Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1997, Side 2
2
MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1997
Fréttir__________________________________________________________________________________ pv
Hlutur íslands í norsk-íslenska síldarstofninum:
Verðmætum sem nema
80 þús. á mannsbarn skipt
- einstök skip fengju allt aö 700 milljóna kvóta
íslensk útgerðarfyrirtæki munu
stórauka verðgildi sitt þegar norsk-
íslensku síldinni verður kvótaskipt.
Yfirgnæfandi líkur eru á því að á
næstu árum verði skipt upp þeim
233 þúsundum tonna sem íslensk
stjómvöld hafa ákveðið að sé hæfi-
legur hluti stofnsins til íslendinga.
Þar með mun þessi stofn taka á sig
verð svo sem aðrir fiskistofnar ís-
lenskir sem settir hafa verið undir
kvóta. Gífurlegir hagsmunir eru
fyrir íslenskar útgerðir í þessum
flökkustofni sem er i sameign Norð-
manna, íslendinga og Færeyinga.
90 krónur á kíló
Söluverð kvóta úr íslensku vor-
gotssíldinni er um 114 krónur en
leiguverð sama kvóta innan ársins
Fréttaljós
Reynir Traustason
er um 11 krónur. Það má vera ljóst
að norsk-íslenska síldin mun ekki
taka á sig sama verð vegna þess hve
langt þarf að sækja til veiðanna. Ef
miðað er við sama verðmun og er á
úthafskarfa og karfa í íslenskri lög-
sögu má reikna með að verömæti
norsk-íslensku síldarinnar verði um
90 krónur á hvert kíló. Samkvæmt
sömu forsendum yrði leiguverö
hennar um 9 krónur á hvert kíló.
5000 lúxusjeppar
Samkvæmt þessu yrði heildarverð-
mæti íslenska hluta kvótans um
rúmir 20 milljarðar króna eða sem
nemur femum Hvalfjarðargöngum. f
öðm samhengi má líta þannig á að
fyrir þessa upphæð mætti fá 5 þús-
und lúxusjeppa sem hver mætti
kosta 5 miOjónir króna. Þá mætti fá
fyrir þessa upphæð sem nemur 11
frystitogurum sem kosta mættu einn
miOjarð hver. Loks má deOa verð-
mæti kvótans á hvert mannsbarn í
landinu og þá koma í hlut hvers ís-
lendings 80 þúsund krónur. Slík upp-
skipti koma þó varla tO greina þar
sem kvóti er í raun eign útgerðar-
manna en ekki sameign þjóðarinnar
hvað svo sem lög segja.
Æðisgengið kapphlaup
Æðisgengið kapphlaup er um að
fá sem stærstan hlut af þessari
köku. Enda er mikið í húfi fyrir ein-
stakar útgerðir sem gætu fengið aOt
Verðmæti
sfldarkvótans
- samanburöardæmi -
Gert er ráð fyrir að kvótinn sé
metinn á 21 milljarð króna
sem jafngildlr
4000 Grand Cherokle-jeppum
og myndi einnig
jafngilda
21 frystitogara
eða 80 þúsund krónum
fyrir hvern íslending
Forseti ítalfu í opinberri
heimsókn á íslandi
Oskar Luigi Scalfaro, forseti ítal-
íu, kom í opinbera heimsókn tO ís-
lands í gær. Heimsóknin stendur
fram á þriðjudag. ScaO'ario, sem
kom hingað tO lands með dóttur
sinni, Mawrianna Scalfaro, heim-
sótti í gær borgarstjórann í Reykja-
vík og Alþingi. Einnig sat hann
kvöldverð í boði íslensku forseta-
hjónanna á Bessastöðum.
Gestir, auk forsetanna beggja,
voru meðal annars forsetaritari ítal-
íu, ítalski utanríkismálaráðgjafi for-
seta og sendOierra Ítalíu. Meðal ís-
lensku gestanna voru Davíö Odds-
son forsætisráðherra og frú Ástríð-
ur Thorarensen, Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra, Friðrik Soph-
usson fjármálaráðherra, frú Sigríð-
ur Dúna Kristmundsdóttir, Ingi-
björg Pálmaddóttir heObrigðisráð-
herra og hr. Haraldur Sturlaugsson,
PáO Pétursson félagsmálaráðherra
og frú Sigrún Magnúsdóttir.
Szymon Kuran lék á fiðlu, Jónas
Ingimundarson á píanó og Þóra Ein-
arsdóttir söng undir borðhaldinu.
í ræöu sinni sagði Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti íslands, meðal
annars frá því að íslenskir söngvar-
ar, tónlistarfólk og málarar hafi á
okkar tíð sótt þjálfun, innblástur og
endurnýjun til ítalskra snOlinga og
lærimeistara. Hann sagði að saga ís-
lands og Ítalíu hafi um aldir verið
samofin og tók ýmis dæmi um það.
Forseti Ítalíu mun í dag snæða
hádegisverð á ÞingvöOum í boði for-
sætisráðherrahjónanna. Um kvöldið
verður hann með móttöku fyrir ítali
sem búsettir eru á íslandi. Á þriðju-
dag heimsækir forsetinn sjávarút-
vegsfyrirtækið Granda hf. og hug-
búnaðarfyrirtæki Oz. Einnig skoðar
hann handrit í Stofnun Áma Magn-
ússonar. -em
9.000 þús. tonn
8164
8.000
7.000
6.000
3.000
2.000
1.000
0
Afli síldarskipa
7.409
-í þús. tonna 1997
6.895
6-484 6.396 6.355
6.106
5.501 5.440 5.386
2
SL
'3
*
<
1
c
2
!>
x
z
:0
OQ
3
</)
1
(0
E
'O
c
'BJ
X
UJ
>
Q.
re
X
IU
>
0>
(I)
s
c
re
'3
</)
L&J
>
<o
4
</)
X
o
c
o
10
<0
iO
4
<75
c
'O
ITOT
að 8 þúsundum tonna í sinn hlut.
