar Karlsson sem er þekktur sjónvarpsleikari vestanhafs, þá eru bresku leikaram- ir Ina Holm og Minnie Driver í stór- um hlutverkum ásamt Isabellu Rosselini. Campbell Scott leikur síð- an bílasölumanninn Bob sem boðið er til veislunnar miklu. :<,7j hLIIR Krakkaklúbbssýningar veröa alla laugardaga og sunnudaga í apríl. kl. 15. Miðarverða afhentir á laugardögum hjá DV. Þverholti 11, frá kl 10-14. Hver félagi fær tvo bíómiða. Munið að koma með Krakkaklúbbsskírteinin. ' A ^ Wil I BOÐI KRAKKAKLUBBS DV 0G STJORNUBIOS N í tilefni af 5 ára afmæli Krakkaklúbbs DV bjóða klúbburinn og Stjörnubíó öllum Krakkaklúbbsfélögum í bíó á myndina Gullbrá og birnirnir þrír. IILLIIJIÍAKI Þeir sem geta ekki nýtt sér bíómiðana fá í staðinn gómsaetan Kjöríshlunk. Ávlsanir á Kjöríshlunkana verða afhentar hjá umboðsmönnum DV um land allt. Afhendingartími á hverjum stað verður auglýstur í DV þriðjudaginn 8. apríl. W— BÍÚ! A • \
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.