Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1997, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1997, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1997 Fréttir Makalausar lánveitingar Húsnæöisstofnunar ríkisins: Þrefalt hærra lán í síðustu viku eignaðist Húsnæð- isstofnun ríkisins, fyrir hönd Bygg- ingarsjóðs ríkisins, hús í Hrísey á uppboði. Húsið, sem er hlaðið úr steini, var byggt árið 1931. Eignin var slegin stofhuninni á 100 þúsund krónur en áður hafði Byggingar- sjóður lánað fyrri eiganda 1,1 millj- ón króna sem aldrei var greitt af. Ekki hefur verið búið í húsinu að Lambhagavegi 31 um árabil en fyrir tveimur árum var það selt á 450 þús- und krónur sem þótti þokkalegt verð miðað við ástand þess. Það vekur þvi nokkra undrun að bruna- bótamat á húsinu, sem fram fór árið 1996, er liðlega 10 milljónir króna þrátt fyrir að fasteignamatsverð sé aðeins 900 þúsund krónur. Þetta þykir í meira lagi undarlegt þar sem þak, gólf, gluggar og hurðir hússins eru nánast ónýt. Það er því fátt sem stendur eftir af því og, eins og einn heimildarmanna DV orðaði það, þá er „orðið hreysi varla nógu sterkt til að lýsa ástandi þess“. Húsið var í eigu eldri konu í Hrís- ey sem dó árið 1995 en hafði ekki búið þar lengi. Það varð því úr að dætur hennar fjórar, sem erföu hús- ið við fráfall móðurinnar, ákváðu að selja húsið og losna þannig und- an þeim kostnaði sem fylgdi því að reka það og kynda. Systurnar seldu húsið 23. janúar 1996 og var kaup- andinn Landís hf. en fyrir hönd þess fyrirtækis undirritaði Jón Sigrún og Helena Hilmarsdætur við húsið sem systurnar seldu á 450 þúsund krónur fyrir tveimur árum. Húsnæðis- stofnun ríkisins lánaði nýjum eiganda á aðra milljón króna út á „eignina" og hirti á uppboði fyrir skömmu á 100 þús- und krónur. Húsiö er nánast ónýtt og því verölaust. DV-mynd gk Runólfsson kaupsamninginn. Snör handtök 13. febrúar sama ár var húsið selt aftur og þá Þorgrími Dúa Jósefs- syni. í framhaldi af því voru höfð snör handtök og aðeins tveimur dögum síðar, eða þann 15. febrúar, var þinglýst húsbréfaláni Húsnæð- isstofnunar á húsið. Það vekur nokkra athygli að Landís hf. og Þor- grímur Dúi þinglýstu ekki kaup- samningi heldur aðeins afsali. Sig- rún Hilmarsdóttir hafði með sölu hússins að gera fyrir hönd systra sinna. Hún sagði að þegar kaupin voru gerð hefði hinn nýi eigandi lýst því að hann ætlaði að endur- byggja það og koma því í horf. Ásættanlegt verö „Við vorum sáttar við það verð sem samdist um þar sem húsið var í slæmu ástandi. Kaupandinn hafði mikil áfoi-m um að koma húsinu í stand en síðan hefur ekkert gerst og nú er það í miklu verra ástandi en fyrir tveim árum. Það er sorglegt að sjá æskuheimilið í rúst,“ sagði Sig- rún. Þegar DV bar undir hana brunabótamatið á húsinu sagði hún aðeins. „Guð minn góður. Getur það átt sér stað?“ Magnús Viðar Arnarsson hjá Fasteignamati ríkisins á Akureyri staðfesti að stofnun hans hefði met- ið umrætt hús árið 1996. Hann sagði að til grundvallar matinu hefðu ver- ið lagðar ákveðnar forsendur svo sem alltaf væri gert. Þannig væri brunabótamat upp á tæpar 10 millj- ónir króna miðað við kostnað við endurbyggingu hússins ef um altjón yrði aö ræða. Magnús segir þó að sú staðreynd að húsið væri aðeins met- ið á 900 þúsund krónur í fasteigna- mati ætti að segja lánastofnunum að húsið væri ekki í góðu ásigkomu- lagi. -rt hreysi“ í Hrísey metið á 10 milljónir, selt á 100 þúsund Guðmundar- og Geirfinnsmálin: Fjögur vitni yfirheyrð í dag Vitnaleiðslur vegna óskar Sævars mundar- og Geirfinnsmálanna hefj- Ciesielskis um endurupptöku Guð- ast í dag. Ragnar Hall var skipaður Yfirheyrslurnar í Guömundar- og Geirfinnsmálinu fara fram