Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1997, Side 28
FRETTASKOTIÐ
SIMINN sem aldrei sefur
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gaett. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ1997
Sting í
•einkaviðtali
Sting verður í einkaviðtali við
helgarblað DV. Tónlistarmaðurinn
er væntanlegur hingað til lands í
næstu viku þar sem hann mun
halda tónleika. Sting hlakkar til að
koma til íslands en getur því miður
ekki stoppað nema einn dag. Helgar-
viðtalið er við Helga Tómasson bal-
lettdansara og stjórnanda San Fran-
cisco-ballettsins. Auk þess verður
rætt við Þór Tulinius sem lék í
.jrönsku leikhúsi, ólympíufarana í
eðlisfræði og ungt fólk sem fór í
svaðilfór til Indlands. Auk þess verð-
ur hestaumfjöllun og myndir birtar
af Páli Óskari sem teknar voru af
honum fyrir þýskt tímarit. -em
Norsk loðnuskip:
Reglur í fæðingu
Nýjar reglur stjórnvalda um
tilkynningarskyldu norskra
loðnuskipa í islenskri lögsögu eru
nánast tilbúnar. Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra sagði í
morgun að reglurnar yrðu kynntar
um eða eftir helgi. Iþeim verður
svigrúm norskra loðnuskipa
verulega skert.________-rt
"TFlugþjónn hjá Atlanta:
Léstí
Manchester
23 ára Garð-
bæingur, Sig-
urður Arnars-
son, flugþjónn
hjá flugfélaginu
Atlanta, lést af
slysfórum að-
faranótt 17. júní
í Manchester á
Englandi. Sig-
urður var að vinna að verkefnum
fyrir Atlanta í Manchester. Sigurð-
' *^Ir var til heimilis hjá foreldum sin-
um að Löngumýri 39, Garðabæ.
Hann lætur eftir sig 2 ára dóttur.
L O K I
Alþýöubandalagið eignaraöili aö Helgarpóstinum:
Hlutabréfin
greidd með
blaðstyrknum
- segir Kristinn H. Gunnarsson
„Flokkar eiga ekki að kaupa sig
til áhrifa í fjölmiðlum í skjóli
leyndar. Ég veit ekki annað en
skuldbindingar vegna þessa hafi
farið fram og ætlunin hafi verið að
greiða þessar 3 milljónir króna sem
um ræðir af blaðstyrk flokksins,1'
segir Kristinn H. Gunnarsson al-
þingismaður vegna kaupa Tilsjár,
útgáfufélags Vikublaösins, á 40 pró-
senta hlutafjár í Helgarpóstinum.
Kristinn segir fráleitt að hann sem
þingmaður Alþýðubandalagsins og
framkvæmdastjórnarmaður flokks-
ins hafi ekki fengið að vita af kaup-
unum sem gerð hafi verið af félagi
i eigu flokksins.
„Ég vona bara að það takist að
selja hlutabréfin og við sleppum
þannig klakklaust frá þessu,“ segir
hann.
Páll Vilhjálmsson, ritstjóri Helg-
arpóstsins og stjómarmaður í Les-
máli, útgáfúfélagi blaðsins, segir að
þama hafi verið um að ræða til-
raun sem ekki hafi tekist.
„Það átti að vera samstarf um
framleiðsluþætti, umbrot og þess
háttar. Þá var hugmynd að dreif-
ingim yrði að hluta sameiginleg.
Það sem gerist er að nýr fram-
kvæmdastjóri Vikublaðsins hafði
aðrar áherslur. Hugmyndin var því
ekki þróuð nánar,“ segir Páll
Páll segir að hugmyndin hafi
ekki gengið upp af áðumefhdum
ástæðum og því hafi nú verið
ákveðið að starfsmenn Helgarpósts-
ins kaupi hlut Tilsjár og leysi
þannig Alþýðubandalagið frá eign-
araðildinni.
„Þetta var tímabundin ráðstöfum
um að þeir ættu hlut að Lesmáli.
