Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1997, Side 11
FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1997
11
Fréttir
Drangsnes:
Heitt vatn við bæjardyrnar
Dy Hólmavik:
Borun eftir heitu vatni í landi
Drangsness gaf þann góða árangur í
síðustu viku að upp komu 13,3 sek-
úndulítrar af tæplega 60 gráða heitu
vatni. Höfðu þá verið boraðar sex
holur. Þegar farið var aftur í holu
nr. 5 og hún dýpkuð í 133 metra þá
náðist þessi árangur.
Að sögn Guðmundar Björgvins
Magnússonar oddvita var í upphafi
leitað að köldu vatni þegar fyrst var
borað i ársbyrjun 1996 eða fyrir
tæpu 1 y2 ári. Kristján Sæmundsson
jarðfræðingur, sem hefur verið
sveitarstjórnarmönnum í Kaldrana-
neshreppi innan handar um ráðgjöf,
hafði lagt til að leitað yrði fyrst í
landi Drangsness að heitu vatni
áður en ráðist yrði i ffamkvæmdir
við Hveravík. Þar er verulegt magn
af heitu vatni en sá annmarki á að
sú jörð er í nokkurra kílómetra fiar-
lægð frá kauptúninu. Hvort tveggja
var á verkefnaskránni hjá sveitar-
stjóm.
Ekkert vatn fannst
Kristján mældi svo út fyrstu hol-
una sem hann taldi að gæti bæði
geflð upplýsingar um hvort þar
væri kalt vatn að fmna og segði
einnig til um hitastigul í jarðlögum
sem gæti svo gefið vísbendingu um
heitt vatn í jörðu. Sú 100 metra hola
sem þá var boruð gaf til kynna að
hiti i jörð væri allnokkuð hærri, eða
26 gráður, en jafnan kemur ffam á
svæðum sem teljast köld, en ekkert
vatn fannst. Á síðasta og fyrri hluta
þessa árs var svo farið í vinnu
tengda þessu máli. Sveitarfélagið
eignaðist jörðina sem var í eigu rík-
isins og viðræður hófust við Orku-
bú Vestfjarða, sem samkvæmt lög-
um hefur einkarétt á virkjun og
sölu jarðhita á svæðinu.
„Við vorum komin eins langt í
þeim viðræðum og við töldum okk-
ur þurfa í bili. Við gerð síðustu fjár-
hagsáætlunar var ákveðið að ráðast
í frekari framkvæmdir og í fram-
haldinu gerður samningur við
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða
um verkið. Vinna hófst 2. júní sem
bar þennan árangur 8 dögum síðar.
Heildarkostnaður liggur ekki fyrir
en gæti verið á bilinu 1-1 % milljón
króna,“ sagði Guðmundur.
Dreymir um sundlaug
Á Drangsnesi eru hátt í 50 hús og
er markmið að íbúar og eigendur fái
notið þeirra gæða sem vatnið býður
upp á. Munu margir möguleikar
bjóðast i þeim efnum i framtíðinni.
„Við hugsum okkur að bjóða at-
vinnufyrirtækjum ódýrari orku en
þau nú eiga kost á og þar með vænt-
anlega örva nokkuð athafnalíf. Ekki
síst er það hugsun okkar og ásetn-
ingur að gera líf íbúa ögn skemmti-
legra og þægilegra, t.d. með gerð
sundlaugar. Umfram allt vonumst
við til að við verðum gæfusöm í
þeim verkefnum sem við tökum fyr-
ir í framhaldinu," segir Guðmund-
ur.