Þar eru á ferðinni verðmæti sem
vissulega gætu skilið á milli feigs og
ófeigs í útgerð því ef þessi tonn eru
reiknuð upp þá myndu þau leggja
sig á 720 milljónir króna. Ef reiknað
er með aö meðalskip fái um 5 þús-
und tonna kvóta er þar matarhola
uppá tæplega hálfan milljarð. Sé
sömu reiknireglu beitt og síldar-
kvóta skipt í lúxusjeppa þá liggur
fyrir að meðalútgerð fær sem nem-
ur andvirði 100 slíkra.
Tekið skal fram að þessir útreikn-
ingar miðast við að stofninum sé
kvótaskipt en þó má ljóst vera að
heildarverðmæti íslenska hlutans
innan eða utan kvótakerfisins er ná-
lægt umræddri upphæð. Hvenær
stofninum verður skipt upp milli
hagsmunaaðila ræðst af pólitískri
niðurstöðu. Þar em spurningar um
það hvort semst við Norðmenn um
skiptinguna og þannig verði friður
milli þjóðanna um málið. Þá er enn
ekki ljóst hvað verður lagt til gmnd-
vallar kvótanum. Þar kemur til
greina veiðireynsla síðustu þriggja
ára að hluta og ákveðinn skammtur
á skip að hluta grundvallað á stærð-
um skipa. Jakob Jakobsson, hjá Bát-
um og búnaði, sem annast sölu á
skipum og kvótum sagöi í samtali
við DV að enn væri ekki farið að
bóla á vangaveltum um kaup eða
sölu á síldarkvótum.
„Þetta mun að sjálfsögðu auka
veðhæfni einstakra skipa gifurlega
og menn vita af þessum verðmæt-
um. Það er viðbúið að menn fari að
íhuga þessi viðskipti þegar nær
dregur,“ segir Jakob.
Gífurlegir hagsmunir
Bæði íslensk og norsk stjórnvöld
eru meðvituð um þá gífurlegu hags-
muni sem fólgin em í síldinni. Sig-
urðarmálið er skólabókardæmi um
þá áherslu sem þjóðimar leggja á
þaö að verja þá hagsmuni. Norð-
menn nota smámál svo sem brot á
tilkynningarskyldu sem yfirskin til
að færa skip að landi og hásettir ís-
lenskir embættismenn storma til
Noregs til að verja hagsmuni út-
gerðarinnar. I raun snérist málið
alls ekki um tilkynningarskyldu frá
Sigurði VE heldur þann 21 milljarð
króna sem íslensk stjómvöld hafa
merkt sér úr norsk- íslenska slldar-
stofhinum. Það stefnir því nú í
stærstu uppskipti á kvóta allt frá
því kvótakerfið var tekið upp.
Spumingin er aðeins sú hverjir
hreppa pottinn þegar silfur hafsins
breytist í gull.
Stuttar fréttir
Staöfest
Áfrýjunarnefhd Samkeppnis-
ráðs hefur að sögn RÚV staðfest
skilyrði Samkeppnisráðs fyrir
því hverjir megi sitja í stjóm
Flugfélags íslands. Flugleiðir
vildu fá úrskurðinn felldan úr
gildi. Vegna yfirburöastöðu Flug-
leiða á innanlandsmarkaði taldi
Samkeppnisráð nauðsynlegt að
setja ströng skilyrði fyrir þessu.
Þetta kom fram hjá RÚV í gær.
Búddistar í Kópavog
Búddistar em orðnir sammála
um að rétt sé að reisa musteri
þeirra í Kópavogi. Áður hafði ver-
ið tekin ákvörðun um að búdda-
hof risi við Innsta-Vog á Akra-
nesi. Tælenskir fjárfestar sem
leggja munu fé í musterið vilja að
það rísi í iandi Vatnsenda í Kópa-
vogi. RÚV skýrði frá þessu.
Sameining
Fiögur verkalýðsfélög í Húna-
vatnssýslu hafa ákveðið að sam-
einast i eitt félag. Þetta eru
Verkalýðsfélagið Hvöt á
Hvammstanga, Verkalýðsfélag A-
Húnvetninga á Blönduósi, Verka-
lýðs- og sjómannafélag Skaga-
strandar og Verslunarmannafélag
Húnvetninga á Blönduósi. Um 800
manns verða í nýja félaginu. Þrjú
Util félög vildu ekki vera með í
sameiningunni. RÚV skýrði frá
þessu.
Póstur og sími í sundur
Ákveðið hefúr verið að Pósti og
síma verði skipt upp í tvö
hlutafélög. í fyrra var Pósti og
síma breytt í hlutafélag alfarið í
eigu ríkisins. Sömuleiðis verða
þessi tvö nýju hlutafélög í eigu
ríkisins, alla vega til að byrja
með.
Hvalakirkjugaröur
Fundist hefur mikið magn
hvalbeina á botni Eyjafiarðar,
rétt undan við Árskógsströnd. Á
árum áður voru miklar hrefnu-
veiðar stundaðar frá Árskógs-
strönd og mun hræjunum hafa
verið fleygt i sjóinn úti fyrir
ströndinni. -Sdór
Geir H. Haarde, Guömundur Árni Stefánsson, Ragnar Arnalds, Ólafur Ragn-
ar Grímsson og Oskar Luigi Scalfaro, forseti Ítalíu, við móttökuna á Bessa-
Stöðum. DV-mynd ÞÖK