Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1997, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1997
17
3000 verður hægt að setja niður tíu
mismunandi byggingasvæði svo
einungis eitt dæmi sé tekið af
handahófi. Hönnuðir leiksins lofa
þó þvi að leikurinn verði ekki of
flókinn.
Eins og áður var getið kemur
leikurinn fyrir PC tölvur í október.
Eigendur Nintendo 64 tölva ættu að
geta nálgast hann mánuði síðar.
Reiknað er með að hann komi út
fyrir Macintosh út snemma á
næsta ári. Svo er bara að híða eftir
öllum viðbótunum svo ekki sé
minnst á SimCity 4000 en hann er
einnig væntanlegur.
JHÞ/Byggt á Gamezone
Glæsileg grafík er í SimCity 3000.
Hægt er að smella á íbúa borgarinn-
ar sem verið er að skapa og spyrja
þá um þau vandamál sem helst
brenna á þeim.
Nýr SimCity-leikur á leiðinni
Tækifæri til að
, gera betur en
Árni eða Ingibjörg
Þegar „borgarstjórahermirinn“
SimCity frá Maxis kom á markað-
inn fyrir átta árum er óhætt að full-
yrða að leikurinn hafi bylt leikja-
heiminum. Leikurinn þykir frekar
vanþróaður í dag enda grafíkin í
tvívídd og einhæf. Það var þó hug-
myndin bak við leikinn sjálfan sem
gerði hann vinsælan, ótrúlega
margir töldu sig geta leikið borgar-
stjóra og tryggt íbúum „sýndarborg-
ar“ meiri velferð en flestir stórborg-
arbúar njóta.
Kemur í október
EYrir nokkrum árum kom
SimCity 2000 út og þótt leikurinn
sjálfur hefði ekki breyst mikið var
búið að setja þrívíddargrafík í stað-
inn fyrir gömlu tvívíddina. Mörgum
aðdáendum gamla leiksins fannst
þó eins og eitthvað vantaði. Þrátt
fyrir það seldist SimCity 2000 eins
og heitar lummur enda upprunalega
hugmyndin ansi lífseig. Nú ætla
þeir hjá Maxis að reyna að hrífa
tölvuleikjakaupendur í þriðja sinn
með nýjum SimCity-leik.
Nýi leikurinn hefur hlotið hið
frumlega nafn, SimCity 3000. Graf-
íkin í honum lítur út fyrir að vera
ansi mögnuð en ljóst er að ekki hef-
ur verið hreyft mikið við grunnhug-
myndinni að leiknum sjálfum.
Steffen Bartschat, stjórnandi liðs-
ins bak við SimCity 3000, segir að í
raun sé hægt að skipta leiknum í
tvennt. í fyrsta lagi sé hann spilað-
ur „á götunni“, i öðru lagi sé hann
spilaður i gegnum heildarmynd af
allri borginni.
Auðvelt er fyrir spilarann að ferð-
ast eftir götum borgarinnar sem
hann stjórnar. Þar ber fyrir augu
gangandi vegfarendur, bíla (oft fasta
í umferðarteppu) og flugvélar fljúga
yfir. Hægt er að smella á borgarbúa
með músinni og þá segja þeir frá
þvi hvaða vandamál brenna helst á
þeim. Umhverfið og
fólkið er að sjálfsögðu
ólíkt eftir því hvar
spilarann ber niður í
borg sinni. Ef hann
ferðast um iðnaðar-
hverfm sér hann mik-
ið af mengun, vörubíl-
um og verkamönnum. Fari hann
um viðskiptahverfið ráða menn í
jakkafótum með stresstöskur ríkj-
um. Tryggt á að vera að engin bygg-
ing eða íbúi líti eins út þannig að
spilarar ættu að geta skemmt sér
vel við að skoða borgina sem þeir
hafa sjálfir skapað.
Flóknari en áður
Þó leiknum hafi ekki verið breytt
mikið í grundvallaratriðum er ljóst
að sá nýi er mun flóknari en hinir.
