Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1997, Blaðsíða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1997, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997 57 Saga Jónsdóttir og Guömundur Ólafsson leika öll hlutverkin í Bar Par. Bar Par á faraldsfæti Nú er komið að lokum Bar Pars í Borgarleikhúsinu en siðustu sýningar þar eru um helgina. Þar sem uppselt er á sýninguna í kvöld verður aukasýning á mið- nætti í kvöld og önnur annað kvöld. Ekki lýkur þó sýningum á verkinu þvi nú er áætlað að fara í leikferð. Verða fyrstu sýningam- ar á Austurlandi 1., 2. og 3. maí og er sýnt á hótelum á hverjum stað fyrir sig. Leikhús Venus/Mars á Norðurlandi Leikþátturinn Venus/Mars eft- ir Eddu Björgvinsdóttur verður sýndur í Deiglunni á Akureyri í kvöld, kl. 21, á Sauðárkróki, í tengslum við Sæluviku á Kaffi Krók á morgun, kl. 15.30, og á Siglufirði sama dag, kl. 20.30. Frátekið borð Sýning verður á Fráteknu borði eftir Jónínu Leósdóttur I kaffiter- íunni í Gerðubergi í dag, kl. 15. Leikarar eru Saga Jónsdóttir, Soffia Jakobsdóttir og Bryndís Petra Bragadóttir. Löður: Sápukúlur og stærðfræði Reynir Axelsson, dósent í stærðfræði flytur í dag fyrirlest- urinn Löður: Sápukúlur og stærð- fræði i sal 3 í Háskólabíói kl. 14. Er hann i fyrirlestraröðinni Und- ur veraldar. Matjurtir í heimilisgarðinum Námskeið verður í dag í Gaðr- yrkjuskóla ríkisins, Reykjum í Ölfusi, fyrir áhugafólk um mat- jurtir í heimilisgarðinum. Leið- beinandi er Gunnþór Guðflnns- son kennari. Félag eldri borgara í Reykjavík Félagsfundur verður i Risinu í dag kl. 13.30. Dagskrá: Kjara- og hagsmunamál. Framsögumaður: Ámi Brynjólfsson. Samkomur Ma-Uri dansnudd Anne Marie Olafsen verður með fyrirlestur og sýnikennslu í pólínesískri heilun og Huna-heim- speki í jógastöðinni Heimsljósi, Ármúla 15, í dag kl. 14.30. Skjólbeltarækt á Suðurlandi Námskeið verður í skjólbelta- rækt á Suðurlandi i Hlíðarenda á Hvolsvelli í dag kl. 10-16. Leið- beinendur eru skógafræðingamir Hallur Björgvinsson og Gunnar Freysteinsson. Heimildamynd um Maju Plíestskaju Á morgun kl. 16 verður kvik- myndin Maja Plísetskaja sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10. Þetta er heimildakvikmynd um eina fræg- ustu ballerínu heims, gerð árið 1964 þegar hún stóð á hátindi frægðar sinnar. Aðgangur er ókeypis. Rigning eða súld víðast hvar á landinu Við Færeyjar er 1022 mb hæð sem þokast suðaustur og á suðvestan- verðu Grænlandshafi er 1000 mb Veðríð í dag lægð sem hreyfist hægt norðnorð- austur. Rigning verður víðast hvar á landinu á morgun. Spáð er suðau- stangolu eða kalda og ef ekki verður rigning þá verður súld. Hiti verður á bilinu 4 til 9 stig. Heitast verður á suðvesturhorninu og á Vesturlandi. í höfuðborginni verður rigning eða súld og hitinn mestur um sjö stig. Sólarlag í Reykjavík: 21.36 Sólarupprás á morgun: 5.14 Síðdegisflóð í Reykjavík: 20.46 Árdegisflóð á morgun: 9.09 Veöriö kl. 12 á hádegi í gœr: Akureyri Akurnes Bergstaðir Bolungarvík Egilsstaðir Keflavíkurflugv. Kirkjubkl. Raufarhöfn Reykjavík Stórhöfói Helsinki Kaupmannah. Ósló Stokkhólmur Þðrshöfn Amsterdam Barcelona Chicago Frankfurt Glasgow Hamborg London Lúxemborg Malaga Mallorca París Róm New York Orlando Nuuk Vín Washington Winnipeg skýjaó 7 skýjað 6 alskýjað 6 snjóél 3 skýjað 8 rigning og súls 4 alskýjaó 5 skýjað 4 úrkoma í grennd 5 alskýjaö 5 skýjað 7 léttskýjað 9 skýjað 9 skýjað 7 skýjað 5 rigning 11 þokumóða 18 heióskírt 4 skýjað 17 skýjað 11 skýjað 10 rigning á síð.kls. 11 skýjað 17 skýjaö 22 léttskýjaö 20 rigning 16 léttskýjaó 17 léttskýjað 19 léttskýjað 17 léttskýjað -.2 léttskýjaó 18 skýjaö 12 skúr 3 Reggae on lce á Sauðárkróki: Dansvæn tónlist úr ýmsum áttum Reggae on lce skemmtir á Hótel Mælifelli í kvöld. Hin vinsæla hijómsveit Reggae on Ice dvelur norðan heiða í dag og verður með dansleik á Hótel Mælifelli á Sauðárkróki í kvöld. Reggae on Ice spilar fiölbreytta og dansvæna tónlist ásamt eigin lög- um en sveitin