Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1997, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1997, Side 4
4 MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1997 Fréttir Fjölmenni á útihátíö í tilefni afmælis Tígra og Krakkaklúbbs DV: Þúsundir í Þverholtinu Þrjú þúsund böm og aðstandend- ur þeirra vom viðstödd afmælis- veislu Tígra og Krakkaklúbbs DV í gær. Tígri, sem er lukkudýr Krakkaklúbbs DV, hélt upp á fimm ára afmæliö sitt í gær í Þverholtinu með útihátíð. Bömin skemmtu sér konunglega við dans og söng. Hljómsveitin Fjörkarlamir héldu uppi fjörinu og fengu sumir krakk- ar einnig að bregða sér á sviðið og taka lagiö Magnús Scheving kom og skemmti bömunum með eróbikki. Afmælisbamið var í afinælisskapi. Magnús Scheving hefur lag á aö fá börnin til þess að hreyfa sig. Hann kenndi eróbikk i Þverholtinu í gær. Starfsmenn Krakkaklúbbs DV mál- uöu mörg barnanna eins og Tfgra. Börnin voru hæstánægö meö þaö. DV-myndir PÖK Tígri bauð öllum krökkum upp á pylsur, svala, hlunka og sælgæti. Þeir sem höfðu kjarkinn fóru í æv- intýraferð í Geimsnerlinum. Yfir tíu þúsund krakkar em nú í Krakkaklúbbi DV. Krakkaklúbbur- inn er mjög starfsamur og fylgist fjöldi bama með Krakkaklúbbs- hominu í Barna-DV á hverjum laugardegi. Krakkaklúbburinn hef- ur auk þess staðið fyrir ýmsum upp- ákomum eins og ferð á Tjömina og bíóferðum. Tvær bækur hafa verið gefnar út um Tígra og em þær ís- landsævintýri Tígra og Tígri í um- ferðinni. -em Þúsundir barna skemmtu sér (Þverholtinu í gær þegar þau héldu uppá fimm ára afmæli Tígra og Krakkaklúbbs DV. Sleipnismenn: Sömdu eftir stutt verkfall Bifreiðastjórar í Sleipni skrifuðu undir nýjan kjarasamning síðdegis á laugardag. Þá hafði verkfall þeirra staðið yfir frá þvi um morg- uninn. Með þessum samningi hækka gmnnlaun langferðabifreiðastjóra úr 64 þúsund krónum á mánuði í 71 þúsund krónur. Báðir aöilar deil- unnar lýstu ánægju sinni meö samninginn en sögðust hafa þurft að gefa nokkuð eftir. Þar með er þungu fargi létt af fólki í ferðamannaþjónustunni. Það hafði lýst yfír ótta um aö verk- fall langferðabifreiðastjóra myndi setja ferðamálin algerlega úr skorðum. -S.dór Þórarínn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSf, og Óskar Stefánsson, formaöur Sleipnis, undirrita nýjan kjarasamn- ing. Geir Gunnarsson varasáttasemjari situr á milli þeirra. DV-mynd Hari Dagfari Tilsjá með Helgarpósti Þeir era seigir kommamir, þeir mega eiga það. Það er nú komið á daginn að þeir keyptu með leynd 40 prósenta hlutaijár í Helgarpóstin- um. Margrét formaður lét ekki alla vita af kaupunum en upplýsir þó að Svavar hafi verið meðvitaður um þetta vikulega flokksblað alla- ballanna. Það er gott að vita til þess að stjómmálaflokkar á íslandi era þaö vel haldnir að þeir geta fjárfest í vikublaöi. Helgarpósturinn á sér skrautlega sögu, hefúr farið á haus- inn og lifiiað við aftur. Stimdum hét hann ekki Helgarpóstur heldur Pressan en munurinn var lítill. Blaðinu var ætlaö að stinga á kýl- um í samfélaginu. Það gekk stund- um og stundum ekki. Um hríö var blaðið hliðtengt Alþýðuflokknum en svo slitnaði sá naflastrengur. Þaö kom því á óvart þegar það fréttist aö blaðið væri komið í fóst- ur hjá öörum sljómmálaflokki, Al- þýðubandalaginu. Sérstaklega þótti þaö sérkennilegt þar sem núver- andi ritstjóri blaðsins skrifaöi sinn fyrsta leiöara um þaö að fjölmiðlar þyrftu að geta staðið á eigin fótum og haft í fullu tré við sterk hags- munasamtök. Þegar ritstjórinn skrifaöi leiðarann vissi hann að Al- þýðubandalagið átti 40 prósent í blaöinu. Kannski hefur hann ekki litiö á þennan anga fjórflokksins sem sterk hagsmunasamtök. Með tilliti til nýrra upplýsinga er nafn hlutafélags allaballanna, sem á þessi 40 prósent í blaðinu, vel til fundið. Það heitir Tilsjá og því fer ekki milli mála að Alþýðubanda- lagið hefur tilsjá með Helgarpóstin- um. En þótt Helgarpóstsritstjórinn hafi vitað af kaupunum vissu það ekki allir. Jafhvel ekki þingmenn Alþýðubandalagsins og ættu þeir þó að teljast í innsta hring flokks- ins. Helgarþósturinn, þessi óvænta eign flokksins, hefur farið svolítið fyrir bijóstið á sumum þeirra, einkum brjóst Kristins H. Gunn- arssonar. Hann segir að blaðstyrk- ur Alþýöubandalagsins hafi farið í kaupin á hlutafé í Helgarpóstinum. Tilgangurinn sé augljós, sá aö kaupa flokknum áhrif í fjölmiðli. Það hafi verið gert í skjóli leyndar. Flokkar ráðstafa auðvitað pen- ingum eins og þeir telja þeim best varið. Alþýðubandalagiö taldi enga fjárfestingu betri en að kaupa nær helming í Helgarpóstinum. Það veröur aö virða þetta mat. En eitt- hvað verður flokkurinn að fá fyrir sinn snúð. Svo mikið hafa fjárfest- ar lært í seinni tíð. Þótt flestir teldu flokksblöð heyra sögunni til gerir Alþýðubandalagiö það ekki. Vikublaðið var opinberlega á þess vegum. Menn vissu af tilvist þess. Nú hefur verið greint frá tengslum flokksins og Helgarpóstsins. Menn hljóta því að meta efni blaðsins með hliðsjón af tilsjóninni. Það verður því fróðlegt að lesa næsta leiðara Helgarpóstsritstjór- ans. Kemur hann út úr skápnum og viðurkennir að hann ritstýri flokksblaði? Geri hann það hlýtur hann að lýsa því yfir að hann sé stoltur af því. Hinn möguleikinn er að hann endurtaki það sem hann sagði I fýrsta leiðaranum. Fari hann þá leið, sem er mann- leg en ekki stórmannleg, ætlar hann sér væntanlega að eiga í fúllu tré við sterk hagsmunasamtök - önnur en Alþýðubandalagið. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.