Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1997, Blaðsíða 30
38
MÁNUDAGUR 23. JÚNÍ 1997
Hringiðan
Hljómsveitin Moonboots hélt óvenjulega
tónleika uppi á þaki Tunglsins á föstudag-
inn. Söngvari sveitarinnar, Svavar Knútur
Kristinsson, er hér á ystu nöf viö söng sinn.
Krakkarnir af leikskolanum Sólborg fóru í sumar-
ferð út í Viöey á laugardaginn. Systurnar Margrét
Sif og Sigrún Hlín Sigurðardætur, Helga Karls-
dóttir og bræðurnir Siguröur Stefán og Pór Örn
Flygenring voru öll með góða skapið meö sér.
Meðlimir í hljómsveitinni Sóma
IV héldu uppi ballstemningu á Ing-
W ólfstorgi á föstudaginn þegar hún
' tók þar nokkur lög á síödegistón-
leikum Hins hússins.
Spjöld sögunnar er yfirskrft sýningar Þórdísar Öldu Sigurðardóttur sem
hún opnaði á laugardaginn. Þórdís Alda er hér ásamt Helgu Júlíusdótt-
ur, írisi Friðriksdóttur og Gunnari Árnasyni við það tækifæri.
Sveinn Ólafsson er á leiðinni
upp að altarinu núna í lok júní
þannig aö félagar hans héldu
honum ærlegt steggjapartí. þar
var hann látinn fara í teygjustökk
íklæddum pallíettskreyttum El-
visbúningi. Hér er „Elvis“ rétt
áöur en hann lét flakka.
Philippe Ricart Æ
opnaði sýningu á^xjM
textílverkum eftir sig unn-
in meö blandaðri tækni í Stöðlakoti
á laugardaginn. Rebekka Ragnarsdóttir og
Haukur Rósinkranz kíktu á.
#fc.: 4
Þaö var boöiö upp á
skemmtilega nýung á
síðdegistónleikum Hins
hússins á föstudaginn
þegar nemendur af
námskeiði frá Eskimo
models sýndu föt frá
versluninni Smash.
Fjölmenni var viö vígslu nýrrar heilsugæslustöðvar í Laugarási í Biskups-
tungum á laugardag. Meðal gesta voru hjónin á Vorsabæ á Skeiðum, Emil-
ía Kristbjörnsdóttir og Jón Eiríksson, Matthildur Róbertsdóttir hjúkrunarfor-
stjóri og maöur hennar, Jens Pétur Jóhannsson rafverktaki.