í fyrri leikjunum var einungis hægt
að setja niður byggingarsvæði fyrir
verslun, íbúðir og iðnað. í SimCity
Tímahjólið snýst
Legend Entertainment mun gefa út
þrívíddarskotleikinn The Wheel of
Time á næsta ári en hann mun vera
byggður á samnefndum bókaflokki
eftir Robert Jordan. Aðal höfundur
leiksins er Glen nokkur Dahlgren.
Þráttfýrir að fyrirtækið hafi áttí ein-
hverjum
vand-
ræðum
með að
tryggja
sér
dreif-
ingaaö-
ila að
leiknum
ríkir
nokkur
eftir-
vænting
meðal tölvuleikjafólks erlendis eft-
ir því að hann komi út.
Sagt er að líkja megi The Wheel of
Time við Hexen 2 og mun glæsileg
grafíkin sennilega krefjast MMX ör-
gjörva. Hann mun fyrst og fremst
byggja á hasar og látum en einnig
munu spilarar þurfa að bregða sér
í hlutverkaleik.
Dungeon Keeper
loksins að koma út
Ævintýraleikurinn Dungeon Keeper
frá Electronic Arts hefur verið í tvö
árí þróun en nú hyllir loksins und-
ir að hann verði gefinn út. Það er
frekar erfitt að flokka leikinn, í hon-
um mun vera að finna einkenni á
mörgum leikjategundum. Umgjörð
hans er þó ansi óhugnanleg. Hlut-
verk þess sem spilar leikinn er að
stjórna dýflissu sem er full af illa
lyktandi kvikindum sem þarf að
halda mettum og inni í dýflissunni.
Ennfremur þarf aö berjast við utan-
aðkomandi óvini sem vilja brjótast
inn og stela fjársjóðum þeim sem
þar eru.
Dýflissan er á 30 hæðum og þar er
að finna 22 mismunandi kvikindi,
allt frá eldspúandi drekum til ófrýni-
legra orka. Til að spila leikinn þarf
Pentium 60 tölvu og 8 megabita
innra minni.
Meira blóð
Framhaldið af hinum umdeilda leik,
Quake, mun koma út von bráðar.
Höfundar leiksins hjá idSoftware
segja að skrimslin í leiknum verði
„gáfaðri" og þrivíddargrafíkin verði
fullkomnari. Activison
mun dreifa leiknum en
það fyrirtæki hefur þeg-
ar séð um dreifingu auka-
diska fyrir Quake.
Allt í botni
Nýr þrívíddarkappakst-
ursleikur sem bera mun
þeitið MagZone er vænt-
anlegurt búðir í október.
I leiknum verður hægt að
velja um fimm mismun-
andi bíla og veröur lögð
áhersla á að gera keyrsluna sem
raunverulegasta. Þó verður hægt
að klekkja á andstæðingum meö
meinleysislegum hrekkjabrögðum
Nýr Tetrisleikur fyrir
Nintendo 64
Þann 11. ágúst verður leikurinn
Tetrisphere fyrir Nintendo 64 loks
gefin út. Eigendur Nintendo 64
leikjatölva hafa beðið óþreyjufullir
eftir þessari sérkennilegu útgáfu af
rússneska leiknum Tetris sem Al-
exei Pajitnov geröi þegar Amiga tölv-
ur voru það langflottasta sem til
var á tölvumarkaðinum og PC tölv-
ur og Macintosh tölvur voru aðhlát-
ursefni (vonandi er enginn sár).
Tetrisphere kemur frá kanadíska
fyrirtækinu H20 og gengur út á svip-
aða hluti og forngripurinn Tetris. I
þetta skipti þarf að koma fyrir alls-
konar löguðum kössum fyrir í kúlu.
Þó þetta hljómi kannski ekki spenn-
andi fullyrða menn að leikurinn sé
ansi skemmtilegur enda eru lagð-
ar margar erfiðar þrautir fyrir þá
sem leikinn spiia. Tveir spilarar geta
keppt á móti hvor öðrum í leiknum.
