Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1997, Síða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1997, Síða 50
LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997 58 Dlrikmyndir Bíóborgin -Tveir dagar í dalnum Atburðir í dal ★★★ Quentin Tarantino hefur margt á samviskunni. í þetta sinn eru áhrif hans af því góða, því að þessi litla mynd um tvo daga í dal er bara ansi fín; þó Tarantino-áhrifin leyni sér ekki. En Tveir dagar í dalnum eru alveg lausir við þann farangur af tilvísunum og tengingum sem einkennir mynd- ir Tarantinos og i því liggur einmitt styrkur hennar; hún ætlar sér ekki um of. Af óvæntum ástæðum slær saman ósamstæðum hópi fólks og kvikmyndaleiksljóri í sjálfs- morðshugleiðingum (Paul Mazursky) fær hugmynd að handriti. Morð er framið í dalnum og annar morðingjanna (James Spader) ætlar síðan að losa sig við hinn morðingj- ann (Danny Aiello), en mistekst. Sá tekur listaverkasala (Greg Cruttwell) og aðstoðarkonu hans (Glenne Headiy) í gíslingu en gíslamálið vefur óvænt upp á sig þegar systir listaverkasalans (Marsha Mason) og kvikmyndaleikstjórinn bætast við. Og síðan blandast lögreglumenn (Jeff Daniels og Eric Stoltz) og konur fórnarlambsins og hins morðingjans í leikinn (Teri Hatcher og Charlize Ther- on). Ruglingslegt? Ég var lengi hrædd um að þetta myndi aldrei smelia saman. En það gekk og í heildina er hægt að segja að það hafi gengið vel. Handritið heíði mátt vera betur skrifað (það var sérstaklega neyðarlegt þegar kvikmyndaleikstjórinn fór að glósa hjá sér og maður uppgöt- vaði að línumar vora ekki það góðar) en myndin er full af skemmtilegum persónum og senum og þó maður standi sjaldan á öndinni þá var þetta hin ágætasta skemmtun. Leikarahópurinn er einvala lið, James Spader er farinn að sérhæfa sig í „kinkí“ illmennum og er alltaf skemmtilegur, Eric Stoltz er indæll sem löggan sem hefur of mikla samvisku með glæpamönn- unum og þó Charlize Theron hafi ekki verið sannfærandi í sænskunni þá var hún frábær fig- úra. Leikstjóri og handritshöfundur: John Herzfeld. Kvikmyndataka: Oliver Wood. Tónlist: Ant- hoony Martinelli. Aðalleikarar: Danny Aiello, James Spader, Eric Stoltz, Glenne Headly og Charlize Theron. Ulfhildur Dagsdóttir. Regnboginn - Veiðimennirnir: Lögreglan, vinirnir og veiðiþjófarnir *** Það hefur löngum loðað við frændur okkar i Svíþjóð að vera um of heimavænir í sinni kvikmyndagerð og þess vegna hafa þeir meðal annars átt í erfiðleikum með að koma kvikmyndum sínum á framfæri erlendis. Af Norður- landaþjóðunum framleiða þeir flestar kvikmyndir, en hafa ekki haft erindi sem erfiði á alþjóðlegum vettvangi. Hafa Danir náð til að mynda mun betri árangri í dreifmgarmál- um en Svíar og hafa í dag forustu í kvikmyndagerð á Norð- urlöndum. Eitthvað virðast Svíar þó hafa lært því Veiði- mennimir (Jagama) er laus við allan mæðutón og er fyrst og fremst hressileg skemmtun, sakamálmynd sem hefur góða sögu sem vel gæti gerst hvenær sem er. Veiðimennimir gerist í smábæ í norðurhluta Svíþjóðar og segir frá lögreglumanni sem hefur gefist upp á lífinu í stórborginni og flytur heim í sína heimabyggð og tekur við lögreglustarfi þar. Honum er tek- ið sem hetju af vinum og vandamönnum. Þegar hann hefúr lögreglustörf kemur fljótt i ljós að stórborgin hefur haft afgerandi áhrif á lífsmunstur hans, hann getur ekki horft fram hjá því sem starfsfélagar hans kalla sjáifsbjargarviðleitni, það er veiöiþjófnaður, sem stundaður er af fyrrum félögum hans. Lögreglumaðurinn einangrast því brátt