Það liggja fyrir stjómarsamþykktir
beggja félaga frá því í vetur um að
starfsmenn kaupi þennan hlut og
það verður gengið frá því á næstu
dögum,“ segir Páll. -rt
Þeir voru hressir, Anton Kristvinsson og Atli Vignisson, starfsmenn fiskvinnslu KEA í Hrísey, í gær en þá unnu þeir
höröum höndum viö aö „glenna ýsuhausa". Hausarnir eru síöan þurrkaöir og hafna svo á boröum Nígeríumanna
sem þykir þetta hiö mesta sælgæti.
DV-mynd gk
Sakadómur í Istanbul:
Sophia vill
ráðherra út
Dómari í sakadómi í Istanbul úr-
skurðaði í sakamáli Sophiu Hansen
gegn Halim A1 í morgun að fresta mál-
inu fram til 24. september í haust.
Sophia höfðaði málið vegna brota
Halims A1 gegn umgengnisrétti henn-
ar við dætur þeirra.
Samkvæmt úrskurði hæstaréttar
landsins eiga dætur Sophiu hins veg-
ar að vera í hennar umsjá í Istanbul
frá 1. júlí til 31. ágúst. Halim A1 mætti
hins vegar í réttinum i morgun og til-
kynnti að dætumar væru farnar til
fjalla og þar yrði Sophia að leita
þeirra, vildi hún nýta umgengnisrétt
sinn við þær.
Sophia Hansen sagði í samtali við
DV nú í morgun að tyrknesk lögreglu-
yfirvöld tækju ekkert mark á undan-
gengnum dómum um umgengnisrétt
hennar og það eina sem dygði til að
koma þeim í skilning um alvarleika
málsins væri að íslensk stjórnvöld
legðust af fullum þunga í málið og
krefðust þess af þarlendum stjómvöld-
um að farið yrði að lögum og undan-
gengnum dómum og umgengnisrétti
hennar yrði fullnægt. „Það eina sem
þeir myndu skOja er að ráðherra
kæmi hér út, því það þarf mikið afl til
að ógna þessum mönnum hér,“ sagði
Sophia Hansen. -SÁ
Selvogsbanki:
Humarbátur
tekinn
Humarbáturinn Hásteinn ÁR var
tekinn við ólöglegar veiðar á frið-
uðu svæði á Selvogsbanka skömmu
eftir miðnætti sl. nótt. Það var
áhöfn flugvélar Landhelgisgæslunn-
ar, TF-SÝN, sem varð ferða bátsins
vör þar sem hún var í eftirlitsflugi.
Á umræddu svæði era allar togveið-
ar bannaðar en Helgi Hallvarðsson,
yfirmaður Gæsluframkvæmda, seg-
ir að skipstjórinn hafi látið í ljós við
tökuna að hann teldi sig mega veiða
á svæðinu. Báturinn kom til Þor-
lákshafnar i morgun. -rt
Akureyri:
Ekkert raf-
magn i nótt
DV, Akureyri:
Akureyringar voru án rafmagns í
nótt og urðu þeir hissa í morgunsárið
sem ekki höfðu heyrt tilkynningar um
lokunina fyrirfram.
Ástæða rafmagnsleysisins var að
starfsmenn Landsvirkjunar og Raf-
magnsveitu ríkisins vora að vinna að
hefðbundinni yfirferð á búnaði sínum
í bænum en slík yfirferð er farin á
eins til tveggja ára fresti. Rafmagn fór
af bænum upp úr miðnætti og kom á
aftur klukkan hálfsjö í morgun. -gk
Veöriö á morgun:
Víða bjart
veður
Á morgun verður hæg norð-
austlæg átt og víða bjart veöur
en norðaustankaldi og skúrir
við suðausturströndina. Hiti
verður á bilinu 8-17 stig, hlýj-
ast suðvestanlands.
Veðrið í dag er á bls. 36
Fjórhjóladrifinn fjölskyldubíll
- hannaður fyrir fslenskar aðstæður
CR-V Sjálfskiptur með tveimur
loftpúðum kostar frá 2.270.000,
EJ
HONDA
S: 568 9900