Internetið bjargar
tyrkneskum dreng
Þegar sjö ára drengur braut á sér
mjöðmina með því einfaldlega að
detta á leikvelli skólans og kom inn
á sjúkrahús í Istanbúl skildu lækn-
arnir hvorki upp né niður í því
hvað hafði komið fyrir. Til þess að
leysa málið ákváðu þeir að leggja
málið fyrir starfsbræður sína í
Bandaríkjunum. Þeir notuðu nýja
tölvutækni til þess að skanna rönt-
genmyndir af mjöðminni og sendu
myndina í gegnum Intemetið til
sérfræðings í Bandaríkjunum. Það
tók þá ekki nema nokkrar mínútur
að fmna það sem raunverulega am-
aði að drengnum. Hann var með
æxli sem var næstum því ómögulegt
að fjarlægja í Tyrklandi. Tveimur
dögum seinna var drengurinn kom-
inn í meðferð í Massachussets í
Bandaríkjunum.
Ef hann hefði ekki notið nýrrar
tækni hefði hann að öllum likindum
þurft að sætta sig við fótlun og stöð-
ugan sársauka það sem eftir lifði
ævi hans. Þetta dæmi sýnir hversu
ný tölvu- og nettækni nýtist vel íbú-
um afskekktra svæða sem nú geta
fengið auðveldan aðgang að hæfustu
sérfræðingum heimsins.
„Við erum auðvitað mjög spennt-
ir yfir þessu, það er enginn annar
sem er að gera svona hluti ennþá,“
sagði Dr. Giles W.L. Boland en hann
er yfirmaður fjargreiningardeildar
spítalans í Massachusetts þar sem
tyrkneski drengurinn var lagður
inn. Það sem er nýtt við þetta dæmi
er hin einfalda og ódýra tölvutækni,
sem er frá fyrirtæki sem heitir
Autocytgroup Inc. Hún er afar ódýr
enda notast hún við venjulegan vef-
miðlara og gerir rándýran búnað
sem bæði viðtakandi og sendandi
þurfti að hafa óþarfan.
-JHÞ/Byggt á CNN
Galli í Netscape-
vafranum lagaður
Christian Orellana, starfsmaður CaboComm í Danmörku, uppgötvaði fy
ir skömmu alvarlegan galla i vafranum Netscape Navigator. Gallinn lýí
sér þannig að með því að hitta rétt á forritið var hægt að skoða hari
diskinn hjá öðru fólki á vefnum. Þetta er mjög svipaður galli og Microsc
þurfti að glíma við fyrr á þessu ári. Orellana tók sig til og hringdi í Netsca]
til að tilkynna þeim þetta. Og ekki nóg með það, heldur krafðist hann þe
að fyrirtækið greiddi honum þá upphæð sem hann nefndi fyrir að lýsa n
kvæmlega gallanum. Netscape voru tregir til að fallast á það.
Gallinn uppgötvaðist reyndar en forsvarsmenn Netscape sögðu að þet
gæti aðeins gerst í mjög sérhæfðum tilfellum og krefðist þess að maður vis
nokkuð nákvæmlega hvað væri á viðkomandi harða diski. Engu að síði
kom þessi tilkynning á mjög slæmum tima fyrir Netscape, eða rétt eftir ;
þeir komu með nýjustu útgáfu vafra síns, Netscape Communicator 4.0.
Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa þó engar áhyggjur af því að þessar fré
ir hafi neikvæð áhrif á sölu Netscape. Þeir sögðu líka að verið sé að kon
þessum galla í lag og að lagfæring verði líklega komin á síðuna í dag.
-HI/AE
Sólar- & öryggisfilma, glær og lituð, stórminnkar
sólarhitann, ver nær alla upplitun.
Gerir gleríð 300% sterkara, brunavamarstuðull.
Setjum á bæði hús og bíla.
Skemmtilegt hf.
Sfmi 567 4727 J
Óskalisti
brúðhjónanna
Gjafaþjómista fyrir
brúðkaupið
SILFURBÚÐIN
Kringlunni 8-12 *Sími 568 9066
- Þarfœröu gjöfina -
JM-Anr
ussssssss...
JUN-AIR - þessar hljóðlátu!
ISKÚIAS0H 6JÚHSS0H
lSKÚTUVOGI 12H • SÍMI 568-6544