í bæjarfélaginu þar sem ailir þekkja alla. Veiðimennimir er vel skrifuð og hefur góða stígandi. Myndin hefur nokkur hliðarspor sem áhugaverð eru og persónur em vel tilreiddar frá höfundar hendi. Aðalpersónan Eric, er þessi þrjóska bangsatýpa sem neitar að gefast upp fyrir þvingunum, er hljóðlátur í starfi en veit hvað hann vill og er túlkun Rolf Lassgárd virkileg góð. Það má kannski segja að atburðarásin sé stundum um of fyrirsjáanleg og hafi þvi áhrif á spennuna, en þegar á heildina er litið er Veiðimennimir góð skemmtun. Leikstjóri: Kjell Sundvall. Handrit: Kjell Sundvall og Björn Carlström. Kvikmyndataka: Kjell Lagerroos. Tónlist: Björn Jason Lindh. Aðalleikarar: Rolf Lassgárd, Lennart Jáhkel, Helena Bergström og Jarmo Mákinen. Hilmar Karlsson Kringlubíó -Veislan mikla: í nærveru ítalskrar matargerðar Alltáf tf og til koma fram kvikmyndir í Bandaríkjun- um sem eru svo lausar við að hafa amerískt yfirbragð að undrun sætir, slík kvikmynd er Veislan mikla (Big Night). Samt er það svo að hún hefði sjálfsagt ekki getað orðið til neins staðar annars staðar en einmitt í Banda- ríkjunum því þama er á skemmtilegan og áhrifamikinn máta blandað saman evrópskri arfleið, ekta ítalskri mat- argerð, og hvemig hún rekst á í þjóðfélagi þar sem allt byggist upp á hraða. Dæmigert er atriði í byrjtm mynd- arinnar þegar bandarísk hjón era að fúrða sig og kvarta yfir því að ekkert pasta eða kjötbollur skuli vera með II risotto (hrísgrjónarétti). í Veislunni miklu fylgjumst við með tveimur ítölskum bræðrum á sjötta áratugnum, sem heita þeim skemmti- legu nöfnum Primo og Secundo. Þeir hafa sett á fót ítalskan matsölustað, sem ekki hefur fallið í kramið, enda Primo, sem er kokkurinn, með fullkomnunaráráttu í matargerð og neitar öllum breytingum. Annar italskur innflytjandi sem rekur veitingastað á móti þeim bræðram hefúr aðlagað sig bandarisku þjóðfélagi og lætur ameriska drauminn ræt- ast. Sá ákveður að koma þeim bræðrum til hjálpar og segist ætla að senda vin sinn Lou- is Prima (frægur söngvari á þessum árum) til þeirra bræðra eitt kvöldið og undirbúning- ur fyrir veisluna miklu hefst. Veislan mikla er kvikmynd sem kemur veralega á óvart. Leikararnir, Stanley Tucci og Campbell Scott, leikstýra myndinni af miklu öryggi og listrænu innsæi. Handrit Tucc- is ogJoseph Tropiano er innihaldsríkt, fullt af góðum húmor sem og dramatískum til- finningaátökum og leikgleðin skín úr hverjum leikara. Þaö eru nokkur atriði sem standa upp úr og þá er helst að nefna aldeilis frábæra ítalska veislu sem gerir það að verkum að maður hugsar um ítalskan mat í langan tíma á eftir og lokaatriðið í eldhúsinu þegar Sec- undo býr til eggjaböku handa þeim bræðram og aðstoðarmanni þeirra. í þessum atriðum er ekki mikið talað heldur er myndmálið nýtt á áhrifamikinn hátt. Leikstjórar: Stanley Tucci og Campbell Scott. Handrit: Stanley Tucci og Joseph Tropiano. Kvikmyndataka: Ken Kelsch. Tónlist: Gary DeMichele. Aðalleikarar: Stanley Tucci, Tony Shalhoub, Minnie Driver, Isabella Rossellini, Campbell Scott og lan Holm. Hilmar Karlsson. -.1 A ■l.i-J IKKA Veislan mikla í Kringlubíói: Italskur matur og ameríski draumurinn Bandaríska kvikmyndatímaritið Premier fær árlega alla helstu kvikmyndgagnrýnendur Bandaríkjanna til að gefa helstu kvikmyndum ársins stjörnur. Síðan era stjömurnar lagðar saman og útkoman er besta kvikmynd ársins að mati hópsins. í ár voru þaö sextán gagn- rýnendur sem tóku þátt i leiknum og þegar stjörnumar vora reiknaðar út kom í ljós að lít- il