í Héraðsdómi Reykjavfkur. sérstakur saksóknari vegna málsins og hefur hann mælt með því við Hæstarétt að það verði ekki tekið upp að nýju. Engu að síður hefur verið ákveðið að fjögur vitni verði yfirheyrð í dag. Vitnin eru Sigríður Magnúsdóttir og Elínborg Rafns- dóttir sem voru síðastar til að sjá Guðmund á lífl í miðbæ Hafnar- fjarðar nóttina sem hann hvarf. Einnig verður Hlynur Þór Magnús- son fangavörður yfirheyröur. Hann lýsti harðræði sem Sævar og Einar Bollason máttu þola í Síðumúla- fangelsinu í þætti Sigursteins Más- sonar, „Aðfór að lögum“. Hann var hins vegar ekki kvaddur til að bera vitni í harðræðisrannsókninni frægu. Hlynur sagði í þættinum að Sævari hefði meðal annars verið hótað drekkingu og kaffærður þar sem menn vissu um vatnshræðslu hans ásamt því að vera haldið vak- andi. Þá sagði hann að Einar hefði verið skipulagt brotinn niður. Menn hefðu vitað að hann var með liða- gigt og hefði hann verið settur í minnsta klefann í fangelsinu til þess að hann gæti ekki rétt úr sér. Loks verður séra Jón Bjarman, fyrrverandi fangaprestur, yfirheyrð- ur en hann sagði í sama þætti að hann hefði orðið orðið vitni að því er togað var í hár Sævars, hann hristur til og gefinn kinnhestur. Ragnar Aðalsteinsson hrl. er lög- maður Sævars en Júlíus Georgsson dómarafulltrúi mun stjórna vitnale- iðslunum sem fara fram í húsi Hér- aðsdóms Reykjavíkur. -sf Framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar: Förum eftir brunabóta- mati og kaupverði - málið hjá Rannsóknarlögreglu „Þegar um er að ræða íbúðir sem samþykktar eru af bygginga- nefndum viðkomandi byggðar- laga þá tökum við það alvarlega. Almenna reglan er sú að farið er eftir brunabótamati og kaup- verði. Þetta er gert samkvæmt gildandi reglugerð og það er ekki í verkahring okkar að breyta reglunum. Við erum ekkert í því að skoða íbúðir í krók og kring,“ segir Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Húsnæðis- stofhunar ríkisins, aðspurður um lánveitingar stofnunar hans til hússins Saltness við Lambhaga- veg 31 í Hrísey sem stofnunin lán- aöi 1150 þúsund krónur út á þann 15 febrúar 1996. Sigurður vildi lít- ið tjá sig um þetta einstaka mál efnislega en sagði það vera til meðferðar hjá Rannsóknarlög- reglu ríkisins eins og fleiri skyld mál. „Þetta mál er farið frá okkur ásamt fleiri til Rannsóknarlög- reglu. Við fylgjumst ekkert með þeirri vinnu sem á sér stað þar enda ekki í okkar verkahring. Það eru ábyggilega einhverjar misfellur í þessu máli og við bíð- um niðurstöðu lögreglunnar,“ segir Sigurður. -rt Magnesíumverksmiðja: Allt á fullt um áramótin DV, Suðurnesjum: „Við erum alltaf að þokast nær án þess að rekast á neitt sem stöðvar okkur. Stefnan 'er að geta sagt um áramótin að við förum af stað með byggingu verksmiðjunnar," sagði Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja. íslenska magnesíumfélagið hf. var með opið hús í húsakynnum hitaveitunnar. Þar fór fram kynn- ing á mati umhverfisáhrifa fyrir- hugaðrar byggingar magnesíum- verksmiðju við Sandhöfn. Júlíus segist vilja kynna verksmiðjuna sem allra best og fá athugasemdir sem fyrst svo að hægt sé að bregðast við þeim, ef einhverjar eru. Hann hefur frá byrjun verið og er enn mjög varkár í orðum um hvort verksmiðjan rísi. Þeir aðilar sem DV hafði samband við voru allir sammála um eitt. Það er ekki verið að tala um hvort verksmiðjan rísi heldur hvenær. Eftir 10 daga verður haldinn tæknffundur í Þýskalandi þar sem farið verður yfir næstu at- riði. Búið er að vinna að endanlegri fjármögnun en á fundinum verður tekin fyrir hönnun ásamt arðsemis- útreikningi sem verður lagður fram um áramótin. -ÆMK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.