Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1997, Side 22
LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997 JLlV
22i handverk
IJi
Páll Kristjánsson, bróðir Bjarna Þórs,
hefur unniö marga fallega hluti úr
beinum. Hér heldur hann á hnífum úr
smiðju sinni.
Edda Jónsdóttir er aldursforseti hópsins. Hún hefur starfað
sem handavinnukennari í mörg ár en hætti nýlega að kenna.
Hún er síöur en svo hætt aö sinna helsta áhugamáli sínu og
á hönnun og gerð á töskum, beltum og fleiri nytjamunum
hug hennar allan. Segir hún samstafiö við hina listamennina
afar gefandi og skemmtilegt.
Hafsteinn Traustason er húsasmíðameistari,
rennismiður og bifvélavirki með meiru. Hann mótar
fagra hluti í rennibekknum en þaöan kemur þessi
forláta kertastjaki úr íslensku birki.
Ingibjörg Hjartardóttir glerlistakona heldur hér á
einu verka sinna. Hún fer ýmsar nýstárlegar
leiöir í þeim hlutum og kennir ýmissa grasa.
Pórhildur Þorgeirsdóttir er gullsmiður aö
mennt og lauk prófi í Þýskalandi. Hún helur
hér á silfurskeið en marga silfurmuni eftir
hana er að sjá í gallerí Hnossi.
Bjarni Þór
KristjánS'
son starfar
sem smíöa-
kennari en
fær útrás fyrir
listrænu hlið-
ina á starfinu í
galleríinu. Hér
sker hann út litla
karla og aörar
fígúrur úr birki.
leikur viðurinn í
höndum Bjarna.
Gallerí Hnoss
Fimm lista- og handverksmenn meö ólíkan bakgrunn hafa um
nokkur skeið rekin saman lista- og handverksgallerí undir nafninu
Gallerí Hnoss. Nýlega flutti gaileríiö um set, úr Grjótaþorpinu í
verslunarhúsnæði aö Skólavörðustíg 20. Þar er að sjá alls kyns
listmuni og gjafavörur úr mismunandi hráefnum. Listamennimir
gera allir verk sín úr náttúrulegum hráefnum, skinni, tré, beinum,
roði, steinum, gleri, silfri og fleiru. Er nær undantekningalaust
leitað fanga í íslenskri náttúru.
Galleríið er rekið af brennandi áhuga en rekstrarformið er
nýlunda hér á landi. Listamennirnir sinna rekstri þess utan
vinnutíma, skiptast á að vera í búðinni. Viðfangsefni sumra þeirra
Þau reka Gallerí
Hnoss. F.v.:
Ingibjörg
Hjartardóttir,
Bjarni Þór
Kristjánsson,
Páll
Kristjánsson,
Edda Jónsdóttir,
Helga Rún
Pálsdóttir,
Þórhildur
Þorgeirsdóttir
og Hafsteinn
Traustason.
eru þess eðlis að þeir geta unnið baka til í búðinni milli þess sem
þeir sinna viðskiptavinum.
Hópurinn er sammála um aö það myndist mjög frjór jarðvegur
fyrir hugmyndir þegar einstaklingar með ólíkan bakgrunn og
vinnsluaðferðir hittast og reka saman gallerí eins og Hnoss
Hvert þeirra hefur ákveðna sýn á lausnir og útfærslur sem
skilar sér oftar en ekki í verkunum.
Listafólkið segir áhuga erlendra ferðamanna á gallgeríinu
mikinn, þarna sé að finna ósvikið íslenskt handverk út í
gegn. Þá hafi landinn einnig tekið viö sér en þarna er að
finna afar sérstakar og fallegar gjafavörur.
Helga Rún
Pálsdóttir er
hatta- og
kjólameistari
og rekur
eigin
hattagerð.
Hún gerir
einnig
töskur og
fleiri hluti úr skinni
og fleiri efnum sem fina má í
íslenskri náttúru.
DV myndir-ÞÖK