Guðmundur Björgvin með slönguna. Þar rennur tæplega 60 gráða heitt vatn. DV-mynd Guðfinnur
Rúnar Þór og séra Bragi J. Ingibergsson á tröppum Knappsstaðakirkju að
athöfn lokinni. Mynd: MGG
Knappsstaöakirkja:
Fýrsta ferming í 43 ár
DV, Fljótnm:
„Drengurinn vildi fermast í
Knappsstaðakirkju og þvi var vel
tekið af prestinum þannig að at-
höfnin fór þar fram. Það var nú að-
allega fjölskyldan sem var viðstödd
og svo organisti og kirkjukór,“
sagði Hulda Erlendsdóttir, hús-
freyja á Reykjarhóli. Sonur hennar
og Núma Jónssonar var fermdur í
Knappsstaðakirkju í Fljótum á sjó-
mannadaginn.
Rúnar Þór Númason var eina
fermingarbamið í Fljótum þetta vor-
ið og því var auðvelt að verða við
því að athöfnin væri framkvæmd á
Knappsstöðum. Þetta væri í sjálfu
sér ekki fréttnæmt nema fyrir það
að 43 ár em liðin frá því síðast var
fermt í Knappsstaðakirkju. Það var
vorið 1954 þá vora fermingarbömin
4, öll búsett i Knappstaðasókn.
Langt er síðan Knappsstaðir vora
aflagðir sem kirkjusókn og tilheyra
Fljótin síðan öll Barðssókn. Fyrir
nokkrum áram tók hópur fólks sig
til og hóf endurbætur á Knapps-
staðakirkju og má segja að henni
hafi þar með verið bjargað frá því
að grotna niður. Nú er kirkjan
snyrtilegt hús og hafa farið þar
fram nokkrar kirkjulegar athafiiir
síðan endurbótum lauk, enda hafa
margir taugar til þessa gamla og
vinalega guðshúss. -ÖÞ
Hótelið opnaö á ný
DV, Ólafsfiröi:
Hótelið á Ólafsfirði var opnað á
ný um síðustu helgi eftir margra
mánaða lokun. Það var Sæunn Ax-
els hf. sem keypti hótelið af Skelj-
ungi hf. Hótelstýra er Klara Björns-
dóttir.
Söluskáli sem Skeljungur byggði
við hótelið hefur einnig verið opn-
aður. Hjónin Kristinn Ásmundsson
og Jakobína Pálsdóttir sjá um dag-
legan rekstur hans. Það verður sam-
vinna á milli hótelsins og söluskál-
ans þótt þessar tvær einingar verði
reknar á aðskildan hátt.
í tilefni opnunarinnar var bæj-
arbúum boðið upp á grillaðar pyls-
ur við söluskálann og gestir fengu
að skoða hótelið. Kristinn Bjöms-
son, forstjóri Skeljungs, var við-
staddur opnun hótelsins. -HJ
Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri:
Trausti ráðinn framkvæmdastjóri
DV, Akureyri:
Trausti Þorsteinsson, fyrrver-
andi fræöslustjóri á Norðurlandi
eystra, hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Rannsóknarstofnun-
ar Háskólans á Akureyri.
Trausti hefur mikla reynslu sem
skólastjómandi og hefur setið á veg-
um stjómvalda í ýmsum nefndum
sem fialla um menntamál. Þá var
Trausti forseti bæjarstjómar Dal-
víkur á síðasta kjörtímabili. Trausti
tekur við starfmu af Gunnlaugi Sig-
hvatssyni sjávarútvegsfræðingi sem
hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Hólmadrangs hf. á Hólmavík.
-gk
Sumar
Tilboð
U-i
3
■M
AIR fUGHT
TURBULENCE
NIKE götu og körfuboltaskór.
Loftsóli í hæl.
Mjúkur phylon miðsóli.
Stærðir 38,5—47
Áður kr 8.990,-
Nú kr 6.650,-
Stærðir 32-38,5
Áður kr. 6.990,-
Upplýsingar um
Nú kr. Sm 990,-
sö\u7l<5\\z gefur Gula Línan 580-8000.
C)\ íst t*r að auglýstar tegundir séu til á öllum sölustödiim á tíma auglýsingar.