er að leggja síðustu hönd á plötu sem kemur út í júní. | Er það plata númer tvö og mega gestir eiga von á að heyra efni af plötunni. Karlakórinn Stefnir Karlakórinn Stefnir verður með tónleika í Grensáskirkju kl. 20.30 annað kvöld og verða þeir síðan Skemmtanir endurteknir á sama stað 30. apríl. Uppistaðan f dagskránni er ís- | lensk lög og eru einsöngvarar úr röðum kórfélaga. Stjómandi kórs- ins er Lárus Sveinsson, undirleik- 1 ari er Sigurður Marteinsson. Ljóðatónleikar í Safnaðarheimilinu á Akureyri verða ljóðatónleikar í dag kl. 16. Það eru Þórunn Guðmundsdóttir og Kristinn Örn Kristinsson sem flytja verk eftir Henry Purcell, Sig- m-ð Þórðarson, Samuel Barber, Jón Leifs og fleiri. Þórunn og Kristinn Öm hafa unnið mikið saman undanfarin misseri og er skemmst að minnast þess að árið 1995 kom út geislaplata með þeim þar sem þau flytja lög eftir Karl Ó. Runólfsson og Jón Leifs. Myndgátan Fjárgreiðslur Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi. wassönn Han Solo (Harrison Ford) kemur mikiö viö sögu í Return of the Jedl. 1 Stjörnustríð 3 | Háskólabíó hóf sýningar í vik- ! unni á þriðju Stjömustríðsmynd- inni, Return of the Jedi, sem jafh- : framt er síðasta myndin í fyrstu lotu. Nú verða spenntir aðdáendur að bíða fram á næsta ár eftir nýrri Ísyrpu frá George Lucas í Stjörnu- stríðsseríunni. í Retum of the Jedi kemur til uppgjörs á milli Loga geimgengils og vina hans og Svart- höfða. Spurningin er hvor þeirra hefur vinninginn þegar upp er staðið. Eins og þeir sem sáu Emp- Kvikmyndir ire Strikes Back vita þá endaði sú mynd með því að farið var í leið- angm- Han Solo til bjargar. Eitt af eftirminnilegustu atriðunum í Re- turn of the Jedi er eltingaleikur í gegnum skóginn þar sem hinir bangsalegu Ewokar fara fremstir i flokki. Eins og í fyrri myndunum tveimur hefur einstaka atriðum verið breytt, án þess þó að það komi niður á söguþræði myndar- innar eða efnistökum. Öll nútíma Iþekking og tækni, með tilliti til hljóös og myndar, er nýtt til hins ýtrasta til að upplifunin veröi í takt við það besta sem gerist í ■ heimi kvikmyndanna i dag. Nýjar myndir: Háskólabió: Return of the Jedi Laugarásbíó: Crash Kringlubíó: Veislan mikla Saga-bíó: Lesið i snjóinn Bíóhöllin: Michael Bíóborgin: Tveir dagar í dalnum Regnboginn: Veiðimennirnir Stjörnubíó: Svindlið mikla Golf og glíma Nú eru kylfingar búnir að taka kylfur sínar fram og famir að slá litlu hvítu kúluna í gríð og erg. Fyrsta mót ársins var á Suður- nesjum um síðustu helgi og nú er komið að Hafnfirðingum að halda golfmót en Keilir heldur afmælis- mót á velli sínum í dag. Um er að ræða punktakeppni og eru verð- laun veitt fyrir þrjú efstu sætin ásamt aukverðlaunum fyrir að vera næst holu i upphafshöggi á 16. braut og næst holu í öðru höggi á 13. braut. íþróttir Glímumenn verða í sviðsljósinu um helgina, Íslandsglíman verður háð í Reykjavík og verður þar ör- ugglega um spennandi keppni að ræða. Þá verður ungt hestafólk í sviðsljósinu en Hestamannafélag- ið Sörli heldur Hróa hattar-mót á morgun, kl. 14, á Sörlavöllum við Sörlastaði. Keppt verður f fiórum aldursflokkum í firmakeppnis- formi. Gengið Almennt gengi LÍ nr. 115 25.04.1997 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollqenqi Dollar 71,080 71,440 70,940 Pund 115,470 116,060 115,430 Kan. dollar 50,920 51,240 51,840 Dönsk kr. 10,8730 10,9310 10,9930 Norsk kr 10,0570 10,1130 10,5210 Sænsk kr. 9,2320 9,2830 9,4570 Fi. mark 13,7690 13,8500 14,0820 Fra. franki 12,2650 12,3350 12,4330 Belg.franki 2,0066 2,0186 2,0338 Sviss. franki 48,6200 48,8900 48,0200 Holl. gyllini 36,8100 37,0300 37,3200 Þýskt mark 41,4200 41,6300 41,9500 ít. líra 0,04157 0,04183 0,04206 Aust. sch. 5,8820 5,9180 5,9620 Port. escudo 0,4123 0,4149 0,4177 Spá. peseti 0,4908 0,4938 0,4952 Jap. yen 0,56390 0,56730 0,58860 irskt pund 110,150 110,830 112,210 SDR 96,51000 97,09000 98,26000 ECU 80,6200 81,1000 81,4700 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.