kvikmynd, Veislan mikla (Big Night) sem vakið hefur umtalsverða athygli frá því hún var frumsýnd á Sundance kvikmyndhátíðinni i Colorado í fyma, var efst. Sá sem er að mestu ábyrgur fyrir gerð Veisl- unnar miklu er leikarinn Stanley Tucci sem er ekki mjög þekktur hér á landi en hefur þó sést einstaka sinnum í ágætum en litlum hlutverk- um. Hann er meðleikstjóri ásamt öðrum leik- ara, Campbell Scott, skrifaði handritið ásamt frænda sínum Joseph Tropiano og leikur eitt aðalhlutverkið. Tucci segist lengi hafa verið með hugmynd- ina í maganum um að gera kvikmynd um mat: „Matur er stór hluti af okkar lífi og ég hef al- veg frá því ég var strákur haft áhuga á matar- gerð. Matur skiptir mismiklu máli hjá fjöl- skyldum en í þeirri ítölsku fjölskyldu sem ég ólst upp í skiptir hann heilmiklu máli og það held ég eigi við um allar ítalskar fjölskyldur." Tucci kom því að máli við frænda sinn, Joseph Tropiano, sem hafði fengist við skriftir og er einnig mikill áhugamaður um mat, að þeir myndu skrifa handrit að kvikmynd um tvo ítalska bræður, tiltölulega nýflutta til Banda- ríkjanna á sjötta áratugnum, sem stofna veit- ingastað. Stórar hugsjónir þeirra bræðra i mat- argerð rekst á lífsmunstur Bandaríkjamanna og reksturinn gengur ekki sem skyldi. Tucci segir aðsðurður að persónur í myndinni séu ekki beint byggðar á fjölskyldu hans en þó megi sjá í þeim ýmislegt sem ættingjar hans hafa tileinkað sér. „í minni fjölskyldu var mat- ur alltaf umræðuefnið við matarborðið, stund- um reyndum við að tala um pólitík en umræð- umar enduðu alltaf á mat. Ég vil þó taka það fram að enginn úr minni fjölskyldu hefur átt veitingastað." Það er ekki bara aö Big Night fjalli um mat- argerð heldur er maturirm nokkurs konar um- gjörð um líf bræðranna sem fjallað er um og hvemig þeir líta ólíkum augum á lífið. Þeir Svindlið mikla í Stjörnubíói Peningar Svindlið mikla (The Big Squeeze), sem Stjömubíó hóf sýningar á í fyrradag, er á gam- ansömum nótum en krydduð erótík og spennu. í aðalhlutverki er Lara Flynn Boyle. Leikur hún bardömuna Tanyu Mulhill, sem er í van- sælu hjónabandi. Hún þrælar myrkranna á milli svo hún og eiginmaður hennar eigi til hnífs og skeiðar. Eiginmaðurinn er fyrram hafnaboltaleikari sem slasaðist og gerir því fátt annað daglega en að sækja kirkju til að öðlast sálarró. Dag einn uppgötvar Tanya að Henry hefur logið að henni öll þau ár sem hann hefur verið slasaður. Bankayfirlit sýnir að hann á inni 130 þús- und dollara. Er um tryggingarfé að ræða. Tanya vill vitaskuld fá helminginn enda hefur hún verið eina fyrirvinnan öll þau ár sem Henry hefur ver- ið á hækjum vegna meiðsla. Þegar Henry neitar henni um pen- inga ákveður hún að skilja við hann en hef- ur samt alls ekki hug á að skilja alla pen- ingana eftir í vörslu eiginmannsins. Auk Lara Flynn Boyle leika i mynd- inni Peter Dobson, Danny Nucci og Luca Bercovic. Leikstjóri er Marcus De Leon sem og erótík hefur gert nokkrar kvikmyndir fyrir óháða framleiðendur og fengið viðurkenningu fyrir tvær þeirra, Border Radio og Kiss Me a Killer. Lara Flynn Boyle þekkja allir sem fylgdust með á sínum tíma Tvídrangaþáttum David Lynch. Eftir að þeim lauk hefur hún verið iðin að leika í kvikmyndum og sjónvarpsmyndum, má þar nefna Threesome, The Temp, The Rookie, Baby’s Day out, Mobsters, Waynes World og The Road to Wellville. -HK Lara Flynn Boyle leikur Tanyu Mulhill sem lætur þaö ekki óborgað þegar eiginmaöurinn ætlar aö svindla á henni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.